![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)
Ingólfur Kjartansson hefur verið dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir margvísleg brot framin í fangelsinu Litla-Hrauni, þar á meðal sérstaklega hættulega líkamsárás. Brotin framdi hann á meðan hann afplánaði annan átta ára dóm fyrir tilraun til manndráps. Ingólfur er 22 ára.
Ingólfur Kjartansson, tvítugur karlmaður, var í nóvember á síðasta ári dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að hafa ætlað sér að bana karlmanni í bílastæðahúsi við Bergstaðastræti. Saksóknari krafðist tíu ára dóms.
Ingólfur Kjartansson, tvítugur karlmaður, gekkst í morgun við því að hafa ætlað að bana karlmanni í bílastæðahúsi við Bergstaðastræti í febrúar. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hádegi og krafðist saksóknari tíu ára dóms.
Stjórn Landssambands lögreglumanna hefur gefið út ályktun þar sem hún lýsir yfir þungum áhyggjum af öryggi lögreglumanna í kjölfar atvika þar sem skotvopnum hefur verið beitt.
Stjórn Landssambands lögreglumanna mun funda í dag og ræða vopnaburð og öryggismál lögregluþjóna. Fjölnir Sæmundsson, formaður sambandsins, segir skoðanir skiptar á almennum vopnaburði lögreglumanna.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir skipta miklu máli að vopnalöggjöf hér á landi sé sterk og lögregla geti með skilvirkum hætti fylgt henni eftir. Þó skotárásir hér á landi hafi almennt beinst að ákveðnum aðilum sé alltaf hætta á að almenningur hljóti skaða af. Skotvopnið sem notað var í árás í miðbæ Reykjavíkur um helgina var þrívíddarprentuð byssa, en legið hefur fyrir um nokkurt skeið að nú sé hægt að nýta tæknina til slíks.
Skotvopnið sem notað var í árás í miðbæ Reykjavíkur um helgina var þrívíddarprentuð byssa. Slík lífshættuleg vopn er, eins og tæknin er orðin, hægt að prenta í ódýrum prenturum heima við — prenturum sem hægt er að kaupa í íslenskum raftækjaverslunum.
Vopnið sem skotið var úr í bílastæðahúsi í miðbænum aðfaranótt sunnudags var samkvæmt heimildum fréttastofu þrívíddarprentuð byssa. Talið er að málið sé uppgjör á milli einstaklinga frekar en að það tengist skipulagðri brotastarfsemi. Tveir tvítugir karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra vill skoða að vopna almenna íslenska lögreglumenn með rafbyssum. Hann segir tölur yfir vélbyssur hér á landi sláandi en 252 sjálfvirk skotvopn voru flutt inn til landsins árið 2020.
Tveir ungir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna vegna skotárásar í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þriðji maðurinn sem var handtekinn vegna málsins var sleppt.
Um tugur lögregluþjóna vopnaðist þegar þrír ungir menn voru teknir höndum í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Einn þeirra hafði skotið mann í brjóstið og lögreglan rannsakar nú hvort málið tengist annarri skotárás sem framin var á fimmtudaginn í síðustu viku.
Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útlit sé fyrir að aukin harka sé að færast í undirheimana. Þróunin sé óhugnanleg og að mikilvægt sé að brugðist verði við. Hins vegar sé staðan ekki orðin þannig að fólk þurfi að óttast um öryggi sitt.
Íslenskur karlmaður hleypti af fimm eða sex skotum með vélbyssu nærri bílastæðahúsi við Bergstaðastræti laust fyrir klukkan eitt í nótt. Hann hæfði annan karlmann sem var fluttur særður á sjúkrahús. Sá er úr bráðri lífshættu. Þetta er önnur skotárásin í Reykjavík í vikunni.
Karlmaður var skotinn með skotvopni í Ingólfsstræti laust fyrir klukkan eitt í nótt, samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu. Verulegur viðbúnaður lögreglu og sérsveitar var á svæðinu þegar atvikið átti sér stað.