Efnahagsbrot

Eigandi Nýju vínbúðarinnar dæmdur fyrir skattsvik
Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar, hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik í tengslum við rekstur þriggja einkahlutafélaga.

Persónuleg neysla Ágústs að stórum hluta fjármögnuð með sóknargjöldum
Bræðurnir Einar og Ágúst Arnar Ágústsynir eru sakaðir um að hafa beitt blekkingum og veitt villandi upplýsingar um að Zuism uppfyllti skilyrði um skráð trúfélög og ætti þar með rétt á fjárframlögum frá ríkinu. Þetta hafi verið gert af skýrum ásetningi og peningarnir nýttir í eigin þágu.

FME kærði meinta markaðsmisnotkun til lögreglu í fyrra
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands kærði meinta markaðsmisnotkun til lögreglu á síðasta ári. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálaeftirlit sem Seðlabankinn birti í morgun en í svari við fyrirspurn Innherja kvaðst stofnunin ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið.

Landsbankinn varar við sannfærandi svikapóstum
Landsbankinn varar við tölvupóstum sem sendir hafa verið út í nafni bankans. Póstarnir innihalda hlekk á innskráningarsíðu sem virðist vera netbanki Landsbankans en með innskráningunni komast óprúttnir aðilar yfir aðgangsupplýsingar viðskiptavina.

Einræðisherrar, auðjöfrar og fíkniefnabarónar meðal viðskiptavina Credit Suisse
Meira en sex þúsund þeirra þrjátíu þúsund sem eiga í viðskiptum við svissneska bankann Credit Suisse eru frá aðeins fjórum ríkjum: Venesúela, Egyptalandi, Úkraínu og Taílandi. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa strítt við mikinn pólitískan óstöðugleika.

Grunaður um að hafa leikið tveimur skjöldum til að þiggja tvöfaldar bætur
Gæsluvarðhald yfir erlendum manni sem grunaður er um að hafa leikið tveimur skjöldum til að svíkja út tvöfaldar bætur rennur út í dag.

Fangelsi og 60 milljóna króna sekt fyrir meiri háttar skattalagabrot
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt mann í sex mánaða fangelsi og greiðslu sextíu milljóna króna sektar fyrir meiri háttar brot á skattalögum og peningaþvætti í rekstri einkahlutafélags. Fresta skal fullnustu fangelsisrefsingar haldi maðurinn almennt skilorð í tvö ár.

Eigandi Nýju vínbúðarinnar ákærður fyrir skattsvik
Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar sem komið hefur að alls kyns athyglisverðum rekstri undanfarin ár, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð. Málið verður þingfest í mars.

Teitur dæmdur fyrir skattsvik
Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, hefur hlotið fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir skattsvik. Honum ber einnig að greiða rúmlega fimmtán milljón króna sekt innan fjögurra vikna, ella fara í fangelsi. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í málinu í gær.

Procar- og Skeljungsmálið komin til saksóknara
Rannsókn Embættis héraðssaksóknara á tveimur umfangsmiklum efnahagsbrotamálum er lokið. Um er að ræða Skeljungsmálið annars vegar og Procar-málið hins vegar.

Mútumál fær áheyrn hjá Hæstarétti
Hæstiréttur úrskurðaði samþykkti síðastliðinn föstudag beiðni um að taka fyrir mútumál. Málið varðar tvo karlmenn sem voru sakfelldir í Landsrétti fyrir umboðssvik og peningaþvætti en aðeins annar þeirra fyrir mútugreiðslur.

Fyrrverandi bæjarstjóri dæmdur fyrir meiriháttar skattalagabrot
Jónmundur Guðmarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hefur verið dæmdur í sjö mánaða fangelsi og greiðslu 66,5 milljóna króna sektar vegna meiriháttar brota á skatta- og bókhaldslögum. Fresta skal fullnustu fangelsisrefsingarinnar haldi Jónmundur almennt skilorð í tvö ár.

Hafþór sakfelldur með minnsta mun í Hæstarétti
Hæstiréttur hefur sakfellt Hafþór Loga Hlynsson fyrir peningaþvætti og staðfesti tuttugu mánaða fangelsisdóm yfir Hafþóri sem Landsréttur hafði dæmt í janúar. Áður hafði hann verið dæmdur í eins árs fangelsi í héraðsdómi.

Dældi fyrir milljón með annarra manna dælulyklum
Karlmaður hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnað, ólögmæta meðferð fundins fjárs og fjársvik. Maðurinn notaði meðal annars dælulykla í eigu annarra til að dæla bensíni fyrir rúma milljón.

Almenningur tapar milljónum í hverjum mánuði vegna svikapósta
Netglæpamenn ná milljónum af almennum borgurum í hverjum mánuði með svikapóstum að sögn sviðsstjóra hjá Fjarskiptastofu. Nú standi yfir herferðir þar sem glæpamenn nýta sér vörumerki Póstsins og DHL.

