Framhaldsskólar

Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni
Allir nýnemar úr stærsta útskrifarárgangi grunnskóla í sögunni eru komnir með pláss í framhaldsskóla í haust.

Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð
Það eru stór tímamót í lífi ungmenna þegar kemur að vali á framhaldsskóla. Sum hafa vitað það lengi hvaða leið þau vilja fara og hvaða skóli verður fyrir valinu, á meðan önnur eru fram á síðustu stundu að vega og meta þá kosti sem standa til boða.

Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung
Nýtt kennslufyrirkomulag verður tekið upp í Menntaskólanum á Akureyri í haust þar sem þriðjungi hefðbundinna kennslustunda verður skipt út fyrir vinnustundir nemenda. Skólameistarinn segir nemendur læra að bera ábyrgð á sínu eigin námi.

Selma nýr skólameistari á Króknum
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Selmu Barðdal Reynisdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“
Barna- og menntamálaráðherra segir hliðrun þrjú hundruð milljóna króna fyrir uppbyggingu fjögurra verknámsskóla fram á næsta ár ekki hafa áhrif á framkvæmdirnar. Annar áfangi framkvæmdanna hefjist í sumar. Forsætisráðherra segir að byggingarnar muni rísa fljótlega.

Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins
Fjármögnun vegna fyrirhugaðar uppbyggingar fjögurra verkmenntaskóla á landsbyggðinni hefur verið hliðrað til næsta árs. Bæjarstjóri gagnrýnir að hafa fengið að vita af ákvörðuninni í gegnum fjölmiðla, og segir hana koma sveitarfélaginu í opnu skjöldu. Formaður fjárlaganefndar segir tilfærsluna ósköp eðlilega.

Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“
Fjármögnun barna- og menntamálaráðuneytisins fyrir uppbyggingu fjögurra verkmenntaskóla hefur verið hliðrað til næsta árs. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar um að sú ákvörðun hafi verið tekin. Styrkur sem átti að nýta í verkefnið gæti brunnið inni.

Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna
Annar framhaldsskólanemi sem veitti umsögn fyrir menntamálanefnd á frumvarpi um grunnskólamat sem samþykkt var í gær segir ummæli Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur blauta tusku í andlit ungs fólks sem vilji taka þátt í lýðræðislegri umræðu.

Engu slaufað
Þingmaður Framsóknarflokksins, Stefán Vagn Stefánsson, fór mikinn í ræðustól Alþingis fyrr í vikunni með stórkarlalegum yfirlýsingum um að uppbyggingu verknámsskóla hafi nú verið „slaufað“, á vakt nýrrar ríkisstjórnar. Það er einfaldlega rangt.

„Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“
Þær Diljá Karen Kristófersdóttir Kjerúlf og Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir furða sig mjög á ummælum Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur þingmanns Flokks fólksins og telja sig ómaklega hafa orðið fyrir skeyti sem hún hafi ætlað minnihlutanum.

Stærsta brautskráning í sögu skólans
Aldrei hafa jafn margir útskrifast úr Fjölbrautarskólanum í Garðabæ í sögu skólans. 159 nemendur brautskráðust frá skólanum í gær.

„Fallegur dagur“ fyrir útskrift
Tæplega tvö hundruð nemendur brautskráðust frá Menntaskólanum við Sund en í ræðum hátíðarhaldanna var þeim lýst sem ólíkum nemendum sem lærðu allir mikilvægar lexíur á meðan skólagöngunni stóð. Bæði dúx og semídúx skólans komu af félagsfræðibraut.

Átta nemendur með ágætiseinkunn
139 nemendur útskrifuðust frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af átta námsbrautum. Átta nemendur hlutu ágætiseinkunn en Yi Ou Li hlaut titilinn dúx.

Dúxinn greip í saxófóninn
Alls útskrifuðust 175 nemendur frá FB við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpu um helgina. Kristinn Rúnar Þórarinsson, dúx skólans af stúdentsbraut, lauk einnig námi af húsamiðabraut auk þess að spila á saxófón við útskriftina.

Verzlingar settu upp húfur og skelltu sér til Krítar
Alls útskrifuðust 332 nemendur frá Verzlunarskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu. Dúx skólans var Inga Júlíana Jónsdóttir. Nýstúdentar njóta þessa dagana lífsins í útskriftarferð á Krít.

Erfiðast að læra íslenskuna
Þrjár stelpur sem allar fengu verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í Fjölbrautarskólanum í Ármúla og eru nýbúnar að læra íslensku stefna allar á nám við sama háskólann. Þær segja vináttuna hafa gefið sér margt og segjast stoltar af því að tala íslensku.

Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt
Mikil gleði ríkti í Háskólabíó síðastliðinn föstudag þegar 209 nýstúdentar voru brautskráðir frá Kvennaskólanum við hátíðlega athöfn. Dúx skólans var Grímur Gunnhildarson Einarsson með einkunnina 9,69 en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem dúx kemur af félagsvísindabraut.

Kennum innflytjendum íslensku!
Eitt mikilvægasta samfélagsmál á Vesturlöndum er móttaka innflytjenda. Gríðarleg vandamál blasa við þegar stórir hópar þurfa að fóta sig í nýrri menningu, tungumáli og samfélagsgerð.

Úr Kvennaskólanum í píparann
Fjölbreyttur hópur nemenda brautskráðist frá Tækniskólanum í gær þegar 521 nemandi útskrifaðist af 34 ólíkum námsbrautum. Hildur Ingvarsdóttir skólameistari fjallaði um gróskumikið starf skólans á liðnu ári í ræðu sinni, og nefndi góðan árangur nemenda skólans á Íslandsmóti iðn- og verkgreina sem fór fram í marsmánuði þar sem skólinn eignaðist 11 Íslandsmeistara.

Dúxinn fjarri góðu gamni
Dúx Flensborgarskólans í Hafnarfirði þetta árið var ekki viðstaddur brautskráningarathöfnina vegna þess að hann er þessa stundina staddur úti í Andorra þar sem hann etur kappi á Smáþjóðaleikunum í sundi fyrir Íslands hönd.

Þrjár erlendar stúlkur með hæstu einkunn í FÁ
Ngan Kieu Tran, Dana Zaher og Diana Al Barouki útskrifuðust úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla í gær og fengu verðlaun fyrir góðan námsárangur. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa flutt til Íslands árið 2022 og hafa tileinkað sér íslenskuna á mettíma.

Þau sóttu um þrjú embætti skólameistara á Norðurlandi
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust ellefu umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Framhaldsskólans á Húsavík sem auglýstar voru lausar til umsóknar á dögunum.

Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn
Notaður tennisbolti, endurnýtt fiskinet og íslenskt þorskroð er nýjasta leikfang hunda og kallast „Urri“. Heiðurinn af leikfanginu eiga fimm nemendur í Menntaskólanum við Sund, sem unnu frumkvöðlakeppni hér heima og munu keppa fyrir Íslands hönd á alþjóðlegri frumkvöðlakeppni í Grikklandi í sumar.

Verzló vann MORFÍs
Lið Verzlunarskóla Íslands var hlutskarpast í MORFÍs, Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, í ár. Úrslitin fóru fram á Hilton Nordica-hótelinu á miðvikudag, þar sem Verzló mætti Menntaskólanum við Sund.

Birgir Guðjónsson er látinn
Birgir Guðjónsson, stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni sumardagsins fyrsta, 24. apríl síðastliðinn, 68 ára að aldri.

Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum
Katrín Eir Ásgeirsdóttir, forseti KÍNEMA, nemendafélags Kvikmyndaskóla Íslands og Breki Snær Baldursson, varaforseti, félagsins fóru með tíu leggja fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum til Ingu Sæland, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í tilraun til að fá hana til að bjarga Kvikmyndaskólanum. Katrín og Breki ræddu mál skólans í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins
Þekkingarfyrirtækið Rafmennt hefur gengið til samninga við skiptastjóra þrotabús Kvikmyndaskóla Íslands og tryggt sér allar eignir þess. Skólastjóri Rafmenntar sér fram á að hægt verði að ljúka önninni og rektor Kvikmyndaskólans lítur björtum augum til framtíðar.

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp til laga um að val nemenda inn í framhaldsskóla skuli taka mið af fleiri þáttum en einkunnum, því nemendur búi yfir margs konar hæfileikum sem ekki eru metnir á einkunnaskala.

Snorri byggir skoðun á skólakerfinu á reynslusögum annarra en Guðrún vitnar í ritrýndar heimildir
Það sem ég ætla að fjalla um hér er hvernig við innbyrðum og metum upplýsingar. Ég hef skoðað fjölmargar rannsóknir sem tengjast bæði heilbrigði og samfélagi.

Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla
Mennta- og barnamálaráðherra segir misskilnings hafa gætt um frumvarp sitt um breytingar á lögum um framhaldsskóla. Ekki standi til að hætta að líta til námsárangurs við innritun nemenda í framhaldsskóla heldur skólum einnig heimilað að horfa til annarra þátta.