Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Aftur með veiruna eftir að hafa smitast á Everest
Heimir Fannar Hallgrímsson, lögfræðingur og fasteignasali sem kleif Everest með félaga sínum í fyrra, er kominn með kórónuveiruna – sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Heimir er smitaður í annað sinn. Hann var í hlíðum Everest þegar hann sýktist í fyrra skiptið og aðstæður í einangruninni nú þess vegna nokkuð frábrugðnar því sem áður var.

Á þriðja tug bótakrafna komnar fram vegna alvarlegra aukaverkana
Sjúkratryggingum hefur þegar borist 23 bótakröfur vegna gruns um alvarlega aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Lyfjastofnun hefur borist 35 tilkynningar um dauðsföll í kjölfar hennar. Forstjórinn segir að í einhverjum tilvikum sé hægt að tengja alvarlegar aukaverkanir við bóluefni.

Sjúklingar sendir heim af Vogi vegna hópsmits
Sex sjúklingar og fjórir starfsmenn á sjúkrahúsinu Vogi greindust smitaðir af kórónuveirunni í hraðprófi í dag. Sjúklingarnir hafa verið sendir heim í sóttkví og yfirlæknir gerir ráð fyrir því að starfsemi á Vogi leggist niður á næstu dögum.

Staðfestir úrskurð héraðsdóms um að hafna nauðasamningi Gray Line
Landsréttur staðfesti fyrr í dag úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember síðastliðnum um að hafna staðfestingu nauðasamnings Allrahanda GL sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line en það hefur verið í greiðsluskjóli frá því í júní árið 2020.

Bóluefnin hvorki tilraunalyf né með neyðarleyfi
Ekkert þeirra bóluefna sem notuð hafa verið gegn COVID-19 hér á landi er með neyðarleyfi eða skilgreint sem tilraunalyf. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Lyfjastofnun sem segir að bóluefnunum hafi verið veitt fullgilt markaðsleyfi. Leyfið sé háð vel skilgreindum skilyrðum og teljist því skilyrt markaðsleyfi.

Smalling lætur loks bólusetja sig svo hann fái að spila
Chris Smalling, leikmaður Roma, hefur loksins samþykkt að láta bólusetja sig fyrir kórónuveirunni.

Hótar óbólusettum aftur handtökum
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hótaði því í dag að láta handtaka óbólusett fólk ef þau yfirgefi heimili sín. Faraldur kórónuveirunnar þar í landi er í mikilli dreifingu en fjöldi nýsmitaðra hefur tvöfaldast á nokkrum dögum.

Einangrun á EM stytt niður í fimm daga
Evrópska handknattleikssambandið hefur staðfest breytingar á reglum varðandi einangrun og sóttkví vegna kórónuveirusmita á Evrópumóti karla sem hefst í næstu viku.

Óbólusettur Cassano á spítala vegna veirunnar
Antonio Cassano, fyrrverandi leikmaður Roma, AC Milan, Real Madrid og fleiri liða, er liggur á spítala vegna kórónuveirunnar.

Fullbólusettur einstaklingur með ómíkron á gjörgæslu
Fullbólusettur einstaklingur sem greindist smitaður af ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er meðal þeirra sjö einstaklinga sem liggja nú á gjörgæslu með Covid-19 samkvæmt upplýsingum frá Landspítala.

Hætt að svara fyrirspurnum um niðurstöðu raðgreininga
Unnið er að því bæta aðgengi fólks sem greinst hefur með kórónuveiruna að niðurstöðu raðgreiningar og vonar embætti landlæknis að upplýsingarnar verði aðgengilegar á Heilsuveru á næstu dögum.

Íslendingar að koma heim eftir hátíðirnar skýri metfjölda smitaðra
Þriðja daginn í röð greindust yfir þúsund manns með kórónuveirunna innanlands í gær en metfjöldi greindist á landamærunum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að um hálfgert einsdæmi hafi verið að ræða þar sem Íslendingar eru í miklum mæli að koma aftur heim eftir frí erlendis.

Anti-vaxxerar og hjörðin
Þegar búið er að draga þjóð í dilka, er samræðum svo gott sem lokið. Ef þú hugsar ekki eins og ég hlýtur þú að vera annað hvort illa gefinn eða illa innrættur og mér gæti í raun stafað ógn af því að umgangast þig yfir höfuð.

Covid dreifist hratt í borgum Indlands og meðal barna
Kórónuveiran er aftur komin í tiltölulega mikla dreifingu á Indlandi þessa dagana og þá sérstaklega í borgum landsins. Innlagnir eru þó enn tiltölulega fáar og delta-afbrigðið, sem greindist fyrst á Indlandi, er enn ráðandi í landinu en einungis 2.630 hafa smitast af ómíkron-afbrigðinu, svo vitað sé.

