

Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri í Sandgerðisskóla, mun leiða lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum.
Fárra minnisblaða er beðið með annarri eins eftirvæntingu og minnisblaða Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. Heimir Már Pétursson fréttamaður ræðir við hann og formanna og varaformann velferðarnefndar í Víglínunni á Stöð 2 í dag.
Þetta er grein um það hvernig við ætlum að vaxa út úr kreppunni. Spyrna okkur aftur upp. Sigla út úr öldudalnum. Ég gæti notað allar klisjurnar. Þetta er svoleiðis grein.
Karen Kjartansdóttirhefur gengt starfi framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar undanfarin tvö og hálft ár en hefur nú sagt sig frá því. Hún segir hugmyndir sínar og formanns framkvæmdastjórnar of ólíkar til að geta starfað áfram fyrir flokkinn. Innan við sex mánuðir eru í kosningar til Alþingis.
Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna birtir einlægan pistil um komandi prófkjörsslag og segist hreinlega ekki nenna að láta sem hann hafi ekki áhrif á sig andlega.
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í haust var samþykktur á fundi kjördæmaráðs flokksins í kvöld. Logi Einarsson, formaður flokksins, leiðir listann sem er sagður hafa verið samþykktur samhljóða.
Hlutabréf í Kauphöllinni hækkað um 50 milljarða króna í dymbliviku.
Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri og fyrrverandi ráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Vinstri grænna fyrir alþingiskosningar í haust.
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðismanna fyrir alþingiskosningar í haust. Frá þessu greinir Páll í stöðuuppfærslu nú síðdegis þar sem hann segir áhugann hafa dofnað eftir fimm ár á þingi.
Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, mun leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn. Guðbrandur, sem oftast er kallaður Bubbi að því er segir í tilkynningunni, er fyrrum formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja.
„Við vonum að þetta verði til að bæta andrúmsloftið innan hópsins og draga úr skrifum og athugasemdum sem eru beinlínis skaðleg fyrir flokkinn,“ segir í orðum sem eiga að útskýra nýjar reglur í Facebook-hópi Samfylkingarinnar.
Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu um endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins er næsti gestur í þættinum Samtal við stjórnmálin sem Samtök ferðaþjónustunnar stendur að.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skyldu stjórnarflokkanna þriggja að skoða áframhaldandi samstarf fái þeir fylgi til þess í komandi Alþingiskosningum.
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknar, vill leiða flokkinn í Suðvesturkjördæmi í Alþingiskosningunum í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. Hann var í fyrsta sæti Framsóknar í Kraganum í kosningunum árið 2017.
Glúmur Baldvinsson mun skipa efsta sæti á lista í öðru Reykjavíkurkjördæmanna á lista Frjálslynda lýðræðisflokksins.
Bjarni Jónsson hefur gefið kost á sér til þess að leiða lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Hann segir áherslur sínar felast í styrkingu innviða, traustri búsetu og fjölskylduvænu samfélagi á landsbyggðinni.
Valgarður Lyngdal Jónsson, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi á Akranesi, mun leiða lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum.
„Ég er löngu búinn að láta tattúa yfir það!“ svarar Páll Valur Björnsson, spurður að því hvort hann hyggist láta fjarlægja Samfylkingar-merkið af framhandlegg sínum eftir að hafa verið hafnað við uppstillingu á lista flokksins í Suðurkjördæmi.
Kosningabaráttan er hafin sem þýðir að frambjóðendur lenda í óvæntum ævintýrum. Formaður Sjálfstæðisflokksins lenti óvænt í hárblásaranum hjá helsta nýstirni Íslands.
Stöðnun á húsnæðismarkaði á landsbyggðinni er og hefur verið viðvarandi vandamál í mörgum byggðum landsins undanfarna áratugi og hefur hindrað atvinnuuppbyggingu og eðlilega samfélagsþróun.
Níu manns hafa gefið kost á sér í forvali um fimm efstu sætin á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.
Nú ólgar allt og kraumar innan Samfylkingarinnar vegna uppstillingar í Suðurkjördæmi. Oddný G. Harðardóttir skipar efsta sæti á lista þar en allir þeir sem höfðu opinberlega gefið kost á sér hafa dregið sig til baka.
Gunnar Rúnar Kristjánsson, bóndi og starfsmaður Rarik á Blönduósi, gefur kost á sér í 1. til 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Sumir tala um það að setja upp „landsbyggðargleraugun” þegar að þingmenn eða aðrir ráðamenn vekja athygli á málefnum landsbyggðarinnar. Ég á mér þann draum að fólk þurfi ekki að setja sig í stellingar til að standa fyrir málefnum er varða landsbyggðina.
Gert er ráð fyrir að framlög til loftslagsmála verði hátt í fjórum milljörðum krónum lægri árið 2026 en þau eru í ár í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Stjórnarandstöðuþingmaður segir áætlunina „plástur“ rétt fyrir kosningar.
Björn Leví Gunnarsson frá Pírötum er næsti gestur í þættinum Samtal við stjórnmálin sem Samtök ferðaþjónustunnar stendur að.
Guðmundur Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar mun leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn.
Ríkisstjórnin segist ætla að verja einum milljarði króna aukalega ári í framlög til loftslagsmála næstu tíu árin til þess að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Til stendur að herða aðgerðirnar í landnotkun, landbúnaði og samgöngum.
Gunnar Tryggvason, verkfræðingur sem starfar hjá Faxaflóahöfnum, hefur gefið kost á sér til að leiða framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara í september.