Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Fáir í miðbænum en fjölmennt unglingapartí stöðvað
Lögregluþjónar stöðvuðu þó eftirlitslaust unglingapartí í Kópavogi í gærkvöldi. 62 krakkar voru reknir úr húsinu og voru um það bil 20 fyrir utan.

Hátt í tveggja milljóna sekt fyrir ítrekuð brot
Íbúar í Bretlandi sem ítrekað hlíta ekki sóttkví eftir að hafa verið í samskiptum við smitaðan einstakling geta átt von á sektum sem nema allt að tíu þúsund pundum

Þykir ekki ástæða til að nafngreina hina staðina
Þeir veitingastaðir sem hafa verið til skoðunar í tengslum kórónuveirusmit undanfarinna daga hafa mjög óljósa tengingu við tilfelli

Íbúi í búsetukjarna greindist með kórónuveirusmit
Tíu starfsmenn velferðarsviðs hafa einnig greinst með smit og eru um fjörutíu í sóttkví vegna smitanna.

Búin undir það að smit gætu raskað samræmdu prófunum
Heill bekkur í 7. bekk í Melaskóla er nú í sóttkví eftir að smit greindist hjá nemanda í gær en samræmd könnunarpróf fara fram á fimmtudag og föstudag.

Enn á eftir að segja frá nöfnum þriggja staða sem tengjast COVID-smitum
Sóttvarnayfirvöld bíða nú eftir áliti frá lögfræðingum sínum um það hvort þau megi nafngreina þá staði í miðborginni þar sem fólk hefur smitast af kórónuveirunni.

Starfsmaður BrewDog smitaðist hugsanlega af viðskiptavini
Starfsmaður á veitingastaðnum BrewDog í miðbæ Reykjavíkur hefur greinst með kórónuveiruna.

Mjög áhugavert að skoða sameiginlegu snertifletina á djamminu
Um þriðjung þeirra smita sem greindust í gær má rekja til skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna í dag.

Einn smitaður í Melaskóla
Nemandi í sjöunda bekk í Melaskóla greindist með Covid-19 í gær. Þetta kemur fram í póst sem skólastjóri Melaskóla, Björgvin Þór Þórhallsson, sendi foreldrum og forráðamönnum nemenda í gær.

Segir þriðju bylgju faraldursins hafna
Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, segir þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins hafna.

Ekki rétt að leita að sökudólgum
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir til skoðunar að grípa til hertra aðgerða vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Verði það gert, sé markmiðið að kveða niður þessa bylgju eins hratt og auðið er. Einstaklingsbundnar varnir skili þó mestum árangri.

Áhorfendabann á leikjum KSÍ í dag
Komið hefur verið á áhorfendabanni á öllum leikjum KSÍ sem hefjast eftir kl. 14 í dag.

Tveir látnir og fjórtán særðir eftir skotárás í heimapartýi
Tveir eru látnir og fjórtán særðir eftir að skotárás var gerð í heimapartýi í Rochester í New York í nótt.

Áhorfendabann á leikjum á vegum HSÍ og KKÍ um helgina
Áhorfendur eru ekki leyfðir á handboltaleikjum á vegum HSÍ þessa helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu sambandsins sem send var á fjölmiðla.

Svona var 114. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirufaraldursins
Boðað hefur verið til upplýsingafundar vegna framgangs faraldurs kórónuveirunnar hér á landi í húsnæði landlæknis klukkan 14:00.

Aldrei fleiri greinst með veiruna í Danmörku
589 greindust með kórónuveiruna í Danmörku síðastliðinn sólarhring. Aldrei hafa fleiri smitast í Danmörku frá því að faraldurinn barst þangað til lands.

Vill „allt í lás“ næstu vikurnar
Nauðsynlegt er að fara í sömu hörðu aðgerðir og beitt var í vor. Það segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sem segir þann fjölda smita sem greindist í gær til marks að faraldur nýju kórónuveirunnar sé í hröðum vexti hér á landi. Jafnvel í veldisvexti.

Meðalaldur smitaðra lægri en áður
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir stöðuna alvarlega hér á landi. Fjöldi þeirra sem greindust með Covid-19 sé meira en samanlagður fjöldi smitaðra síðustu viku.

75 greindust með veiruna
75 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tuttugu og átta þeirra voru ekki í sóttkví við greiningu.

Landamærin lokuð, en veiran blossar upp að nýju; hver er nú syndaselurinn, Kári?
M.a. vegna hræðsluáróðurs skimunarpáfans var landamærum Íslands lokað 19. ágúst. Fyrir mánuði.Þetta átti að bjarga öllu gagnvart veirunni. Vera pottþétt lausn. Það var um að gera, að halda hættulegum útlendingum frá, þrátt fyrir stórskaðlegar afleiðingar á atvinnu- og mannlíf í landinu.

Almannavarnir boða til upplýsingafundar: Tölur yfir smitaða hærri en áður
Samkvæmt upplýsingum frá almannavarnadeildinni er ætlunin að senda þjóðinni skýr skilaboð vegna þróunar faraldursins.

Íslendingar fara í hundana
Hundaskortur er nú á Íslandi. Eftirspurn eftir því að taka að sér hund er miklu meiri en framboðið.

Hátt í milljón þarf að sæta hertum aðgerðum á Spáni
Íbúar stórra hluta Madrídar, höfuðborgar Spánar, munu frá og með næstkomandi mánudegi þurfa að sæta hertum samgöngu- og samkomutakmörkunum vegna hraðrar útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á Spáni.

Draga til baka umdeilda breytingu á leiðbeiningum um sýnatöku
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, hefur á nýjan leik breytt opinberum ráðleggingum sínum til bandarísks almennings hvað varðar kórónuveirufaraldurinn.

0,25 prósent starfsfólks með mótefni
Aðeins 0,25 prósent klínísks starfsfólks Landspítalans er með mótefni við Covid-19, samkvæmt niðurstöðum nýlegrar rannsóknar sem gerð var á starfsliði spítalans.

Hafa þurft að vísa ferðamönnum út vegna brota á sóttkví
Skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu hefur verið skellt í lás yfir helgina til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar.

„Ósköp eðlileg aðgerð að grípa til“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur eðlilega þá aðgerð sem sóttvarnayfirvöld hafa gripið til með lokun kráa og skemmtistaða eftir að talsverð fjölgun kórónuveirusmita hérlendis hefur verið rakin til slíkra staða í miðborg Reykjavíkur.

Smit greindist í Listaháskólanum
Kórónuveirusmit er komið upp í einu sóttvarnahólfa Listaháskóla Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu frá Fríðu Björk Ingvarsdóttur rektor.

Kórónuveiran og úlnliðsbrot í sömu vikunni
Hamfaravika í lífi hjónanna Ingu Auðbjargar og Helga Hrafns.

Fyrrverandi ráðgjafi Pence segir Trump standa á sama um mannslíf
Háttsettur ráðgjafi Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna sem sat í aðgerðahóp Hvíta hússins vegna kórónuveirufaraldursins en sagði af sér í síðasta mánuði hefur lýst yfir stuðningi við Joe Biden, frambjóðanda demókrata.