
Samkomubann á Íslandi

Sundlaugarnar verða opnar
Starfsemi sundlauga í Reykjavík verður löguð að þeim fjöldatakmörkunum sem taka gildi á hádegi á morgun.

Víðir og Þórólfur styttu sumarfríin
Vegna fjölgunar smita í samfélaginu ákváðu þeir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að stytta sumarfríin sín

Strætó ekki skylt að hafa grímuskyldu
Samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir reglur um grímunotkun vera í smíðum.

Eiga von á því að smitum fjölgi næstu daga
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir það hafa verið nauðsynlegt að grípa til þeirra aðgerða sem kynntar voru í dag.

Besti tíminn en „helvíti skítt“
Björn Leifsson, eigandi World Class, segir nýtilkynntar samkomutakmarkanir vissulega hafa áhrif á reksturinn.

Fermingar munu fara fram í haust
Með hertum fjöldatakmörkunum og endurkomu tveggja metra reglunnar er ljóst að athafnir innan Þjóðkirkjunnar verða með breyttum hætti.

Hefði viljað ganga lengra en virðir ákvörðunina
Kári Stefánsson segist ánægður með að tekin hafi verið ákvörðun um að herða á samkomutakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins hér á landi.

Viðbúnaðarstig almannavarna ekki hækkað að svo stöddu
Dómsmálaráðherra fundaði með ríkislögreglustjóra og öðrum lögreglustjórum landsins í dag.

Neyðarstjórn borgarinnar kölluð til fundar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur hefur kallað neyðarstjórn borgarinnar til fundar síðar í dag til að fara yfir „þær breytingar á þjónustu og útfærslu hennar“ sem hertar reglur vegna kórónuveirunnar hafa í för með sér.

Þau sem dvelja hér til lengri tíma mesta áskorunin
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir eina helstu áskorunina í baráttunni við útbreiðslu kórónuveirunnar hér á landi séu Íslendingar sem komi erlendis frá og aðrir sem komi hingað til lands til þess að dveljast hér í lengri tíma.

„Stöndum saman í þessu“
Víðir Reynisson segir ljóst að með hertum samkomutakmörkunum sé ætlast til þess að fyrirhuguðum viðburðum næstu helgar verði slegið á frest.

Telur ekki að of brátt hafi verið farið í opnun landsins
Forsætisráðherra telur það ekki hafa verið mistök að liðka fyrir komu ferðamanna hingað til lands. Þá segir hún mögulegt að aðgerðir á landamærunum verði hertar síðar meir.

Tveimur hátíðum aflýst meðan nýju reglurnar voru kynntar
Tveimur útihátíðum um verslunarmannahelgina var aflýst á meðan blaðamannafundur stjórnvalda um hertar kórónuveiruaðgerðir stóð yfir.

Svona var blaðamannafundur um breyttar sóttvarnaraðgerðir
Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar í Safnahúsinu við Hverfisgötu klukkan 11 í dag, fimmtudaginn 30. júlí.

Ríkisstjórnin fundar um aðgerðir
Ríkisstjórn Íslands fundar klukkan níu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Íslendingar blésu á varnaðarorð um reykingar í faraldrinum
Á meðan sum nýttu tilbreytingaleysi samkomubannsins í gönguferðir, framkvæmdir og umpottun virðast önnur hafa reykt sem aldrei fyrr.

Tónleikum Á Móti Sól á Akranesi aflýst: „Höfum engan áhuga á að stofna fólki í hættu“
Tónleikum hljómsveitarinnar Á Móti Sól sem áttu að fara fram laugardaginn næsta, 1. ágúst á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi hefur verið aflýst vegna óvissu ástands sem skapast hefur vegna faraldurs kórónuveirunnar.

Ákvörðun um tveggja metra reglu gæti legið fyrir á næstu dögum
Landlæknir segist reikna með því að sóttvarnalæknir sendi ráðherra minnisblað sitt sem inniheldur tillögur um aðgerðir vegna kórónuveirunnar í kvöld og að ákvörðun heilbrigðisráðherra geti legið fyrir á næstu dögum.

Athugull starfsmaður Reebok fitness stöðvaði brot á sóttkví
Fulltrúar smitrakningarteymis almannavarna þurftu í dag að senda einstakling sem átti að vera í sóttkví heim úr líkamsræktarstöðinni Reebok fitness við Lambhaga í Reykjavík.

Fjögur ný innanlandssmit greindust í gær
Ekki er búið að skera úr um það hvort þau séu tengd þeim sýkingum sem komið hafa upp síðustu daga.

Miklar líkur taldar á hertari aðgerðum í dag
Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hyggst ekki aðstoða heilbrigðisyfirvöld við skimun gegn kórónuveirunni nema samkomuhöft verði hert.

Undirbúa það sem þeir vildu ekki þurfa að undirbúa
Arnar Gíslason segir fjölgun smita slæmar fréttir fyrir rekstraraðila fari það svo að gripið verði til harðari aðgerða á ný.

Veiran náð að dreifa sér ef smitin tengjast hópsýkingunni
Ef innanlandssmitin tvö sem greindust í gær tengjast hópsýkingunni sem kom upp á Akranesi gæti þurft að grípa til harðari aðgerða að sögn Kamillu Sigríðar Jósefsdóttur

Tilslökunum á samkomubanni frestað um tvær vikur
Fyrirhuguðum tilslökunum á samkomubanni sem taka áttu gildi 4. ágúst næstkomandi verður frestað um tvær vikur.

Í athugun hvort grípa þurfi til hertari aðgerða
21 er með staðfest kórónuveirusmit hér á landi og 173 eru í sóttkví. Í athugun er hvort grípa þurfi til hertari aðgerða.

Unga fólkið of skynsamt til að taka einhverjar áhættur
Lögreglan og viðbragðsaðilar biðla til fólks að sýna skynsemi og hópast ekki saman á stórum óformlegum skemmtunum um verslunarmannahelgina.

Samkomubann miðast við þúsund eftir verslunarmannahelgi
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis að framlengja núgildandi samkomubann fram yfir verslunarmannahelgi.

Opið til miðnættis strax eftir verslunarmannahelgi
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sent heilbrigðisráðherra minnisblað þar sem lagt er til að afgreiðslutími vínveitinga- og skemmtistaða verði lengdur til miðnættis þriðjudaginn 4. ágúst.

Hafa áhyggjur af „sjálfsprottnum“ útihátíðum
Ekki er enn búið að ákveða hvort gerðar verði sérstakar ráðstafanir vegna þessa.

Telur tilefni til tilslakana eftir verslunarmannahelgi
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ýjar að því að hann muni leggja til að núverandi samkomubann verði rýmkað eftir verslunarmannahelgi.