360 börn voru bólusett á Selfossi í gær
Bólusetningar barna hófust á Selfossi í gær þegar um 360 börn voru bólusett. Heilbrigðisstofnanir um land allt undirbúa nú bólusetningu barna á aldrinum fimm til ellefu ára.

Guardiola með veiruna
Pep Guardiola mun ekki getað stýrt liði Manchester City í enska bikarnum um helgina þar sem hann er kominn með kórónuveiruna.

Aukakostnaður vegna sóttvarna þegar orðinn um tíu milljónir og hækkar væntanlega enn frekar
Verulegur aukakostnaður fylgir því að hafa íslenska karlalandsliðið í handbolta í svokallaðri búbblu til að minnka líkurnar á að kórónuveirusmit dreifi sér í hópinn. Þá bætist við kostnaður vegna þess að Litáar geta ekki ferðast með Íslendingum á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu.

1.063 greindust innanlands og metfjöldi á landamærum
1.063 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 44 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 56 prósent utan sóttkvíar.

32 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19
32 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um tvo milli daga.

Þúsundir hringja í bólusetningar-þjónustusíma fyrir óvissa
Símaþjónusta sem læknar í Hollandi opnuðu fyrir þá sem hafa efasemdir um bólusetninguna gegn Covid-19 fær um þúsund símtöl á dag. Þeir sem hringja eru einstaklingar sem hafa ekki getað gert upp við sig hvort þeir eigi að þiggja bólusetningu.

Fyrrum dýrasti leikmaður í sögu Brighton hættur aðeins þrítugur að aldri
Knattspyrnumaðurinn Davy Pröpper hefur lagt skóna á hilluna aðeins þrítugur að aldri. Hann sagði gleðina einfaldlega ekki lengur til staðar og er því hættur knattspyrnuiðkun.

Forstjóri Lyfjastofnunar kannast ekki við hjartalyf í bóluefnum barna
Forstjóri Lyfjastofnunar segir að ekkert „hjartalyf“ sé í bóluefnum sem börn fái við kórónuveirunni, en þar sé hins vegar ákveðið hjálparefni, sem á að auka geymslutíma bóluefnisins. Til stendur að hefja bólusetningar fyrir börn á aldrinum fimm til ellefu ára í næstu viku.

Djokovic ekki hleypt inn í Ástralíu
Novak Djokovic, efsti maður heimslistans í tennis, fær ekki að fara inn í Ástralíu vegna vandræða í tengslum við vegabréfsáritunar hans. Hann er skráður til leiks í Opna ástralska meistaramótinu í tennis sem hefst 17. janúar.

Bólusettir ferðamenn ekki í sýnatöku fyrir flug
Bólusettir ferðalangar á leið til Englands þurfa ekki lengur að fara í fara í sýnatöku 48 klukkustundum fyrir komuna til landsins. Þá þurfa ferðamenn heldur ekki að vera í sóttkví á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr PCR prófi.

Kærir úrskurð um rúmlega þrjátíu daga sóttkví til Landsréttar
Úrskurður í máli manns sem verið hefur í sóttkví síðan 11. desember síðastliðinn féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Héraðsdómari taldi sóttkvína standast, en lögmaður mannsins segir að til standi að kæra úrskurðinn til Landsréttar.

Hvetur foreldra til að mæta með börnin í Laugardalshöllina
Bólusetningar barna á aldrinum 5-11 ára gegn kórónuveirunni verða í Laugardalshöll en ekki skólum líkt og til stóð. Þegar hafa 250 börn verið bólusett á þessum aldri. Nú eru 17.200 manns í einangrun eða sóttkví með eða næstum því fimm prósent landsmanna.

Fyrst orðið svart ef það verður skortur á hamborgurum
Veitingaðurinn Yuzu á Hverfisgötu mun ekki opna dyr sínar fyrir hungruðum gestum í dag vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Sömu sögu er af segja af Hamborgarafabrikkunni en þar verður lokað vegna sóttkvíar starfsmanna næstu daga, bæði á Höfðatorgi og í Kringlunni.

Skipta um kúrs og bólusetja börn í Laugardalshöll eftir helgi
Börn á aldrinum fimm til ellefu ára á höfuðborgarsvæðinu verða bólusett í Laugardalshöll í næstu viku. Ákvörðun var tekin um þetta í dag en upphaflega stóð til að bólusetja börn í skólum. Mannekla hjá heilsugæslunni leiddi til þess að ákveðið var að grípa í varaáætlanir.

Útlit fyrir hertar sóttvarnareglur á Tenerife
Útlit er fyrir að Tenerife í Kanaríeyjum verði sett á fjórða og hæsta viðbúnaðarstig vegna Covid-19 á næstu dögum. Við það herðast reglurnar varðandi hvað má gera á eyjunni, hve margir mega koma saman og hvar.

Segir raunverulega hættu á að EM verði aflýst
Danski handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard telur hættu á því að EM karla í handbolta, sem hefjast á eftir átta daga, verði aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.