
Bandaríkin

Lögreglumenn létu höggin dynja á manni sem þeir héldu niðri
Tveir lögreglumenn hafa verið sendir í leyfi eftir að myndband af þeim að kýla og sparka í mann sem þeir héldu niðri fór í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Ætlar til Rússlands til að krefjast lausnar Griner
Körfuboltamaðurinn fyrrverandi Dennis Rodman kveðst hafa fengið leyfi til þess að ferðast til Rússlands í þeim tilgangi að krefjast lausnar annarrar körfuboltastjörnu, Brittney Griner, úr fangelsi.

Áfrýjar í nauðgunarmáli Ronaldo
Kathryn Mayorga hefur áfrýjað ákvörðun héraðsdómara í Bandaríkjunum sem vísaði í sumar frá lögsókn sem hún höfðaði gegn fótboltastjörnunni Cristiano Ronaldo vegna meintar nauðgunar árið 2009.

Gary Busey ákærður fyrir kynferðisofbeldi
Lögreglan í New Jersey í Bandaríkjunum hefur ákært leikarann Gary Busey fyrir kynferðisofbeldi á ráðstefnu áhugamanna um hryllingsmyndir sem haldin var síðustu helgi.

Draumadrengur bandarísks fjármálaheims sakaður um kynferðisofbeldi
Dan Price forstjóri Gravity Payments í Bandaríkjunum hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Price hefur lengi vel verið andlit hins andkapítalíska forstjóra í bandarísku samfélagi og vinsæll meðal margra. Hann hefur nú stigið til hliðar vegna ásakana um kynferðisofbeldi.

Einn Bítla ISIS dæmdur í lífstíðarfangelsi
El Shafee Elsheikh var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bandaríkjunum fyrir að hafa komið að dauða fjögurra bandarískra gísla. Hann var hluti alræmds hóps vígamanna Íslamska ríkisins sem gekk undir nafninu Bítlarnir.

Apple segir notendum að uppfæra tæki vegna öryggisbrests
Tæknirisinn Apple hefur ráðlagt notendum sínum að uppfæra Apple tækin sín þar sem öryggisbrestur hafi komið upp. Öryggisbresturinn leyfi tölvuþrjótum að ná stjórn á tækjum notenda.

Særðu sjö þegar þeir skutu á mann með hendur á lofti
Saksóknarar í Denver í Bandaríkjunum hafa stofnað til rannsóknar á atviki frá því í júlí þar sem þrír lögregluþjónar særðu sex óbreytta borgara í skothríð fyrir utan skemmtistað. Skothríðin hófst þegar maðurinn kastaði frá sér skammbyssu og rétti upp hendurnar.

Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara
Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020.

Þrír fangar ákærðir vegna morðsins á James „Whitey“ Bulger
Þrír hafa verið ákærðir vegna morðsins á hinum alræmda bandaríska glæpaforingja, James „Whitey“ Bulger. Hinn 89 ára Bulger fannst meðvitundarlaus í öryggisfangelsi í Vestur-Virginíu í október 2018 þar sem hann afplánaði dóm og var hann úrskurðaður látinn skömmu síðar.

Hálfur sigur fjölmiðla í deilu um eldfimar upplýsingar um húsleitina sögulegu
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur skipað Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, að koma með tillögu að útstrikunum svo opinbera megi eiðsvarna yfirlýsingu sem lögreglan nýtti til að réttlæta húsleit í húsnæði Donald Trump á dögunum.

Í vanda staddar vegna „Bridgerton“ tónleika
Höfundar óopinbera Bridgerton söngleiksins, Abigail Barlow og Emily Bear hafa nú verið lögsóttar af Netflix fyrir brot á hugverkarétti.

Meintur árásarmaður Rushdie dreginn fyrir dóm
Maðurinn sem sagður er hafa ráðist á rithöfundinn Salman Rushdie fyrir stuttu, Hadi Matar, neitaði sök fyrr í dag. Hann muni ekki eiga möguleika á því að vera látinn laus gegn tryggingu.

Fjármálastjóri Trumps játar skattsvik
Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, hefur játað að hafa svikið undan skatti. Það gerði hann vegna samkomulags við saksóknara í New York en samkomulagið felur meðal annars í sér að hann mun mögulega bera vitni í máli saksóknaranna gegn fyrirtækinu, sem heitir Trump Organization.

Lyfjaverslanirnar dæmdar fyrir sinn þátt í ópíóðafaraldrinum
Alríkisdómstóll hefur úrskurðað að þrjár stærstu lyfjaverslanakeðjur Bandaríkjanna þurfi að greiða 650 milljónir dala í sekt fyrir sinn þátt í ópíóðafaraldrinum í tveimur sýslum í Ohio. Umræddar keðjur eru Wallgreens Boots, CVS og lyfjaverslanir Walmart.

Ætlar sér að stöðva Trump hvað sem það kostar
Fulltrúadeildarþingmaðurinn Liz Cheney hefur heitið því að nýta næstu tvö ár í að gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að Donald Trump snúi aftur í Hvíta húsið. Hún útilokar ekki forsetaframboð í forsetakosningunum eftir tvö ár.

