Hernaður
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 53 ›
Selenskí varar Úkraínumenn við auknum árásum á innviði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur varað Úkraínumenn við auknar árásir Rússa á innviði í landinu nú þegar vetur gengur í garð. Hann segir herinn búinn undir sókn Rússa á austurvígstöðvunum. Erlent 13.11.2023 03:16
Segir al Shifa orðið vettvang dauða, eyðileggingar og örvæntingar Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir al Shifa-sjúkrahúsið á Gasa ekki lengur starfhæft en þrír dagar séu nú liðnir án rafmagns og vatns. Stöðugar sprengingar og skotárásir hafi gert bága stöðu ómögulega. Erlent 13.11.2023 01:31
Ekkert bendir til að blaðamenn á Gasa hafi vitað af árásunum Framkvæmdastjóri HonestReporting segir samtökin aðeins hafa verið að velta upp spurningum þegar þau ýjuðu að því að palestínskir blaðaljósmyndarar hafi vitað af árás Hamas á Ísrael þann 7. október fyrir fram. Ekkert bendi til að ljósmyndararnir hafi vitað af árásinni fyrirfram. Erlent 10.11.2023 17:10
Blaðamenn á Gasa grunaðir um að hafa vitað af árásunum Samskiptaráðherra Ísrael hefur sakað blaðamenn á Gasa sem vinna í verktakavinnu fyrir erlenda miðla um að hafa haft vitneskju um árásir Hamas-liða 7. október síðastliðinn, áður en þeir létu til skarar skríða. Erlent 10.11.2023 08:40
Netanyahu segir Ísraela hvorki vilja sigra, hernema né stjórna Gasa Benjamin Netanyahu segir Ísrael ekki hafa í hyggju að sigra, hernema né stjórna Gasa eftir að stríðinu við Hamas lýkur. Hins vegar þurfi að tryggja að hægt sé að senda „trúverðugt afl“ inn á svæðið ef nauðsyn krefur, til að hindra uppgang hryðjuverkasamtaka. Erlent 10.11.2023 06:54
Áfram árásir á Bandaríkjamenn í Írak og Sýrlandi Minnst þrjár árásir voru gerðar á bandaríska hermenn í Írak í dag og minnst ein í Sýrlandi í gærkvöldi. Enginn er sagður hafa fallið í þessum árásum. Bandaríkjamenn vörpuðu í gær sprengjum á vopnageymslu byltingarvarða Íran í Sýrlandi í gær og var það gert vegna fjölda árásá vígahópa sem Íranar styðja á bandaríska hermenn í Írak og Sýrlandi. Erlent 9.11.2023 23:38
Segja Ísraela hafa samþykkt tímabundin hlé Ríkisstjórn Ísrael hefur samþykkt að hætta árásum á Gasaströndina í fjórar klukkustundir á degi hverjum. Með þessu er vonast til þess að fleiri óbreyttir borgarar geti flúið frá norðurhluta Gasa, þar sem barist er á götum Gasaborgar og annarra byggða. Erlent 9.11.2023 20:01
Leggja lokadrög að samkomulagi um mannúðarhlé gegn lausn gísla Viðræður standa yfir um þriggja daga mannúðarhlé á árásum Ísraelshers á Gasa gegn því að Hamas sleppi um tug gísla sem samtökin hafa í haldi. Frá þessu greinir Associated Press og hefur eftir fjórum ónafngreindum heimildarmönnum. Erlent 9.11.2023 06:52
Vörpuðu sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í kvöld loftárásir í austurhluta Sýrlands, sem sagðar eru hafa beinst gegn byltingarvörðum Írans og vígahópum sem Íran styður. Þá var bandarískur dróni skotinn niður af Hútum yfir Rauðahafinu. Erlent 8.11.2023 23:09
Þingkona í Bandaríkjunum ávítt fyrir meintan stuðning við hryðjuverk Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að ávíta þingkonuna Rashidu Tlaib, Demókrata frá Michigan, fyrir meinta vörn hennar á hryðjuverkum Hamas og stuðning hennar við slagorðin „Frá á til sjávar!“. Erlent 8.11.2023 08:01
Biden ekki sammála Netanyahu um yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa Joe Biden Bandaríkjaforseti styður ekki yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa, eins og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið til kynna að muni gerast að átökum loknum. Erlent 8.11.2023 06:43
Segja hermenn berjast í „hjarta Gasaborgar“ Ísraelskir hermenn eru sagðir komnir langt inn í Gasaborg. Mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur flúið borgina í dag og farið til suðurhluta Gasastrandarinnar. Erlent 7.11.2023 22:30
Segir alþjóðasamfélagið stara niður í hyldýpið Francesca Albanese, sérstakur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu, segir tilraunir Ísraelsmanna til að tortíma Hamas-samtökunum í kjölfar árásanna 7. október muni aðeins verða til þess að magna upp öfgahyggju. Erlent 7.11.2023 11:41
Segir Ísrael munu taka yfir öryggisgæslu á Gasa í einhvern tíma Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sagði í viðtali sem sýnt var á ABC í gær að Ísrael myndi axla ábyrgð á öryggismálum á Gasa í einhvern tíma eftir að átökunum sem nú standa yfir lýkur, þar sem menn hefðu séð hvað gerðist þegar aðrir væru við stjórnvölinn. Erlent 7.11.2023 07:08
Segir Gasaströndina líkjast grafreit fyrir börn Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Gasaströndina líkjast grafreit fyrir börn og kallar eftir tafarlausu vopnahlé. Erlent 6.11.2023 22:31
