Söfn

Fréttamynd

Allir og amma þeirra mættu í þjóð­búningi

Það var líf og fjör á þjóðbúningahátíð í Þjóðminjasafni Íslands um helgina þar sem fjöldi fólks mætti í sínu fínasta þjóðlega pússi. Á hverju hausti fagnar Þjóðminjasafnið íslenska þjóðbúningnum með hátíð kringum dánardag Sigurðar málara Guðmundssonar

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Skilti í setrinu á ensku: „Hjartan­lega sam­mála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“

Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út.

Innlent
Fréttamynd

Líður eins og Gísli á Upp­sölum sé kominn heim

Munum sem voru í eigu Gísla á Uppsölum hefur verið safnað saman á nýrri sýningu á bænum hans í Selárdal. Einn þeirra sem stendur á bak við verkefnið segir Gísla kominn heim og er stoltur af því að fá að lyfta sögu hans og lífshlaupi.

Innlent
Fréttamynd

Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæ­braut

Forstöðumaður Gerðarsafns segist hafa fengið þau svör að forsvarsmenn safnsins verði hafðir með í ráðum vegna niðurrifs iðnaðarbyggingar að Dugguvogi 42 í Reykjavík. Flennistór lágmynd eftir Gerði Helgadóttur prýðir vegg hússins sem snýr að Sæbraut.

Innlent
Fréttamynd

Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi

Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit, fæðingarstað rithöfundarins, fagnar í dag tuttugu ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn um að verk Þórbergs Þórðarsonar muni áfram lifa með þjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

„Það koma bara færri“

Komum skemmtiferðaskipa til smærri bæja á Norðausturlandi hefur snarfækkað eftir álagningu gistináttaskatts. Ferðaþjónustuaðili segir dæmi um að bæir fái nú engar heimsóknir frá skipunum. Ávinningur ríkissjóðs sé lítill sem enginn.

Innlent
Fréttamynd

Borgin af­þakkar risaeðlubein

Borgarráð samþykkti í gær að afþakka hluta úr beinagrind af risaeðlu sem samtökin Leap Lab vildu gefa borginni. Með gjöfinni fylgir töluverður kostnaður.

Innlent
Fréttamynd

Náttúruminjasafn og Náttúru­fræði­stofnun renna saman

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu frumathugunar. Ítrekað hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna tveggja, meðal annars í skýrslum Ríkisendurskoðunar.

Innlent
Fréttamynd

Geta söfn bjargað heiminum?

Að heimsækja safn er eins og að lesa góða bók. Þó söfn taki vissulega stundum á erfiðum umræðuefnum, geta þau líka veitt kærkomið skjól frá hörmungum heimsins.

Skoðun
Fréttamynd

Hver er stefna sveitar­fé­laga í menningar- og safnamálum?

Núna um daginn bárust fréttir af því að fólki sem starfar í menningargeiranum hefur fækkað um tæplega 20% á síðasta áratug samkvæmt nýrri rannsókn Hagstofunnar. Það ætti að vekja sterk viðbrögð og við ættum að hafa raunverulegar áhyggjur af stöðunni. Ég held þó að mörgum sem starfa í menningu, listum og á söfnum hafi ekki komið þetta neitt sérstaklega á óvart.

Skoðun
Fréttamynd

Nýr Louvre-stjóri sóttur til Ver­sala

Listasagnfræðingurinn Christophe Leribault verður nýr forstjóri listasafnsins Louvre í París í Frakklandi. Hann hefur síðustu ár verið yfirmaður Versala-hallar.

Erlent
Fréttamynd

Andrew á Louvre

Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi.

Menning
Fréttamynd

Safnstjórinn segir þessa flug­vél merkasta gripinn

Þegar spurt er hvaða flugvélar hafa markað dýpst spor í flugsögu Íslands nefna sumir þristinn eða Boeing 757-þotuna. En það heyrast einnig raddir sem segja litla Cessnu 180 skipa stóran sess og safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri segir vél af þeirri gerð merkasta dýrgrip safnsins.

Innlent
Fréttamynd

Niður­rif er fljót­legra en upp­bygging

Nú má finna í samráðsgátt stjórnvalda hugmyndir um að Kvikmyndasafn Íslands og Hljóðbókasafn Íslands verði innlimuð í Landsbókasafn Íslands. Hugmyndin er sögð sprottin upp úr meintum snertiflötum safnanna þriggja sem þegar betur er að gætt eru hverfandi litlir ef nokkrir.

Skoðun
Fréttamynd

Les­stofu Borgarskjalasafnsins lokað

Lesstofu Borgarskjalasafns á Tryggvagötu hefur formlega verið lokað. Öll starfsemi safnsins verður færð yfir á Þjóðskjalasafnið á næsta ári í sparnaðarskyni.

Innlent
Fréttamynd

Eyði­legging Kvikmyndasafns Ís­lands

Í september síðastliðnum tilkynnti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra áform um að sameina ætti Hljóðbókasafn Íslands, Kvikmyndasafn Íslands og Landsbókasafn-Háskólabókasafn.

Skoðun
Fréttamynd

Ekkert vesen á hrjótandi gesti í Sjóminjasafninu

Viðbragðsáætlun Sjóminjasafnsins var virkjuð þegar hrjótandi heimilislaus maður fannst í hengirúmi á safninu í gær á opnunartíma safnsins. Safnstjóri segir manninn hafa verið kurteisan og hegðað sér vel, um verkferla hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Bjarga Gunnfaxa með því að flytja inn sams­konar flug­vél

Vinir Gunnfaxa hafa ákveðið að kaupa samskonar flugvél frá Bandaríkjunum til að skipta á henni og Flugfélagsþristinum sem fluttur var á Sólheimasand í sumar. Þeir hafa hafið fjársöfnun í því skyni að bjarga Gunnfaxa af sandinum og koma honum á Samgöngusafnið á Skógum.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri hand­teknir vegna ránsins í Louvre

Lögregla í Frakklandi hefur handtekið fleiri í tengslum við ránið í Louvre-safninu í París fyrr í mánuðinum. Saksóknari segir að fimm til viðbótar hafi verið handteknir til viðbótar við þá tvo sem voru handteknir á laugardag.

Erlent