Sextán ára munaðarlausri stúlku gert að fæða barn vegna þroskaleysis
Bandarískir dómarar í Flórída komust að þeirri niðurstöðu í mánuðinum að sextán ára munaðarlaus stúlka sé ekki „nægilega þroskuð“ til að taka ákvörðun um að fara í þungunarrof. Hún verði að eignast barnið. Stúlkan hefur sagst vilja í þungunarrof og segist ekki tilbúin til að ala barn né hafa burði til þess.

Komin á skotpall fyrir fyrstu tunglferðina
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) luku í dag við að flytja fyrstu eldflaug Artemis-áætlunarinnar á skotpall í Flórída. Var það gert fyrir fyrstu tunglferð áætlunarinnar en til stendur að skjóta eldflauginni á loft eftir tæpar tvær vikur.

Gefur út skólínu á lokametrum meðgöngunnar
Fyrirsætan og tískubloggarinn Andrea Röfn Jónasdóttir er að gefa út nýja samstarslínu með danska skómerkinu JoDis en samstarf þeirra hefur vakið mikla lukku fram að þessu. Vísir náði tali af Andreu þar sem hún var stödd á fæðingardeildinni í Boston í gangsetningu.

Liz Cheney hafnað af Repúblikönum í Wyoming
Bandarísku þingkonunni Liz Cheney var hafnað í forkosningum Repúblikana í Wyoming í gær vegna þingkosninganna sem fram fara í Bandaríkjunum í nóvember. Cheney, sem hefur átt sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings frá 2017, hefur verið einn helsti andstæðingur Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, innan Repúblikanaflokksins.

„Ótrúlega erfitt að taka ákvörðun um að fara út“
Athafnamaðurinn Bergsveinn Ólafsson ákvað að taka stökkið í haust og flytja út til Claremont í Kaliforníu þar sem hann mun stunda doktorsnám í sálfræði við Claremont Graduate University. Hann er nýlentur í ævintýrinu og ræddi við Vísi um það sem býður hans í nýja heimalandinu.

Kirkja í Texas sögð hafa sýnt söngleikinn „Hamilton“ í leyfisleysi
Kirkja í Texas er sögð hafa breytt og bætt við texta í uppsetningu á hinum geysi vinsæla Broadway söngleik „Hamilton.“ Kirkjan er sögð hafa bætt við atriði þar sem Alexander Hamilton iðrist synda sinna og biðji Guð fyrirgefningar.

Veðja á hljóðfráar farþegaþotur að nýju
Bandaríska flugfélagið American Airlines hefur lagt inn pöntun fyrir allt að tuttugu hljóðfráun farþegaþotum frá flugvélaframleiðendanum Boom Supersonic. Hljóðfráar farþegaþotur hafa ekki verið í notkun frá því að hætt var að fljúga Concorde vélum snemma á þessari öld.

Leikstjórinn Wolfgang Petersen allur
Þýski kvikmyndaleikstjórinn Wolfgang Petersen er látinn, 81 árs að aldri. Hann var best þekktur fyrir kvikmyndir á borð við Das Boot, Air Force One og The Perfect Storm.

Tíst verði merkt til þess að koma í veg fyrir dreifingu misvísandi upplýsinga
Samfélagsmiðillinn Twitter er sagður hafa ákveðið að efni sem elur á upplýsingaóreiðu eða dreifi röngum og misvísandi upplýsingum muni vera merkt sem slíkt í aðdraganda miðkjörtímabilskosninga í Bandaríkjunum. Kosningarnar eru haldnar 8. nóvember næstkomandi.

Hægrisinnaðir fá sitt eigið stefnumótaforrit
Hægrisinnaðir Bandaríkjamenn geta í september skráð sig á stefnumótaforrit sem er einungis fyrir hægrisinnaða einstaklinga en forritið heitir, „The Right Stuff.“ Hægrisinnaði milljarðamæringurinn Peter Thiel fjárfesti í forritinu fyrir eina og hálfa milljón dollara en Thiel er sjálfur samkynhneigður.

Giuliani með stöðu grunaðs manns
Rudolph W. Giuliani, fyrrverandi lögmaður Donalds Trump og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið tilkynnt að hann hafi stöðu grunaðs manns í rannsókn yfirvalda í Georgíu á afskiptum Trumps og bandamanna hans af forsetakosningunum árið 2020.

Jill Biden með Covid
Jill Biden, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur greinst smituð af Covid-19. Hún er bólusett og hefur einungis sýnt væg einkenni, samkvæmt tilkynningu frá Hvíta húsinu.

A$AP Rocky ákærður fyrir að skjóta á mann
Rapparinn A$AP Rocky var í gær ákærður fyrir að miða byssu að fyrrverandi vini sínum í Hollywood í fyrra og hleypa af tveimur skotum. Raunverulegt nafn rapparans er Rakim Athelaston Mayers og er hann 33 ára gamall.

Eldri kona drepin af krókódíl
Lík 88 ára gamallar konu fannst í tjörn í Suður-Karólínu í gær en talið er að hún hafi verið drepin af krókódíl (flatmunna) er hún var í garði sínum. Konan er sögð hafa búið í íbúðakjarna fyrir eldra fólk í Hilton Head Island.