
Vopnaburður barna og ungmenna

Samfélagið einkennist af spennu sem brýst út í ofbeldi
„Ég man í mínu ungdæmi, við strákarnir vorum með hnífa. Við vorum með dálka, meira að segja mjög hættulega dálka. Fengum þetta frá foreldrum í afmælisgjöf eða eitthvað slíkt. Það er ekkert nýtt að það séu hnífar í umhverfi okkar. Notuðum þá til að tálga og gera alls konar hluti en það hvarflaði ekki að okkur að beina þessu gegn öðrum. Þar er ákveðin breyting sem hefur átt sér stað.“

Dyraverðir vilja fá að nota handjárn: „Það er orðið svo mikið ofbeldi niðri í bæ“
Dyraverðir kalla eftir því að fá heimild til að nota handjárn í þágu aukins öryggis. Dyravörður sem stendur fyrir undirskriftasöfnun þess efnis segir aukið ofbeldi í miðborginni kalla á breytingar á lögum sem heimili dyravörðum, með skilyrðum, að bera og beita handjárnum. Sjálfur hafi hann í tvígang lent í því á undanförnum mánuðum að ráðist var að honum með eggvopni.

Útskýrir hvers vegna hann mætti með hníf í skólann
Landsliðsmarkvörður í handbolta lýsir því að hafa verið ungi strákurinn sem mætti með hníf í skólann á sínum tíma. Honum hafi liðið eins og allir í kringum sig gengju með hnífa og því gripið einn sjálfur. Þá líkt og nú hlusti enginn á börnin sem umfram allt þurfi að umvefja ást.

Fengu óljósar ábendingar um hefndaraðgerðir
Lögreglu bárust óljósar ábendingar úr ýmsum áttum um helgina um mögulegar hefndaraðgerðir vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt þar sem 17 ára stúlka lét lífið. Áttu hefndaraðgerðirnar að fara fram í Mosfellsbæ þar sem bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin.

Taka höndum saman gegn hnífaburði: „Þú ert aumingi“
Skýr skilaboð berast frá samfélagsmiðlastjörnum þessa dagana vegna fréttaflutnings og umræðu um aukinn hnífaburð ungmenna og þess skaða sem hann veldur: þeir sem bera hnífa úti á lífinu eru aumingjar og eiga sér engar málsbætur.

Stúlkan er látin
Stúlkan sem var stungin með hnífi í miðborginni síðastliðið laugardagskvöld er látin. Hún lést af sárum sínum á Landspítalanum í gærkvöld. Hún hét Bryndís Klara Birgisdóttir og var 17 ára.

„Löggan er ekki að fara að labba í gegnum Garðabæ og leita á ungmennum“
Öryggis- og löggæslufræðingur segir vafasamt ætli lögregla að fara að leita á ungmennum til að koma í veg fyrir hnífaburð. Það leiði líklega til þess að spjótum verði beint að börnum innflytjenda og fólki af erlendum uppruna.

Drengurinn fluttur á Hólmsheiði til að tryggja öryggi hans
Sextán ára drengur sem sætir gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa stungið þrjú á menningarnótt er nú vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir Fangelsismálastofnun ekki vista börn í fangelsum sínum nema það sé í samræmi við hagsmuni barnsins.

Vill auka sýnileika lögreglu vegna stunguárása
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir ríkisstjórnina harmi slegna yfir stunguárásinni á menningarnótt. Hann vill hraða fyrirhuguðum aðgerðum er miða að því að auka sýnileika lögreglu.

Þörf á fleiri lögreglumönnum á djammið í Reykjavík
Agnes Hlynsdóttir í Samtökum reykvískra skemmtistaðaeigenda og rekstrarstjóri skemmtistaðarins Lemmy segist verða vör við meira ofbeldi og vopnaburð á djamminu. Þá sé einnig töluvert um ungt fólk sem sé að reyna að smygla sér ölvað inn á skemmtistaði. Hún segir þurfa átak og meiri viðveru lögreglu í miðbænum.

Þrettán ára börn ósjálfbjarga vegna drykkju á Menningarnótt
Börn niður í þrettán ára þurftu að nýta sér þjónustu miðbæjarathvarfsins svokallaða vegna ölvunar á menningarnótt. Sérfræðingur segir dæmi um að börn hafi verið ósjálfbjarga af drykkju, sum snemma dags. Drykkja unglinga hafi aukist og að börn sæki í sterkt áfengi á borð við landa.

Bera fyrir sig að hinir krakkarnir séu með hníf
Lögreglan telur að stórfellt átak þurfi til að taka á hnífaburði ungra barna. Dæmi er um að börn gangi um með rafvopn og piparúða. Einnig hefur borið á því að ungmenni mæti með hnífa í skólann.

Starfsfólk í skólum muni leggja þunga áherslu á að stöðva vopnaburð barna
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs í Reykjavík, hvetur foreldra til að ræða við börn sín um vopnaburð og hversu hættulegt það er að ganga með hníf á sér. Hann segir að næstu daga muni starfsfólk í skóla- og frístundastarfi leggja þunga áherslu á að stöðva hnífaburð barna.

