
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Bæjarstjóri og ráðherra deila um ábyrgð á flóttafólki
Félagsmálaráðherra segir það undir sveitarfélögunum komið hvort þau veiti þjónustusviptum hælisleitendum þjónustu eða ekki. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar vísar ábyrgðinni til ráðherrans. Bærinn muni ekki grípa hópinn.

Er núverandi ríkisstjórn að fífla þig?
Ríkisstjórnin sem mynduð var í kjölfar kosninganna haustið 2017 hefur nú lifað í sex ár. Í upphafi var hún sögð sett á til að koma á pólitískum stöðugleika.

Búið að tilkynna öllu flóttafólki um þjónustusviptingu í bili
Búið að er að tilkynna öllum þeim sem hafa fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd um yfirvofandi þjónustusviptingu í bili að sögn sérfræðings hjá ríkislögreglustjóra. Nýtt ákvæði í útlendingalögum sé krefjandi verkefni sem ekki hafi enn reynt á.

Neitar að tjá sig um meint innbrot á Lambeyrum
Barnamálaráðherra neitar að tjá sig um meint innbrot hans á jörðinni Lambeyrum og segir fyrri yfirlýsingu standa. Hann segist ekki hafa haft áhrif á vinnubrögð lögreglu í málinu.

Býr í tjaldi í hraungjótu
Tvítugur flóttamaður býr í hraungjótu en hann hefur misst allan rétt á þjónustu og aðstoð á Íslandi eftir endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd. Hann vill ekki fara aftur heim þar sem hann segist sæta ofsóknum vegna trúarbragða.

Heimilisleysi flóttafólks mun aukast mikið á næstunni
Heimilisleysi flóttafólks mun aukast töluvert á næstunni vegna nýrra útlendingalaga sem gera það að verkum að fólk missir alla þjónustu þrjátíu dögum eftir endanlega synjun um alþjóðlega vernd. Þetta segir formaður hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi.

„Lögin eru að virka sem skyldi“
Dómsmálaráðherra segir ný útlendingalög virka sem skyldi. Fólk sem missi þjónustu 30 dögum eftir endanlega synjun um alþjóðlega vernd verði að sýna samstarfsvilja um að fara úr landi.

Mikið fjármagn til Vestfjarða sem njóti nýjustu jarðganganna
Innviðaráðherra segir rétt að gera þurfi betur í vegagerð á Vestfjörðum. Þó sé gert ráð fyrir töluverðri uppbyggingu í landshlutanum í núverandi samgönguáætlun. Mikla uppbyggingu á Suðurlandi í samanburði við aðra landshluta líkt og Vesturland megi skýra með því að fjármagni hafi verið forgangsraðað eftir umferðarþunga.

Ákvörðun Svandísar ekki haft jákvæð áhrif á samstarfið
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun matvælaráðherra um að stöðva tímabundið hvalveiðar ekki hafa haft jákvæð áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Matvælaráðherra segir ekki tímabært að segja hvort hún banni hvalveiðar eftir fyrsta september þrátt fyrir að einungis þrjár vikur séu í að veiðarnar eigi að hefjast.

Jarðgöng þurfi til að leysa út verðmæti á landsbyggðinni
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir mikil verðmæti glatast á landsbyggðinni vegna óviðunandi samgangna. Verðmætin séu það sem skipti máli við jarðgangagerð en ekki kostnaður á hvern íbúa.

Ekki bjartsýnn á að hvalveiðar muni hefjast á ný
Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir matvælaráðherra verða að gefa það út sem allra fyrst hvort bann við hvalveiðum haldi áfram þann fyrsta september. Hvernig sem fer telur hann að málið muni enda fyrir dómstólum.

Þolendur mansals sviptar öllum réttindum og vísað á götuna
Tvær konur á flótta óttast að lenda á götunni á morgun. Báðar eru þolendur mansals og hafa verið á Íslandi um árabil. Þær hafa verið sviptar öllum réttindum eftir að þær fengu endanlega synjun um alþjóðlega vernd.

„Það eiga að vera undantekningar fyrir börn og fjölskyldur þeirra“
Þingmaður Pírata segir það hafa verið fyrirséð að barnafjölskyldur gætu verið sviptar þjónustu þrátt fyrir að þau skuli undanþegin þar sem ný útlendingalög séu óskýr og loðin. Hún vonar að ríkisstjórnin sjái að sér og leiti betri lausna.

Barnafjölskyldur á flótta hafi verið sviptar þjónustu
Umdeild breyting á útlendingalögum er farin að hafa áhrif á umsækjendur um alþjóðlega vernd. Framkvæmdastjóri hjálparsamtaka segir barnafjölskyldur sviptar þjónustu þrátt fyrir að lögin kveði á um að það megi almennt ekki.

Vestfirðir verði áfram jaðarsettir í nýrri samgönguáætlun
Lækningavörufyrirtækið Kerecis lýsir yfir miklum vonbrigðum með fyrirliggjandi samgönguáætlun og segir Vestfirði áfram verða jaðarsetta, verði hún að veruleika. Fyrirtækið segir skattgreiðslur af nýlegri sölu fyrirtækisins duga einar og sér til að koma vegum landshlutans, sem eru sagðir með öllu óviðunandi, í viðunandi horf.

