Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Lést af völdum Covid-19 um helgina
Sjúklingur lést af völdum Covid-19 á Landspítalanum um helgina, laugardaginn 22. maí. Hinn látni var á sextugsaldri og var lagður inn fyrir um mánuði síðan. 30 hafa hér með látist af völdum veirunnar hér á landi.

Einn greindist innanlands og var utan sóttkvíar
Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sá sem greindist var utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta kórónuveirusmitið innanlands frá 19. maí.

Sjá fram á að þurfa að farga milljónum bóluefnaskammta
Yfirvöld í Hong Kong gætu neyðst til að farga milljónum skammta af bóluefnum gegn Covid-19 þar sem illa gengur að fá íbúa til að þiggja bólusetningu.

Slakað á grímuskyldu og samkomutakmörkunum
Breytingar á samkomutakmörkunum og öðrum sóttvarnaráðstöfunum tóku gildi nú á miðnætti. Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 150 manns. Markverðasta breytingin er sú að verulega er dregið úr kröfum um grímunotkun.

Giftu sig í flugvél til að komast hjá sóttvarnareglum
Indversk brúðhjón brugðu á það ráð að láta gefa sig saman í miðju flugi svo hægt væri að bjóða sem flestum gestum í brúðkaupið, án þess að þurfa að huga að gildandi samkomutakmörkunum.

Árný í Gagnamagninu með kórónuveiruna
Árný Fjóla Ásmundsdóttir, einn meðlimur hljómsveitarinnar Gagnamagnsins sem tók þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd um helgina, hefur greinst með kórónuveiruna.

Allt stöðvað í Færeyjum vegna fjölda smita og landsleikur Íslands mögulega í uppnámi
Gríðarlegur fjöldi kórónuveirusmita hefur greint í Færeyjum og hefur knattspyrna þar í landi verið stöðvuð tímabundið. Þar með gæti landsleikur Íslands og Færeyja ytra verið í uppnámi.

Hvorki fótbolti né messur vegna smita
Engir fótboltaleikir munu fara fram í Færeyjum í dag og guðsþjónustum hefur verið aflýst vegna fjölda smita sem greindust í gær. Sextán manns greindust með veiruna og hafa ekki fleiri smit greinst á einum degi frá því í desember síðastliðnum.

Enginn greindist innanlands fjórða daginn í röð
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, fjórða daginn í röð. Þá greindist enginn á landamærum heldur. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá almannavörnum.

Róleg vika í bólusetningum
Það stefnir í rólega viku í bólusetningum hér á landi. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við fréttastofu að 7.700 skammtar af Pfizer verði gefnir á miðvikudag á höfuðborgarsvæðinu.

Sextán smit greindust í Færeyjum í gær
Alls greindust sextán með kórónuveiruna innanlands í Færeyjum í gær. Fleiri smit hafa ekki greinst á einum degi frá því í desember síðastliðnum.

Yfir 300 þúsund nú látist af völdum Covid-19 á Indlandi
Yfir 300 þúsund hafa nú látist af völdum Covid-19 á Indlandi samkvæmt upplýsingum frá þarlendum heilbrigðisyfirvöldum. Sérfræðingar vara við því að raunverulegur fjöldi dauðsfalla geti verið mun hærri þar sem mörg þeirra séu ekki skráð með fullnægjandi hætti.

„Við skulum vona að þetta leiðindaástand sé að klárast“
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk boð um 82 sjúkraflutninga undanfarinn sólarhring. Þar af voru 28 forgangsverkefni og tvö í tengslum við Covid-19. Dælubílar voru kallaðir út tvisvar sinnum á sunnudag og aðfaranótt mánudags.

Stefnir í metár í fæðingum á Íslandi: „Börn sem hafa verið getin í kórónuveirufaraldrinum“
Það stefnir í metár í fæðingum á Íslandi. Gert er ráð fyrir að 5000 börn fæðist í ár, sem eru 500 fleiri en í fyrra.

Þriðji dagurinn sem enginn greinist með Covid-19
Enginn greindist smitaður af Covid-19 innanlands í gær. Einn greindist á landamærunum. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Almannavörnum.

