

Hópur þrettán fjárfesta, þar á meðal Stefnir, Lífsverk og fjárfestingafélagið Gnitanes, hefur höfðað mál á hendur Gamma Capital Management, dótturfélags Kviku banka, vegna þess hvernig staðið var að rekstri sjóðsins GAMMA:ANGLIA, sem fjárfesti í fasteignaþróunarverkefnum í Bretlandi. Fjárfestahópurinn segir Gamma meðal annars hafa blekkt fjárfesta með því að upplýsa ekki um að sjóðurinn hafi verið vanfjármagnaður frá upphafi, fjárfest langt um efni fram og handstýrt gengi hlutdeildarskírteina.
Gísli Hauksson, einn stofnenda fjárfestingasjóðsins GAMMA, hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Fyrrverandi sambýliskona Gísla segist þakklát því að málinu sé lokið fyrir dómstólum, tveimur árum eftir árásina,
Gísli Hauksson, einn stofnenda fjárfestingasjóðsins GAMMA, játaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hafa í maí árið 2020 ráðist á þáverandi sambýliskonu sína.
Sjóðastýringarfélagið GAMMA Capital Management, dótturfélag Kviku banka, hagnaðist um nærri 221 milljón króna eftir skatta í fyrra borið saman við tap upp á 238 milljónir á árinu 2020. Er þetta í fyrsta sinn sem félagið, sem Kvika keypti snemma árs 2019, skilar hagnaði frá 2017 en uppsafnað tap GAMMA á árunum 2018 til 2020 nam yfir 820 milljónum.
Athafnamaðurinn Gísli Hauksson hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa ráðist á þáverandi sambýliskonu sína með ofbeldi á heimili þeirra í Reykjavík í maí 2020.
Um daginn keypti Þorpið, félag sem stofnað var til með 1,5 m.kr. hlutafjárframboði byggingarétt í Ártúnsholti fyrir sjö milljarða króna. Eigið fé þessa félags var neikvætt um 3,9 m.kr. um síðustu áramót, það skuldaði þá meira en það átti.
Félag í eigu hjónanna Aðalsteins Karlssonar, fjárfestis og fyrrverandi eiganda heildverslunarinnar A. Karlsson, og Steinunnar Margrétar Tómasdóttur hefur keypt húsið við Garðastræti 37 í Reykjavík á 420 milljónir króna.
Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxar Fiskeldis, er nýr formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins. Tók hann við stöðunni af Gísla Haukssyni, gjarnan kenndum við Gamma, en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Gísli hefði verið kærður fyrir líkamsárás.
Ellefu fyrrverandi starfsmenn GAMMA, dótturfélags Kviku banka, fá ekki tugmilljóna kaupauka sem þeir áttu eftir að fá greidda út.
Verulegur skortur var á formfestu við ákvarðanatöku og utanumhald með verkefnum innan Upphafs fasteignafélags, sem er að fullu í eigu fjárfestingasjóðsins Gamma: Novus.
Verktakafyrirtæki greiddi lykilstarfsmanni GAMMA tugmilljónir króna um svipað leiti og virði fasteignasjóðsins lækkaði verulega. Núverandi eigendur sjóðsins hafa tilkynnt málið til héraðssaksóknara.
Þar með segir GAMMA að fjárhagslegri endurskipulagningu fasteignafélagsins Upphafs sem er í eigu fjárfestingasjóðsins GAMMA: Novus.
Stjórnendur GAMMA hafa fengið óháðan sérfræðing til að fara yfir allar greiðslur sem hafa verið greiddar af bankareikningum Upphafs síðustu ár. Sjóðsfélagar Novus hafa leitað eftir því að þáttur endurskoðanda sé kannaður.
Kvika banki mun leggja Upphafi fasteignafélagi, sem er í eigu sjóðsins Novus í stýringu GAMMA, til um 500 milljónir króna í aukið fjármagn með kaupum á forgangsskuldabréfi til tveggja ára, samkvæmt heimildum Markaðarins.
Máni Atlason, framkvæmdastjóri Gamma, fagnar fengu samþykki á skilmálabreytingum hjá skuldabréfaeigendum í fasteignafélaginu Upphafi á fundi aðilanna í dag.
Gylfi Magnússon dósent segir óhjákvæmilegt að stundum skili fjárfestingar tapi.
