Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Mikill erill fyrstu djammnóttina eftir afléttingar
Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt ef marka má dagbók hennar. Sextíu og átta mál voru skáð frá klukkan 17 í gærkvöldi til klukkan fimm í morgun. Þrír gistu fangageymslur og níu ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum.

Skilur pressuna á afléttingar en hvetur fólk til að fara áfram varlega
Forstjóri Landspítalans telur að það megi spyrja sig hvort saman fari hljóð og mynd varðandi allsherjarafléttingar sóttvarnatakmarkana hér á landi. Landspítalinn er sem stendur á neyðarstigi, hæsta mögulega viðbúnaðarstigi, vegna mikils álags.

Himinlifandi með afléttingar en hafa áhyggjur af nýrri ógn
Lífið á Íslandi varð með öllu hömlulaust á miðnætti þegar allar sóttvarnaaðgerðir vegna kórónuveirunnar voru felldar úr gildi. Framkvæmdastjóri í ferðaþjónustu og formaður nemendafélags fagna frelsinu en eru þó bæði uggandi yfir nýrri ógn.

Opið án takmarkana í fyrsta sinn frá opnun
Rekstrarstjóri Auto segir marga hafa kallað þá brjálæðinga fyrir að hafa opnað skemmtistað í miðjum heimsfaraldri. Í kvöld verður galopið og nú í fyrsta skipti án samkomutakmarkana.

Landspítali færður á neyðarstig
Landspítali hefur verið færður á neyðarstig. Farsóttarnefnd tók þessa ákvörðun og tók nýtt ástand gildi klukkan 14 í dag.

4.333 greindust innanlands í gær
4.333 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 126 á landamærum. Af þeim 4.333 sem greindust innanlands í gær greindust 3.100 í PCR-prófi og 1.233 í hraðprófi. Aldrei hafa svo margir greinst innanlands hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins.

Leiðbeiningar Þórólfs til landsmanna á afléttingardegi
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir gaf í morgun út leiðbeiningar til almennings í tilefni af því að öllum takmörkunum vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar var aflétt bæði innanlands og á landamærum.

Engar takmarkanir lengur í gildi vegna Covid
Öllum samkomutakmörkunum vegna Covid-faraldursins hefur nú verið aflétt, bæði innanlands og á landamærunum. Þá hefur krafa um einangrun þeirra sem greinast smitaðir verið felld niður. Þetta er í annað sinn sem samkomutakmörkunum innanlands hefur verið aflétt en nú hefur skrefið verið tekið að fullu, og vonandi í síðasta sinn.

Heilsugæslan kærð fyrir að versla hraðpróf fyrir 380 milljónir án útboðs
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hóf bæði verðfyrirspurnarferli og formlegt útboðsferli, en kláraði hvorugt og keypti inn hraðpróf fyrir tæplega 380 milljónir króna án útboðs.

Allt í lagi að kíkja á djammið annað kvöld — í galla
Á miðnætti í kvöld verður öllum sóttvarnatakmörkunum aflétt, hvort tveggja innanlands og á landamærum. Það þýðir að skemmtistaðir geta opnað á fullum afköstum fram á nótt í fyrsta sinn frá því í júlí.

Bóluefni við sóttvarnaraðgerðum eða COVID-19?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins stendur að einkennilegri auglýsingaherferð, þar sem reynt er að tæla ungmenni, sem eru jafnvel undir lögaldri, í bólusetningu í skiptum fyrir aukin samfélagsleg fríðindi.

Draga tilkynningu um dauðsfall af völdum Covid-19 til baka
Ekki er lengur talið að Covid-19 hafi átt afgerandi þátt í andláti einstaklings sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri um seinustu helgi. Þetta kemur fram í leiðréttingu frá viðbragðsstjórn spítalans sem hafði greint frá því að um væri að ræða fyrsta dauðsfallið þar af völdum faraldursins.

Vanda með veiruna og missir af ársþingi
Vanda Sigurgeirsdóttir, sitjandi formaður Knattspyrnusambands Íslands, missir af síðustu dögum kosningabaráttunnar fyrir formannsembættið þar sem hún hefur greinst með kórónuveirusmit.

3.349 greindust innanlands í gær og hafa aldrei verið fleiri
3.349 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 167 á landamærum. Aldrei hafa svo margir fengið jákvæða niðurstöðu úr sýnatöku á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins.

Kærkomið frelsi
Afnám allra sóttvarnartakmarkana eru kærkomin kaflaskil. Loks getum við byrjað að lifa og njóta þess að vera til án takmarkana, því ber að fagna ákaft.

