
Besta deild karla

Leikur FH og Stjörnunnar færður fram um klukkustund
Þó hvorugu liðinu sé spáð frábæru gengi í sumar þá er leikur FH og Stjörnunnar umtalaðasti leikur 2. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu. Hann hefur nú verið færður fram um klukkustund vegna handboltaleiks FH sama dag.

Vindurinn stendur undir nafni
Landsliðsmaðurinn fyrrverandi Birkir Már Sævarsson er með gælunafnið „Vindurinn“ vegna þess gríðarlega hraða sem hann býr yfir. Þrátt fyrir að vera orðinn 38 ára gamall virðist ekkert farið að hægjast á Birki Má sem var fljótasti leikmaður Vals í 1. umferð Bestu deildar karla.

„Fannst þeir fara miklu oftar upp bakvið Kennie“
Lárus Orri Sigurðsson leikgreindi viðureign KA og KR í 1. umferð Bestu deildar karla í Stúkunni að leik loknum. Farið var yfir sóknarleik heimamanna í leiknum en þær fóru flestar upp vinstri vænginn, í svæðið sem Kennie Chopart – hægri bakvörður KR – hafði skilið eftir á bakvið sig.

Útskýrði af hverju Stjarnan getur ekki skipt á heimaleikjum við FH
Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, hefur útskýrt af hverju félagið vildi ekki skipta á heimaleikjum við FH í Bestu deild karla í knattspyrnu. Allar líkur eru á að leikur liðanna í 2. umferð fari fram á frjálsíþróttarvelli FH-inga.

Stjarnan vildi ekki skipta við FH: „Fer ekkert fram á iðagrænum grasvelli“
FH og Stjarnan mætast líkast til á frjálsíþróttavelli FH í 2. umferð Bestu deildar karla á laugardag. Kaplakrikavöllur er ekki leikfær og vilja FH-ingar heldur reita upp slæmt gras á frjálsíþróttavellinum en fótboltavellinum. Gervigras Stjörnumanna virðist ekki hafa verið laust undir leik laugardagsins.

Brynjar númer 69 til að heiðra lítinn frænda og heilbrigðiskerfið
Brynjar Gauti Guðjónsson, leikmaður Fram í Bestu deildinni í fótbolta, mætti til leiks á nýrri leiktíð á mánudag með nýtt númer á bakinu, 69. Það gerir hann fyrir frænda sinn sem fór í hjartastopp í 69 mínútur fyrr á þessu ári.

Hóf þjálfaraferilinn í efstu deild á lygilegum sigri: „Er í þessu fyrir þessar tilfinningar“
Hann byrjaði þjálfaraferil sinn í efstu deild með lygilegum sigri gegn Íslandsmeisturunum og erkifjendunum. Ómar Ingi Guðmundsson fer af stað með látum í Bestu-deildinni.

Leikur KR og Keflavíkur færður
Keflavík tekur á móti KR í annarri umferð Bestu deildar karla í fótbolta á laugardaginn kemur. Heimavöllur Keflavíkur er ekki klár, frekar en aðrir grasvellir landsins, og hefur leikurinn því verið færður.

„Galin ákvörðun“ að skjóta en Anton virðist veikur fyrir miðju marki
Sigurmark HK gegn Breiðabliki í 4-3 sigri þeirra í Kópavogsslagnum í Bestu deild karla var til umræðu í Stúkunni sem gerði alla fyrstu umferðina upp í gærkvöld. Sammælst var um að ákvörðun Atla Þórs Jónassonar að skjóta að marki hafi verið vafasöm, en hann hafi haft heppnina með sér vegna markvörslutilburða Antons Ara Einarssonar.

Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar
Besta deild karla í fótbolta fór af stað með látum í gær er heil umferð fór fram. Í umferðinni voru dramatísk mörk, óvænt úrslit og skemmtilegir taktar.

Hefur ekki gerst í tvo áratugi
Hinn hreint út sagt ævintýralegi 4-3 sigur HK gegn Breiðabliki í gærkvöld er merkilegur fyrir margra hluta sakir.

Höskuldur: Kemur annar dagur eftir svona dag
Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika var vitaskuld svekktur eftir ótrúlegan leik Breiðabliks og HK í Bestu deildinni í kvöld. HK vann 4-3 sigur í dramatískum leik.

„Við vorum ekki með hann inni í vítateignum þeirra og þá er erfitt að skora"
„Það er geggjað að þetta sé byrjað, búinn að hlakka til lengi. Svekkjandi að það sé ekki betri niðurstaða," sagði Guðmundur Kristjánsson, miðjumaður Stjörnunnar, eftir tap á móti Víkingum á Samsungvellinum í kvöld. Leikið var í fyrstu umferð Bestu deildar karla.

Hemmi Hreiðars: „Við erum hundfúlir“
Hermann Hreiðarsson var svekktur eftir að lærisveinar hans í ÍBV töpuðu gegn Val í fyrstu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Hlíðarenda í kvöld. ÍBV var betra liðið í fyrri hálfleik en náði ekki að halda út gegn sterku liði Vals sem tók stigin þrjú í endurkomusigri, 2-1 lokatölur.