Bankarnir liggi vel við höggi „einhverra hluta vegna“
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra efast um að svokallaður hvalrekaskattur myndi bæta kjör heimilanna eða fyrirtækja. Nóg sé um sérsaka íslenska skatta og frekari skattlagning myndi minnka áhuga fjárfesta á bankakerfinu íslenska.

Eðlilegt að skoða hvalrekaskatt til að koma til móts við heimilin í landinu
Starfandi formaður efnahags- og viðskiptanefndar tekur undir með viðskiptaráðherra og segir eðlilegt að skoða að setja svokallaðan hvalrekaskatt á bankana til að bregðast við stöðu heimilanna í landinu. Bankarnir séu að hagnast gríðarlega vegna vaxtahækkana.

Hvalrekaskattur á bankana kemur til greina
Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra segir koma til greina að leggja svokallaðan hvalrekaskatt á bankana vegna ofurhagnaðar sem má rekja til hærri vaxta. Það liggi þó ekkert fyrir um það innan ríkisstjórnar.

Spáir stjórnarslitum á aðventunni
Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að fylgi Vinstri grænna muni fara í skrúfuna haldi flokkurinn ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsókn til streitu. Þá spáir hún því að stjórnin springi á næstu aðventu.

„Við í Framsókn erum sultuslök“
Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra virðist ekki kippa sér mikið upp við yfirlýsingar um titring innan ríkisstjórnarinnar. Þau í Framsóknarflokknum séu róleg og ánægð með samstarfið í ríkisstjórninni.

Tal um óánægju „jafnvægislist“ nú þegar styttist í kosningar
Ummæli áhrifamanna innan stjórnarflokkanna um óánægju með ríkisstjórnarsamstarfið lýsir mikilli gremju en er líka tilraun til að senda skilaboð til sinna kjósenda þar sem hnykkt er á eigin sérstöðu. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði.

Lömbin þagna
Ýmsir þingmenn, ráðherrar og fyrrverandi þingmenn og ráðherrar hafa undanfarið verið að tjá sig um núverandi ríkisstjórnarsamstarf á hinum ýmsu miðlum. Ráðherrarnir sem náðst hefur til eru vel sáttir með samstarfið og þau fríðindi sem stólarnir veita þeim.

„Við erum tilbúin að taka við stjórn landsins“
Varaformaður Samfylkingarinnar segir að hægt sé að kenna Samfylkingunni um að ríkisstjórnin hangi ennþá saman. Ríkisstjórnarflokkarnir séu óttaslegnir yfir því að bíða afhroð í kosningum. Samfylkingin sé hins vegar tilbúin að taka við stjórn landsins.

Þriðjungur segist styðja ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur dregist lítillega saman, samkvæmt nýjasta Þjóðarpúls Gallup. Litlar breytingar hafa þó orðið á fylgi flokka undanfarinn mánuð.

„Þurfum greinilega að gera betur“
„Ég þarf engar ráðleggingar frá Sigmundi Davíð þó það sé alltaf gaman að hlusta á hann. Hann er svolítill spéfugl og hefur gaman af því að tala.“ Þetta segir Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins innt eftir viðbrögðum við ummælum formanns Miðflokksins, sem segir Sjálfstæðisflokkinn orðinn að „umbúðaflokki“.

Fýlupúkafélag Sjálfstæðisflokksins snúið aftur
Formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn orðinn að umbúðaflokki og að hann þurfi að huga aftur að sínum gömlu gildum. Hann segir nýlegar kvartanir þingmanna aðeins sýndarmennsku og telur það ekki nægja til að þagga raunverulega óánægju í flokknum.

Segir nauðsynlegt að binda um sárin í stjórnarsamstarfinu
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir samstarfið sterkt þrátt fyrir miklar óánægjuraddir. Hann segir flokkinn staðráðinn að klára kjörtímabilið.

Sjálfstæðismenn þurfi að gera upp málin hjá sér
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Sjálfstæðismenn verða að gera upp málin innan sinna raða. Mikil óánægja er innan raða Sjálfstæðisflokks með ríkisstjórnarsamstarfið.

Þröng staða stjórnarflokkanna kalli fram átakavetur
Stjórnmálafræðiprófessor segir stefna í átakavetur í íslenskum stjórnmálum, vegna fylgistaps ríkisstjórnarflokkanna. Ný könnun sýni ýktan mun á milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks, sem hefur ekki mælst með minna fylgi.

Segir ríkisstjórnina verða að líta í eigin barm í Íslandsbankamálinu
Þingkona Viðreisnar og meðlimur fjárlaganefnar Alþingis segir Íslandsbankamálinu langt frá því að vera lokið og að enn eigi eftir að skoða betur pólitíska ábyrgð í málinu. Hún bíður þess að fjárlaganefnd komi saman.