

Eitthundrað ár eru í dag, 2. ágúst, frá því flugvél var í fyrsta sinn flogið yfir úthafið til Íslands. Flugmaðurinn sem það afrekaði var Svíinn Erik H. Nelson, sem orðinn var bandarískur ríkisborgari, en flugið var hluti af hnattflugi bandaríska flughersins, fyrsta flugi sögunnar umhverfis Jörðina.
Bandaríski kringlukastarinn Veronica Fraley keppir í kvöld í kringluvarpi á Ólympíuleikunum í París. Hún vakti hins vegar athygli á því á samfélagsmiðlum að þrátt fyrir að skara fram úr í sinni íþróttagrein hefur hún enn ekki efni á leigu heima fyrir.
Stjórnvöld í Kreml staðfestu í fyrsta skipti í dag að sumir þeirra fanga sem fengu að snúa til Rússlands í sögulegum fangaskiptum í gær hafi verið útsendarar leyniþjónustunnar. Þeirra á meðal er morðingi sem Rússar sóru af sér eftir morð í Berlín árið 2019.
Þrír Bandaríkjamenn sem losnuðu úr rússneskri prísund í sögulegum fangaskiptum lentu í heimalandinu í gærkvöldi. Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseti segir að viðræður hafi verið um að Alexei Navalní yrði frelsaður í skiptunum áður en hann lést skyndilega.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir sönnunargögn sýna að Edmundo González hafi borið sigur úr býtum í forsetakosningunum í Venesúela gegn Nicolás Maduro, sitjandi forseta.
Umfangsmestu fangaskipti Vesturlanda og Rússlands frá tímum kalda stríðsins áttu sér stað í dag, þegar skipts var á tuttugu og fjórum föngum. Rússar slepptu sextán úr haldi og átta manns var sleppt úr haldi frá fangelsum í Bandaríkjunum, Noregi, Þýskalandi, Póllandi og Slóveníu. Með þeim fylgdu tvö börn.
Merki eru um umfangsmikil fangaskipti á milli Rússlands og Hvíta-Rússlands annars vegar og Bandaríkjanna, Þýskalands og Slóveníu hins vegar. Hermt er að blaðamaður Wall Street Journal sem Rússar handtóku í fyrra verði hluti af skiptunum.
Þrír menn sem eru sakaðir um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 hafa náð samkomulagi við yfirvöld í Bandaríkjunum um að játa aðkomu sína gegn því að verða ekki dæmdir til dauða.
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaefni Repúblikanaflokksins, fór mikinn á viðburði Samtaka svartra blaðamanna (NABJ) í gær og sagði meðal annars að Kamala Harris hefði aðeins „orðið svört“ fyrir nokkrum árum.
Æ færri Bandaríkjamenn skrá sig í bandaríska herinn árlega, samkvæmt tölfræði hersins síðustu ár. Hermálayfirvöld hafa því lagt meira púður í markaðssetningu sem ber misjafnan árangur.
Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja dóu í heimavistarskólum í Bandaríkjunum sem reknir voru af yfirvöldum eða trúarstofnunum. Markmiðið með vistun barnanna var að aðlaga þau hvítu samfélagi.
Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og væntanlegt forsetaefni Demókrataflokksins, mun halda fyrsta kosningafundinn með varaforsetaefni sínu í Philadelphiu í Pennsylvaníu á þriðjudaginn í næstu viku.
Ronald Rowe, settur forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service, segist skammast sín vegna skotárasar sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda.
Bandarískur liðsforingi úr Víetnamstríðinu sem var sá eini sem var látinn sæta ábyrgð á fjöldamorðinu alræmda í þorpinu My Lai er látinn, áttræður að aldri. Bandarískir hermenn drápu hundruð óbreyttra borgara í My Lai, þar á meðal konur og börn.
Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston var við tökur á sjónvarpsþáttunum The Morning Show í New York-borg um helgina þegar hún fékk yfir sig gusu af olíu.