„Ég var eins og lítill krakki inni í klefa í dag"
„Þetta var vinnusigur en um leið og við misstum smá einbeitingu sáum við að Stjarnan er gott lið og gátu refsað okkur. Fyrst og fremst ógeðslega sáttur með liðs frammistöðuna og að halda hreinu,“ sagði Matthías Vilhjálmsson, miðjumaður Víkinga, eftir sigur á móti Stjörnunni á Samsungvellinum í kvöld. Leikið var í fyrstu umferð Bestu deildar karla.

Umfjöllun og myndir: Breiðablik - HK 3-4 | Ótrúlegur sigur HK í mögnuðum Kópavogsslag
Nýliðar HK gerðu sér lítið fyrir og unnu 4-3 sigur á nágrönnum sínum í Breiðablik í stórkostlegum Kópavogsslag í Bestu deildinni í kvöld. Sigurmark HK kom í uppbótartíma eftir að liðið hafði misst niður tveggja marka forskot í síðari hálfleiknum.

„Mesti vorbragurinn var á dómaranum“
Fram og FH gerðu 2-2 jafntefli í hörkuleik. Jón Sveinsson, þjálfari Fram, var nokkuð sáttur með stigið en fannst halla á Fram í dómgæslunni.

Umfjöllun: Valur - ÍBV 2-1 | Góð endurkoma Valsmanna
Valsmenn unnu sterkan sigur á ÍBV í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu á Hlíðarenda á öðrum degi páska. Eftir sterka byrjun gestanna í fyrri hálfleik náðu heimamenn yfirhöndinni í þeim seinni sem skilaði þeim endurkomu sigri í fyrsta leik tímabilsins, lokatölur 2-1 fyrir Val.

Umfjöllun: Stjarnan - Víkingur 0-2 | Góður útisigur Víkinga í Garðabæ
Víkingur vann 2-0 útisigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í fyrstu umferð Bestu deildar karla á Samsung-vellinum í kvöld.

Umfjöllun: Fram - FH 2-2 | Jafntefli í Úlfarsárdalnum
Fram og FH skildu jöfn í 1. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn var hin mesta skemmtun þar sem bæði lið fengu nóg af færum. Leikurinn endaði með sanngjörnu 2-2 jafntefli.

Hallgrímur: Við lifum og lærum
„Það eru blendnar tilfinningar eftir þennan leik,“ sagði Hallgrímur Jónasson eftir 1-1 jafntefli á móti KR á Greifavellinum í dag.

„Það kallast að verjast þegar þú ert að sækja“
„Maður fann það síðustu vikuna að páskarnir voru eiginlega bara fullir tillhlökkunar að æfa og bíða eftir þessum degi í rauninni,“ sagði Sindri Snær Magnússon, miðjumaður Keflavíkur eftir 1-2 sigur þeirra á Fylki í fyrstu umferð Bestu deildar karla.

Umfjöllun: Fylkir - Keflavík 1-2 | Gríðarleg dramatík í Lautinni
Nýliðar Fylkis töpuðu 1-2 gegn Keflavík í 1. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir að hafa komist yfir með fyrsta marki Bestu deildarinnar árið 2023. Markið skoraði Benedikt Daríus Garðarsson. Sami Kamel Jafnaði metinn á 74. mínútu og sigurmarkið skoraði svo Dagur Ingi Valsson í uppbótartíma leiksins.

Umfjöllun og viðtal: KA - KR 1-1 | Þorri Mar hetja heimamanna
KA og KR gerðu 1-1 jafntefli í 1. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í dag. Eins og oft vill verða í rimmum þessara liða að þá var lítið af mörkum en leikurinn hraður og skemmtilegur í dag sem er breyting frá því í fyrra.

Leik Vals og ÍBV frestað um 45 mínútur
Leikur Vals og ÍBV í 1. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu hefur verið frestað um 45 mínútur. Leikurinn átti að hefjast klukkan 18.30 en hefst nú klukkan 19.15.

„Það skemmtilegasta sem maður gerir“
Taugarnar eru ljómandi fínar. Það er ótrúleg tilhlökkun og gleði í loftinu, segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, en hans menn opna Íslandsmótið sem nýliðar er Keflavík heimsækir Árbæinn klukkan 14:00 í dag.

„Verandi í Val og þær kröfur sem eru þar þá stefnum við að sjálfsögðu á fyrsta sætið“
Spennan magnast sífellt fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu sem hefur göngu sína síðar í dag. Vísir og Stöð 2 heyrðu í mönnum og spurðu einfaldlega hvaða körfur þeir gera til síns lið. Hér að neðan má heyra kröfur KA, KR, Vals og Breiðabliks.

Þessi dæma opnunarumferðina í Bestu deildinni
Keppni í Bestu deild karla í fótbolta hefst í dag með heilli umferð.

Schram mættur í hásætið
Frederik August Albrecht Schram mætti með látum inn í Bestu deildina á síðustu leiktíð þegar hann samdi við Val um mitt sumar. Þó Valsmenn hafi ekki riðið feitum hesti þá var Schram án efa einn, ef ekki sá, besti markvörður deildarinnar.

Víkingur kynnir færeyska landsliðsmiðvörðinn til leiks
Knattspyrnudeild Víkings tilkynnti í dag að félagið hefði samið við varnarmanninn Gunnar Vatnhamar.