Íslenski körfuboltinn

Dagskráin í dag: Sportið í dag, Domino´s Körfuboltakvöld, pílumót og margt fleira
Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

„Erfiðasta ákvörðun sem stjórn í sérsambandi hefur þurft að taka“
Kjartan Atli Kjartansson ræddi við Birnu Lárusdóttur, stjórnarmeðlim körfuknattleiksdeild Vestra, um ákvörðun KKÍ að blása tímabilið hér heima af.

Mættu of seint vegna tafa á brautinni en Sigurður sýndi enga miskunn
Fannar Ólafsson segir að aginn hjá Sigurði Ingimundarsyni hjá Keflavík hafi hjálpað sér mikið. Það var ekki sýnd nein miskunn þegar menn mættu of seint, sama hver ástæðan fyrir því hafi verið.

Prufuðu boltaspuna á kollinum á Henry
KKÍ hefur sett skemmtilegan leik á laggirnar á tímum samkomubanns en þar hefur verið svokölluð boltaspuna-áskorun í gangi þar sem fólk á öllum aldri er hvatt til þess að taka þátt. Þetta er ein þraut af mörgum sem KKÍ hyggst koma fram með á næstu dögum og vikum.

Keflavík heldur Wallen - Samið við þjálfara og 13 leikmenn
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur gengið frá samningum við báða þjálfara og 13 leikmenn kvennaliðs félagsins sem varð í 3. sæti Domino‘s-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Sportið í dag í heild sinni: Víðir í heimsókn og farið yfir víðan völl
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn var gestur Kjartans Atla Kjartanssonar og Henrys Birgis Gunnarssonar í Sportinu í dag á föstudaginn. Farið var um víðan völl í þættinum sem nú má sjá í heild sinni hér á Vísi.

Hugur í Þórsurum sem ræða við þjálfara
John Júlíus Cariglia, stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild Þórs Akureyri, segir mikinn hug í mönnum fyrir norðan og mikinn áhuga á körfubolta í bænum. Þórsarar eru nú í þjálfaraleit.

Þjálfari bikarmeistaranna heldur áfram
Guðrún Ósk Ámundadóttir náði mögnuðum árangri á sínum fyrsta vetri sem aðalþjálfari Skallagríms og hún verður áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð.

Haukur hafnaði NBA-boði vegna fæðingar dóttur sinnar: „Mun aldrei sjá eftir þessu“
Hauki Helga Pálssyni bauðst að spila með Zion Williamson og félögum í liði New Orleans Pelicans í NBA sumardeildinni í körfubolta í Las Vegas síðasta sumar. Hann ákvað hins vegar að vera frekar viðstaddur fæðingu dóttur sinnar.

Taktu þátt í þrautakeppni KKÍ
KKÍ stendur fyrir heimakeppni í körfubolta sem allir geta tekið þátt í.

Góður grunnur heimastráka en Lárus skoðar Youtube-myndbönd
„Það hafa komið fram rosalega góðir leikmenn þarna og það gerist bara þegar maður er með félag þar sem verið hefur góður stöðugleiki,“ segir Lárus Jónsson, körfuboltaþjálfari, um sitt nýja félag Þór Þorlákshöfn.

Halldór Karl allt í öllu í þjálfun Fjölnis
Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Halldór Karl Þórsson um að stýra báðum meistaraflokksliðum félagsins auk þess að gegna starfi yfirþjálfara yngri flokka.

Tomsick til liðs við Tindastól
Körfuknattleiksmaðurinn Nikolas Tomsick mun spila á ný undir stjórn þjálfarans Baldurs Þórs Ragnarssonar á næstu leiktíð en hann hefur samið við Tindastól.

Segja að félögin eigi að standa við samninga þó að víða þurfi að finna samkomulag um skerðingu
Stjórn Þjálfarafélags Íslands í körfubolta sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem hvatt er til þess að félögin finni sanngjarna lausn hvað varðar þjálfara í hreyfingunni á þessum erfiðu tímum.

Dagskráin í dag: Domino´s Körfuboltakvöld, Driplið og margt fleira
Körfubolti er í aðalhlutverki íþróttarása Stöðvar 2 í dag. Driplið, Domino´s Körfuboltavöld, gömul úrslitaeinvígi og margt fleira.

