
Söfn

Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun fékk óvænta heimsókn
Stjarneðlisfræðingurinn og vísindamiðlarinn bandaríski Neil deGrasse Tyson heimsótti í dag jarðhitasýninguna við Hellisheiðarvirkjun. Jarðhitasýningin er eins konar fræðslusetur þar sem gestir geta lært um hvernig jarðvarmi er nýttur til að framleiða rafmagn fyrir landið og heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið.

Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði
Kona í Hafnarfirði er engum líka þegar kemur að söfnun á servíettum því hún á hvorki meira né minna en níutíu þúsund servíettur og bara eina tegund af hverri. Söfnunin hefur staðið yfir í fjörutíu ár.

Brenna landnámsbæ til kaldra kola í tilraunaskyni
Haldin verður eldhátíð á Eiríksstöðum í Haukadal frá þeim fimmta júlí til sjöunda og er þétt dagskrá af alls konar eld- og víkingatengdum uppákomum. Bjarnheiður Jóhannsdóttir umsjónaraðili á Eiríksstöðum segir hátíðina tileinkaða eldi og tilraunafornleifafræði.

„Fróðleiksfúsi“ slær í gegn í Sandgerði
„Fróðleiksfúsi“ í Sandgerði stendur svo sannarlega undir nafni því hann miðlar fróðleik í gegnum spjaldtölvu um öll dýrin á náttúrugripasafninu á staðnum, sem er hluti af Þekkingarsetri Suðurnesja.

Alríkislögreglan aðstoðar við leit að munum úr British Museum
Alríkislögregla Bandaríkjanna er sögð rannsaka umfangsmikinn þjófnað á British Museum á Englandi, þar sem fjölda muna virðist hafa verið stolið og þeir síðan seldir áfram til Bandaríkjanna.

78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og 1933 í Skógum
78 snúninga plötuspilarar frá 1916 og annar frá 1933 vekja nú mikla athygli gesta á Samgöngusafninu í Skógum undir Eyjafjöllum en rafeindavirki tók að sér að gera þá upp og færa safninu.

Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum
Brak sem kom í troll íslensks togara í fyrra hefur núna leitt til þess að búið er að varpa ljósi á 72 ára gamlan harmleik, um örlög fimm norskra selveiðiskipa, sem hurfu sporlaust með 78 manns milli Íslands og Grænlands um páskana árið 1952.

80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði
Þegar mest var voru um 60 þúsund hermenn á Íslandi árin 1942 til 1945 og þar af voru um 28 þúsund hermenn í Hvalfirði í herskipum, sem lágu þar. Um þetta er fjallað á sýningu í Hernámssetrinu í Hvalfirði, sem hefur notið mikillar vinsældar hjá “Gaua litla” eins og hann er alltaf kallaður.

Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu
Í tilefni Alþjóðlega safnadagsins 18. maí, sem í ár er tileinkaður rannsóknum og fræðslu, er mikilvægt að brýna hlutverk safna.

Náttúruminjasafn Íslands má sinna sýningahaldi!
Samkeppniseftirlitið hefur nú lokið skoðun á kvörtun Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og Perlu norðursins hf. (PN) frá því í janúar í fyrra vegna áforma Náttúruminjasafns Íslands, eins þriggja höfuðsafna landsins ásamt Þjóðminjasafni Íslands og Listasafni Íslands, um að starfrækja sýningu með ríkisframlagi í nýjum höfuðstöðvum safnsins á Seltjarnarnesi.

Hjartastaður – hvaðan ertu?
Söfn þekkjum við flest sem stofnun sem safnar og sýnir athyglisverða muni. Allt frá því að fyrstu almenningssöfnin litu dagsins ljós á 17. öld hefur þeim fjölgað en hlutverk þeirra var í upphafi m.a. það að mennta alþýðuna og halda henni upplýstri.

Söfn í þágu fræðslu og rannsókna
Þann 18. maí er Alþjóðlegi safnadagurinn og er yfirskrift hans Söfn í þágu fræðslu og rannsókna. Fræðsla og rannsóknir eru nátengd hlutverk í starfsemi safna og geta ekki án hvors annars verið. En ef safn á að sinna fræðslu þarf að byggja á rannsóknum.

Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum
Nú nálgast Alþjóðlegi safnadagurinn óðfluga, en hann er haldinn hátíðlegur um allan heim þann 18. maí ár hvert. Á hverju ári er deginum valið nýtt þema, þar sem athygli er dregin að afmörkuðum þætti safnastarfs eða ólíkum hlutverkum safna. Þetta árið er þemað Söfn í þágu fræðslu og rannsókna, en hvoru tveggja eru stórir og mikilvægir þættir í safnastarfi.

Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar
Ljósmyndasafn Reykjavíkur minntist þess í dag að eitthundrað ár verða liðin í sumar frá því flugvélar flugu í fyrsta sinn yfir hafið til Íslands. Þessa dagana standa alþjóðasamtök flugfélaga fyrir ráðstefnu í Reykjavík um hvernig bæta megi þjónustu á flugvöllum á heimsvísu.

Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist
Slökkviliðsminjasafn Íslands verður tæmt á næstu vikum eftir tíu ára rekstur. Umsjónarmenn safnsins óttast að saga slökkviliðsmanna á Íslandi muni glatast að einhverju leyti við brotthvarfið.

Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi
Listasafnið Louvre skoðar nú að færa málverkið af Mónu Lísu í annað rými á safninu. Forstöðukona safnsins segir að með því að færa verkið fengju gestir betri upplifun á því.

Umræður um bókasafn og önnur söfn
Fyrir 10 árum reis Hljómahöll sem viðbót við félagsheimilið Stapann sem er víðfræg uppspretta skemmtilegheita í áratugi.

Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri
Sigríður Örvarsdóttir hefur verið ráðin safnstjóri Listasafnins á Akureyri. Fjórtán sóttu um starfið en Sigríður tekur við af Hlyni Hallssyni.

Hljómahöllin fagnar 10 ára afmæli með opnu húsi
Það iðar allt af lífi og fjöri í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ í dag því þar er verið að halda upp á tíu ára afmæli hallarinnar með lifandi tónlist á milli tvö og fimm. Páll Óskar, Bríet, Friðrik Dór og Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar eru meðal þeirra, sem koma fram.

Fischersetrið á Selfossi nýtur mikilla vinsælda
Fishersetrið á Selfossi nýtur mikilla vinsælda skákmanna um allan heim enda stöðugar heimsókn þeirra á safnið og að gröf Bobby Fischers, sem hvílir í Laugardælakirkjugarði rétt fyrir utan Selfoss.

Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka
Ljósmyndasýning með broti af því besta frá hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni hefur verið opnuð í Húsinu á Eyrarbakka en svæðið var starfrækt í 45 ár, eða þar til því var lokað af öryggisástæðum.

Ástríðufullur safnari í Reykjanesbæ
Á heimili Ólafs Ólafssonar í Reykjanesbæ er líklega að finna eitt stærsta einkasafn landsins af merkjum og fatnaði sem tengjast starfsemi lögreglu, flugi, hersins og ýmissa annarra embættisaðila, bæði íslenskum og erlendum. Þar má meðal annars finna lögregluhúfu frá 1930, smellubindi frá Varnarmálastofnun Íslands, húfumerki yfirmanna Landhelgisgæslunnar frá tímum Þorskastríðsins því og svo mætti lengi telja.

Allskonar byssur til sýnis á Stokkseyri um helgina
Það verður mikið um að vera á Stokkseyri um helgina því þar verður Veiðisafnið með byssusýningu um leið og því verður fagnað að nú eru tuttugu ár frá því að safnið hóf starfsemi sína á staðnum.

Rokksafni Íslands verður ekki lokað
Ekki stendur til að loka Rokksafni Íslands í Hljómahöll í Reykjanesbæ þó það eigi að flytja bókasafn bæjarins í húsið og efla starfseminni í því með samfélagsmiðstöð.

„Fullt af fólki sem ber hlýjar tilfinningar til þessarar björgunarþyrlu“
Það var mikið um að vera í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í morgun þegar flutningur fyrstu stóru björungarþyrlu Íslendinga á Flugsafn Íslands á Akureyri var undirbúinn. Benóný Ásgrímsson fyrrverandi flugstjóri Landhelgisgæslunnar segir komu þyrlunnar til landsins, fyrir nærri þremur áratugum, hafa verið gríðarlegt framfaraskref.

Ekið með björgunarþyrlu til Akureyrar
Fyrsta stóra björgunarþyrla Íslendinga TF-LIF verður í dag flutt úr flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli á Flugsafn Íslands á Akureyri. Lagt var af stað með þyrluna frá flugskýlinu á tólfta tímanum en búist er við að ferðin taki sex tíma.

Söfnin eru dauð -og þau drápu sig sjálf!
Byrjum á margtugginni yfirlýsingu Friedrich Nietzsche um dauða guðs og að við höfum drepið hana/hán/hann. Þetta er nákvæmlega það sem eru sífellt augljósari örlög stóru safnana á Íslandi.

„Við erum að vinna í því að koma í veg fyrir þetta kjaftæði“
Guðný Kristjánsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ og tengdadóttir rokkarans keflvíska Rúnars Júlíussonar segir meirihluta bæjarbúa vera ósáttan með ákvörðun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að flytja bókasafn bæjarins í Hljómahöll og takmarka starfsemi Rokksafns Íslands. Hún segist munu berjast gegn áformum bæjarstjórnarinnar með öllum tiltækum ráðum.

Var stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið
„Við stöndum að eilífu í þakkarskuld við þessa frumkvöðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í ávarpi við opnun sýningar í tilefni 80 ára afmælis Loftleiða. Með uppbyggingu á fluginu með Ísland sem tengimiðstöð hefðu þeir lagt grunninn að þeirri öflugu ferðaþjónustu sem til væri orðin í landinu.

Íslensk strandmenning í brennidepli á Akranesi
Íslensk strandmenning – staða hennar og framtíð er yfirskrift málþings sem Vitafélagið – íslensk strandmenning stendur fyrir á Akranesi eftir hádegi í dag, mánudag 4. mars. Þar verða fyrirlestrar, tónlist og umræður um stöðu og fjölbreytileika íslenskrar strandmenningar og því meðal annars velt upp hvort þessi menningararfur Íslendinga sé í hættu.