Bandaríkin

„Mér finnst þetta algjörlega fjarstæðukennt“
Nágrannar sendiherrabústaðar Bandaríkjanna við Sólvallagötu eru uggandi yfir hugmyndum sendiráðsins um að stórefla öryggisvarnir við bústaðinn. Íbúi í hverfinu segir hugmyndirnar fráleitar.

Dæmdur morðingi slapp úr fangelsi á ótrúlegan hátt
Lögreglan í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefur leitað logandi ljósi að Danelo Cavalcante, sem var nýverið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða fyrrverandi kærustu sína, en slapp úr fangelsi í lok ágúst. Yfirvöld birtu í dag myndskeið af ótrúlegri flóttaaðferð hans.

Segir að Kim muni gjalda fyrir vopnasendingar
Jake Sullivan, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og ríkið allt muni gjalda fyrir mögulega vopnasendingar til Rússlands. Hann segir að sendi Kóreumenn vopn til Rússlands sem notuð yrði í Úkraínu, kæmi það niður á Norður-Kóreu á alþjóðasviðinu.

Flugmaður dó eftir brotlendingu í kynjaveislu
Flugmaður lét lífið í Mexíkó á sunnudaginn þegar annar vængur flugvéla hans rifnaði af. Þá var flugmaðurinn að taka þátt í kynjaveislu og notaði hann flugvélina til að dreifa bleikum reyk yfir veislugesti, til marks um það að parið sem hélt veisluna var að eignast stúlkubarn.

Verður að skrá sig og vera heima ef það vill leigja út til skemmri tíma
Nýjar reglur um skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis hafa tekið gildi í New York, sem forsvarsmenn Airbnb hafa sagt jafngilda „banni“ gegn fyrirtækinu og öðrum í sama bransa.

Einn leiðtoga Proud Boys dæmdur í 22 ára fangelsi
Enrique Tarrio, einn leiðtoga hægriöfgahópsins Proud Boys, var í dag dæmdur til 22 ára fangelsisvistar fyrir hlut hans í árásinni á bandaríska þinghúsið í ársbyrjun 2021. Það er þyngsti dómurinn sem fallið hefur vegna árásarinnar.

Fengu loks leyfi til að fara úr eyðimörkinni
Hátíðargestir Burning Man í eyðimörkinni í Nevada í Bandaríkjunum fengu í gær loksins leyfi til að fara frá hátíðarsvæðinu eftir að hafa setið þar fastir vegna rigninga. Eyðimörkin breyttist í leðju vegna rigningarinnar og var ómögulegt að keyra venjulegum bílum af hátíðarsvæðinu.

Gary Wright er látinn
Gary Wright, söngvari og lagahöfundur, er látinn 80 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir lög sín Dream Weaver og Love is Alive.

Söngvari Smash Mouth látinn
Söngvari Smash Mouth, Steve Harwell, er látinn. Hljómsveitin var þekkt fyrir smelli eins og All Stars og Walkin on on the Sun. Söngvarinn hóf líknandi meðferð fyrr í vikunni.

Giftu sig tvisvar en halda nú hvort í sína áttina
Hollywood hjónin Joe Jonas og Sophie Turner hafa ákveðið að binda enda á fjögurra ára hjónaband sitt. Frá þessu greina erlendir slúðurmiðlar.

Fóru til Buffalo og hrepptu gull í risavaxinni vængjakeppni
Þeir Lýður Vignisson og Justin Shouse sem reka vængjastaðinn Just Wingin' It hrepptu gullverðlaun í vængjakeppni í Buffalo í Bandaríkjunum um helgina. „Við erum bara á bleiku skýi enn þá,“ segir Lýður.

Hamborgarakeðjur í hremmingum
Dómsmál hefur verið höfðað í Bandaríkjunum gegn hamborgarakeðjunni Burger King fyrir að sýna hamborgara í auglýsingum sem eru miklu stærri og girnilegri en þeir sem viðskiptavinir fá svo í hendurnar til að seðja hungur sitt.

Tugir þúsunda hátíðargesta fastir í eyðimörkinni vegna rigningar
Gestum Burning man hátíðarinnar í eyðimörk Nevada í Bandaríkjunum var sagt í gær að spara matvæli, vatn og eldsneyti þar sem þúsundir sitja fastir á hátíðarsvæðinu vegna mikilla rigninga. Hátíðarsvæðið og nærliggjandi umhverfi er þakið þykkri leðju eftir rigningarnar.

Senda Abrams og umdeild skot úr rýrðu úrani til Úkraínu
Ríkisstjórn Bandaríkjanna mun í fyrsta skipti senda Úkraínumönnum umdeild skotfæri fyrir skriðdreka sem inniheldur rýrt úran. Skotin eru hönnuð til að fara í gegnum brynvörn annara skrið- og bryndreka og eru þau ætluð Abrams skriðdrekum sem einnig verða sendir til Úkraínu á næstu vikum.

Skaut ólétta konu sem sökuð var um búðahnupl til bana
Yfirvöld í Ohio í Bandaríkjunum birtu í gær myndband sem sýnir þegar lögregluþjónn skaut ólétta unga konu til bana, eftir að hún hafði verið sökuð um þjófnað í verslun. Fjölskylda konunnar kallar eftir því að umræddur lögregluþjónn verði rekinn og ákærður fyrir banaskotið.