Íranir hvetja múslímaríkin til að setja þrýsting á Bandaríkin og Ísrael „Múslimaheimurinn verður að auka pólitískan þrýsting á Bandaríkin og stjórnvöld Zíonista til að binda enda á fjöldamorðið á Gasa,“ segir í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlasíðu Ayatollah Ali Khamenei, leiðtoga Íran, nú í morgun. Erlent 6.11.2023 10:49
Yfirmenn fjölda stofnana SÞ fordæma stöðuna og kalla eftir vopnahléi Ísraelsher segist hafa umkringt Gasaborg og náð að skipta Gasa í tvennt; Norður-Gasa og Suður-Gasa. Talsmaður hersins segir um að ræða mikilvægan áfanga í stríðinu gegn Hamas-samtökunum. Erlent 6.11.2023 06:43
Fundar með utanríkisráðherrum arabaríkja um vopnahlé Utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun funda um stöðuna á Gasa með utanríkisráðherrum nokkurra arabaríkja í dag. Íslandsdeild Amnesty International krefst þess að forsætis- og utanríkisráðherra leggi sitt af mörkum við að koma á vopnahléi. Innlent 4.11.2023 12:49
Segir hlé ekki inni í myndinni nema gíslum sé sleppt Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segir að ekki komi til greina að gera svokallað mannúðarhlé á átökunum á Gasaströndinni. Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er í Ísrael og ræddi hann við Netanjahú um slíkt hlé. Erlent 3.11.2023 15:28
Málaliðar Wagner færa Hezbollah loftvarnarkerfi Málaliðhópurinn rússneski, Wagner Group, er sagður ætla að senda hryðjuverkasamtökunum Hezbollah í Líbanon rússneskt loftvarnarkerfi, með mögulegri aðstoð Bashar al-Assad, forseta Sýrlands. Óttast er að Hezbollah ætli að opna nýja víglínu gegn Ísrael í norðurhluta landsins. Erlent 3.11.2023 11:43
Íslensk stjórnvöld auka fjárframlög og kalla eftir mannúðarhléi Íslensk stjórnvöld hyggjast tvöfalda framlög sín til mannúðaraðstoðar á Gasa. Frá þessu var greint við neyðarumræðu um átökin á svæðinu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi, þar sem fulltrúi Íslands kallaði eftir tafarlausu hléi. Innlent 3.11.2023 10:22
Salúsjní segir þrátefli á víglínunni Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir ólíklegt að Úkraínumenn muni ná að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa og að stríðið í Úkraínu sé að færast í nýjan fasa staðbundins hernaðar og þreytistríðs (e: attritional warfare). Hann segir nýja tækni lykilinn að því að gera Úkraínumönnum kleift að sigra Rússa. Erlent 3.11.2023 08:01
Blinken kominn til Tel Aviv og mun ræða við Netanyahu um hlé Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur í Tel Aviv þar sem hann mun funda með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael. Hann er sagður munu hvetja stjórnvöld til að gera hlé á árásum sínum og sókn í Gasa. Erlent 3.11.2023 07:09
„Við erum komnir að hliðum Gasa-borgar“ Ísraelskir hermenn og skriðdrekar sækja að Gasa-borg en eru sagðir hafa mætt stífri mótspyrnu Hamas-liða. Hermenn hafa nánast klofið Gasaströndina í tvennt. Erlent 2.11.2023 15:54
Biden segir þörf á hléi Joe Biden Bandaríkjaforseti virðist vera að snúast á sveif með þeim sem hafa kallað eftir vopnahléi á Gasa en hann var staddur á fjáröflunarviðburði í gær þegar rabbíni kallaði að forsetanum og biðlaði til hans um að beita sér fyrir vopnahléi. Erlent 2.11.2023 06:59
Fengu gervihnattatækni í skiptum fyrir sprengikúlur Sérfræðingar Leyniþjónustu Suður-Kóreu telja að nágrannar þeirra í norðri séu að undirbúa þriðju tilraunina til að skjóta gervihnetti á braut um jörðu. Geimvísindamenn Norður-Kóreu eru sagðir hafa fengið tæknilega aðstoð frá Rússum. Erlent 1.11.2023 13:54
Landamærin opnuð og erlendum ríkisborgurum hleypt út Landamærin í Rafha, sem skilja að Egyptaland og Gasa, hafa verið opnuð tímabundið í fyrsta sinn í þrjár vikur. Egyptar hafa samþykkt að hleypa erlendum ríkisborgurum yfir landamærin og hafa sagst munu taka við um 80 afar særðum Palestínumönnum. Erlent 1.11.2023 10:07
Árásin á Jabalia-flóttamannabúðirnar vekur mikla reiði Stjórnvöld í Egyptalandi, Pakistan og Sádi Arabíu eru meðal þeirra sem hafa fordæmt árásir Ísraela á Jabalia-flóttamannabúðirnar, fjölmennustu flóttamannabúðir Gasa. Erlent 1.11.2023 06:53
Segja tugi fallna eftir árásir á flóttamannabúðir Tugir fólks er sagt hafa fallið í loftárásum Ísraela á flóttamannabúðirnar Jabaliya í norðurhluta Gasastrandarinnar. Ísraelski herinn hefur gert innrás á svæðið og segir um átta hundruð þúsund manns hafa flúið til suðurs. Erlent 31.10.2023 16:06
„Nú er tíminn fyrir stríð“ Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur hafnað áköllum eftir vopnahléi á Gasa og segir frelsun eins af gíslunum sem Hamas tóku 7. október síðastliðinn sem sönnun þess að hægt sé að uppræta Hamas og endurheimta þá sem voru teknir. Erlent 31.10.2023 06:33