Nikótínpúðar

„Þurfum að huga að forvörnum“
Heilbrigðisráðherra segir áform um lagasetningu er varðar heildstæða löggjöf fyrir tóbaks- og nikótínvörur fyrst og fremst sett fram til að vernda börn og ungmenni.

Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot
Verslunareigandi segir að gangi áform heilbrigðisráðherra eftir um breytingar á löggjöf fyrir tóbaks- og níkótínvörur muni fyrirtæki hennar fara í þrot. Hún gagnrýnir stjórnvöld fyrir samráðsleysi og segir alla vilja vanda til verka þegar kemur að sölu nikótíns.

Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar
Heilbrigðisráðherra hefur birt áform um lagasetningu sem miðar að því að setja eina heildstæða löggjöf fyrir bæði tóbaks- og nikótínvörur. Meðal þess sem felst í áformunum er að banna sölu nikótínvörur með bragðefnum „sem höfða til barna“.

Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“
Tómar hillur blasa við komufarþegum Leifsstöðvar og virðist frasinn „I'm on my way“ eða „Ég er á leiðinni“ standa á öðru hverju skilti. Framkvæmdastjórinn segir að unnið sé hörðum höndum að því að leysa málið.

Nikótínpúðar vinsælastir
Dagleg notkun nikótínpúða eykst meðal Íslendinga og eru þeir algengasta neysluform nikótíns. Hins vegar dregst jafnt og þétt úr reykingum sígaretta en eru þær vinsælastar meðal fólks eldra en 55 ára.

Nikótínþurfi guðsbarn braust inn í Bjarnabúð
Maður í hettupeysu með textanum „Child of God“ braust inn í Bjarnabúð í Reykholti í nótt. Guðsbarnið var svangt og nikótínþurfi samkvæmt eigendum Bjarnabúðar.

Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland
Á alþjóðlegum degi án tóbaks, 31. maí 2025, beinir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og heilbrigðissamtök um allan heim sjónum að því hvernig tóbaks- og nikótíniðnaðurinn beitir markvissum og oft blekkjandi aðferðum til að gera vörur sínar aðlaðandi, sérstaklega fyrir börn og ungmenni.

Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu
Heilbrigðisráðherra boðar frumvarp um merkingu og markaðssetningu niktótínvara sem miðar að því að draga úr neyslu ungmenna. Þingmaður Framsóknar lýsir yfir þungum áhyggjum af aukinni notkun og segir ástandið óboðlegt.

„Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, beindi spjótum sínum að nikótínpúðum undir liðnum störf þingsins í dag. Notkun slíkra nikótínpúða hefur aukist til muna hin síðustu ár.

33 prósent íslenskra ungmenna nota nikótínpúða
Um 33 prósent íslenskra ungmenna nota nikótínpúða. Hlutfallið er hvergi hærra á Norðurlöndunum en íslensk ungmenni reykja hins vegar síst.

Ungbörn geti fundið nikótínpúða á róló: „Þetta getur verið lífshættulegt“
Símtöl í eitrunarsímann eru að færast í aukana, meðal annars vegna nikótínpúða. Bæði gerist það að símtöl berist um ungbörn hafa komist í snertingu við púða, og um eldri einstaklinga sem verði fyrir nikótíneitrun, meðal annars vegna þess að þeir gleypi slíka púða í svefni.

Neytendastofa sektar þrjár verslanir vegna nikótínauglýsinga
Neytendastofa hefur sektað þrjú fyrirtæki vegna auglýsinga fyrirtækjanna á nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir rafrettur. Fyrirtækin eru Samkaup, Zolo og dætur og Skýjaborgir. Fyrstu tvö voru sektuð um 300 þúsund krónur en Skýjaborgir um 200 þúsund. Öllum fyrirtækjunum hefur verið bannað að auglýsa sig með þeim hætti sem fjallað er um í ákvörðununum.

Sektuð fyrir að auglýsa lénið á auglýsingaskilti
Neytendastofa hefur sektað Pólóborg ehf. um þrjú hundruð þúsund krónur vegna auglýsinga á nikótínvörum. Auglýsingarnar voru bæði birtar á samfélagsmiðlum og auglýsingaskilti.

Drekinn og King Kong fá á baukinn fyrir að auglýsa nikótínvörur
Neytendastofa hefur sektað tvö fyrirtæki fyrir að auglýsa neyslu og meðferð á nikótínvörum, og fyrir að auglýsa einstaka vörumerki framleiðenda slíkra vara. Sektirnar nema 400 þúsund krónum hvor.

Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna
Allir þeir flokkar sem svöruðu spurningum fornvarnarsamtaka um nikótínpúða og áfengissölu sögðust vilja stemma stigu við notkun barna og unglinga á nikótínpúðum.

Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga
Eigandi nikótínpúðaverslunar fullyrðir að nýtt gjald sem á að leggja á púðana muni leiða til aukinnar notkunar rafrettna og tóbaks. Gjaldið þýði að sígarettupakkar og nikótínpúðadósir verði á svipuðu verði.

Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika
Lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda furðar sig á því að fyrirhuguð gjaldtaka á nikótínvörur fari eftir þyngd pakkninga en ekki styrkleika. Breytingin sé ekki til þess fallin að efla lýðheilsu. Fjáraukalög voru til umræðu á Alþingi í dag.

Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi
Nýtt gjald á nikótínpúða sem lagt er til að taki gildi á næsta ári gæti hækkað verð á hverri dós um þrjú hundruð krónur. Takmarkanir á aðgengi að nikótínvörunum eru sagðar hafa skilað litlum árangri í að draga úr neyslu barna og ungmenna á þeim.

Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári
Gert er ráð fyrir sex milljarða tekjum á næsta ári vegna gjaldtöku á nikótínvörur. Að auki má búast við því að hliðaráhrif vegna virðisaukaskatts gætu unið 1,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram í mati á áhrifum frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða
Heilbrigðisráðherra segir að huga þurfi að skattlagningu á nikótínvörur til þess að sporna við notkun barna og ungmenna á nikótínpúðum og rafrettum. Hann segir framlegð af sölu nikótínvara óeðlilega en hún nær ekki tíu prósentum.

Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús
Við sem erum komin yfir fertugt munum vel þann tíma þegar víða var reykt, bæði á kennarastofum og í flugvélum.

Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur
Eyrún Magnúsdóttir, foreldri og blaðamaður, segir mikilvægt að stjórnvöld sofi ekki á verðinum hvað varðar nikótínpúða. Fyrir um 30 árum hafi 33 prósent fólks reykt, en nú aðeins um þrjú prósent. Í dag noti um 33 prósent fólks nikótínpúða. Stjórnvöld ættu að stefna að því að taka sér ekki 30 ár í að ná þessari prósentutölu niður. Eyrún fjallar um þetta í aðsendri grein á Vísí í dag.

Leggur til takmarkanir á aðgengi að nikótínpúðum
Heilbrigðisráðherra boðar frumvarp á haustmánuðum sem ætlað er að takmarka aðgengi að nikótínvörum á borð við nikótínpúða. Hann fagnar umræðu um skaðsemi púðanna og segir þjóðarátak nauðsynlegt.

Kallar eftir þjóðarátaki gegn nikótínvánni
Hvert nikótínveldið á fætur öðru ryður sér rúms í höfuðborginni á sama tíma og sífellt fleiri nota slíkar vörur. Foreldrar lýsa yfir miklum áhyggjum af þróuninni og kalla eftir þjóðarátaki.

Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins
Fjármálaráðherra segir það gleðitíðindi að sala á íslensku neftóbaki dragist saman. Skoða þurfi hvort leggja eigi gjöld á nikótínpúða.

Varar við óafturkræfum skaða við notkun nikótínpúða
Stefán Pálmason tannlæknir og sérfræðingur í lyflækningum munns varar notendur nikótínpúða sem hefur fjölgað gríðarlega á Íslandi undanfarin ár við óafturkræfum skaða fyrir tannholdið. Nikótínpúðar valdi því að tannholdið hörfi ásamt því að hafa álíka slæm áhrif á hjarta- og æðakerfið og reykingar.

Staðfestu öll brot Svens á auglýsingabanni
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu að Svens braut gegn auglýsingabanni gegn nikótínvörum með auglýsingum á samfélagsmiðlum og með merkingum á verslunum og bílum félagsins.

Seldu barni nikótínpúða en sleppa með skrekkinn
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi úrskurð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að leggja 200 þúsund króna stjórnvaldssekt á Svens. Starfsmaður Svens var ekki talinn bera ábyrgð á því að 16 ára piltur nýtti sér fölsuð skilríki til þess að kaupa nikótínpúða.

Bæjarblaðið sektað fyrir að auglýsa nikótín fyrir Þjóðhátíð
Útgefandi bæjarblaðs Vestmanneyinga, Tíguls, hefur verið sektað um 100 þúsund krónur vegna brots á fjölmiðlalögum, með því að birta viðskiptaboð fyrir nikótínpúða og rafsígarettur. Tígull er fyrsti fjölmiðillinn sem sektaður fyrir slíkt brot. Útgefandinn segist hafa prentað heilsíðuauglýsinguna fyrir mistök.

Letrið of smátt og lýsingarorðin of jákvætt hlaðin
Mat Neytendastofu er að GS Verslanir ehf, rekstraraðila GS Búlluna, hafi brotið gegn auglýsingarbanni með því að birta myndir og myndbönd af nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær á samfélagsmiðlum. Hefur félaginu verið bannað að birta auglýsingarnar.