Þjóðadeild kvenna í fótbolta

Fanney með fótboltaheila og getur náð heimsklassa
Jólin komu snemma í ár með sigri Íslands á Danmörku í Þjóðadeildinni í fótbolta í fyrradag. Átján ára gamall markvörður Íslands og Vals sló í gegn í frumraun sinni. Íslenska landsliðið gerði sér lítið fyrir og kramdi ólympíudrauma danska landsliðsins með 1-0 sigri sínum í lokaumferð riðlakeppni Þjóðadeildarinnar í Viborg.

Sögulegt: Fyrsta sinn sem Ísland vinnur gömlu herraþjóðina á danskri grundu
Íslenska kvennalandsliðið endaði árið á frábærum sigri á Dönum í lokaleik sínum í Þjóðadeildinni í gær og náði um leið vonandi að brjóta múr sem hefur staðið alltof lengi.

Innhólf Karólínu fullt af þakklátum Þjóðverjum
Íslensku stelpurnar í fótboltalandsliðinu unnu ekki bara frækinn sigur gegn Dönum í gærkvöld heldur gerðu þær Þjóðverjum risastóran greiða um leið. Og Þjóðverjarnir hafa verið duglegir að þakka fyrir sig.

Fjölskyldan í skýjunum með frumraun Fanneyjar
Hin 18 ára gamla Fanney Inga Birkisdóttir, stimplaði sig rækilega inn í íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er hún átti stórleik í sínum fyrsta A-landsleik. Leik gegn Dönum á útivelli í Þjóðadeildinni sem endaði með eins marks sigri Íslands. Fjölskylda Fanneyjar var á vellinum í Viborg og segir faðir hennar, Birkir Ingibjartsson, dóttur sína aldeilis hafa sýnt hvað í sér býr.

Ulrik Wilbek vill losna við kvennalandsliðið úr Viborg
Borgarstjórinn í Viborg vill að danska kvennalandsliðið í fótbolta finni sér nýjan heimavöll, utan borgarinnar.

Danir í sárum eftir „fíaskóið“ gegn Íslandi
Danir eru í öngum sínum yfir að hafa ekki nýtt tækifærið til að komast í dauðafæri á að fara á Ólympíuleikana næsta sumar. Tapið gegn Íslandi í gær, 1-0, er þeim afar dýrkeypt.

Ólympíudraumurinn úti þrátt fyrir sex marka risasigur
Þrátt fyrir 6-0 útisigur gegn Skotum í A-deild Þjóðadeildarinnar misstu Evrópumeistarar Englands af möguleika á sæti á Ólympíuleikunum sem fram fara í París á næsta ári.

„Átti erfitt með að anda því mér var svo kalt í fyrri hálfleik en við vorum sjóðheitar“
„Tilfinningin er frábær, geggjað að vinna Dani eftir að þær byrjuðu á flugeldasýningu fyrir framan okkur,“ sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, markaskorari Íslands, eftir frækinn 1-0 sigur á Viborg í Þjóðadeild UEFA í kvöld.

„Ef maður skoðar allt árið finnst mér liðið vera í þróun og þroska“
„Hlýtur að vera, við erum með sex stig úr þessum glugga og frábært að vinna,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, aðspurður hvort þetta væri fullkominn endir á árinu en lið hans lagði Danmörku ytra í Þjóðadeild UEFA í kvöld.

Yfirveguð Fanney Inga: Góður sigur að baki og geggjað að spila fyrsta leikinn
„Mér líður bara mjög vel, góður sigur að baki og geggjað að spila fyrsta leikinn,“ sagði hin 18 ára gamla Fanney Inga Birkisdóttir sem stóð vaktina í marki Íslands í 1-0 útisigrinum á Danmörku í Þjóðadeild UEFA í kvöld. Hún var að spila sinn fyrsta A-landsleik.

Einkunnir Íslands: Fullkomin frumraun hjá átján ára nýliða
Hin átján ára gamla Fanney Inga Birkisdóttir, fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir og markaskorarinn Karólína Lea Vilhjálmsdóttir stóðu upp úr í fræknum 1-0 sigri Íslands gegn Danmörku í kvöld.

Umfjöllun: Danmörk - Ísland 0-1 | Enda árið með fræknum sigri í Viborg
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta gerði sér lítið fyrir og sigraði Danmörk 1-0 ytra í lokaumferð riðlakeppni Þjóðadeildar UEFA. Íslendingar enda í 3. sæti en hefði heimaliðið sigrað hefðu þær unnið riðilinn.

Fimm detta út úr byrjunarliðinu fyrir Danmerkurleikinn í kvöld
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, gerir talsverðar breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn á móti Danmörku í Þjóðadeild kvenna í fótbolta í kvöld.

Sármóðguð út af vangaveltum um að þær vilji tapa í kvöld
Skotar eru í þeirri stórfurðulegu stöðu að geta með tapi í kvöld aukið líkur sínar á að komast inn á Ólympíuleikana í París næsta sumar. Þeir telja hins vegar fráleitt að fólk efist um heilindi þeirra.