Réttarhöldum í máli Daníels Gunnarssonar hefur verið frestað um nokkra daga vegna þess dómsátt milli hans og ákæruvaldsins er í undirbúningi. Á síðasta ári var hann dæmdur fyrir morð og limlestingu á líki, en málið sem nú er fyrir dómstólum varðar brot gegn barni.
Æviskipanir hæstaréttardómara heyra sögunni til og dómarar þurfa að starfa eftir siðareglum nái tillögur Joe Biden Bandaríkjaforseta fram að ganga. Fráfarandi forsetinn vill einnig breyta stjórnarskrá til þess að bregðast við nýlegum dómi um friðhelgi forseta.
Miklir gróðureldar geisa í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum og ná þeir nú yfir tuttugu ferkílómetra svæði. Á fjórða þúsund viðbragðsaðila glímir við eldana en upptök þeirra eru rakin til brennandi bíls sem var velt út í gil í síðustu viku.
Stórleikarinn Robert Downey Jr mun fara með hlutverk í tveimur væntanlegum bíómyndum Marvel. Um er að ræða tvíleikinn Avengers: Doomsday og Avengers: Secret Wars, og mun Downey fara með hlutverk skúrksins Victor Von Doom, eða Doctor Doom, í þeim báðum.
Bandaríska alríkislögreglan (FBI) staðfestir að það hafi verið byssukúla sem hæfði eyra Donalds Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu fyrir um tveimur vikum. Yfirlýsingin kemur í kjölfar óljósra frásagna um það hvað olli sárum hans þegar byssumaður hóf skothríð þann 13. júlí.
Varaforsetaefni Donalds Trump hefur gripið til varna fyrir ummæli sem hann lét falla 2021, um að Demókrataflokkurinn samanstandi af „barnlausum kattarkonum sem lifa í eymd.“ Hann segir Demókrataflokkinn reka ófjölskylduvæna stefnu, og líta barneignir hornauga.
Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein, 72 ára, hefur verið flutt á Bellevue-sjúkrahúsið í New York með Covid-19 og lungnabólgu.
Miklar deilur standa nú innan Murdoch-fjölskyldunnar eftir að ættfaðirinn og fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch freistaði þess að breyta skilmálum fjölskyldusjóðs sem var stofnaður þegar hann skildi við aðra eiginkonu sína, Önnu Murdoch Mann.
Fyrrverandi forsetahjónin Barack og Michelle Obama lýstu formlega yfir stuðningi sínum við Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, sem forsetaefni Demókrataflokksins í morgun. Obama-hjónin eru einna síðust helstu kanóna flokksins sem heita Harris stuðningi.
Ismael „El Mayo“ Zambada, leiðtogi mexikóska Sinaloa eiturlyfjahringsins, hefur verið handtekinn í El Paso í Texas. Hann hefur verið ákærður af saksóknurum í Bandaríkjunum meðal annars fyrir að hafa framleitt og dreift fentanyl, öflugu eiturlyfi sem hefur valdið ópíóðakrísu í Bandaríkjunum.
Framboð Donald Trump gaf frá sér yfirlýsingu í gær þar sem greint var frá því að vegna yfirstandandi „ringulreiðar“ meðal Demókrata myndi Trump ekki samþykkja kappræður við Kamölu Harris fyrr en hún hefði verið formlega útnefnd forsetaefni Demókrataflokksins.
Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og væntanlegt forsetaefni Demókrataflokksins í komandi forsetakosningum, segist ekki munu þegja þegar kemur að ástandinu á Gasa.
Donald Trump segir að það sé möguleg sviðsmynd að hann verði sjálfur myrtur af Írönum. Ef það gerist vonast hann til að Bandaríkin „þurrki út“ Íran.
Borgarfulltrúi hefur áhyggjur af því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti hafi ekki þrek til að klára síðustu mánuðina í embætti, svo veiklulegur hafi hann verið í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gær.
Fyrrverandi starfsmaður Olsen tvíburasystranna lýsir því að vinna með þeim sem „smávægilegri martröð.“ Ástæðan sé sú að þær tali ákaflega lágt á fundum, svo lágt að það gekk yfirleitt betur að fylgjast með handahreyfingum þeirra.