Fær allavega eitt tækifæri í viðbót til að koma Hamri upp í Domino´s deildina
Máté Dalmay mun halda áfram þjálfari karlaliðs Hamars sem leikur í næst efstu deild. Dalmay lét KKÍ heyra það í kjölfar ákvörðunar sambandsins um að blása tímabilið hér heima af.

Ölli einn sá erfiðasti sem Jón mætti - Hefði getað farið lengst okkar allra
Jón Arnór Stefánsson segir að mögulega hefði Örlygur Aron Sturluson getað náð lengst allra íslenskra körfuboltamanna, hefði honum enst aldur til.

Jón Arnór segir Brenton besta útlendinginn sem spilað hefur á Íslandi
Jón Arnór Stefánsson segir að Brenton Birmingham sé besti erlendi leikmaðurinn sem hefur spilað hér á Íslandi. Brenton er í dag kominn með íslenskan ríkisborgararétt en Jón Arnór segir að hann hafi verið afar erfiður viðureignar.

„Meiri líkur á að ég hætti“
„Það eru meiri líkur á að ég hætti heldur en hitt,“ sagði Jón Arnór Stefánsson, sennilega besti körfuboltamaður Íslands frá upphafi, í Sportinu í kvöld á Stöð 2 Sport.

Finnur Freyr: Við erum heppin með dómara á Íslandi
Finnur Freyr Stefánsson, körfuboltaþjálfari, var gestur Henry Birgis Gunnarssonar og Kjartans Atla Kjartanssonar og ræddi muninn á íslenskum og dönskum körfubolta.

Dagskráin í dag: Krakkamótin, Meistaradeildarveisla og rafíþróttir
Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

„Hugmyndin að spila leikinn er ein mesta vanvirðing við íslenskt heilbrigðiskerfi“
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Horsens í Danmörku, segir að sú hugmynd um að spila hefði átt leik Hamars og Hattar í 1. deild karla eftir að samkomubannið var sett á, til þess að útkljá hvort liðið ætti að fara upp hafi verið vanvirðing við heilbrigðiskerfið.

Sportið í dag: „Fóru fram úr sér og hentu fram hlutum sem voru hvorki þeim né félaginu til framdráttar“
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Horsens í Danmörku og margfaldur Íslandsmeistari með KR í körfuboltanum á Íslandi, segir að Hamar hafi farið fram úr sér í umræðunni um ákvörðun KKÍ að blása körfuboltann af og láta einungis eitt lið fara upp úr 1. deildinni.

Dagskráin í dag: Dominos Körfuboltakvöld í nýjum búning, magnaðar rimmur Grindavíkur og KR og Íslandsmeistaratitill Selfoss
Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.

Stjörnumenn ætla að slá aðsóknarmetið á leik sem fer aldrei fram
Deildar- og bikarmeistarar Stjörnunnar í Domino´s deild karla í körfubolta ætla að fara sérstaka leið til að fjármagna liðið sitt nú þegar ljóst er að úrslitakeppnin fer ekki fram.

Ingvar um skuld KR: „Staðan ekki jafn slæm og tölurnar gefa til að kynna“
Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, segir að þrátt fyrir stóra skuld KR sé staða félagsins ekki eins slæm og hún líti út fyrir að vera.

Leikmenn á Íslandi hafa áhyggjur | Ástandið ekki gott áður en þessi faraldur fór af stað
Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, segir ljóst að efnahagslegar afleiðingar kórónuveirunnar bíti íþróttafélög landsins sem hafi auk þess ekki verið í sérlega góðri stöðu áður en veiran breiddist út.

Hamar telur ákvörðun KKÍ ólöglega
Körfuknattleiksdeild Hamars telur ákvörðun Körfuknattleikssambands Íslands ólöglega en sambandið ákvað að keppni í körfubolta hér á landi yrði ekki kláruð. Þýddi það að Hamar fór ekki upp í Domino´s deild karla, sem stefndi í.

Allt íþróttastarf fellur niður
Mælst er til þess að skipulagt íþróttastarf á Íslandi falli niður í óákveðinn tíma vegna aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Kjartan Atli: Hefði núllað þetta tímabil út
Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Domino´s Körfuboltakvölds bauð upp á sitt „hot take“ á ákvörðun KKÍ um að færa lið á milli deilda þótt að úrslit mótsins væru ekki ráðin.