Bruni á Bræðraborgarstíg „
1 2 3 4 … 4 ›
„Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ „Ég held að ég hafi verið minnstur eða næstminnstur við fermingu,“ segir Jón Viðar Matthíasson þegar hann rifjar upp fermingarmyndina sína. Atvinnulíf 24.5.2026 08:00
„Ekkert óeðlilegt við það að endurskoða þetta kerfi“ Fjármálaráðherra segir það koma vel til greina að endurskoða lög um brunatryggingar og tekur undir að það skorti hvata hér á landi svo eigendur húsnæðis fylgi á eftir öryggismálum. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir ábyrgð eigenda í brunavörnum vera mikla. Innlent 4.9.2025 23:41
„Fáum enn á borð til okkar atriði sem maður missir hökuna yfir“ Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir mannskæðan bruna á Bræðraborgarstíg fyrir fimm árum enn liggja þungt á slökkviliðsmönnum. Sérstök ráðstefna fór fram á Grand hótel í morgun vegna þessara tímamóta þar sem fulltrúar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, slökkviliðsins, Alþýðusambandsins og ríkisstjórnarinnar fóru yfir breytingar síðustu fimm ára. Innlent 4.9.2025 13:23
Bein útsending: Brunavarnir og öryggi til framtíðar Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem veikleikar í kerfum og regluverki komu skýrt í ljós. Í kjölfarið hófst víðtæk umbótavinna þar sem stofnanir og atvinnulíf tóku höndum saman með það markmið að efla öryggi og bæta eftirlit. Innlent 4.9.2025 08:32
Ábyrgðin hjá eigendum húsnæðis: „Þetta getur ekki gengið svona áfram“ Innviðaráðherra skoraði á eigendur atvinnuhúsnæðis, sem búið er í, að koma því í lag á Alþingi í dag. „Þetta getur ekki gengið svona áfram,“ sagði hann og vísaði til fjölda alvarlegra eldsvoða sem orðið hafa undanfarið. Innlent 27.11.2023 21:01
Leigusalar verði að átta sig á ábyrgðinni Slökkviliðsstjóri segir leigusala verða að átta sig á ábyrgð sinni þegar kemur að brunavörnum. Húsið við Stangarhyl í Árbæ, þar sem eldur kom upp í morgun, var ekki samþykkt íbúðarhúsnæði. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi vegna brunans Innlent 26.11.2023 20:01
Ráðist í lagabreytingar í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg Innviðaráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna brunavarna í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu til að tryggja að sem réttastar upplýsingar liggi fyrir á hverjum tíma um búsetu fólks. Innlent 18.7.2023 06:35
Dómur staðfestur í Bræðraborgarstígsmálinu Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Marek Moszczynski vegna íkveikjunnar á Bræðraborgarstíg í júní fyrir tæpum tveimur árum síðan þar sem þrír létust. Dómurinn felur í sér að hann muni sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Innlent 10.6.2022 18:38
Aðstandendur og íbúar fara fram á 162 milljónir króna bætur Aðstandendur þeirra sem létust í brunanum á Bræðraborgarstíg 1 sumarið 2020 og aðrir fyrrverandi íbúar hússins hafa farið fram á bætur upp á 162 milljónir króna. Innlent 24.3.2022 07:21
Hafa selt mikinn meirihluta eigna HD verks eftir brunann Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar þess efnis að sýslumanni beri að gera kyrrsetningu hjá HD verki ehf, í tengslum við skaðabótakröfur vegna brunans sem varð þegar Bræðraborgarstígur 1 brann síðasta sumar. Félagið hefur selt stóran hluta eignasafns síns. Innlent 9.12.2021 18:35
Fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði og kortleggja búsetu fólks Fulltrúar slökkviliðs munu á næstu mánuðum fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og kortleggja búsetu fólks. Ráðist er í verkefnið í kjölfar brunans á Bræðraborgarstíg og slökkviliðsstjóri segir markmiðið að tryggja öryggi þeirra sem búa í slíku húsnæði. Innlent 27.10.2021 11:59
Bein útsending: Á vakt fyrir Ísland Í dag og á morgun fer fram málþingið „Á vakt fyrir Ísland“, sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir. Á dagskrá eru ýmis erindi sem tengjast störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og umfjöllun um nokkur af stærri verkefnum þeirra síðasta ár. Innlent 22.10.2021 09:20
Segir Marek sitja heilan heilsu inni á geðdeild Lögmaður mannsins sem dæmdur var til að sæta öryggisvistun vegna brunans á Bræðraborgarstíg síðasta sumar segir hann sæta ómannúðlegri meðferð á réttargeðdeild. Sótt hefur verið um leyfi til að áfrýja dómi héraðsdóms til Landsréttar. Innlent 29.6.2021 19:00
Ætla að búa saman í Nornahúsi einungis ætluðu konum á besta aldri Fimm vinkonur ætla að búa saman í svokölluðu Nornahúsi sem mun rísa í stað hússins sem brann á Bræðraborgarstíg í fyrra. 25 íbúðir verða í húsinu og geta því fleiri bæst í hópinn en íbúðirnar verða einungis seldar konum yfir sextugt. Innlent 18.6.2021 20:00
