Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Takmarka verulega komur til landsins vegna stöðu faraldursins
Yfirvöld í Ástralíu ætla að setja takmarkanir á fjölda þess fólks sem fær að koma inn í landið eftir aukinn fjölda kórónuveirutilfella.

„Pínu töff að vera með bæði, Astra og Pfizer“
Þó einhverjir hafi ákveðið að fara úr röðinni að Laugardalshöll þegar tilkynnt var um að Astra Zeneca bóluefnið væri búið og að bólusett yrði með Pfizer í staðinn var því almennt vel tekið . Bólusetningar með seinni skammti af Astra Zeneca fóru fram fyrri hluta dags – eða þar til efnið kláraðist.

Tveir Víkingar í sóttkví
Tveir leikmenn Pepsi Max-deildarliðs Víkings eru komnir í sóttkví eftir að hafa umgengist leikmann Fylkis sem er með kórónuveiruna.

AstraZeneca klárast: Boðið upp á Pfizer í seinni bólusetningu
Vegna skorts á AstraZeneca-bóluefni verður þeim sem áttu eftir að fá seinni skammtinn boðið að fá Pfizer.

Körfuboltastelpurnar klikka ekki á því að láta bólusetja sig
WNBA deildin segir að 99 prósent leikmanna deildarinnar séu búnir að láta bólusetja sig.

Alls ekki ólíklegt að gæludýrin smitist af mannfólkinu
Það er alls ekki óalgengt að gæludýr hvers eigendur hafa greinst með Covid-19 séu sömuleiðis smituð. Þetta hafa rannsóknir hollenskra vísindamanna leitt í ljós. Þeir mæla fólki frá því að knúsa dýrin á meðan veikindi eru á heimilinu.

Skráðu sig í sóttkví vegna villu í rakningarappi
Vegna villu í smitrakningarappininu, Rakning C-19 appinu, fyrir iPhone hefur hópur notenda fyrir mistök fengið tilkynningu um útsetningu fyrir COVID-19 smiti, ásamt boði um að skrá sig í smitgát.

Stuðningsfólk Englands fær ekki að ferðast til Ítalíu til að sjá leikinn gegn Úkraínu í 8-liða úrslitum
Leikur Englands og Úkraínu í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu fer fram í Rómarborg á Ítalíu. Vegna sóttvarnareglna þar í landi verður ekkert stuðningsfólk Englands á leiknum, nema það sé búsett utan Englands.

Matsatriði hverju sinni hvort bólusettir þurfi í sóttkví
Fólk sem hefur verið bólusett fyrir Covid-19 skal panta tíma í sýnatöku sem fyrst ef það fær einkenni sem minna á Covid-19. Hann á að halda sig heima og ekki fara í skóla eða vinnu. Bólusettir þurfa ekki að vera í sóttkví vegna minniháttar útsetningar.

Tveir greindust með Covid-19 innanlands
Tveir greindust með kórónuveiruna frá mánudegi til miðvikudags. Annar var utan sóttkvíar. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir að búið sé að ná utan um smitið sem var utan sóttkvíar.

Smit hjá Fylki
Leikmaður Fylkis í Pepsi Max deild karla hefur greinst með kórónuveiruna en vefmiðillinn 433.is greinir frá þessu í kvöld.

Segir Íslendinga tuða mest yfir röðum á flugvellinum
Lögregla á Keflavíkurflugvelli finnur vel fyrir auknum straumi ferðamanna til landsins. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir Íslendinga tuða mest allra þjóða yfir biðröðum á flugvellinum en fæstir þeir ferðamenn sem fréttastofa ræddi við komu hingað til lands til að sjá eldgosið í Geldingadölum.

Guðni fullbólusettur og hvetur fólk til að styðja bólusetningarherferð Unicef
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fékk í dag síðari sprautu bóluefnis AstraZeneca í dag. Þessu greinir hann frá á Facebook og skrifar að hann sé nú í hópi ríflega 65 prósenta Íslendinga sem eru orðnir fullbólusettir.

Krónan og viðskiptavinir leggja 8,3 milljónir króna til dreifingar bóluefna gegn COVID-19
Rúmar 8,3 milljónir króna söfnuðust í fjáröflunarátaki Krónunnar og viðskiptavina hennar, í samstarfi við átak UNICEF á Íslandi - Komum því til skila. Þær renna óskertar í söfnun UNICEF fyrir dreifingu á bóluefni gegn COVID-19 í efnaminni ríkjum.

„Þetta er ekki einu sinni vont“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var á meðal þeirra sem bólusettir voru með bóluefni AstraZeneca í dag. Um var að ræða bólusetningu með seinni skammti.

Skora á stjórnvöld að grípa til aðgerða því Covid auki ójöfnuð
Ný skýrsla sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um efnahagsleg áhrif telur aðgerða þörf til að sporna gegn auknum ójöfnuði.