Milt viðhorf almennings til skattsvika
Skattalagabrot hafa alltaf átt stað í hinni almennu umræðu. En þrátt fyrir fjölda þeirra og þá staðreynd að Ísland er eina vestræna ríkið sem sett hefur verið á hinn svokallaða gráa lista þá má draga þær ályktanir að ekki er um að ræða nægilega gagnrýna umræðu.

Siggi hakkari í gæsluvarðhaldi grunaður um umfangsmikil fjársvik
Einn sætir gæsluvarðhaldi og fjórtán til viðbótar eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fjársvikum, peningaþvætti og skjalafalsi. Tugir milljóna eru undir í málinu að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu.

Eiríkur á Omega dæmdur til greiðslu 109 milljóna sektar fyrir meiriháttar skattsvik
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sjónvarpsmanninn Eirík Sigurbjörnsson, oftast kenndur við kristilegu stöðina Omega, í tíu mánaða fangelsi og greiðslu 108,9 milljóna króna sektar fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum.

Ákærður fyrir að svíkja meðeigendur um söluverð eignar í Lúxemborg
Héraðssaksóknari hefur ákært einstakling fyrir fjárdrátt og tilraun til fjárdráttar á árunum 2014 og 2015 í tengslum við sölu fasteignar í Lúxemborg.

Dæmdir fyrir milljóna dósasvindl í Eyjum
Tveir karlmenn í Vestmannaeyjum hafa verið dæmdir í þrjátíu og 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa dregið sér rúmlega tvær milljónir króna sem starfsmenn Endurvinnslunnar í Heimaey. Mennirnir útbjuggu kvittanir fyrir móttöku drykkjarumbúða, án þess að skila slíkum umbúðum, og hirtu skilagjaldið.

Tuttugu hafa tapað 73 milljónum í ástarsvikum á þremur árum
Á síðustu þremur árum hafa lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist 20 tilkynningar um svokölluð ástarsvik, þar af 14 frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst. Fjárhagslegt tjón svikamálanna nemur samtals um 73 milljónum króna.

Sveik út vörur og þjónustu í gegnum reikninga Eimskips og Brims
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa í nokkrum tilfellum svikið út vörur og þjónustu í verslunum og hjá einni bílaleigu með því að nýta sér vitneskju um viðskiptareikning hjá Eimskip og Brim til úttektar í eigin þágu.

Áttmenningar ákærðir fyrir milljónasvik á Ábyrgðasjóði
Sjö karlmenn og ein kona eru ákærð fyrir að hafa með ólögmætum hætti haft fjármuni af Ábyrgðarsjóði launa. Talið er að heildarávinningur af brotunum nemi um sautján milljónum króna. Fólkið er ýmist ákært fyrir brotin eða hlutdeild í þeim. Á meðal hinna ákærðu eru feðgar og mæðgin.

Hafþór Logi fékk leyfi hjá Hæstarétti
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Hafþórs Loga Hlynssonar sem sakfelldur var fyrir peningaþvætti í Landsrétti í janúar. Ríkissaksóknari var samþykkur áfrýjunarbeiðninni og taldi Hæstiréttur að úrlausn um beitingu tiltölulega nýrra lag gæti haft verulega almenna þýðingu.

Skrautlegri sögu félags forstöðumanns Zuism lokið
Einkahlutafélagið RH16 sem var í eigu Ágústs Arnars Ágústssonar, forstöðumanns trúfélagsins Zuism, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það var meðal annars notað til að taka á móti fjármunum sem Ágúst Arnar er sakaður um að hafa tekið sér úr sjóðum félagsins,

Íslenskt par talið hafa grætt 84 milljónir vegna sölu lyfseðilskyldra lyfja
Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi stundað glæpi kerfisbundið í tæpan áratug.

Frávísunarkröfu Zuism-bræðra hafnað
Kröfu forsvarsmanna trúfélagsins Zuism um að ákæru á hendur þeim og félaginu yrði vísað frá var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mennirnir eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti.

Á annan tug með réttarstöðu sakbornings í umfangsmiklu fíkniefna- og fjársvikamáli
Vel á annan tug manna eru með réttarstöðu sakbornings og tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefna- og fjársvikamáls sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar. Húsleit hefur verið gerð á öðrum tug staða, bæði á heimilum og í fyrirtækjum vegna málsins.

Hæstiréttur dæmir Júlíus Vífil í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi
Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en mildað refsingu hans úr tíu mánaða fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundna.

Milljónabætur vegna frelsissviptingar í alþjóðlegu fjársvikamáli
Íslenska ríkið þarf að greiða erlendum karlmanni fjórar og hálfa milljón krónur í miskabætur vegna frelsissviptingar í tengslum við alþjóðlegt fjársvikamál samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á miðvikudag. Manninum var haldið í gæsluvarðhaldi meira en tvöfalt lengur en fangelsisdómur yfir honum hljóðaði upp á.