Mannréttindi

Róbert Spanó kjörinn forseti Mannréttindadómstólsins
Róbert Spanó var í dag kjörinn forseti Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann verður fyrsti Íslendingurinn til að gegna þessari stöðu.

Mannréttindabrot í boði kerfisins?
Algengt er að hjón og sambúðarfólk leiti til lögmanna eftir ráðgjöf tengdum skilnaði. Sú ákvörðun að leita til lögmanns vegna skilnaðar, forsjár, lögheimilis, umgengni eða meðlags er ákvörðun sem er ekki tekin af léttúð og leita einstaklingar slíkrar sérfræðiráðgjafar aðeins í neyð.

Grípa til ráðstafana vegna stöðu hælisleitenda sem bíða brottvísunar
Útlendingastofnun hefur ákveðið að breyta mati sínu á þeim aðstæðum sem geta leitt til þess að svokölluð Dyflinnarmál og verndarmál verði tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Menntun og mannréttindi fatlaðra barna og ungmenna
Jöfn tækifæri barna og ungmenna til náms eru mikilsverð mannréttindi sem ríki heims hafa viðurkennt og staðfest í mörgum fjölþjóðlegum mannréttindasamningum og með yfirlýsingum sínum varðandi heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar og verndun mannréttinda á tímum COVID19
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna heimsfaraldrar kórónuveiru eru margar skiljanlegar og einhverjar ágætar. En það eru tvær aðgerðir sem vekja sérstaka athygli mína og ég hef ákveðnar efasemdir um.

Gagnrýndi veru Venesúela í mannréttindaráðinu
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra gagnrýndi veru Venesúela í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sínu þar í gær. Hann segir áherslum Íslands hafa verið vel tekið.

Segja foreldra Maní hafa afþakkað að viðtal væri tekið við drenginn
Útlendingastofnun segir að framburður foreldra hafi legið til grundvallar ákvörðun stofnunarinnar í máli hins íranska Manís sem hafnað hefur verið um alþjóðlega vernd hér á landi. Foreldrar hans hafi afþakkað boð Útlendingastofnunar um að viðtal væri tekið við barnið.

Spurði um stefnu Útlendingastofnunar í málefnum hinsegin fólks
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, telur að skýra þurfi stefnu og verkferla Útlendingastofnunar hvað varðar mál hinsegin fólks.

Ísland sannar erindi sitt
Seta Íslendinga í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í hálft kjörtímabil sýnir glögglega erindi Íslands á alþjóðavettvangi.

Prófsteinn á hvernig utanríkisþjónustan tekst á við stór og vandasöm verkefni
Utanríkisráðuneytið hefur gefið út skýrslu vegna setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna sem lauk nú um áramótin.

Bein útsending: Mannréttindi og hlutverk smærri ríkja á alþjóðavettvangi
Í tilefni af Alþjóðadegi mannréttinda býður Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytið og Mannréttindaskrifstofa Ísland til umræðu um mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið standi vörð um mannréttindi og hvernig smærri ríki geta látið til sín taka á þeim vettvangi.

Mál Íslands snúist ekki um sjálfstæði dómstóla
Íslensk stjórnvöld krefjast þess að yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hafni niðurstöðu dómstólsins frá í vor um að Ísland hafi gerst brotlegt við sjöttu grein mannréttindasáttmála Evrópu með skipan fjögurra dómara í Landsrétt.

Yfir milljón múslimar í fangabúðum
Á sunnudag voru birt skjöl sem lekið hafði verið úr gagnagrunni kínverska Kommúnistaflokksins. Í skjölunum kemur fram að á bilinu ein til ein og hálf milljón múslima er í keðju fangabúða í vesturhluta landsins. Markmiðið er að endurmennta múslima.

Baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi
Árleg Ljósaganga UN Women fer fram í dag frá Arnarhóli. Í kvöld kemur tónlistarmaðurinn Auður fram í Hannesarholti ásamt fleirum og rennur allur ágóði af sölu miða beint til UN Women.

„Lygi sem er sögð milljón sinnum verður staðreynd“
Upplýsingaóreiða hefur aldrei verið meiri í heiminum og staða sjálfstæðra fjölmiðla aldrei verri. Þetta segir Maria Ressa, reynd blaðakona frá Filippseyjum, en hún sætir ákærum í heimalandinu sem geta varðað allt að 63 ára fangelsi.

Ísland skipi sér í fremstu röð varðandi réttindi barna
Samstarfssamningur um aukin réttindi barna á Íslandi var undirritaður í Salnum í Kópavogi í morgun.