Bóluefni Pfizer og AstraZeneca virka vel gegn indverska afbrigðinu
Bóluefni Pfizer og AstraZeneca, gegn Covid-19, virka vel gegn indverska afbrigði veirunnar. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar. Miklar áhyggjur hafa verið uppi um það hvort bóluefni muni virka gegn afbrigðinu og vekja niðurstöðurnar von í brjósti margra.

Fyrstu smit ársins hafa greinst í Færeyjum
Fjórir hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni í Færeyjum og eru nú í einangrun. Þetta eru fyrstu staðfestu smitin þar í landi frá því að nýtt ár gekk í garð.

Hugsanlega engar skráðar sóttvarnarreglur upp úr miðju sumri
Sóttvarnalæknir telur að að öllu óbreyttu verði engar skráðar sóttvarnareglur hér á landi upp úr miðju sumri. Annan daginn í röð greindist enginn með covid-19 hér á landi í gær.

Enginn greindist smitaður í gær
Enginn greindist smitaður af Covid-19 í gær, hvorki innanlands né á landamærum. Þetta segir í bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

„Ekki kyssa eða knúsa fugla“
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, hvetur fólk til þess að kyssa ekki eða knúsa fiðurfé vegna salmonellufaraldurs sem gengur um Bandaríkin þessa stundina.

Allt annað líf að fá að standa berskjaldaður andspænis kúnnunum
Ætla má að veitingahúsa- og bareigendur landsins hafi margir hverjir séð tilefni til að gleðjast í dag yfir boðuðum tilslökunum á sóttvarnareglum. Það er Björn Árnason, eigandi Skúla Craft Bar, að minnsta kosti en hann segir það muna öllu að fá að afgreiða fólk grímulaus.

WHO segir dauðsföll vegna Covid mögulega þrisvar sinnum hærri en opinberar tölur segja
Mögulegt er að mun fleiri hafi dáið vegna Covid-19 en opinberar tölur segja. Þetta segja sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og áætla þeir að raunverulegur fjöldi látinna sé allt að tvisvar til þrisvar sinnum en talið er.

Hætt verði að skima bólusetta og börn um miðjan júní
Sóttvarnalæknir leggur til í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra um sóttvarnaaðgerðir á landamærum að um miðjan júní verði hætt að skima bólusetta, fólk með vottorð um fyrri Covid-sýkingu og börn. Í júní eða júlí verði stefnt að því að breyta tvöfaldri skimun í einfalda skimun og íhuga að hætta henni í framhaldinu.

Annmarkar í tölvukerfi aftra vottorðum fyrir blandaða bólusetningu
Annmarkar í tölvukerfi Embætti Landlæknis hefur orðið til þess að fólk sem fengið hefur blandaða bólusetningu, það er eitt bóluefni í fyrri sprautu og annað í seinni, hefur ekki fengið bólusetningarvottorð hingað til.

Áfram grímuskylda í Strætó
Tilslakanir á sóttvarnaraðgerðum og grímuskyldu munu ekki hafa áhrif á starfsemi Strætó. Áfram þurfa bæði farþegar og vagnstjórar að bera grímu.

Gagnrýnir færeyska utanríkisráðherrann fyrir að afþakka bólusetningu
Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, hefur gagnrýnt utanríkisráðherra sinn, Jenis av Rana, fyrir að afþakka bólusetningu gegn kórónuveirunni. Lögmaðurinn segir ráðherrann með þessu senda Færeyingum slæm skilaboð.

Bólusettir verða áfram skimaðir á landamærum
Bólusettir verða áfram skimaðir á landamærum og verður fyrirkomulag um tvöfalda skimun áfram óbreytt, að minnsta kosti til 15. júní. Er það meðal annars vegna þess að bólusettum á leið til landsins mun fjölga á næstunni.

150 mega hittast og almenn grímuskylda heyrir sögunni til
150 mega koma saman frá og með næsta þriðjudegi og fyrstu skref verða tekin í að aflétta grímuskyldu. Þetta staðfesti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra rétt í þessu.

Enginn greindist innanlands í gær
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær.

Svandís og Katrín kynntu breytingar innanlands og á landamærum
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblaði með tillögum sínum um aðgerðir innanlands.