Egilsstaðaflugvöllur

Heitasti dagur ársins í dag
Hiti fór yfir tuttugu stig á Austurlandi í dag og var dagurinn því sá heitasti ársins. Á Egilsstaðaflugvelli mældist hitinn 20,6 rétt eftir klukkan 12:00.

„Mikil vonbrigði fyrir ferðaþjónustuna“
Ákvörðun þýska flugfélagsins Condor um að hætta við áætlanaflug til Akureyrar og Egilstaða í sumar er mikil vonbrigði fyrir ferðaþjónustuna að sögn framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands. Framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla segir flugfélagið ekki taka neina sénsa en vonir eru bundnar við að hægt verði að taka þráðinn aftur upp á næsta ári.

Ekkert verður af áætlunarflugi Condor til Akureyrar og Egilsstaða í ár
Þýska flugfélagið Condor hefur tilkynnt að hætt hafi verið við áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða frá Frankfurt í Þýskalandi sem hefjast átti um miðjan maí og standa fram í október. Markaðssetning er sögð hafa farið of seint af stað.

Upp úr slitnað milli flugmálastarfsmanna og SA
Fundir samninganefnda Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Samtaka atvinnulífsins um gerð nýrra kjarasamninga, sem hafa verið lausir um lengri tíma, hjá ríkissáttasemjara hafa ekki borið árangur. Félagsmenn funduðu í kvöld og blikur eru á lofti varðandi vinnudeiluaðgerðir.

Milljarður króna tapast á ári frá því að varaflugvallargjaldið var lagt af
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir gríðarlega innviðaskuld blasa við þegar kemur að varaflugvöllum landsins eftir óreiðukenndan fókus stjórnvalda í rúman áratug. Varaflugvallagjald sé nauðsynlegt til að tryggja uppbyggingu en ekkert óvænt megi koma upp á eins og staðan er í dag.

Stundvísi komin yfir níutíu prósent
Flutningatölur flugfélagsins Icelandair frá nóvembermánuði sýna aukningu á farþegum í mánuðinum á milli ára. Einnig var stundvísi félagsins 91 prósent.

Varaflugvallargjaldi einnig ætlað að kosta framkvæmdir í Reykjavík
Tvöhundruð króna varaflugvallargjald verður lagt á bæði innanlands- og millilandaflugfarþega, samkvæmt frumvarpi sem innviðaráðherra boðar. Gjaldinu er ætlað að standa undir framkvæmdum við flugvellina á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.

Leggur til tvö hundruð króna gjald á hvern farþega til að byggja upp varaflugvelli
Lagt verður varaflugvallagjald sem nemur 200 krónum á hvern farþega ef frumvarp innviðaráðherra sem lagt var fram í samráðsgátt stjórnvalda í dag nær fram að ganga. Sé miðað við sex milljón farþega gætu tekjur ríkissjóðs orðið allt að einn og hálfur milljarður króna. Isavia og Icelandair hafa mótmælt gjaldtökunni.

Stundvísi innanlandsflugs Icelandair 88 prósent í október
Flutningatölur flugfélagsins Icelandair frá nýliðnum októbermánuði sýna töluverða farþegaaukningu á milli ára. Auk þess er stundvísi félagsins í innanlandsflugi 88 prósent í mánuðinum sem um ræðir.

Þýskt flugfélag hefur flug til Akureyrar og Egilsstaða 2023
Þýska flugfélagið Condor mun hefja áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða og verður flogið frá maí til loka október. Flug hefst sumarið 2023.

Egilsstaðaflugvöllur – öryggisins vegna
Efling Egilsstaðaflugvallar er eitt af þeim verkefnum sem víðtæk samstaða er um á Austurlandi og unnið hefur verið að undanfarin ár á vettvangi SSA og Austurbrúar. Egilsstaðaflugvöllur hefur fjölmörg hlutverk.

Vill fiskflutninga með flugi frá Egilsstöðum
Forstjóri stærsta laxeldisfyrirtækis Austfjarða segir kjörin tækifæri til fiskflutninga með flugi beint frá Egilsstaðaflugvelli og hvetur til þess að nauðsynleg aðstaða til afgreiðslu fraktflugs verði byggð upp á flugvellinum.

Skiptir máli að fá ferðamenn einnig um Egilsstaðaflugvöll
Austfirðingar kalla eftir því að Egilsstaðaflugvöllur verði þróaður sem millilandaflugvöllur og þannig opnaðar fleiri gáttir fyrir ferðamenn inn í landið.

150 kílóa dróna flogið yfir Egilsstaðaflugvöll
Dróna á vegum norska fyrirtækisins Norwegian Special Mission (NSM) hefur verið flogið í nágrenni Egilsstaðaflugvallar síðustu daga. Markmið verkefnisins er að safna gögnum sem styðja við að drónar verði notaðir við flugprófanir á búnaði flugvalla í framtíðinni.

Aðför samgönguráðherra að Egilsstaðaflugvelli
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ítrekað talað fyrir því að endurbætur á Egilsstaðaflugvelli séu rétt handan við hornið og tæplega það.

Byggjum upp Egilsstaðaflugvöll!
Þrátt fyrir víðsjá í efnahagsmálum er sannfæring mín að nauðsyn sé að horfa til framtíðar varðandi uppbyggingu innviða landsins. Við megum ekki láta það kröfuharða verkefni sem heimsfaraldurinn er byrgja framtíðarsýn.

Stefnt að því að niðurgreiðsla innanlandsflugs hefjist í haust
Samgönguráðherra segir stefnt að því að niðurgreiðslur innanlandsflugs til íbúa landsbyggðarinnar, samkvæmt skosku leiðinni svokölluðu, hefjist í haustbyrjun. Miðað verður við að hver íbúi fái fjörutíu prósenta styrk fyrir allt að tveimur ferðum fram til áramóta.

Ríkisstjórnin hyggst fara strax í að stækka Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll
Ríkisstjórnin hyggst leggjast í stækkun akbrautar á Egilsstaðaflugvelli ásamt stækkun flughlaðs og flugstöðvar á Akureyri sem hluta af fjárfestingaátaki sínu.

Flugstöð og varaflugvellir
Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á að efla og fjárfesta í innviðum samfélagsins. Nú á að gera enn betur og hefja sérstakt 15 milljarða króna flýtifjárfestingarátak sem kynnt var í Hörpu sl. laugardag.

Alvarlegir brestir í viðhaldi og uppbyggingu varaflugvalla
Formaður öryggisnefndar Félags atvinnuflugmanna segir alvarlega bresti vera í viðhaldi og uppbyggingu varaflugvalla landsins sem stjórnvöld hafi verið sinnulaus gagnvart