Stór ákvörðun Musk rakin til máls dóttur hans
Kaup Elon Musk á samfélagsmiðlinum Twitter og stefnubreytingar miðilsins eftir kaupin eiga rætur sínar að rekja til fjölskyldumála auðkýfingsins. Þetta kemur fram í grein Wall Street Journal sem byggir á ævisögu um Elon Musk.

Daníel Gunnarsson fundinn sekur um morð og limlestingu á líki
Kviðdómur í Kaliforníu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Íslendingurinn Daníel Gunnarsson sé sekur um morð af fyrstu gráðu og limlestingu á líki. Úrskurður var kveðinn upp í héraðsdómstólnum í Kern í Bakersfield síðastliðinn miðvikudag.

Trump og lýðræðisleg hnignun
Bandaríkin eru án efa valdamesta ríki jarðar. Sumir kunna að halda því fram að ekki aðeins vegna pólitískra, efnahagslegra og hernaðarlegra áhrifa sinna, heldur einnig alþjóðlegra áhrifa sinna sem leiðarljóss stjórnarskrárbundins lýðræðis.

Birtir bréf frá lækni eftir að hann fraus
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, hefur sent út bréf frá lækni þingsins þar sem fram kemur að heilsa hans komi ekki í veg fyrir áframhaldandi störf. Það er í kjölfar þess að McConnell fraus á blaðamannafundi í Kentucky í vikunni og var það í annað sinn sem það gerðist á tiltölulega skömmum tíma.

Sýnt frá réttarhöldunum í beinni í sjónvarpi og á YouTube
Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að sýnt verður beint frá réttarhöldunum yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og þeim átján til viðbótar sem hafa verið ákærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna í Georgíu árið 2020.

Einn leiðtoga Proud Boys fær sautján ára fangelsisdóm
Dómstóll í Bandaríkjunum hefur dæmt einn leiðtoga bandaríska hægriöfgahópsins Proud Boys í sautján ára fangelsi fyrir hlut hans í árásinni á bandaríska þinghúsið í ársbyrjun 2021. Þetta er einn lengsti dómurinn sem fallið hefur vegna árásarinnar.

Fékk reglulega morðhótanir frá nasistum
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði fékk ítrekað hótanir frá hægri öfgamönnum sem reynt hafa að yfirtaka heiðinn sið. Ýmis heilög tákn, svo sem sólkrossinn og þórshamarinn, séu í hættu vegna notkunar öfgahópa á þeim.

„Þessi yfirlýsing er virðislaus“
Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur beðið dómara um að kanna hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi ofmetið háhýsi sín, golfvelli og aðra eignir í ríkinu um meira en tvo milljarða dala. James hefur sakað Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik.

Síminn og spjaldtölvan tekin af Murdaugh
Dæmdi morðinginn Alex Murdaugh hefur misst aðgang sinn að síma og spjaldtölvu. Það er eftir að lögmaður hans tók Murdaugh upp lesa úr dagbók sinni en upptökuna á að nota í heimildarmynd um mál hans.

Stöðvaður með stærðarinnar naut í farþegasætinu
Lögreglunni í Norfolk í Nebrasaka barst í gær tilkynning um mann sem var að keyra niður þjóðveg með „kú í bílnum,“ eins og það var orðað. Þegar umræddur maður var stöðvaður kom í ljós að hann var með stórt Watusi naut í farþegasætinu.

Fraus aftur í miðri setningu
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins, fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í Kentucky ríki í dag. Um mánuður er liðinn síðan McConnell gerði slíkt hið sama á öðrum blaðamannafundi.

Pútín og Kim sagðir skiptast á bréfum
Yfirvöld í Bandaríkjunum segja Vladimír Pútín, forseta Rússlands, og Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa skipst á bréfum. John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, sagði frá því í dag að Bandaríkjamenn hefðu komist á snoðir um þessar bréfasendingar og eru þær sagðar byggja á fyrri samskiptum milli ríkjanna.

Giuliani ábyrgur fyrir meiðyrðum í garð kosningastarfsmanna
Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum úrskurðaði að Rudy Giuliani, fyrrverandi persónulegur lögmaður Donalds Trump, hefði gefið meiðyrðamál tveggja kosningastarfsmanna í Georgíu á hendur honum. Starfsmennirnir sættu líflátshótunum eftir að Giuliani og fleiri sökuðu þær ranglega um svik.

Reyna að stöðva leiðangur að flaki Títaniks
Bandarísk stjórnvöld reyna nú að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðangur sem er ætlað að safna munum úr flaki Títaniks á botni Norður-Atlantshafsins. Þau telja að skilgreina skuli flakið sem helgan grafreit.

Óljóst hversu margir fórust í eldunum á Maui
Leit að fórnarlömbum gróðureldanna á Maui á Havaí er við það að ljúka. Enn er þó óljóst hversu margir fórust. Leitarflokkar eru taldir hafa fundið allar þær líkamsleifar sem hægt er að finna.