
Bandaríkin

Segir Trump alltaf hafa verið spilltan
Hillary Clinton segir það rétta ákvörðun að hefja formlegt ákæruferli gegna Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Vinnur mál vegna kaffiþyrstra grínista á rúntinum
Gamall samstarfsfélagi Jerry Seinfeld höfðaði mál og sakaði Seinfeld um að hafa stolið hugmyndinni að þáttunum.

Fátt sem kemur í veg fyrir hefndir Trump gegn uppljóstraranum
Sérfræðingar óttast að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og bandamenn hans komi upp um uppljóstrarann sem kom upp um símtal hans við Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, þar sem Trump bað hann um að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn.

Drekinn sýnir klærnar
Kínverski herinn sýndi nýjustu vopn sín og í morgun í tilefni af 70 ára afmælis Alþýðulýðveldis Kína.

Óperusöngkonan Jessye Norman er látin
Ein nafntogaðasta sópransöngkona tuttugasta aldarinnar er látin, 74 ára að aldri.

Einn frægasti frjálsíþróttaþjálfari heims og fyrrum þjálfari Mo Farah dæmdur í fjögurra ára bann
Alberto Salazar, fyrrum þjálfari Mo Farah, hefur verið bannaður frá frjálsum íþróttum í fjögur ár vegna brot á reglum um lyfjanotkun.

Clueless leikkona handtekin
Leikkonan Stacey Dash, sem er hvað þekktust fyrir að leika í grínmyndinni Clueless með Alicia Silverstone var handtekin fyrir líkamsárás í Flórída í gær í tengslum við heimiliserjur.

Bað forsætisráðherra Ástralíu um að hjálpa Barr að rannsaka Rússarannsóknina
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, þrýsti á Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, og bað hann um að hjálpa William Barr, dómsmálaráðherra sínum, við rannsókn hans á uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu.

Demókratar stefna Giuliani
Demókratar hafa stefnt Rusy Giuliani, einkalögmanni Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, vegna samskipta hans og forsetans við embættismenn í Úkraínu.

Þingmaður segir af sér vegna innherjaviðskipta
Chris Collins, þingmaður Repúblikanaflokksins, hefur sagt af sér þingmennsku fyrir New York-ríki.

Trump leggur til handtöku pólitísks andstæðings
Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði í dag til að handtaka skyldi pólitískan andstæðing sinn fyrir landráð vegna ummæla um samskipti Trumps við Úkraínuforseta. Forseti Úkraínu segir ríki sitt ekki þurfa að hlýða skipunum annarra.

Kóreumenn kvarta vegna „ögrana“ Bandaríkjanna
Yfirvöld Norður-Kóreu segja Bandaríkjunum um að kenna vegna deilunnar um kjarnorkuvopna- og eldflaugaáætlun einræðisríkisins

Verðhugmyndir Ballarin og Ernis gjörólíkar
Michele Ballarin falaðist eftir því að kaupa flugfélagið Erni í aðdraganda blaðamannafundarins sem hún hélt á Hótel Sögu í upphafi mánaðarins.

Fatakeðjan Forever 21 sækir um gjaldþrotavernd
Til stendur að loka verslunum í fjörutíu löndum og fjölda verslana í Bandaríkjunum.

Styrkja nemendur um milljónir með myntsölu
Stofnun Leifs Eiríkssonar hefur veitt 420 milljónum íslenskra króna í námsstyrki á síðustu 18 árum. Stofnunin styrkir árlega um tíu nemendur til náms í Bandaríkjunum og á Íslandi og fær hver nemandi fyrir sig þrjár milljónir króna.

Ætla að svipta hulunni af fleiri símtölum Trump
Þingmenn Demókrataflokksins eru staðráðnir í því að koma höndum yfir eftirrit og önnur gögn um símtöl Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við aðra þjóðarleiðtoga eins og Vladimir Pútín, forseta Rússlands.

Biden krefst þess að Giuliani verði ekki boðið í fleiri viðtöl
Rudy Giuliani, einkalögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, segir að hann muni ekki svara spurningum þingmanna án þess að fá leyfi frá Trump.

Hætta sölu á vinsælu brjóstsviðalyfi vegna krabbameinsvaldandi efnis
Efni sem fannst í töflunum getur mögulega valdið krabbameini í mönnum.

Ríkisstjórn Trump endurnýjar rannsókn á tölvupóstum Clinton
Utanríkisráðuneyti Trump reynir nú að blása lífi í eitt helsta hitamál kosninganna árið 2016: tölvupósta Hillary Clinton.

Fréttamenn og þáttastjórnendur Fox deila
Mikil spenna er sögð ríkja á milli aðila innan veggja Fox vegna ákæruferlis á hendur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, vegna meintra embættisbrota og samskipta Trump við erlenda þjóðarleiðtoga.

Vilja hermenn Tyrklands og Bandaríkjanna burt frá Sýrlandi
Ríkisstjórn Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, krefst þess að hermenn Bandaríkjanna og Tyrklands yfirgefi landið hið snarasta.

Fylgdust með Assange allan sólarhringinn
Spænska öryggisfyrirtækið Undercover Global S. L. deildi myndböndum og hljóðskrám af fundum Julian Assange með lögmönnum sínum og öðrum með leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA.

„Okkar hlutverk að sigra Donald Trump“
Biden sótti hart að Trump í ræðu sem hann flutti stuðningsmönnum sínum í gær.

Lýsir eftirmálum nauðgunar í áhrifamikilli stuttmynd
Chanel Miller, fórnarlamb nauðgarans Brock Turner, segir frá reynslu sinni af kynferðisofbeldi í nýrri stuttmynd sem hún gaf út nú á dögunum.

Beina sjónum sínum að kannabisvökvum í rannsókn á rafrettuveikindum
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú þrettán dauðsföll sem eru tengd rafrettunotkun. Alls hefur verið tilkynnt um 805 veikindi tengd rafrettunotkun.

Hvíta húsið leyndi fleiri viðkvæmum símtölum Trump við Pútín og Sáda
Trump er sagður hafa tjáð háttsettum rússneskum embættismönnum í Hvíta húsinu að hann kippti sér ekki upp við afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 því Bandaríkin gerðu það sama í öðrum löndum.

Háttsettir Repúblikanar styðja rannsókn á Trump
Tveir ríkisstjórar tjáðu sig um málið í dag.

Trump rifjar upp Mueller-æfingarnar
Orð og setningar eins og nornaveiðar, hneyksli, forsetaáreiti, "það hefur aldrei verið komið jafn illa fram við forseta“ og "þetta má ekki gerast aftur“, eru farin að birtast í miklu magni á Twitter-síðu Trump og í yfirlýsingum hans til fjölmiðla.

Aukaleikararnir rifja upp Friends tímann
Gamanþættirnir Friends njóta enn gríðarlegra vinsælda og horfa milljónir manna á þættina daglega. Friends voru framleiddir á árunum 1994-2004 og þekkja margir þættina vel.

Segir Bandaríkjastjórn hafa boðið afnám þvingana
Forseti Írans staðhæfir að Bandaríkjastjórn hafi boðist til að fella niður refsiaðgerðir ef stjórnvöld í Teheran féllust á viðræður.