Fyrsta framherjamarkið hjá íslenska landsliðinu síðan í apríl
Diljá Ýr Zomers skoraði markið sem á endanum var munurinn á liðunum þegar íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann 2-1 sigur á Wales í Þjóðadeildinni á föstudagskvöldið. Markið var ekki aðeins mikilvægt heldur einnig langþráð.

Átján ára nýliði í markinu gegn Dönum
Valskonan unga Fanney Inga Birkisdóttir mun spila sinn fyrsta A-landsleik á morgun þegar Ísland mætir Danmörku í Viborg, í lokaumferð riðlakeppni Þjóðadeildar UEFA í fótbolta.

Umfjöllun: Wales - Ísland 1-2 | Harðneita að kveðja hóp þeirra bestu
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sendi Wales niður í B-deild Þjóðadeildar UEFA með 2-1 útisigri í Cardiff í kvöld. Sigurinn þýðir að Ísland endar í 3. sæti síns riðils í A-deild, og fer í umspil í lok febrúar um að halda sér þar.

Þorsteinn skaut á ráðherra: „Hann hefur aldrei mætt á landsleik“
Þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson var kátur eftir sigurinn góða hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta gegn Wales í kvöld. Hann skaut hins vegar um leið föstum skotum á Ásmund Einar Daðason, ráðherra íþróttamála, vegna stöðunnar á þjóðarleikvangi Íslands.

Segir Þorstein ekki rétta manninn til að stýra landsliðinu
Guðbjörg Gunnarsdóttir er markmannsþjálfari u-18 ára landsliðs Svíþjóðar sem mætir Íslandi í tveimur æfingaleikjum á dögunum. Hún gaf sig til tals við Ríkharð Óskar Guðnason fyrir komandi leiki, þegar talið barst að íslenska A-landsliðinu sagði hún erfitt að sjá leikplan þjálfarans Þorsteins Halldórssonar og viðurkenndi að hún teldi hann ekki rétta manninn til að stýra liðinu.

Þorsteinn stillir upp sama byrjunarliði og í síðasta leik
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur ákveðið að stilla upp sama byrjunarliði í kvöld og í tapleiknum á móti Þýskalandi í síðasta glugga.

Neyðarleg staða ef Ísland vinnur í kvöld
Það er mikið undir hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta í kvöld þegar það mætir Wales í hálfgerðum úrslitaleik um að forðast fall niður í B-deild Þjóðadeildar UEFA.

„Er mér óskiljanlegt að ekkert sé búið að gerast“
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, segir það sér óskiljanlegt hvers vegna ekkert sé búið að gerast í byggingu nýs þjóðarleikvangs og segir það miður að liðið gæti þurft að spila mikilvægan heimaleik utan landssteinanna.

Sveindís Jane að líkindum frá út árið
Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður frá út árið hið minnsta vegna meiðsla sem hafa verið að plaga hana. Þessu greindi landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson frá á blaðamannafundi í dag.

Svona var fundurinn þegar Þorsteinn kynnti landsliðshópinn sinn
Þorsteinn Halldórsson tilkynnti í dag hópinn sinn fyrir lokaleiki kvennalandsliðsins í Þjóðadeildinni. Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundinum og nú er hægt að horfa á hann aftur hér á Vísi.

Tveir nýir markverðir inn í hópinn og Ólöf snýr aftur
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur valið hópinn sinn fyrir tvo síðustu leiki íslensku stelpnanna í Þjóðadeildinni.

Ísland gæti spilað heimaleiki í kringum London, Köben eða Alicante
Ísland mun leika heimaleiki sína í byrjun næsta árs á erlendri grundu. Ekki liggur fyrir hvar spilað verður, en Norðurlöndin koma sterklega til greina.

KSÍ óskar eftir að spila heimaleiki sína erlendis
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur óskað eftir því að leika möguleiga heimaleiki sína í umspili fyrir EM og í Þjóðadeildinni á erlendri grundu. Leikirnir fara fram snemma árs 2024. Ástæðan er aðstöðuleysi sambandsins yfir vetrartímann hér á landi.

Reyndu að spila kvennalandsleik í einum stórum polli
Leikur Albaníu og Írlands í Þjóðadeild kvenna fór fram við hræðilegar aðstæður á Loro Borici leikvanginum í Shkodër í Albaníu.

Tölvuvesen kom í veg fyrir landsleik númer hundrað
Irene Paredes átti að spila sinn hundraðasta landsleik fyrir Spán í gær en þurfti í stað þess að sitja upp í stúku og horfa á leikinn.

Glódís um vítaspyrnudóminn: „Ég held að þetta hafi verið rangt“
Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var nokkuð stolt af frammistöðu íslenska kvennalandsliðsins þrátt fyrir 2-0 tap gegn Þjóðverjum í gær. Hún efast þó um að það hafi verið réttur dómur að dæma vítaspyrnu á Telmu Ívarsdóttur, markvörð íslenska liðsins.