Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
196 197 198 199 200 201 202 203 204 … 334 ›
Hefur áhyggjur af næstu dögum vegna mikilla hópamyndana Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru allir í sóttkví við greiningu. Fimm greindust á landamærunum og er beðið eftir niðurstöðu mótefnamælingar. 347 eru í sóttkví en þeim fjölgaði um 55 milli daga. 33 eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu. Innlent 13.12.2020 11:59
Sjö innanlandssmit og öll í sóttkví Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru öll í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is Fimm greindust á landamærunum og er beðið niðurstöðu mótefnamælingar. Innlent 13.12.2020 10:53
Vonbrigði að heyra af fjölda samkvæma og varhugaverðri hópamyndun á Laugavegi Lögreglan fékk þrjátíu tilkynningar um hávaða í heimahúsum í gærkvöldi og nótt og stór hópur fólk safnaðist saman á Laugaveginum vegna tónleika Auðar síðdegis í gær. Rögnvaldur Ólafsson, deildarstjóri almannavarnadeildar, segir mikil vonbrigði að heyra af þessu. Innlent 13.12.2020 10:21
Smitstuðullinn nú undir einum Smitstuðull er nú undir einum, samkvæmt rýni vísindamanna Háskóla Íslands sem birt var á föstudag. Fjöldi smitaðra fylgir nýrri sviðsmynd frá 26. nóvember - en tölurnar síðustu daga geta þó enn leitt af sér veldisvísisvöxt. Innlent 13.12.2020 08:55
Bandaríkjamenn hefja bólusetningar á mánudaginn Bóluefni Pfizer og BioNTech var í gær veitt neyðarleyfi í Bandaríkjunum og hefst bólusetning með því á mánudag. Skammtar fyrir þrjár milljónir verða fluttar til Bandaríkjanna nú um helgina. Erlent 12.12.2020 20:21
Staðfestir það sem samtökin óttuðust Tveir þriðju fyrirtækja í ferðaþjónustu standa nú frammi fyrir ósjálfbærri skuldsetningu og munu gera á næsta ári, samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Ferðamálastofu sem birt var í desember. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu segir skýrsluna staðfesta það sem samtökin óttuðust. Viðbúið sé að fjöldi fyrirtækja sé á leið í gjaldþrot. Innlent 12.12.2020 18:56
Icelandair gæti átt erfitt með að manna vélar ef eftirspurn eykst Icelandair hefur lítið svigrúm til að bregðast við aukinni eftirspurn á nýju ári að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Ástæðan sé sú að félagið verði að óbreyttu með mjög fáa flugmenn í vinnu í byrjun nýs árs að því er fram kemur í frétt á vef Túrista. Félagið geti aðeins mannað tvær til fimm farþegaþotur eftir áramót. Viðskipti innlent 12.12.2020 16:22
Veiran fannst í þremur skólum Í síðustu viku fóru nemendur í Laugarnesskóla í sóttkví eftir að veiran greindist þar í síðustu viku. 10 kennarar og um tólf nemendur í Hagaskóla eru komnir í sóttkví eftir að veiran greindist í nemendum. Þá eru nokkrir bekkir Austurbæjarskóla í sóttkví eftir að kennari greindist með smit í gær. Innlent 12.12.2020 15:02
„Ekkert ófremdarástand í gangi“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þremur útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem kvartað var undan hávaða út heimahúsi. Innlent 12.12.2020 14:20
Mætt aftur á Austurvöll til að mótmæla Mótmælendur sóttvarnaaðgerða eru samankomnir á Austurvelli til þess að lýsa yfir andstöðu við sóttvarnaaðgerðir. Þetta eru ekki fyrstu mótmælin, en vika er síðan hópurinn mótmælti síðast. Innlent 12.12.2020 14:12
Þeir sem eiga boð í gleðskap hugsi sig um hvar þeir vilji vera um jólin Rögnvaldur Ólafsson, deildarstjóri almannavarnadeildar, hvetur fólk til að hugsa sig um hvar það vill vera um jólin ef því hefur verið boðið í gleðskap í kvöld. Innlent 12.12.2020 13:00
„Hann átti góðan dag í gær“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er sagður á batavegi í Covid-veikindum sínum. Innlent 12.12.2020 12:02
„Þetta er áhættutími“ Sóttvarnalæknir segir stöðu faraldursins hér á landi ágæta en nú fari í hönd mikill áhættutími tengdur aðventunni. Fólk þurfi að passa sig vilji það ekki verja jólunum í veikindi Innlent 12.12.2020 11:55
Fimm greindust með covid-19 innanlands í gær Fimm greindust með covid-19 innanlands í gær. Þar af voru þrír í sóttkví en tveir utan sóttkvíar. Í uppfærðum tölum á covid.is kemur fram að nú séu alls 292 í sóttkví og 178 í einangrun. Fjölgar þannig um nokkra sem eru í sóttkví milli daga en þeim fækkar um tíu sem eru í einangrun. Rúmlega 1.200 sýni voru tekin í gær. Innlent 12.12.2020 10:56
Bóluefni Pfizer og BioNTech fær neyðarleyfi í Bandaríkjunum Lyfja- og matvælastofnun Bandaríkjanna hefur samþykkt neyðarleyfi fyrir bóluefni Pfizer og BioNTech gegn covid-19. Stofnunin segir leyfið marka stórt skref í baráttunni við heimsfaraldurinn sem hefur kostað um 295 þúsund mannslíf í Bandaríkjunum. Erlent 12.12.2020 09:47
