Meistaradeild Evrópu í handbolta karla

Viktor Gísli öflugur gegn PSG
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti góðan leik í marki Wisla Plock sem mátti þola naumt tap gegn París Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Kristján Örn Kristjánsson átti þá góðan leik í efstu deild Danmerkur.

Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest
Haukur Þrastarson var upp á sitt besta í öruggum sigri Dinamo Búkarest á Pelister í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia máttu þá þola tap á heimavelli gegn Füchse Berlín.

Sporting rúllaði yfir Veszprém
Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting áttu ekki í vandræðum með Veszprém, lið Bjarka Más Elíssonar, þegar þau mættust í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad
Kolstad er komið á blað í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta og það er að mestu ótrúlegum leik Sigvalda Björns Guðjónssonar að þakka. Þá gerðu Álaborg og Magdeburg jafntefli þar sem íslenska tvíeykið fór mikið í liði gestanna.

Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“
Fredericia tapaði með átján marka mun fyrir Sporting í Meistaradeild Evrópu í handbolta karla í gær. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari liðsins, var miður sín eftir útreiðina.

Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins
Magdeburg tók á móti Kolstad í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld og voru Íslendingar beggja liða mjög svo áberandi. Gísli Þorgeir Kristjánsson bar hins vegar af í leik sem Magdeburg vann með átta marka mun, 33-25.

Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni
Bjarki Már Elísson og Orri Freyr Þorkelsson unnu í kvöld stórsigra með liðum sínum í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Veszprém fór létt með París Saint-Germain á heimavelli á meðan Sporting sótti lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia heim.

Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni
Selfyssingurinn Haukur Þrastarson fer vel af stað með nýja liðinu sínu, Dinamo Búkarest. Hann hefur samtals komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjum liðsins í Meistaradeild Evrópu.

Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum
Dinamo Búkarest hafði getur gegn Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Fór það svo að gestirnir unnu með tveggja marka mun og var það ekki síst frábærri frammistöðu Hauks Þrastarsonar að þakka.

Haukur gekk frá lærisveinum Guðmundar
Haukur Þrastarson var allt í öllu þegar Dinamo Búkarest pakkaði Fredericia saman í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Þá hafði Janus Daði Smárason betur gegn Ómari Inga Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.

Orri Freyr hafði betur gegn Viktori Gísla
Sporting frá Portúgal lagði Wisla Plock frá Póllandi í 1. umferð Meistaradeildar karla í handbolta. Orri Freyr Þorkelsson spilar með Sporting á meðan markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson gekk í raðir Wisla í sumar.

Íslendingalið Kolstad mátti þola tap gegn stórliði Barcelona
Íslendingarnir í Kolstad og liðsfélagar þeirra áttu fínan leik gegn ógnarsterku liði Barcelona í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Á endanum máttu þeir þó játa sig sigraða, lokatölur í Noregi 30-35.

Riðlar Meistaradeildarinnar klárir: Íslendingar áberandi í bestu deild í heimi
Þrettán Íslendingar fengu að vita hverjir mótherjar sínir verða í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta þegar dregið var í dag í Vínarborg. Óhætt er að segja að B-riðill keppninnar sé hálfgerður martraðarriðill.

Guðmundur fer með Fredericia í Meistaradeildina
Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia Håndbold Klub fengu í dag boð frá evrópska handboltasambandinu um að spila í Meistaradeildinni í handbolta á næstu leiktíð. Þetta er stór stund fyrir danska félagið.

Barcelona Evrópumeistari eftir naglbít
Barcelona tryggði sér í dag sigur í Meistaradeild Evrópu í handbolta er liðið lagði Álaborg í úrslitum 31-30.

Skaðinn skeður í hálfleik hjá Magdeburg
Íslendingaliðið Magdeburg laut í lægra haldi fyrir Kiel, 28-32, í leiknum um 3. sætið á úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag.

Reynir við fyrsta Evrópumeistaratitilinn í áttunda sinn í sínum síðasta leik
Mikkel Hansen er að flestra mati einn besti handboltamaður sögunnar. Hann er líka einn sá sigursælasti, en honum hefur þó aldrei tekist að vinna stærsta tiltinn sem í boði er fyrir félagslið, Meistaradeild Evrópu.

Börsungar elta Álaborg í úrslit
Barcelona tryggði sér í dag sæti í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta er liðið vann öruggan tólf marka sigur gegn Kiel, 30-18.

Ómar Ingi með stórleik en Álaborg fór í úrslit
Magdeburg mun ekki verja Evrópumeistaratitilinn sem liðið vann á síðasta tímabili. Þýsku meistararnir töpuðu fyrir Álaborg, 26-28, í fyrri undanúrslitaleiknum í Meistaradeild Evrópu í dag. Ómar Ingi Magnússon átti stórleik fyrir Magdeburg.

Undanúrslit í Meistaradeildinni klár
Búið er að draga í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Íslendingaliðið Magdeburg er ríkjandi Evrópumeistari og mætir Álaborg, fyrrverandi liði Arons Pálmarssonar.

PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir
Kiel sneri gengi sínu við og tryggði sér sæti í Final Four, undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. PSG reyndi en tókst ekki að leika endurkomuna eftir í einvígi sínu gegn Barcelona.

Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg
Kielce hefur kært leikinn gegn Magdeburg í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Póllandsmeistararnir voru afar ósáttir við dómgæsluna undir blálok leiksins.

Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni
Evrópumeistarar Magdeburgar eru komnir í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir sigur á Kielce frá Póllandi í hádramatískum leik. Ómar Ingi Magnússon tók síðasta vítakastið og tryggði Magdeburg sæti í undanúrslitum.

Bjarki Már og félagar úr leik
Álaborg sló í kvöld Veszprém út í Meistaradeild karla í handbolta. Danirnir unnu leikinn með fimm marka mun, 33-28. og einvígið þar með fjögurra marka mun þar sem Veszprém vann fyrri leikinn með aðeins eins marks mun.

Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg
Haukur Þrastarson og félagar í Kielce eru með eins marks forystu gegn Íslendingaliði Magdeburgar eftir fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld.

Segir að nú sé komið að Mbappé
Rio Ferdinand, fyrrverandi varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, telur að nú sé tími Kylian Mbappé í Meistaradeild Evrópu kominn. Lið Mbappé, París Saint-Germain, tryggði sér fyrr í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Metamfetamín felldi markvörðinn
Nýjar upplýsingar hafa nú komið fram varðandi það af hverju liðsfélagi Íslendinganna hjá Evrópumeisturum Magdeburg, markvörðurinn Nikola Portner, féll á lyfjaprófi.

Félagi Íslendinganna í áfalli eftir fall á lyfjaprófi
Liðsfélagi Íslendinganna þriggja hjá Evrópumeisturum Magdeburg, svissneski landsliðsmarkvörðurinn Nikola Portner, er kominn í ótímabundið hlé frá æfingum og keppni í handbolta eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Jesús man ekki hvenær hann spilaði síðast án þess að finna til
Gabríel Jesús, framherji enska knattspyrnufélagsins Arsenal, man ekki hvenær hann spilaði síðast leik án þess að finna fyrir einhvers konar sársauka.

Evrópumeistararnir frá Manchester án máttarstólpa í Madríd
Evrópumeistarar Manchester City mæta með heldur laskaða varnarlínu til leiks í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið sækir Real Madríd heim. Leikurinn er sýndur beint á Vofadone Sport og hefst útsending klukkan 18.50.