Orðið vör við hnífaburð í grunnskólum Reykjavíkur
Borið hefur á því undanfarna mánuði að börn hafi verið með hníf á sér í grunnskólum og frístundastarfi í Reykjavík. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur hvetur foreldra til að ræða við börnin sín um hve hættulegt það geti verið að ganga með hníf á sér. Koma verði í veg fyrir vopnaburð.

Miðbærinn orðinn hættulegri
Bareigandi í Reykjavík segir miðbæ Reykjavíkur vera töluvert hættulegri en þegar hann kom hingað til lands frá Brasilíu fyrir um þrjátíu árum. Hann segist vera áhyggjufullur vegna stöðunnar og að reynsla hans af því að alast upp í Brasilíu sé orsökin á því.

„Þrjú börn tekin með hnífa hér á Akureyri“
Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af þremur undir lögaldri sem báru hnífa um helgina. Foreldrar og lögregluyfirvöld hafa þungar áhyggjur af stöðunni.

Ungmenni með hníf í skólanum
Tilkynnt var um ungmenni með hníf í skólanum á lögreglustöð 1, sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes. Málið var afgreitt með foreldrum, barnavernd og lögreglu.

Þungar áhyggjur af vopnaburði ungmenna
Yfirlögregluþjónar um allt land lýsa yfir áhyggjum af auknum vopnaburði ungmenna og ofbeldishegðun. Þeir segja mikla vinnu fyrir höndum og ekki síst hjá foreldrum til að snúa við þróuninni. Drengur á sextánda ári situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa stungið tvær stúlkur og dreng á sama reki. Sautján ára stúlka er í lífshættu.

Ógnandi betlari og vopnuð börn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð til vegna konu sem var að betla og ógnaði þeim sem tilkynnti.

Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum
Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er slegin yfir lífshættulegulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum.

Sífellt fleiri ungmenni með hníf til að verja sig
Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útköllum vegna vopnaburðar hafi fjölgað verulega á síðustu árum. Sjö prósent ungmenna frá 7. bekk að 1. ári í framhaldsskóla svöruðu því játandi að hafa borið hníf í nýlegri könnun. Flestir sögðust hafa viljað verja sig.

Faðir pilts sem lenti í stunguárás hélt að sonurinn væri látinn
Faðir palestínsks drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Hann óttast nú um líf sonarins.

Átti leið hjá fyrir tilviljun og tókst að endurlífga stúlkuna
Ryan Cocuera, 32 ára hjúkrunarfræðingur á taugadeild Landspítalans, var á leiðinni heim með fjölskyldunni sinni á Menningarnótt í gær þegar hann kom að stúlku sem lá í blóði sínu á Skúlagötu eftir hnífstunguárás.

Þrjú ungmenni með áverka og eitt í alvarlegu ástandi eftir stunguárásina
Þrír eru með stunguáverka og þar af einn í alvarlegu ástandi eftir líkamsárás í miðborginni í gær þar sem hnífi var beitt. Allir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar og gekkst hinn alvarlega slasaði undir aðgerð í nótt. Brotaþolar og hinn grunaði eru öll sögð vera ungt fólk.

Hafa áhyggjur af auknu ofbeldi, áhættuhegðun og vopnaburði barna
Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði umtalsvert fyrstu mánuði þessa árs samanborið við í fyrra. Neikvæð áhrif kórónuveirufaraldursins, aukin vanlíðan meðal barna og samfélagsmiðlar er meðal þess sem kann að skýra þróunina að sögn forstjóra forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Þróunin sé mikið áhyggjuefni sem tilefni sé til að rannsaka betur.

Hafa áhyggjur af hópamyndun ungra karlmanna
Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað hér á landi frá árinu 2007. Hins vegar hefur tilkynningum til lögreglu um alvarleg ofbeldisbrot fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá hefur lögregla sérstakar áhyggjur af hópamyndun ungmenna og ungra karlmanna í ofbeldismálum.

Dæmi um börn í öðrum bekk með hnífa í grunnskólum
Dæmi er um að börn í öðrum og þriðja bekk hafi mætt með hnífa í skólann hér á landi. Sérfræðingur í öryggisgæslu hefur verulegar áhyggjur af þróuninni.

Ungmenni viti oft ekki hvað megi ekki segja
Taka þarf hart á auknu ofbeldi meðal ungmenna að sögn skrifstofustjóra frístundamála hjá Reykjavíkurborg. Hún segir það vanta að börn læri hvað megi segja og hvað megi ekki segja í samskiptum við annað fólk.

Vill 700 þúsund króna sekt við hnífaburði á kvöldin
Öryggis- og löggæslufræðingur segir nauðsynlegt að bregðast skjótt við til að koma hnífum af götum landsins. Hann telur að banna eigi hnífaburð „í margmenni“ frá sex á kvöldin til sjö á morgnanna og að sektir við slíku verði 700 þúsund krónur. Einnig leggur hann til bann á sölu allra hnífa nema eldhúsáhalda og verkfæra.