
Samkomubann á Íslandi

Stórt skref í afléttingum kynnt á föstudag
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra reiknar með að stórt skref verði stigið í afléttingum sóttvarnaraðgerða á föstudaginn.

„Ég veit að það eru margir sem vilja hætta öllu“
Sóttvarnalæknir mun ekki leggja til að öllum sóttvarnaaðgerðum verði aflétt nú í vikunni en boðar þó tillögur að afléttingum í minnisblaði til heilbrigðisráðherra á næstu dögum, fyrr en áætlað var. Hann metur stöðu faraldursins nokkuð góða.

Veiran fari fyrst á kreik eftir miðnætti á skemmtistöðunum
Heilbrigðisyfirvöld leggja á ráðin um verulegar tilslakanir á sóttvarnatakmörkunum í samráði við almannavarnir. Þær verða kynntar í lok viku. Það var allt toðfullt á skemmtistöðum miðbæjarins um helgina - eða eins og reglur leyfðu.

Boðar verulegar afléttingar tveimur vikum fyrr
Heilbrigðisráðherra segir blasa við að allt vinni með því að hægt verði að létta á takmörkunum í samfélaginu fyrr en afléttingaráætlun segi til um. Hann reiknar með verulegum afléttingum í næstu viku, tveimur vikum á undan áætlun.

Börnin hætt að stunda áhugamálin af ótta við að smita mömmu
Kona, sem er með tvo taugasjúkdóma og á ónæmisbælandi krabbameinslyfjum, segist vera komin með nóg af því að hagsmunir fólks í áhættuhópum séu hundsaðir. Hún óttast að smitist hún af kórónuveirunni muni hún deyja.

Flúði til Danmerkur vegna íslenskra takmarkana
Háskólanemi ákvað að flytja til Danmerkur þegar afléttingar voru tilkynntar þar í landi í haust. Hún vill nýta háskólaárin til þess að skemmta sér og segir það erfitt þegar samkomutakmarkanir eru harðar.

„Við erum svo hoppandi glöð“
Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhústjóri Borgarleikhússins gat varla leynt gleði sinni í beinni útsendingu með þau tíðindi að frá og með morgundeginum verður hætt að gera kröfu um eins metra nálægðarmörk á sitjandi viðbrögðum.

Nálægðartakmörk á sitjandi viðburðum felld úr gildi
Frá og með morgundeginum verður hætt að gera kröfu um eins metra nálægðarmörk á sitjandi viðburðum.

Kalla eftir því að opnað verði fyrir almenningshlaup að nýju
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur skorað á stjórnvöld að breyta reglum um samkomutakmarkanir svo að aðildarfélög geti haldið fjölmenn almenningshlaup utandyra eftir að lítið hafi verið um þau síðustu tvö ár.

Stefna á að aflétta hraðar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að stefnt sé á að aflétta hraðar en fyrirætlanir gera ráð fyrir. Ráðgert er að hægt verði að aflétta öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveiru hér á landi um miðjan mars en Þórólfur bindur vonir við að hægt sé að gera það enn fyrr.

Skoða hvort hægt sé að ráðast í frekari tilslakanir á föstudaginn
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, segir að hann muni nýta næstu daga til að ræða við sóttvarnalækni og forsvarsmenn heilbrigðisstofnana um hvort hægt verði að ráðast í frekari tilslakanir á sóttvarnaraðgerðum vegna Covid-19 næstkomandi föstudag.

Danir felldu grímuna á miðnætti þegar öllum takmörkunum var aflétt
Danir köstuðu af sér grímunum á miðnætti þegar öllum samkomutakmörkum var aflétt þar í landi. Bareigandi sagðist spenntur að fá að taka á móti fólki á ný og segir Íslendingur að háskólanemar ætli að djamma fram á nótt. Sóttvarnalæknir vill ekki fara sömu leið og Danir.

Sýndi fram á meintan fáránleika aðgerða í beinni
Framkvæmdastjóri Senu kallar eftir því að stjórnvöld afnemi eins metra fjarlægðarreglu á skipulögðum viðburðum. Hann er gagnrýninn á að ekki megi selja áfengi á viðburðum, meðan fólk geti farið gagngert á barinn til þess að drekka áfengi.

Vilja eins metra regluna burt
Tónlistarmenn segja nýjar reglur um samkomutakmarkanir hafa verið vonbrigði. Ótækt sé að halda tónleika eins og núgildandi takmörkunum er háttað og eins metra regluna vilja þeir burt.

