Ítalski boltinn

Roy Hodgson vill fá Ronaldinho til Liverpool
Brasilíumaðurinn Ronaldinho gæti verið á leiðinni á Anfield næsta sumar ef marka má fréttir frá Ítalíu í morgun. Itasportpress heldur því fram að hinn þrítugi fyrrum besti knattspyrnumaður heims sé á óskalistanum hjá Roy Hodgson.

Sjóðheitt undir Benítez - Tekur Luis Figo við?
Rafa Benítez, þjálfari Inter, hefur sagt að hann lesi ekki blöðin. Það er kannski eins gott því að í ítölskum fjölmiðlum um þessar mundir er fátt jákvætt að finna um hann.

Stuðningsmenn Lecce réðust á leikmann liðsins
Malímaðurinn Souleymane Diamoutene var ekki í leikmannahópi Lecce sem mætti Genoa í dag. Í síðustu viku varð hann fyrir árás frá tíu stuðningsmönnum Lecce.

Kenny Miller til Milan í janúar?
Skoski landsliðsmaðurinn Kenny Miller hjá Glasgow Rangers er orðaður við ítalska stórveldið AC Milan. Miller er þrítugur sóknarmaður og hefur verið funheitur á yfirstandandi tímabili.

Ronaldinho fær tvo leiki til að sanna sig
Brasilíumaðurinn Ronaldinho fær tvo leiki til þess að sanna sig fyrir þjálfara AC Milan, Massimiliano Allegri. Ef hann stendur sig vel og sýnir virkilega vilja til þess að vera hjá félaginu þá fær hann nýtt samningstilboð.

Lazio vann Inter og komst upp að hlið AC Milan á toppnum
Lazio vann 3-1 sigur á lærisveinum Rafael Benitez í Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lazio náði því að jafna lið AC Milan á toppnum en Milan-menn eiga leik inni á móti Brescia á sunnudaginn.

Þjálfari Milan vill líka fá Balotelli
Það eru ekki bara leikmenn AC Milan sem vilja fá Mario Balotelli til félagsins því nú hefur þjálfarinn, Massimiliano Allegri, lýst því yfir að Balotelli sé meira en velkomið að ganga í raðir félagsins.

Benitez fær stóran plús í kladdann ef hann vinnur HM félagsliða
Þó svo gengi Inter undir stjórn Rafa Benitez hafi ekki verið sem skildi hefur forseti félagsins, Massimo Moratti, ávallt staðið þétt við bak Benitez. Hann mun halda áfram að gera það ef Benitez vinnur heimsmeistarakeppni félagsliða.

Zlatan vill fá Balotelli til Milan
AC Milan hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á ítalska framherjanum hjá Man. City, Mario Balotelli. Stjórnarformaður félagsins, Adriano Galliani, hefur þegar gefið það út að Milan muni kaupa hann ef City vill selja.

Del Piero fær nýjan samning hjá Juventus
Það vakti mikla athygli um daginn þegar Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, lýsti því yfir að hann ætlaði sér að fá gamla brýnið, Alessandro Del Piero, til liðsins í janúar.

Inter vill fá Cassano
Inter bíður á hliðarlínunni eftir því að Antonio Cassano losni frá Sampdoria. Ítölsku meistararnir eru tilbúnir að veðja á hinn óstýriláta framherja.

Allegri kemur fram við Ronaldinho eins og barn
Fyrrum æðsti prestur hjá Juventus, Luciano Moggi, er ekki hrifinn af því hvernig þjálfari AC Milan, Massimiliano Allegri, fer með Brasilíumanninn Ronaldinho.

Langþráður deildarsigur Inter – Rafa Benítez óhultur í bili
Evrópumeistararnir í Inter unnu langþráðan sigur í dag þegar þeir lögðu Parma 5-2 í ítölsku deildinni. Dejan Stankovic var í stuði og skoraði þrennu í leiknum.

Ronaldinho þarf að vera duglegri
Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri AC Milan, segir að Brasilíumaðurinn Ronaldinho þurfi að leggja meira á sig ætli hann sér að vinna sæti í byrjunarliðinu á nýjan leik.