Skipun þverpólitískra þingmannanefnda ekki alltaf æskileg
Ekki er alltaf æskilegt að stofna þverpólitíska þingmannanefndir til að fara ofan í saumana á lagasetningu sem þarf að bæta. Þetta kom fram í máli umboðsmanns Alþingis á fundi hans með þremur þingnefndum í morgun.

Mannréttindaskrifstofan rær lífróður
Dómsmálaráðherra er bjartsýn á að unnt verði að útvega fé til reksturs Mannréttindaskrifstofu Íslands á næsta ári. Allt stefndi í að starfsfólki og húsnæði yrði sagt upp í gær og skrifstofunni lokað vegna fjárskorts. Framtíð skrifstofunnar hefur verið í óvissu.

Nýjar tillögur um þróun norræns samstarfs um mitt næsta ár
Gert er ráð fyrir að nýjar tillögur verði settar fram í skýrslunni sem muni liggja fyrir um mitt næsta ár.

Gengur gegn hagsmunum barns að fangelsa foreldri
Það gengur beinlínis gegn hagsmunum barna að fangelsa foreldri fyrir tálmun á umgengni, líkt og frumvarp sem liggur fyrir Alþingi gerir ráð fyrir. Þetta segir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands sem mælir harðlega gegn því að frumvarpið verði samþykkt.

Mannréttindabrot framin á hverjum degi á einstaklingum með geðrænan vanda
Landsamtökin Geðhjálp sendu rétt í þessu frá sér ályktun þar sem fullyrt er að mannréttindabrot séu framin á hverjum degi á einstaklingum með geðrænan vanda í skjóli gildandi lögræðislaga þar sem túlkanir hafi verið hinum lögræðissvipta mjög í óhag.

Venesúela tekur sæti í mannréttindaráði SÞ
Suður-Ameríkuríkið Venesúela hlaut í daga sæti í Mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna, þrátt fyrir að ríkisstjórn Nicolas Maduro hafi verið gagnrýnd víða um heim fyrir meint brot á mannréttindum.

Skortir lagaheimildir fyrir þvingunarrúrræðum sem beitt er á geðdeild
Fullnægjandi lagaheimildir eru ekki til staðar í íslenskri löggjöf til að taka ákvarðanir gagnvart frelsissviptum einstaklingum á geðheilbrigðisstofnunum sem geta falið í sér inngrip í réttindi sem varin eru í stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.

Mannréttindi manna sem ekki standa skil á sköttum
Mannréttindi þeirra sem hafa gerst sekir um skattalagabrot hafa verið töluvert í umræðunni undanfarin misseri. Sérstaklega sú tilhögun skattamála hér á landi að einstaklingar sem ekki telja rétt fram til skatts, eða svíkja undan skatti, geta staðið frammi fyrir því að sæta bæði álagi samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda og refsingu eða sektargerð fyrir dómi í kjölfar ákæru.

Kynferðisbrot og mansal þrífist enn innan friðargæslunnar
Ekkert einasta friðargæsluverkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna er laust við spillingu eða ofbeldi af hálfu friðargæsluliða. Þetta segir fyrrverandi starfsmaður Sameinuðu þjóðanna sem kom upp um mannréttindabrot friðargæsluliða í Bosníu.

Fullveldi og mannréttindi
Fullveldi herlausrar smáþjóðar er ekki sjálfgefið, ekki síst þegar stórþjóðir beita aflsmunum sínum. Þetta reyndu Íslendingar í hernáminu.

Þungunarrofsbann á Norður-Írlandi talið brjóta gegn mannréttindum
Lögin verða þó ekki felld úr gildi þar sem skammt gæti verið þar til þungunarrof og samkynjahjónabönd verða lögleidd náist ekki að mynda heimastjórn á Norður-Írlandi.

Mannréttindi – drifkraftur breytinga
Alþjóðadag án ofbeldis ber upp á afmælisdag Mahatma Gandhi sem fæddist 2. október fyrir réttum 150 árum. Ísland er eitt friðsælasta land veraldar og landsmenn eru áfram um að leggja lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn ofbeldi og fyrir mannréttindum.

Loftslagsbreytingar ekki fjarlæg kenning heldur augljós sannleikur
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á baráttuna gegn hlýnun jarðar, mannréttindi og endurbætur á alþjóðakerfinu í samræmi við grunngildi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sem hann flutti á allsherjarþinginu nótt.

Getum verið stolt af okkar verki í mannréttindaráðinu
Á morgun lýkur 42. fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, fjórðu og síðustu reglubundnu lotunni sem Ísland tekur þátt í sem fullgildur meðlimur.