Feginn að losna við grímuna: „Pabbi, þú ert kominn með flösu á nefið“
Öllum sóttvarnatakmörkunum verður aflétt á miðnætti annað kvöld. Forsætisráðherra segir þjóðina vera að endurheimta eðlilegt líf eftir faraldurinn en sóttvarnalæknir minnir enn á að þetta sé ekki alveg búið. Almenningur er sáttur ef marka má lítið úrtak fréttastofu.

Óttast mikið álag um helgina: „Nú verður þjóðin eins og kýr á vorin“
Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala, segir ljóst að aukið álag verði á spítalanum um helgina þegar engar takmarkanir vegna Covid verða í gildi. Reynslan sýnir að í kjölfar afléttinga verði veldisvöxtur á fjölda tilfella í samfélaginu sem hefur síðan áhrif á spítalann.

„Erum í miklu betri stöðu en þegar við afléttum í sumar“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er vongóður að sú bylgja kórónuveirunnar sem er í gangi núna fari fljótlega niður á við. Hann segir stöðuna núna mun betri en þegar takmörkunum var aflétt síðasta sumar.

Bólusettum leikmönnum bannað að spila fyrir Steaua Bucharest
Gigi Becali, eigandi rúmenska fótboltaliðsins Steaua Bucharest, hefur gefið það út að þeir leikmenn sem hafa fengið bólusetningu gegn Covid-19 muni ekki leika aftur fyrir félagið.

Faraldurinn valdi áfram miklum erfiðleikum og toppnum ekki enn náð
Covid-19 veldur áfram miklum erfiðleikum víða í samfélaginu vegna mikillar útbreiðslu en alvarleg veikindi eru fátíðari en áður. Undanfarna daga hafa greinst á milli 2.100 og 2.800 innanlands en alvarlegum veikindum hefur hins vegar ekki fjölgað sem því nemur.

Aflétta öllum takmörkunum á föstudag
Öllum sóttvarnatakmörkunum verður aflétt frá og með föstudeginum 25. febrúar, bæði innanlands og á landamærunum. Sömuleiðis fellur krafa um einangrun þeirra sem sýkjast af Covid-19 úr gildi.

Hætta nær alfarið notkun PCR-prófa
Ekki verður lengur í boði fyrir fólk með einkenni Covid-sýkingar að panta PCR-sýnatöku. Vegna mikils álags við greiningu verður notkun PCR-prófa nær alfarið hætt og hraðgreiningarpróf einungis í boði fyrir almenning. Fólk sem greinist með Covid-19 er ekki lengur skylt að fara í einangrun.

2.689 greindust smitaðir af veirunni í gær
2.689 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Þetta kemur fram á heimasíðu covid.is.

Ríkisstjórnin fundar um afléttingu aðgerða í hádeginu
Ríkisstjórnin mun í hádeginu funda um afléttingu sóttvarnaaðgerða, sem fyrirhugaðar eru í síðasta lagi á föstudag. Við verðum í beinni útsendingu frá Tjarnargötu.

Hefur verið frá í mánuð vegna covid: „Þetta er ömurlegt“
Handboltakonan Ragnheiður Júlíusdóttir hafði varla misst af leik á ferli sínum í meistaraflokki en nú hefur hún hvorki getað æft né spilað í um mánuð vegna kórónuveirunnar.

Erfitt að sjá hverju takmarkanir skila þegar útbreiðslan er svona mikil
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir erfitt að sjá hverju sóttvarnatakmarkanir skili nú þegar útbreiðsla kórónuveirunnar er jafn mikil og raun ber vitni. Hann stefnir að því að aflétta öllum sóttvarnaaðgerðum innanlands og á landamærum í síðasta lagi á föstudag.

Bareigendur til í slaginn um helgina og taka afléttingum fagnandi
Að óbreyttu verður tilkynnt um afléttingar á öllum takmörkunum innanlands og á landamærunum í síðasta lagi á föstudag. Bareigendur eru farnir að búa sig undir mikil skemmtanahöld um helgina.

Öllu aflétt í síðasta lagi á föstudag
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á von á því að tilkynnt verði um afléttingar innanlands og á landamærum í allra síðasta lagi á föstudaginn. Þetta kom fram í máli hans að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Afturför í jafnréttismálum á síðustu tveimur árum
COVID-19 heimsfaraldurinn, loftslagsbreytingar og átök hafa orðið til þess að afturför hefur orðið í jafnréttismálum í heiminum á síðustu tveimur árum.

2.415 greindust smitaðir innanlands í gær
2.415 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær.