Kosningar í Brasilíu
Tekur við Bolsonaro opnum örmum Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flávio Bolsonaro er sagður hafa flúið land til Bandaríkjanna í kjölfar þess að neita að viðurkenna ósigur sinn í forsetakosningum. Bandaríkjaforseti ætlar að veita Bolsonoro og fjölskyldu hans vegabréfsáritanir er brasilísk stjórnvöld hafa fellt vegabréf hans úr gildi, segir í umfjöllun bandarískra miðla. Erlent 27.10.2026 23:32
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Donald Trump Bandaríkjaforseti dró í dag úrslit forsetakosninganna í Brasilíu í efa og sagði þær líta út fyrir að hafa verið sviknar. Hann lagði ekki fram nein gögn máli sínu til stuðnings. Erlent 26.10.2026 23:00
Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Kosningaúrslit í Brasilíu eru áfall fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta og þá eru úrslitin í Serbíu það einnig fyrir Vladimír Pútín Rússlandsforseta, að sögn stjórnmálafræðings. Erlent 26.10.2026 13:01
Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Sitjandi forseti Brasilíu, Lula da Silva, hafði betur gegn hægri manninum Flavio Bolsonaro í forsetakosningunum í Brasilíu í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem frambjóðandi nær að snúa við úrslitum frá því í fyrri umferð kosninganna en Bolsonaro segir úrslitin óútskýranleg. Erlent 26.10.2026 06:49
Leikur á hnífsegg í Brasilíu Brasilíumenn ganga í dag að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninga þar sem sitjandi forsetinn Luiz Inácio Lula da Silva etur kappi við Flávio Bolsonaro, öldungadeildarþingmann og elsta son fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro. Erlent 25.10.2026 19:28
Baráttan um Brasilíu Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og vinstrimannsins Lula da Silva og frambjóðanda hægrimanna og öldungadeildarþingmannsins Flávio Bolsonaro. Erlent 25.10.2026 09:56
Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Flavio Bolsonaro, frambjóðandi hægri manna í Brasilíu, hafði betur gegn Lula Da Silva, sitjandi forseta landsins, í fyrri umferð forsetakosninganna í gær. Bolsonaro náði þó ekki hreinum meirihluta og verður því kosið á milli þeirra tveggja í annarri umferð þann 25. október. Erlent 5.10.2026 07:36
Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti formlega framboð sitt til forseta Brasilíu í dag en hann er sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro. Erlent 25.7.2026 21:16
Rétta yfir Bolsonaro fyrir valdaránstilraun Réttað verður yfir Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu, vegna meintra tilrauna hans til að fremja valdarán. Hann neitar þeim ásökunum sem á hann eru bornar og segist fórnarlamb pólitískra ofsókna. Erlent 26.3.2025 18:59
Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Brasilíska lögreglan hefur kært Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta, og nokkra ráðherra í ríkisstjórn hans fyrir tilraun til þess að ræna völdum með því að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2022. Bolsonaro stefnir á forsetaframboð eftir tvö ár. Erlent 22.11.2024 11:17
Bolsonaro bannað að bjóða sig fram Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu, hefur verið bannað að bjóða sig fram í átta ár. Yfirkjörstjórn landsins komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði framið embættisbrot í aðdraganda forsetakosninganna í fyrra. Erlent 30.6.2023 18:34
„Þetta er atlaga að lýðræðinu“ Forseti Brasilíu segir engin fordæmi fyrir árásinni á opinberar byggingar í gær og heitir því að óeirðarseggirnir verði sóttir til saka. Utanríkisráðherra Íslands telur að um sé að ræða atlögu að lýðræðinu sem minni óþægilega á atburðina í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. Of mörg merki séu um að vegið sé að lýðræðinu. Erlent 9.1.2023 23:20
Stuðningsmenn Bolsonaro réðust inn í þinghúsið Stuðningsmenn Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu, gerðu áhlaup á þinghús Brasilíu í dag. Þeim var mætt af lögregluliði sem beitti táragasi til að halda fólkinu frá. Erlent 8.1.2023 19:50
Lula sór embættiseið og hét því að látið yrði af skógareyðingu Luiz Inacio Lula da Silva sór embættiseið sem forseti Brasilíu í þriðja sinn fyrr í dag. Hann tekur við embættinu af Jair Bolsonaro eftir að hafa unnið nauman sigur í síðari umferð forsetakosninganna í lok október. Erlent 1.1.2023 23:00
Réðust gegn lögreglu í kjölfar staðfestingar ósigurs Bolsonaro Stuðningsmenn fráfarandi forseta Brasilíu, Jair Bolsonaro réðust á höfuðstöðvar brasilísku alríkislögreglunnar í gær. Þetta gerist í kjölfar þess að ósigur þess fyrrnefnda í liðnum forsetakosningum gegn Luiz Inácio „Lula“ da Silva var staðfestur. Erlent 13.12.2022 11:55
Mótmælir formlega niðurstöðum kosninganna Jair Bolsonaro, fráfarandi forseti Brasilíu hefur sent formlega kvörtun til kosningayfirvalda þar í landi þar sem hann mótmælir niðurstöðum forsetakosninganna í október. Þar beið hann naumlega lægri hlut gegn Luiz Inacio „Lula“ da Silva. Erlent 23.11.2022 07:43
Hét nýjum degi fyrir Amasonfrumskóginn Luiz Inacio Lula da Silva, nýkjörinn forseti Brasilíu, hét því að nýr dagur væri runninn upp fyrir Amasonfrumskóginn og að hann ætlaði að taka á ólöglegu skógarhöggi þar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í dag. Erlent 16.11.2022 20:03
Hefur enn ekki viðurkennt ósigur beint út Jair Bolsonaro, fráfarandi forseti Brasilíu, tjáði sig í dag í fyrsta skipti síðan hann tapaði fyrir Luiz Inacio „Lula“ da Silva í forsetakosningum þar í landi 30. október síðastliðinn. Bolsonaro virtist ekki mótmæla niðurstöðunni en hann hefur ekki enn beint viðurkennt ósigur. Erlent 1.11.2022 23:23
Heyrist ekki bofs í Bolsonaro Enn hefur ekkert heyrst í fráfarandi forseta Brasilíu, Jair Bolsonaro, sem tapaði forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudaginn var. Erlent 1.11.2022 06:57
„Bolsonaro var hræðilegur á alla vegu“ Brasilíumaður búsettur á Íslandi segir stærsta verkefni nýkjörins forseta að draga úr fátækt, sem hafi aukist á valdatíð Jairs Bolsonaro. Valdatíð fráfarandi forseta hafi verið stórslys á öllum sviðum. Innlent 31.10.2022 23:02
Bolsonaro sé eins og kórdrengur við hlið Lula Miklar vendingar urðu í brasilískum stjórnmálum í gær þegar Jair Bolsonaro, forseti til fjögurra ára, tapaði í forsetakosningum. Mikil fagnaðarlæti brutust út á götum úti þegar tap Bolsonaro var orðið ljóst. Innlent 31.10.2022 12:33
Lula kjörinn forseti Brasilíu Vinstrimaðurinn Luiz Inacio „Lula“ da Silva, fyrrverandi forseti Brasilíu, hefur borið sigur úr býtum í brasilísku forsetakosningunum og mun hann því tala við embætti forseti Brasilíu á ný frá og með fyrsta janúar 2023. Hann sigraði mótherja sinn, hægrimanninn og núverandi forsetann Jair Bolsonaro, með 50,83 prósent atkvæða. Erlent 30.10.2022 23:32
Bolsonaro sakaður um að kaupa sér atkvæði með fjárútlátum Skoðanakannanir benda til þess að umdeildar fjárveitingar ríkisstjórnar Jairs Bolsonaro til velferðarmála fátækustu íbúa Brasilíu á lokametrum kosningabaráttu skili honum auknum stuðningi. Ásakanir eru um að fjárútlátin stangist á við kosningalög. Erlent 25.10.2022 11:46
Bolsonaro og Lula mætast í annarri umferð Önnur umferð fer fram í forsetakosningunum í Brasilíu þar sem enginn frambjóðandi fékk fimmtíu prósent atkvæða í kosningunum í gær. Forseti Brasilíu reyndist njóta meiri stuðnings en kannanir gerðu ráð fyrir en andstæðingi hans, fyrrverandi forseta Brasilíu, var spáð talsvert betra gengi. Erlent 3.10.2022 10:26
Stefnir í aðra umferð í Brasilíu Miðað við talin atkvæði í brasilísku forsetakosningunum sem fram fóru í dag verða úrslitin á þá leið að efna þurfi til seinni umferðar kosninganna, þar sem Jair Bolsonaro, sitjandi forseti, og Luiz Inácio Lula da Silva, sem var forseti frá 2003 til 2011, munu mætast. Erlent 2.10.2022 22:51
Líklegt að Bolsonaro fari sömu leið og Trump Allt bendir til þess að brasilíska þjóðin hafni Bolsonaro, forseta Brasilíu, í forsetakosningum sem fram fara í dag. Skoðanakannanir benda til þess að Lula, fyrrverandi forseti landsins, verði forseti á ný. Slæleg frammistaða Bolsonaro í Covid-19 faraldrinum er helsta ástæða þess að honum er spáð tapi. Erlent 2.10.2022 12:30
Ekki útilokað að Lula sigri strax í fyrstu umferð Skoðanakönnun sem var birt fyrir síðustu sjónvarpskappræður frambjóðenda í forsetakosningunum í Brasilíu benda til þess að Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti, gæti unnið endanlegan sigur strax í fyrstu umferð. Taugar eru þandar fyrir kosningarnar en Jair Bolsonaro forseti hefur ítrekað gefið í skyn að hann muni ekki viðurkenna úrslitin ef hann tapar. Erlent 30.9.2022 14:07
Bolsonaro fetar slóðir Trumps Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur ítrekað mælst með minna fylgi en mótframbjóðandi sinn í komandi kosningum. Þrátt fyrir það hefur hann ítrekað haldið því fram að muni hann tapa kosningunum í október, verði það vegna umfangsmikils kosningasvindls. Nú virðist forsetinn hafa fengið herinn með sér í lið. Erlent 13.6.2022 13:58
Lula með yfirburði yfir Bolsonaro í könnunum Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti Brasilíu og leiðtogi vinstrimanna, mælist með afgerandi forskot á Jair Bolsonaro, sitjandi forseta, í skoðanakönnunum fyrir forsetakosningar sem fara fram í október. Erlent 8.6.2022 13:27
Jair Bolsonaro verður næsti forseti Brasilíu Útgönguspár benda til að hægrimaðurinn Jair Bolonaro verði næsti forseti Brasilíu. Erlent 28.10.2018 22:13