
Sprengidagur

Innkalla baunasúpu rétt í tæka tíð
Matvælaframleiðslufyrirtækið Katla hefur ákveðið að innkalla framleiðslulotu af baunasúpugrunni vegna rofs á hitastýringu í dreifikerfi. Ætla má að baunasúpugrunnur hafi verið á leið í potta fjölda landsmanna, enda er sjálfur sprengidagurinn í dag.

Maskadagur á Ísafirði
Móðir á Ísafirði hefur í nægu að snúast enda ber bolludag og maskadag upp á afmælisdag sex ára sonar hennar. Já, maskadagur er haldinn hátíðlegur vestur á fjörðum en fyrir vikið er lítið um fagnaðarlæti á öskudaginn sjálfan líkt og annarsstaðar á landinu - í það minnsta á Ísafirði.

Ekki gott fyrir ríkisstjórn að takast á í fjölmiðlum
„Það er ekki gott fyrir ríkisstjórnina að takast svona á í fjölmiðlum. Við eigum að gera það við ríkisstjórnarborðið. Þar er góður andi og það er liðsheild í þessum hópi. Við höfum afkastað mjög miklu á þessum tveimur kjörtímabilum.“

Átu yfir sig og höfðu með sér nesti að áti loknu
Gráðugir Íslendingar á Spáni sprengdu sig á sprengidaginn og gott betur, afátu helming gestanna og það sem þeir ekki gátu troðið í belginn á sér tóku þeir með í nesti.

Forsetahjónin fagna sprengidegi
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú fagna sprengideginum eins og fjölmargir Íslendingar. Hjónin kíktu í heimsókn til Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu í dag og fengu sér saltkjöt og baunir.

Saltkjötið vinsælt þrátt fyrir að verið sé að tala það niður
Sprengidagur 2023 er senn á enda. Eigandi Múlakaffis segir saltkjöt og baunir alltaf jafn vinsælt þrátt fyrir að „verið sé að tala það niður,“ eins og hann orðar það.

„Þetta er með því óhollara sem þú getur látið inn fyrir þínar varir“
Saltkjöt er með því óhollara sem hægt er að borða. Þetta segir næringarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum. Fólk sem glímir við háan blóðþrýsting er ráðlagt að nálgast saltkjöt og baunir, hinn þjóðlega rétt, af mikilli hófsemd.

Verkaði 2,5 tonn af saltkjöti sem fólk hámaði í sig
Gestir Múlakaffis hámuðu í sig saltkjöt og baunir í tilefni sprengidags. Yfirkokkurinn verkaði tvö og álft tonn af saltkjöti og sögðu gestir vel þess virði að vakna á morgun með bjúg eftir saltneyslunna.

„Þetta er uppáhaldsdagurinn minn“
Öskudagurinn er á morgun og landsmenn, ungir sem aldnir, flykkjast í þartilgerðar búðir að kaupa búninga fyrir morgundaginn. Mikið var að gera í Partýbúðinni þegar fréttamaður leit við fyrr í kvöld en þar er opið til miðnættis. Verslunarstjóri segir fólk eins og beljur á vori.

Hvað eru hefðir og hversu mikilvægar eru þær okkur?
Hefðir geta verð mikilvægur þáttur í að viðhalda menningararfleifð þjóðar og er mikilvægt að við íslendingar höldum í ákveðnar hefðir sem tengja menningu okkar og sögu. En sumar hefðir eru líka orðnar úreltar, og í sumum tilfellum óhjálplegar og hættulegar.

Sprengidagar
Allt á sér sögu og bakgrunn. Þessir tímar áts sem nú standa yfir, eru leifar af kjötkveðjuhátíð. Vikurnar fram undan, allt til páska, kallast fasta.

Íbúar Hrafnistu lukkulegir á sprengidaginn: 300 kíló af saltkjöti og 4.000 kartöflur
Landsmenn fagna sprengideginum í dag með því að troða sig vel út af saltkjöti, baunum og öllu tilheyrandi. Maturinn vakti mikla lukku meðal íbúa á Hrafnistu í Reykjavík

Langafasta handan við hornið
Saltkjöt og baunir, túkall.

Saltkjötið háskalegt heilsutæpum
Hár blóðþrýstingur og saltkjöt fara illa saman og hjartveikir ættu ekki að láta þennan þjóðlega rétt eftir sér.

Landsmenn fara varlegar í saltkjötið
Dæmi hafa verið um að fólk leiti á bráðamóttöku vegna oftáts á saltkjöti og baunum á sprengidag.

Ég sé ekki eftir neinu!
Sprengidagur er auðsjáanlega einn mikilvægasti dagur ársins fyrir íslensku þjóðina enda skulu ofgnótt og óhóf höfð að leiðarljósi og það án eftirsjár. Íslenskara verður það nú tæpast.

Kýldu vömbina, vinur
Um helgina minntu sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic og United Nations World Food Programme, samtök sem berjast gegn hungri í heiminum (hægt er að leggja málstaðnum lið með fjárframlögum á heimasíðu samtakanna), á að um 805 milljónir manna glíma enn við hungur.

„Segjum grænmetisætum stríð á hendur"
Vertinn á Múlakaffi var ánægður með sprengidaginn, sem er sá næst annasamasti á árinu. Um eitt tonn af saltkjöti var eldað fyrir viðskiptavini dagsins og um 600 kíló af baunum.

Grútspældir og reiðir viðskiptavinir IKEA
Saltkjöt & baunir kosta nú 995 krónur en ekki túkall. Í fyrra át fólk yfir sig, svo mjög að þeir hjá IKEA höfðu áhyggjur af því að það gæti endað með ósköpum.