Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Leita enn uppruna þriðja afbrigðis veirunnar
Íslensk erfðagreining leitar enn uppruna þriðja afbrigðisins af kórónuveirunni sem slapp í gegnum landamærin en búið er að kveða niður.

Smit hjá starfsmanni RÚV
Ekki hefur þurft að senda neinn annan starfsmann stofnunarinnar í sóttkví vegna smitsins.

Endalok skrifstofurýma
Dagar skrifstofurýma eru senn taldir og skipuleggja þarf miðborgir upp á nýtt. Þá þarf að endurútfæra öll vinnuréttindi þar sem fjarvinna er komin til að vera.

Nítján greindust með veiruna í gær
Nítján kórónuveirusmit greindust hér á landi síðasta sólarhringinn. Þetta staðfestir Thor Aspelund prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands í samtali við Vísi.

Gagnrýndi yfirmann sóttvarnastofnunar fyrir ummæli um grímur og bóluefni
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt yfirmann Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eftir að sá sagði að bóluefni við Covid-19 yrði ekki komið í almenna notkun fyrr en um mitt næsta ár og að grímur gætu verið skilvirkari en bóluefni.

Kæmi ekki á óvart ef fleiri greindust með veiruna í dag en í gær
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, kveðst ekki eiga sérstaklega von á því að það greinist fleiri með kórónuveiruna í dag heldur en greindust í gær. Það kæmi þó heldur ekki á óvart.

Telur líkur á að næsta bylgja verði verri
Kári Stefánsson telur möguleika á hertum aðgerðum. Það sé þó ekki hans að ákveða. Hann segir þriðja afbrigði veirunnar hafa greinst fyrir skemmstu en það hafi náðst að kveða það niður. Hann telur líkur á að ný bylgja veirunnar verði mögulega verri en sú sem glímt var við um verslunarmannahelgina.

„Munum gera allt hvað við getum til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu“
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að allt verði gert til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kórónuveirunnar innan skólans.

Tveir nemendur við HR smitaðir
Tveir nemendur við Háskólann í Reykjavík eru smitaðir af Covid-19. Þetta kemur fram í tölvupósti viðbragðsteymis skólans vegna Covid-19 til nemenda.

Allir með „grænu veiruna“
Sóttvarnalæknir segir þá þrettán sem greindust innanlands í gær vera með sama afbrigði veirunnar og hefur valdið usla hér á landi síðan í sumar.

Sumir fagna fjarvinnu á meðan öðrum líður illa
Gallup mælir áhuga og upplifun fólks á fjarvinnu. Hér fer Sóley Kristjánsdóttir hjá Gallup yfir helstu atriði sem fólk upplifir sem kosti eða galla fjarvinnu.

Covid-smit hjá starfsmönnum tveggja íbúðakjarna fyrir fatlað fólk
Tveir starfsmenn íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Gripið hefur verið til nauðsynlegra aðgerða með það að leiðarljósi að hefta frekara smit, án þess að skerða þjónustu við íbúa.

Tveir starfsmenn HÍ á meðal nýsmitaðra
Annar starfar í Aðalbyggingu en hinn er með skrifstofu í Odda.


Undirbúa umfangsmikla skimun á vinnustöðum eftir gærdaginn
Yfirlögregluþjónn segir það áhyggjuefni hversu margir hafi greinst með kórónuveiruna innanlands í dag, og enn fremur að aðeins einn hafi verið í sóttkví við greiningu.

Þrettán greindust með veiruna í gær en aðeins einn var í sóttkví
Þrettán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær.

Dregur úr dánartíðni kórónuveirusmitaðra
Færri kórónuveirusmitaðir einstaklingar láta nú lífið af völdum veirunnar en í vor. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar vísindamanna við Oxford-háskóla í Bretlandi.

Konur miklu áhugasamari um fjarvinnu en karlar
Niðurstöður Gallup sýna að flestir vilja halda áfram að vinna í fjarvinnu að hluta til.

Nálægðartakmörk hafi minna að segja ef loftgæðin eru lítil
Nálægðartakmörk ein og sér virðast duga skammt þegar kemur að því að verjast kórónuveirunni innandyra ef loftgæði eru slæm. Þetta er niðurstaða rannsóknar íslensks prófessors á þremur hópsýkingum í Asíu. Samkvæmt rannsókninni getur léleg loftræsting aukið þéttleika lítilla dropa sem bera veiruna.

Covid-aðgerðir innanlands mildari hér en víða
Sóttvarnaraðgerðir innanlands í kórónuveirufaraldrinum hafa verið í mildari kantinum sé miðað við erlendis.

„Alvarlegt brot“ á siðareglum að nafngreina Andreu
Framkvæmdastjóri og ritstjórar Fótbolta.net brutu siðareglur Blaðamannafélags Íslands með því að nafngreina Andreu Rán Snæfeld Hauksdóttur leikmann Breiðabliks í frétt um að hún hefði greinst með kórónuveiruna.

Telur útilokað að nota skapalón fyrir stöðluð viðbrögð
Sóttvarnarlæknir telur útilokað að hægt sé að nota skapalón til þess að áhættumeta útbreiðslu kórónuveirunnar og grípa þannig til staðlaðra viðbragða á tilteknum tíma eftir því hvernig faraldur kórónuveirunnar þróast.

Listin að gera ekki neitt
Nú eru um hálft ár síðan Covid-19 barst til landsins og hefur það gjörbreytt samfélaginu, ekki aðeins ferðaþjónustunni heldur einnig menningarstarfsemi. Stjórnvöld hafa ráðist í nokkrar aðgerðir gagnvart ferðaþjónustunni. Þar þarf þó meira til.

Þriðji starfsmaður HÍ smitaður
Til viðbótar við starfsmann aðalbyggingar og Hámu hefur starfsmaður í Setbergi - húsi kennslunnar smitast.

Hertar takmarkanir í Kaupmannahöfn
Heilbrigðisráðherra Dana kynnti í morgun hertar kórónuveiruaðgerðir á höfuðborgarsvæði landsins.

Sex einstaklingar greindust innanlands
Sex einstaklingar greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra voru í sóttkví en þrír ekki.

Fjórir smitaðir í ensku úrvalsdeildinni
Fjórir greindust með kórónuveiruna í nýjustu prófunum í ensku úrvalsdeildinni.

Tveir brutu reglur um sóttkví og tóku strætó heim
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af tveimur í gær sem eru grunaðir um brot á reglum um sóttkví.

Trump ávarpar grímulausa fundargesti: „Við munum auðveldlega sigrast á Kína-veirunni“
Þvert á ríkisreglur og tilmæli hans eigin stjórnar hélt Donald Trump Bandaríkjaforseti í gær fjöldafund innanhúss, þar sem gestir fundarins stóðu þétt saman án þess að bera grímur fyrir vitum. Trump upplýsti fundargestina í Nevada að þjóðin væri við það að sigrast á faraldrinum.

Smit staðfest í Hámu á Háskólatorgi
Upp hefur komið staðfest kórónuveirusmit í Hámu á Háskólatorgi í Háskóla Íslands. Starfsfólk Hámu á Háskólatorgi hefur verið sent í sóttkví og fer í sýnatöku.