Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 148 ›
Sveitarfélögin tali skýrt um gjaldskrárlækkanir og fríar skólamáltíðir Ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga nema sveitarfélögin leggi skýrt fram til hvaða aðgerða þau eru reiðubúin að grípa til að tryggja frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin, að sögn formanns Starfsgreinasambandsins. Hann er hins vegar bjartsýnn á að leyst verði úr þeim ágreiningsefnum sem eftir eru í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5.3.2024 11:45
Fengu grænt ljós á flutning 72 dvalarleyfishafa frá Gasa Sjötíu og tveir einstaklingar frá Gasa, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró í Egyptalandi seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands. Þetta gerist eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista íslenskra stjórnvalda um helgina. Innlent 5.3.2024 08:39
Hverjir hafa verið að koma og hverjir eiga að fá að vera? Umsóknum um alþjóðlega vernd á Íslandi fjölgaði gríðarlega árin 2022 og 2023, ekki síst vegna umsókna einstaklinga frá Úkraínu og Venesúela. Ef þessi tvö ár eru tekin út fyrir sviga hafa hins vegar litlar breytingar orðið á fjölda umsókna síðustu ár. Innlent 5.3.2024 07:17
Atkvæðagreiðsla hafin um verkfall ræstingarfólks Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru að falla á tíma eftir að Efling hóf atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks í dag. Helstu hindranir eru ósamkomulag um uppsagnavernd og óvissa um hvort sveitarfélögin sættist á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Innlent 4.3.2024 19:21
Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið. Innlent 4.3.2024 16:00
Katrín loðin í svörum um forsetaframboð Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi nú rétt í þessu var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra spurð um það sérstaklega hvort hún ætlaði að gefa kost á sér í komandi forsetakosningaslag. Innlent 4.3.2024 15:34
Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingarorlof til umræðu Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Innlent 4.3.2024 11:47
Nauðsynlegar breytingar á útlendingalögum Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum vegna hraðrar fjölgunar umsókna um alþjóðlega vernd. Umsóknum hefur fjölgað um 3700% á rúmum áratug og hafa valdið umtalsverðum kostnaði fyrir ríkið, eða um 20 milljörðum króna árið 2023, auk álags á alla okkar innviði. Skoðun 4.3.2024 08:00
Dómsmálaráðherra reiknar með málþófi á Alþingi Á síðustu tveimur árum hafa íslensk stjórnvöld fengið níu þúsund umsóknir frá flóttafólki um vernd hér á landi en það eru mun fleiri umsóknir en hin löndin á Norðurlöndunum hafa fengið á sama tíma. Innlent 3.3.2024 14:30
Upplifir alls ekki að forysta VG sé ekki nógu sterk Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan í kosningum í dag. Þingflokksformaður VG telur að flokkurinn sé ekki að ná í gegn með þær áherslur og þann árangur sem náðst hefur meðan flokkurinn hefur setið við ríkisstjórnarborðið. Innlent 3.3.2024 08:09
Sýni að Vinstri græn séu í tilvistarkreppu Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan. Stjórnmálafræðingur segir flokkinn í tilvistarkreppu. Minna fylgi Samfylkingar milli mánaða og aukið fylgi Miðflokks megi rekja til útlendingamála. Innlent 2.3.2024 12:07
Vinstri græn næðu ekki inn á þing Vinstri græn mælast með 4,7 prósent í nýjum Þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn myndi detta af þingi ef niðurstaðan yrði þessi í næstu Alþingiskosningum. Samfylkingin mælist áfram stærsti flokkur landsins þó fylgið dali um rúm tvö prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 1.3.2024 19:37
„Hluti af skipulagðri hungursneyð sem er verið að búa til á svæðinu“ Fólk kom í dag saman á Austurvelli, í frosti og kulda, til knýja íslensk stjórnvöld til að hætta við ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Innlent 1.3.2024 19:30
Taka þurfi styttingu framhaldsskólans til skoðunar Mennta- og barnamálaráðherra segir koma til greina að endurskoða styttingu framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú. Þess í stað yrði grunnskólanám stytt um eitt ár. Innlent 1.3.2024 15:47
Hildigunnur nýr veðurstofustjóri Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Hildigunni H. H. Thorsteinsson í embætti forstjóra Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára. Hún verður skipuð í embættið frá og með 1. júní næstkomandi. Innlent 1.3.2024 12:33
Bein útsending: Nóbelsverðlaunahafi um hagfræðina á 21. öldinni Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz í dag. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, og stendur frá klukkan 12 til 13:30. Sýnt er frá viðburðinum í beinni útsendingu. Viðskipti innlent 1.3.2024 11:15