Eto'o í þriggja leikja bann
Samuel Eto'o hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann af ítalska knattspyrnusambandinu fyrir að skalla andstæðing í leik með Inter um helgina. Hann var þar að auki sektaður um 30 þúsund evrur.

Moratti: Benitez öruggur í starfi
Massimo Moratti, forseti Evrópumeistara Inter, segir að Rafa Benitez sé öruggur í starfi sínu sem knattspyrnustjóri liðsins þrátt fyrir slæma stöðu þess í ítölsku úrvalsdeildinni.

Nedved sagði nei við Mourinho
„Mér brá þegar ég heyrði rödd hans í símanum," segir hinn tékkneski Pavel Nedved í viðtali í ítölsku blaði. Þar segir hann frá því þegar Jose Mourinho reyndi að fá sig til Inter.

Cassano til Juventus?
Vandræðagemsinn Antonio Cassano er nú orðaður við Juventus og talið að félagið gæti reynt að fá þennan öfluga sóknarmenn þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar.

Eto'o skallaði andstæðing að hætti Zidane - myndband
Martröð Rafa Benítez og lærisveina í Inter heldur áfram að versna. Liðið tapaði 2-1 fyrir Chievo í dag og er nú í sjötta sæti ítölsku deildarinnar, níu stigum á eftir erkifjendunum í AC Milan sem tróna á toppnum.

Snilli Zlatans tryggði AC Milan þrjú stig - myndband
Það má með sanni segja að það sé Svíanum Zlatan Ibrahimovic að þakka að AC Milan situr nú í toppsæti ítölsku deildarinnar því aðra helgina í röð skoraði hann sigurmark liðsins í 1-0 sigri.

Balotelli mátti þola kynþáttaníð frá eigin stuðningsmönnum
Ítalskir stuðningsmenn urðu sér til háborinnar skammar í gær er þeir voru með kynþáttaníð í garð leikmanns ítalska landsliðsins, Mario Balotelli.

Leonardo líklegastur til að taka við af Benitez
Þó svo Massimo Moratti, forseti Inter, segi að Rafa Benitez verði ekki rekinn sem þjálfari Inter eru ítalskir fjölmiðlar ekki að kaupa það.

Aquilani vill fá Glen Johnson til Juve
Alberto Aquilani vill að enski landsliðsbakvörðurinn Glen Johnson komi til Juventus en þeir náðu greinilega vel saman þann tíma sem Aquilani spilaði með Liverpool-liðinu.

Ronaldinho ætlar að vera áfram í Milan
Brasilíumaðurinn Ronaldinho segist ætla að vera áfram í herbúðum AC Milan en samningur hans við félagið rennur út í lok leiktíðar.

Donadoni tekur við Cagliari
Fyrrum landsliðsþjálfari Ítala, Roberto Donadoni, hefur tekið við starfi knattspyrnustjóra hjá Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni.

Mario Balotelli fær tíuna hjá ítalska landsliðinu á morgun
Mario Balotelli, framherji Manchester City, fær stóra tækfærið með ítalska landsliðinu annað kvöld þegar liðið mætir Rúmeníu í vináttuleik í Klagenfurt í Austurríki. Balotelli verður í byrjunarliðinu og fær treyju númer tíu.

Sneijder: Benitez verður ekki rekinn
Wesley Sneijder, leikmaður Evrópumeistara Inter á Italíu, hefur ekki trú á því að Rafael Benitez knattspyrnustjóri verði rekinn frá félaginu.

Zlatan tryggði Milan sigur á sínum gömlu félögum
AC Milan komst í kvöld á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er liðið lagði nágranna sína í Inter, 1-0, í risaslag helgarinnar.

Moratti hefur tröllatrú á Benitez
Stórleikur dagsins í ítalska boltanum er viðureign Inter og AC Milan. Rafa Benitez, þjálfari Inter, fékk stuðningsyfirlýsingu fyrir leikinn frá stjórnarformanni félagsins.

Forseti Sampdoria er með Cassano-vírusinn
Ricardo Garrone, forseti Sampdoria, hefur engan áhuga á því að sættast við framherjann Antonio Cassano en Sampdoria sækir nú mál fyrir dómstólum svo það geti sagt upp samningnum við leikmanninn.