Óvenjulegt að fólk kvarti og láti í sér heyra vegna bólusetninga
Sóttvarnalæknir var bólusettur með seinni skammti af bóluefni AstraZeneca í Laugardalshöll í dag. Hann kveðst ekki kvíðinn því að fá mögulega hausverk eða hita eftir sprautuna. Hann segir stefnt á að hefja bólusetningu barna 12 til 15 ára í haust.

Segir rannsóknir benda til að endurbólusetja þurfi Janssen-þega
Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir og prófessor í ónæmisfræði, segir góðar líkur vera á því að þeir sem hafi fengið bóluefni Janssen muni þurfa á annarri sprautu að halda til að fá næga vörn gegn kórónuveirunni. Rannsóknir bendi til að „allar líkur“ séu á að þurfi að endurbólusetja þennan hóp.

Hinn eini sanni b5 opnar í nýju húsnæði
Skemmtistaðurinn b5 mun opna aftur í sumar eftir árshlé á starfsemi sinni. Hann verður hins vegar ekki í Bankastræti 5 eins og forðum, en þaðan dregur staðurinn nafn sitt, heldur á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs, þar sem Hverfisbarinn var áður til húsa.

Ákúrur Kim kveikja áhyggjur af faraldri í Norður-Kóreu
Kimg Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, skammaði hátt setta embættismenn fyrir örlagarík mistök í að kom í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar sem hafi valdið „miklu neyðarástandi“. Orð Kim eru talin vísbending um að veiran leiki landið nú grátt.

Sprenging í lýtaaðgerðum í heimsfaraldri
„Fólk er auðvitað að horfa í myndavélina á fjarfundum og sjá þá allar hrukkur og augnpoka sem hanga yfir augnlokin,“ segir Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir í samtali við Bítið í morgun.

Löng röð eftir bóluefni AstraZeneca
Löng röð hefur myndast eftir bólusetningum í Laugardalshöll og nær hún langt upp á Suðurlandsbraut. Í dag er bólusett með seinni skammti af bóluefni AstraZeneca.

Rauðglóandi símalínur vegna bólusetningar barna
Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir gríðarlegan áhuga meðal foreldra á að láta bólusetja börnin sín við kórónuveirunni. Börn fædd síðar en 2005 verða ekki bólusett fyrr en í fyrsta lagi eftir að skólahald hefst í haust.

Geta valið hvort þeir láta bólusetja sig... en samt ekki
Rússnesk stjórnvöld segja íbúum landsins frjálst að ákveða hvort þeir þiggja bólusetningu eður ei en margir eiga á hættu að missa vinnuna ef þeir segja nei.

Covid-19 út, klassískt kvef inn
Það er fyrirsjáanlegt: Að öllum sóttvarnaráðstöfunum hafi verið aflétt á Íslandi hefur í för með sér að sóttvarnir landsmanna verða lakari. Þessarar breytingar er strax farið að gæta á heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, þar sem nokkurt rennerí er á fólki vegna kvefsótta.

Óvissa eftir að forsætisráðherrann segir 40 ára og yngri geta fengið AstraZeneca
Ástralir eru nú sagðir óþreyjufullir gagnvart stjórnvöldum sem hafa komið á útgöngubanni í fjórum stórborgum í kjölfar fjölgunar Covid-smita síðustu daga. Bólusetningar ganga hægt og misvísandi skilaboð berast frá yfirvöldum.

FFP3 grímurnar veittu mun meiri vörn en skurðstofugrímurnar
Vísindamenn í Bretlandi hafa komist að því að svokallaðar FFP3 grímur veita umtalsvert meiri vörn en hefðbundar skurðstofugrímur. Samtök heilbrigðisstarfsmanna í landinu hafa löngum kallað eftir því að fá betri verndarbúnað.

„Farþegar þurfa að bíða í allt að þrjá tíma til að komast út af flugstöðinni“
Ferðamönnum sem koma til landsins í gegn um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað um frá um þúsund til tvö þúsund ferðamönnum á dag upp í fimm þúsund síðastliðnar tvær vikur. Í dag hafa lent 21 flugvél á Keflavíkurflugvelli og von er á fimm til viðbótar í kvöld.

Lengri vegalengdir Reykjavíkurmaraþonsins vinsælli eftir Covid
„Það gengur bara vel að undirbúa Reykjavíkurmaraþonið og það er mikil gleði yfir því að það sé búið að aflétta öllum takmörkunum,“ segir Eyrún Huld Harðardóttir í markaðsdeild Íslandsbanka.

Vörnin frá Pfizer og Moderna líkleg til að endast í mörg ár
Bóluefni Pfizer og Moderna eru líkleg til þess að veita langvarandi vörn gegn Covid-19. Ný rannsókn gefur til kynna að ekki verði þörf á viðbótarsprautu um nokkurra ára skeið eftir að maður hefur verið fullbólusettur.