Fyrirmyndir stækka framtíðina Stundum segir mynd – eða myndband – meira en þúsund orð. Við leggjum því til að þú horfir á myndbandið hér að neðan áður en lengra er haldið. Skoðun 1.3.2024 08:01
Vilja fá vinnandi fólk til að segja börnum frá vinnumarkaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Í tilkynningu um verkefnið segir að markmið þess sé að tengja alls konar fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins þar sem það segi nemendum frá starfi sínu og menntun. Innlent 29.2.2024 13:58
Bjarni ræddi við Israel Katz og bíður eftir grænu ljósi Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra ræddi við Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, símleiðis síðdegis í dag. Þar óskaði Bjarni liðsinnis um afgreðislu á lista yfir dvalarleyfishafa á Gaza. Erindinu hafi verið vel tekið af hálfu ísraelska ráðherrans en þó alls óvíst hvenær grænt ljós fáist. Innlent 28.2.2024 16:31
Gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga viðhalda verðbólgunni Hækkun á gjaldskrám sveitarfélaga ræður mestu um að minna dróg úr verðbólgu í febrúar en vænst hafði verið. Verðbólga mælist nú 6,6 prósent. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er eftir þrjár vikur. Innlent 28.2.2024 11:45
Ekki eftirsóknarverður staður til að vera á Þegar lögum um útlendinga var breytt vorið 2023 var ákveðið að þau sem hefðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd myndu missa rétt á allri þjónustu 30 dögum síðar. Eftir það ætti fólk að yfirgefa landið. Fámennur hópur gerir það ekki og er heimilis- og réttindalaus á Íslandi. Innlent 28.2.2024 11:40
Einn af eldhugum hagfræðinnar: Joseph Stiglitz Bandaríski hagfræðingurinn Joseph Stiglitz er einn virtasti hagfræðingur samtímans. Hann er þekktur fyrir framlag sitt til hagfræðinnar, einkum á sviði upplýsingahagfræði, opinberrar stefnumótunar og þróunarhagfræði. Skoðun 28.2.2024 11:31
Bjartsýni og góður gangur í kjaraviðræðum Fulltrúar nánast allra félaga innan Alþýðusambandsins annarra en verslunarmanna hafa haldið áfram viðræðum við Samtök atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í dag. Innlent 27.2.2024 19:30
Samfylkingin bætir við sig fylgi eftir ummæli Kristrúnar Samfylkingin mælist með 27,2 prósent fylgi í nýrri könnun Maskínu og bætir flokkurinn við sig einu og hálfu prósentustigi á milli mánaða. Mikil umræða hefur farið fram um skoðanir Kristrúnar Frostadóttur, formanns flokksins, á útlendingamálum undanfarnar vikur. Innlent 27.2.2024 13:13
Bönkunum hugnast ekki greiðslumiðlun forsætisráðherra Samtök fjármálafyrirtækja telja hægt að ná fram markmiðum stjórnvalda um öryggi og hagkvæmni í kortaviðskiptum án þess að stofnuð verði sértök íslensk greiðslumiðlun undir hatti Seðlabankans eins og lagt er til í frumvarpi forsætisráðherra. Neytendur 27.2.2024 11:47
Ásgeir seðlabankastjóri í fimm ár í viðbót Ásgeir Jónsson verður áfram seðlabankastjóri næstu fimm árin, til ársins 2029. Gerist það sjálfkrafa þar sem staðan verður ekki auglýst. Viðskipti innlent 27.2.2024 10:57
Virkjum krafta frjálsra félagasamtaka Í dag, 27. febrúar, er alþjóðlegur dagur frjálsra félagasamtaka. Við erum mörg sem höfum tekið þátt í starfi félagasamtaka einhvern tímann á ævinni. Störf félagasamtaka mynda verðmætan félagsauð fyrir samfélagið, fólk með sambærileg lífsgildi og áhugamál. Skoðun 27.2.2024 08:30
Nýtt hraun á Reykjanesi nýtur ekki sömu verndar og annað hraun Eftir að ný lög voru samþykkt í nóvember um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga þurfa yfirvöld ekki að leita umsagnar Umhverfisstofnunar lengur með hefðbundnum hætti þegar raska á til dæmis nýju hrauni. Yfirvöld eiga samráð við stofnunina en miklu takmarkaðri hætti en kveður á um í náttúruverndarlögum. Innlent 27.2.2024 06:46
Drög að sátt lögð fyrir ríkisstjórn á næstu dögum Fulltrúar Starfsgreinasambandsins, Samiðnar og Eflingar hafa fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Reiknað er með að heildarpakki kjarasamninga verði lagður fyrir ríkisstjórn um eða upp úr miðri viku og ríkisstjórnin kynni þá þær aðgerðir sem hún er reiðubúin að grípa til í skiptum fyrir sátt á vinnumarkaði. Innlent 26.2.2024 19:21
Geti ekki lengur falið sig á bakvið embættismenn og lögfræðinga Forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyjar segir að Óbyggðanefnd hafi í síðustu viku hafnað ósk fjármálaráðherra um breytta málsmeðferð vegna kröfulýsingar ríkisins á landi í Vestmannaeyjum. Hann segir ráðherrann ekki geta falið sig á bakvið embættismenn og lögfræðiskrifstofu, valdið sé hennar. Innlent 26.2.2024 13:56