Tekur ekki undir með Sigríði en gætu þurft að aflétta hraðar
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur ekki undir með flokkssystur sinni Sigríði Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem telur að stjórvöld brjóti lög með því að aflétta ekki strax öllum takmörkunum.


„Ég varð fyrir vonbrigðum“
Þær sóttvarnaaðgerðir sem kynntar voru í gær eru vonbrigði. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem hefði viljað sjá ríkisstjórnina ganga lengra í afléttingum.

Þessar afléttingar tóku gildi á miðnætti
Breytingar á samkomutakmörkunum tóku gildi á miðnætti og gilda til og með 24. febrúar næstkomandi. Meðal stærstu breytinga er að hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman er nú fimmtíu manns í stað tíu og tekin er upp eins metra nálægðarregla í stað tveggja metra reglu.

„Ég hef ekki klippt mig í tvö ár“
Leikarar fagna afléttingum á sóttvarnatakmörkunum en nú mega allt að fimm hundruð leikhúsgestir mæta á leiksýningar.

Veitingamenn harma hversu skammt er gengið í afléttingum
Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að afléttingaráform ríkisstjórnarinnar gangi alltof skammt til að forða fyrirtækjum frá voða.

Eigi að vera tilbúin að aflétta fyrr ef við á
„Ég held að þetta sé varfærið og skiljanlegt fyrsta skref og við höfum svo fyrirsjáanleikann í því að geta afléttað hér öllu um miðjan mars ef allt gengur að óskum. Við höfum alltaf í huga að geta aflétt fyrr ef staðan þróast þannig, við verðum bara að meta þetta jöfnum höndum,“

Vonar að útbreidd smit veiti góða vörn fyrir nýjum afbrigðum
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lagt til að öllum sóttvarnaaðgerðum sem eru í gildi innanlands verði búið að aflétta um miðjan marsmánuð. Hann segir að mikilvægt sé að taka smá skref í afléttingum svo ekki komi of stórt bakslag.

Svona sér Þórólfur fyrir sér að hægt sé að aflétta öllu
Gangi allt að óskum er stefnt að því að öllum innanlandsaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins verði hætt þann 14. mars. Reiknað er með að reglur um einangrun og sóttkví verði afnumdar frá og með 24. febrúar

„Þetta er auðvitað mikil breyting“
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að aðgerðaráætlun í átt að afléttingu allra sóttvarnaraðgerða vegna Covid-19 faraldursins séu mikil breyting fyrir samfélagið. Hún vonast til þess að hægt verði að fylgja öllum skrefum áætlunarinnar þannig að öllu verði hér aflétt um miðjan mars-mánuð.

Áhorfendur leyfðir á íþróttaleikjum á ný
Frá og með morgundeginum mega áhorfendur mæta að nýju á íþróttakeppnir á Íslandi, allt að 500 manns í hverju sóttvarnahólfi.

Fimmtíu mega koma saman á miðnætti og stefna á að aflétta öllu í mars
Fimmtíu mega koma saman á miðnætti og eins metra nándarregla tekur jafnframt gildi. Krár og skemmtistaðir mega opna að nýju og opnunartími þeirra og annarra veitingastaða verður lengdur til 23.

Ríkisstjórnin kynnti afléttingaáætlun samkomutakmarkana
Ríkisstjórnin mun í dag kynna svokallaða afléttingaáætlun vegna samkomutakmarkana þar sem greint verður frá því með hvaða hætti stendur til að aflétta innanlandstakmörkunum.

Vonir um bjartari tíma framundan eftir tvö ár af óvissu
Tvö ár eru nú liðin frá því að óvissustigi almannavarna var lýst yfir hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins. Óvissan hefur svo sannarlega verið mikil frá upphafi og er hún það enn í dag. Vonir eru þó uppi um að endalok faraldursins sé í nánd en hvort það reynist rétt getur tíminn einn leitt í ljós.

Undanþága veitt frá sóttvarnareglum á Bessastöðum
Nokkurrar undrunar gætir á samfélagsmiðlum vegna þess sem sjá mátti í útsendingu Ríkissjónvarpsins frá Bessastöðum í gærkvöldi, þegar Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent: Ekki verði betur séð en lög um sóttvarnir séu þar þverbrotin. Ekki segir skrifstofa forseta Íslands.

Hjarðónæmi fyrir páska
Sóttvarnalæknir og Kári Stefánsson telja báðir líklegt að við verðum laus við faraldurinn fyrir páska. Tillögur að afléttingaráætlun verða kynntar lok vikunnar en Kári segir ekki eftir neinu að bíða og vill afnema bæði sóttkví og einangrun.