Vilja fjarlægja minningu um hörmulega atburði og reisa eitthvað fallegt Framkvæmdir við að rífa brunarústirnar að Bræðraborgarstíg 1 í vesturbæ Reykjavíkur hófust í dag. Húsið brann seint í júnímánuði á síðasta ári með þeim afleiðingum að þrjú létu lífið. Talsmaður nýrra eigenda hússins segir vonir standa til að hægt verði að klára niðurrif hratt og vel. Innlent 8.6.2021 19:16
Marek dæmdur til að sæta öryggisvistun vegna brunans á Bræðraborgarstíg Marek Moszczynski, pólskur karlmaður á sjötugsaldri, var sýknaður af kröfu um refsingu fyrir að hafa orðið þremur að bana í bruna á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. Marek var metinn ósakhæfur og verður gert að sæta öryggisvistun. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt í þessu. Innlent 3.6.2021 15:04
Dómur í Bræðraborgarstígsmálinu kveðinn upp í dag og húsið rifið fyrir 17. júní Stefnt er að því að niðurrifi og hreinsun á brunarústunum við Bræðraborgarstíg 1 verði lokið fyrir 17. júní næstkomandi. Dómur yfir Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir manndráp og manndrápstilraun með því að kveikja í húsinu, verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 3.6.2021 12:08
Segir átakanlegt að horfa daglega á persónulegar eigur hinna látnu Íbúi sem býr á móti húsinu að Bræðraborgarstíg sem brann fyrir tæpu ári síðan segist afar ósáttur við að húsið standi enn með öllu innbúi. Hún segir átakanlegt að horfa á persónulegar eigur hinna látnu og gagnrýnir að svæðið sé ekki þrifið. Innlent 2.6.2021 21:01
„Gæti ekki verið sennilegra að hann hafi bara verið reykingamaður?“ Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Mareks Moszczynski, pólsks karlmanns á sjötugsaldri, segir saksóknara í málinu ekki hafa sannað að Marek hafi kveikt í húsi við Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar. Það eitt hafi verið sannað fyrir dómi og það er að Marek hafi glímt við andleg veikindi í aðdraganda og kjölfar brunans. Innlent 5.5.2021 14:01
Krafa um ævilangt fangelsi eða vistun á öryggisgeðdeild Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari fer fram á að Marek Moszczynski verði dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að verða valdur að dauða þriggja í eldsvoða við Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. Innlent 5.5.2021 12:10
Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur. Innlent 5.5.2021 09:01
Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna. Innlent 3.5.2021 06:48
Síðasta degi aðalmeðferðar frestað Síðasta degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hefur verið frestað fram í næstu viku. Innlent 30.4.2021 10:35
Gjörbreyttur eftir áfallið á spítalanum Marek Moszczynski, pólskur karlmaður sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar, taldi sig vera með illkynja krabbamein þegar bruninn varð. Geðlæknar telja líklegt að áfallið við þær fréttir hafi komið andlegum veikindum hans af stað. Innlent 28.4.2021 12:26
Komst út á hnjánum vafinn í sæng og svo haldið sofandi í mánuð Íbúi að Bræðraborgarstíg 1, sem brann til kaldra kola síðdegis 25. júní, var tvo mánuði á sjúkrahúsi og þar af haldið sofandi í mánuð eftir brunann. Hann þurfti að gangast undir húðágræðslu vegna brunasára. Þá lýsti hann því að þegar var byrjað að skíðloga í húsinu þegar hann áttaði sig á því að kviknað væri í. Innlent 28.4.2021 10:41
Hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju við Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið skömmu eftir að kveikt var í húsinu þann 25. júní. Innlent 27.4.2021 16:41
Hvarf inn í reykinn og sást ekki meir Lögreglumenn sem voru með þeim fyrstu á vettvang brunans að Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar lýsa algjöru „kaosástandi“. Fólk hafi legið í götunni eftir að hafa kastað sér út úr húsinu og ekki hafi verið unnt að hjálpa öllum; maður á þriðju hæð hafi til dæmis „horfið inn í reykinn“ og ekki sést meir. Innlent 27.4.2021 13:47
Íslenska parið neitar því að hafa kveikt í húsinu Íslenskt par sem bjó á fyrstu hæð hússins að Bræðraborgarstíg 1, sem brann til grunna síðasta sumar, neitar því að hafa átt þátt í íkveikjunni. Þau voru bæði heima þegar eldurinn kviknaði og lýsa skelfilegri atburðarás síðdegis 25. júní 2020. Innlent 27.4.2021 10:41
Sjónum beint að íslensku pari Vinnuveitandi Mareks Moszczynski, pólsks karlmanns á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hitti Marek tveimur klukkustundum fyrir íkveikjuna. Marek hafi þá verið í miklu andlegu ójafnvægi, sem þykir afar ólíkt honum. Innlent 26.4.2021 20:34
Kom inn ganginn í ljósum logum Örvænting og skelfing einkenndi frásagnir íbúa að Bræðraborgarstíg 1 þegar þeir lýstu eldsvoðanum 25. júní í fyrra við aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þá sögðu þeir frá því að Marek Moszczynski, karlmaður á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana í húsinu með íkveikju, hefði verið mikill rólyndismaður – en sumir tóku eftir einkennilegri hegðun hans í aðdraganda eldsvoðans. Innlent 26.4.2021 16:32