Eignir í fjórum af fjörutíu sjóðum í rekstri hjá Gamma Capital Management hafa rýrnað verulega á þessu ári. Þannig tóku tveir sjóðir þátt í skuldabréfaútboði WOW Air á síðasta ári sem féll í mars og eignir tveggja fasteignasjóða hafa verið færðar niður eftir að nýir stjórnendur tóku við. Framkvæmdastjóri Gamma segist ekki vera kunnugt um að fleiri sjóðir Gamma séu í vandræðum en þeir tveir sem þegar hefur verið tilkynnt um.
GAMMA stóð afar höllum fæti í fyrra. Fjármálafyrirtækið, sem er hvað þekktast fyrir fjárfestingar sjóða í stýringu félagsins á fasteignamarkaði, var nauðbeygt fyrir um ári til að sækja sér lán upp á einn milljarð króna til nokkurra mánaða á svimandi háum kjörum frá fjárfestingafélaginu Stoðum.
Fasteignaþróunarfélagið Upphaf sem er í eigu Gamma:Novus er með hátt í þrjú hundruð íbúðir í byggingu eða sölu á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdastjóri Gamma segir mikilvægt að fá aukið fjármagn inní félagið til að halda framkvæmdum áfram.
Forstjóri Sjóvá segir að tryggingafélagið áskilji sér allan rétt til að fara fram á að gerð verði úttekt á því hvað fór úrskeiðis í rekstrarsjóðnum Gamma:Nova.Fulltrúar félagsins áttu fund með nýjum stjórnendum Gamma í gær. Framkvæmdastjóri Gamma segir að lögð hafi verið fram áætlun um hvernig hægt sé að verja verðmæti kröfuhafa í sjóðnum.
Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, segir að ótal spurningum sé enn ósvarað varðandi það hvernig það gat gerst að eignir tveggja fagfjárfestasjóða í rekstri Gamma rýrnuðu um annars vegar 99 prósent í tilviki Gamma: Novus og hins vegar um 60 prósent í tilviki Gamma: Anglia.
Sölvi Blöndal, sem starfað hefur sem efnahagsráðgjafi Gamma, hefur ákveðið að róa á önnur mið.
Framkvæmdastjóri verkfræðistofu sem vann kostnaðarmat vegna byggingar 129 íbúða á Kársnesi segir að kostnaðaráætlun fyrirtækisins hafi verið hunsuð og stjórnendur Upphafs fasteignafélags hafi samið aðra áætlun innanhúss og kynnt hana hagsmunaaðilum. Sú áætlun hafi verið verulega vanáætluð.
Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja segir að niðurfærsla á gengi Gamma:Novus rekstrarsjóðsins sé litið grafalvarlegum augum.
Grunur um að ekki hafi verið eðlilega staðið að greiðslum til félaga sem komu að verkefnum Upphafs. Félag Guðbjargar í Eyjum fjárfesti fyrir hundruð milljóna í sjóð GAMMA og Stoðir fyrir 500 milljónir í skuldabréfaútboði.
Hagnaður fjárfestingafélags Gísla Haukssonar, fyrrverandi forstjóra og annars stofnenda GAMMA, nam tæplega 1.083 milljónum króna í fyrra og jókst um einn milljarð á milli ára.
Fagfjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir, tapa tæpum þremur milljörðum króna vegna niðurfærslu á gengi tveggja sjóða í rekstri Gamma. Þá hefur þetta neikvæð áhrif á afkomu tryggingafélaga. Nýir stjórnendur Gamma segja ástæðuna meðal annars vera endurmat eigna og hærri byggingakostnað. Formaður VR vill að fram fari rannsókn.
Ekkert verður af skráningu Almenna leigufélagsins á Aðalmarkað. Sjóðfélagar fá aðkomu með skipan fimm manna fjárfestingarráðs. Þóknun lækkuð um 75 prósent og til skoðunar að slíta sjóðnum og færa félagið beint til hluthafa.
Framkvæmdastjóri segir engu að síður að reksturinn hafi gengið mjög vel. Um áherslubreytingu sé að ræða eftir flutning til Kviku banka.
Samkvæmt ársreikningi Stoða, sem var lagður fyrir aðalfund síðastliðinn fimmtudag, námu fjárfestingar á árinu 2018 samtals 5,3 milljörðum og var eigið fé félagsins um 17,5 milljarðar í lok ársins.