
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Átta af fjórtán veitingahúsum voru með viðeigandi sóttvarnaráðstafanir
Fjórtán veitingahús voru heimsótt í miðborginni af lögreglu í gærkvöldi. Kannað var hvort ráðstafanir varðandi sóttvarnir og tveggja metra reglu væru sem skildi. Átta staðir af þessum fjórtán voru með sín mál í mjög góðu ástandi

Grímur sagðar virka vel en buff fjölga dropum í loftinu
Buff og klútar gera lítið til að draga úr því að fólk sem smitast hefur af Covid-19 smiti út frá sér.

Banderas smitaður af kórónuveirunni og fagnar sextugsafmælinu í einangrun
Spænski stórleikarinn Antonio Banderas hefur greint frá því að hann hafi greinst með kórónuveiruna og mun fagna sextugasta afmælisdegi sínum í einangrun.

Hætt við Arion mótið
Tæplega 2.500 stúlkur og drengir höfðu skráð sig til leiks á mótið

Vonar að viðurlög hafi fælingarmátt til að forðast lokanir: „Einhverjar tekjur eru betri en engar“
Lögreglan er boðin velkomin á Röntgen við Hverfisgötu til þess að taka út sóttvarnaraðgerðir sem staðarhaldarar hafa gripið til að sögn Ásgeirs Guðmundssonar, eins af meðeigendum staðarins.

Eins metra regla myndi leysa mörg vandamál varðandi skólahald í haust
Eins metra fjarlægðrarregla leysir mörg vandamál varðandi skólahald í haust að sögn skólameistara. Hann segir að til greina komi að endurskoða skólareglur með tilliti til sóttvarnarreglna til að koma í veg fyrir að skólahald leggist af.

Lagt til að Ísland rati á rauða listann í Noregi
Íslandi verður líklegast bætt á rauðan lista yfirvalda í Noregi um hvaða ríki íbúar mega heimsækja og hvaðan fólk má fljúga til Noregs, án þess að þurfa í tíu daga sóttkví.

Til greina komi að herða tökin á landamærunum
Engin ein leið muni þó koma í veg fyrir að veiran berist hingað til lands. Ráðherra hefur lagt höfuðáherslu á að halda skólum, íþróttum, frístundum og menningarlífi sem mest gangandi.

Fengu 20 stunda fyrirvara um að leikskólinn opni viku eftir áætlun
Opnun leikskólans Langholts við Sólheima í Reykjavík hefur verið frestað um sex daga.

„Við erum að fara að reyna að lifa með þessari veiru“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ef aðgerðir verði hertar á landamærunum sé örugglega hægt að slaka meira á sóttvarnaraðgerðum innanlands.

Á tvítugsaldri á sjúkrahúsi og íhuga að taka upp eins metra fjarlægðarmörk í skólum
Þrír einstaklingar eru sem stendur á sjúkrahúsi með kórónuveirusmit.

Báðir sjúklingarnir greindust í Vestmannaeyjum
Þeir tveir einstaklingar sem greindust með kórónuveirusmit á Íslandi síðasta sólarhringinn eru báðir búsettir í Vestmannaeyjum.

Svona var hundraðasti upplýsingafundur almannavarna
Boðað hefur verið til upplýsingafundar í dag vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta er hundraðasti fundurinn sem almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa haldið frá því í lok febrúar.

Félögin funda með ráðherra: Mikil synd ef við getum ekki haldið hér Evrópuleik
FH-ingar hafa innan við 24 tíma til stefnu til að svara því hvort þeir geti tekið á móti slóvakíska liðinu Dunajská Streda í Evrópuleik 27. ágúst. Þeir funda með ráðherra íþróttamála í dag.

Menningarnótt aflýst
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar ákvað á fundi sínum í morgun að aflýsa Menningarnótt vegna kórónuveirufaraldursins.

Veröld ný
Þjóðin er eðlilega vonsvikin yfir því að faraldurinn hafi tekið sig upp aftur.

Tveir greindust hjá Íslenskri erfðagreiningu
Samkvæmt upplýsingum á covid.is greindist enginn á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.

Atvinnuleit í kreppu: Fimm góð ráð
Það má gera ráð fyrir því að margir verði í virkri atvinnuleit með haustinu þegar hlutabótaúrræði stjórnvalda lýkur og fjöldi fólks bætist við á hefðbundnar atvinnuleysisbætur.

Alma fær frí á hundraðasta fundinum
Boðað hefur verið til upplýsingafundar í dag vegna kórónuveirufaraldursins

Rúnar: Gæti verið með alla leikmennina á æfingu í líkamsræktarstöð og í sundi
Þjálfari Íslandsmeistara KR er ekki par sáttur við þær reglur sem gilda um knattspyrnufólk og leiki hér á landi.

„Yfirvöld eru ekki að fara að sigra þessa veiru, það erum við sjálf“
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ljóst sé að eigendur þeirra tveggja veitingastaða sem lögregla hafði afskipti af í gær hafi ekkert gert til þess að tryggja sóttvarnarráðstafanir á veitingastöðunum.

Lokunarstyrkur dugði fyrir rúmlega helmingi af mánaðarleigu
Jónas Óli Jónasson, einn eigenda skemmtistaðarins B5, segir útséð að staðurinn verði ekki opinn á meðan tveggja metra reglan er í gildi.

Aldrei fleiri látist á einum degi í Ástralíu
Nítján dóu í Viktoríuríki í Ástralíu af völdum Covid-19 síðasta sólarhringinn og hafa dauðsföll af völdum sjúkdómsins aldrei verið fleiri á einum degi í landinu.

„Fótboltinn er eina atvinnugreinin sem er algjörlega lömuð eða lokuð“
Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR segir að liðin fjögur sem taka þátt í Evrópukeppnum UEFA þurfi að spila alvöru leiki og það sem fyrst.

Rúnar Páll: Finnst undarlegt að leyfa ekki fótbolta á Íslandi
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, hefur ekki áhrif af líkamlegu atgervi leikmanna eftir aðra pásuna í sumar vegna kórónuveirunnar. Hann segir að andlega hliðin sé meira spurningarmerki.

Tveir smitaðir hjá Atletico þegar fjórir dagar eru í Meistaradeildarleik
Atletico Madrid hefur tilkynnt að tveir hafi greinst með kórónuveiruna í prófunum sem voru framkvæmd á æfingasvæði félagsins.

Engin sérstök bjartsýni að reikna með bóluefni fyrir mitt næsta ár
Orð Kára um að herða tökin á landamærum Íslands vegna baráttunnar við kórónuveirufaraldurinn hafa vakið mikla athygli.

36 í sóttkví vegna smits hjá DV
Á fjórða tug starfsmanna Torgs hafa verið sendir í sóttkví eftir að smit greindist hjá starfsmanni fyrirtækisins.

Tveir smitaðir nú á sjúkrahúsi
Landlæknir greindi frá því á upplýsingafundi almannavarna að maður á níræðisaldri hafi verið lagður inn á sjúkrahús í gær, en að hann þurfi ekki gjörgæslumeðferð.

Munu sekta og jafnvel loka veitingastöðum sem virða ekki tilmæli
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun frá og með í dag byrja að sekta þá veitingastaði þar sem ekki er farið að tilmælum um sóttvarnir og fjöldatakmarkanir. Ljóst sé að lögregla sé nauðbeygð til að herða aðgerðir og ekki sé lengur hægt að höfða einungis til skynsemi veitingamanna og gesta.