Fimm mánaða senuþjófur þegar mamma segir frá sveitahótelinu Fimm mánaða drengur í Önundarfirði stelur senunni þegar mamma hans er í viðtali á Stöð 2 að segja frá því þegar fjölskyldan á bænum Tröð í Bjarnadal gerði upp gamla barnaskólann í Holti og breytti í sveitahótel. Lífið 12.12.2020 08:28
Hætta á að erlend stórfyrirtæki gleypi ferðaþjónustumarkaðinn Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, segir mikla hættu á því að erlendir ferðaþjónusturisar sópi að sér viðskiptavinum sem áður versluðu við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki. Viðskipti innlent 11.12.2020 23:31
Fyrstu skammtar til heilbrigðisstarfsfólks Um tíu þúsund manns munu að óbreyttu fá bóluefni við kórónuveirunni um áramót eftir samkomulag heilbrigðisráðuneytisins og lyfjaframleiðandans Pfizer í dag. Stærstur hluti þessarar fyrstu sendingar verður nýttur í að bólusetja heilbrigðisstarfsfólk. Innlent 11.12.2020 19:36
Börn allt niður í nokkurra mánaða gömul á farsóttarhúsinu Tólf umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelja í farsóttahúsinu eftir að hafa smitast í húsnæði Útlendingastofnunar fyrir hælisleitendur. Sviðsstjóri hjá Útlendingastofnuninni vísar á bug ásökunum um að sóttvörnum sé ábótavant í húsnæði á hennar vegum. Innlent 11.12.2020 18:51
Yfirmaður heilbrigðiseftirlitsins beint í vinnuna eftir Covid-19 sýnatöku Sigrún Guðmunsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins á Suðurlands, fór í sýnatöku vegna Covid-19 í gær. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þegar sýnatöku var lokið sneri hún aftur á skrifstofuna til vinnu. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 11.12.2020 17:16
Pfizer-skammtar fyrir tíu þúsund manns væntanlegir um áramótin Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa undirritað samning við bóluefnaframleiðandann Pfizer. Samningurinn kveður á um 170 þúsund skammta til Íslands sem dugir fyrir 85 þúsund manns. Áætlað er að fyrstu skammtarnir frá Pfizer berist um áramót, alls rúmlega 21 þúsund skammtar sem duga fyrir 10.600 manns. Innlent 11.12.2020 13:48
Þingmenn ná ekki saman um neyðarpakka Vinna þverpólitísks hóps bandarískra þingmanna að 900 milljarða dala neyðarpakka virðist engum árangri ætla að skila. Þá helst vegna andstöðu Repúblikana við að veita ríkjum og borgum Bandaríkjanna fjárhagslega aðstoð og deilum þingmanna sín á milli. Erlent 11.12.2020 12:39
Klasasmitið gerði útslagið en erum þó á svipuðu róli Sóttvarnalæknir segir klasasmit kórónuveirunnar sem kom upp í gær í búsetuúrræði fyrir hælisleitendafjölskyldur í Hafnarfirði hafa gert útslagið fyrir tölur gærdagsins. Þær séu þó á svipuðu róli og undanfarna daga en klasasmitið sýni hvað staðan sé viðkvæm. Innlent 11.12.2020 12:34
Hafa ítrekað bent á að sóttvarnir séu ekki í lagi Formaður hjálparsamtakanna Solaris segir það ekki koma á óvart að klasasmit hafi komið upp í búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samtökin hafi ítrekað bent á að sóttvörnum sé ábótavant í úrræðunum. Innlent 11.12.2020 12:11
Einn bekkur í sóttkví í tengslum við klasasmitið Sextán nemendur og tveir kennarar Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði eru í sóttkví eftir að nemandi greindist með kórónuveiruna fyrr í vikunni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er nemandinn einn íbúa búsetuúrræðis fyrir fjölskyldur í Hafnarfirði, hvar klasasmit veirunnar hefur komið upp. Innlent 11.12.2020 11:31
78 prósent smitaðra á höfuðborgarsvæðinu Alls greindust tólf með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru allir nema einn í sóttkví. Innlent 11.12.2020 11:16
Hættan sem blasir við ferðaþjónustunni Í ferðaþjónustu gildir að sjálfsögðu það sama og í öðrum viðskiptum, að mestu tekjurnar skila sér í beinu viðskiptasambandi milli þjónustuveitanda og viðskiptavinar. Með öðrum orðum, að gesturinn kaupi gistinguna, flugfarið, afþreyinguna eða veitingarnar beint af viðkomandi aðila. Skoðun 11.12.2020 11:00
Klasasmitið rakið til búsetuúrræðis fyrir fjölskyldur í Hafnarfirði Klasasmit kórónuveirunnar sem komið hefur upp á höfuðborgarsvæðinu er rakið til búsetuúrræðis á vegum félagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar fyrir fjölskyldur sem sótt hafa um alþjóðlega vernd. Innlent 11.12.2020 10:44
Sex af tólf innanlandssmitum gærdagsins tengjast klasasmitinu Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru ellefu í sóttkví. Af þeim sem greindust með veiruna í gær tengjast sex klasasmiti á höfuðborgarsvæðinu sem komið hefur upp í húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Innlent 11.12.2020 09:23
Smitrakningarteymið stendur við tölur um smit Smitrakningarteymi almannavarna stendur við tölur sínar um smit í líkamsræktarstöðvum og sundlaugum sem fjölmiðlar, þar á meðal Vísir, greindu frá í fyrradag. Innlent 11.12.2020 07:51