Samgöngur

Samgöngur í brennidepli á COP26: „Það er ekki eftir neinu að bíða“
Samgöngur verða í brennidepli á COP26 ráðstefnunni í Glasgow í dag en Ísland er í öðru sæti þegar að kemur að orkuskiptum í samgöngum. Framkvæmdastýra Orku náttúrunnar segir Ísland geta miðlað þekkingu sinni á ýmsum sviðum en getur lært af öðrum löndum á öðrum sviðum.

Áætlunarflug nauðsynlegt Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjar er eina sveitarfélagið á Íslandi sem alfarið er staðsett á eyju og hefur þ.a.l. enga vegtengingu við meginlandið.

Ófært í Árneshrepp í fyrra fallinu í ár
Ófært varð í Árneshrepp í gær í fyrsta skipti í vetur, þetta fámennasta sveitarfélag landsins sem telur 42 íbúa. Oddviti sveitarfélagsins hélt sig heima í gær og lagði ekki í bílferðina úr Djúpavík á skrifstofuna í Norðurfirði.

Skiljanlegt að einhverjir séu ekki sáttir við breytinguna
Breytingar hafa verið tilkynntar á greiðsluskrá Strætó síðar í mánuðinum en bæði er þar um að ræða hækkanir á verði og lækkanir. Framkvæmdastjóri Strætó segist skilja að allir séu ekki á eitt sáttir við breytinguna en segir að breytta gjaldskráin bjóði upp á aukinn sveigjanleika.

Ísfirðingar komast langleiðina að Dynjanda á bundnu slitlagi
Nýr vegarkafli í Arnarfirði með bundnu slitlagi var opnaður umferð eftir hádegi í dag. Hann er 4,3 kílómetra langur milli Mjólkárvirkjunar og fossins Dynjanda. Vegurinn um Meðalnes og Mjólkárhlíð færist við þetta úr fjallshlíðinni og niður undir fjöruborð.

Vegagerð um Teigsskóg boðin út á næstu vikum
Eftir tveggja áratuga deilur um Teigsskóg er komið að því að bjóða út vegagerð í gegnum skóginn umdeilda og er stefnt er að því að vinnuvélar verði komnar á svæðið síðla vetrar.

Keflavíkurflugvöllur: Búið að grafa upp tæpa 50 þúsund rúmmetra fyrir viðbyggingu
Jarðvinna vegna viðbyggingar á Keflavíkurflugvelli gengur vel, en frá því að fyrsta skóflustungan var tekin í júní hefur verið grafið út fyrir 49.000 rúmmetra holu sem verður á endanum 55.000 rúmmetrar og 7,5 metrar að dýpt.

Útlit fyrir að framkvæmdum á Suðurlandsvegi ljúki ári á undan áætlun
Útlit er fyrir að framkvæmdir við Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Selfoss muni ljúka um ári fyrir áætluð verklok. Mögulega verður hægt að opna fyrir umferð um nýja veginn næsta sumar eða haust.

Bæta í siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam
Smyril Line hefur ákveðið að bæta skipi við áætlunasiglingar til Þorlákshafnar og þar með stórauka þjónustuna við út- og innflytjendur á Íslandi og í Færeyjum. Nýja vöruflutningaferjan M/V Akranes mun þjónusta nýju áætlunina.

Norðfjarðargöngum lokað vegna hruns úr lofti
Norðfjarðargöngum milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar var lokað í dag. Það var gert eftir að hrundi úr lofti ganganna.

Viðvarandi óvissustig á Siglufjarðarvegi vegna jarðskriðs
Viðvarandi óvissustigi hefur verið lýst yfir á Siglufjarðarvegi vegna jarðskriðs og hættu á grjóthruni allt árið um kring. Fyrrverandi eftirlitsmaður segir aldrei muni vera hægt að laga veginn almennilega, finna verði varanlegri lausn.

Keppast við vegabætur áður en holskefla ferðamanna ríður yfir
Vestfirðingar gleðjast yfir því í dag að ferðabókaútgefandinn Lonely Planet hafi sett fjórðunginn í efsta sæti yfir þau svæði heims sem best sé að heimsækja á næsta ári. Ferðamanna bíða hins vegar holóttir malarvegir og einbreiðar brýr fyrir vestan og það stefnir í bið eftir næsta áfanga á Dynjandisheiði.

Telja ólíklegt að hætta sé fyrir hendi en skoða að setja upp skilti
Isavia telur ólíklegt að vegfarendur á ferð við flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar við Suðurgötu séu í hættu vegna loftstreymis frá kraftmiklum þotum. Þó er til skoðunar hvort tilefni sé til að vara sérstaklega við slíkri hættu.

Kvartaði til Samgöngustofu vegna of dýrs flugmiða
Farþegi sem vildi komast heim til Spánar frá Íslandi í tæka tíð fyrir lokun landamæra Spánar á síðasta ári vegna kórónuveirufaraldursins hafði ekki erindi sem erfiði hjá Samgöngustofu, eftir að hann kvartaði undan því að flugmiðinn sem hann keypti hafi verið of dýr.

Lögregla rannsakar sprengingu á Vesturlandi
Lögreglan á Vesturlandi er með til rannsóknar mögulegt brot á verklagsreglum um framkvæmdir við efnistöku vegna væntanlegrar vegagerðar í Skorradal.

Allt annað að fara um borð í Strætó
Strætó er að gerbreyta um greiðslukerfi í vögnum sínum og hið nýja er sambærilegt því sem þekkist í nágrannalöndunum. Hver fer að verða síðastur að nota gömlu góðu strætómiðana, sem heyra brátt sögunni til.

Endurbótum á Kilo á Keflavíkurflugvelli lokið
Endurbótum á einni af meginakbrautunum í flugbrautakerfi Keflavíkurflugvallar, svokallaðri Kilo, sem hófust í sumar, er nú lokið.

Tafir á umferð vegna áreksturs og malbikunar
Malbikun hefur staðið yfir á hægri akrein á Vesturlandsvegi til vesturs, á milli Víkurvegar og Suðurlandsvegar eftir hádegið í dag. Nokkur töf er á umferð inn í Reykjavík af þessum sökum. Sömuleiðis er töf á umferð út úr bænum vegna áreksturs.

Betri umferð
Samfélagið er smám saman að færast í fyrra horf frá því heimsfaraldur hóf göngu sína og umturnaði því skipulagi sem við eigum að venjast. Vissulega er þetta ekki búið en smám saman fækkar takmörkunum og má meðal annars merkja það á nýjustu umferðartölum. En aukinni umferð fylgir aukin hætta á árekstrum.

Framganga SA í máli flugmanna setji hættulegt fordæmi
Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur skorað á Bláfugl og Samtök atvinnulífsins að standa við gildandi kjarasamning og fara eftir dómi sem féll nýverið í málinu í Félagsdómi. Lögmaður FÍA segir að um skýrt lögbrot sé að ræða af hálfu Samtaka atvinnulífsins.

Búið að opna Hellisheiði á ný
Hellisheiði var lokað í austurátt skömmu eftir hádegi í dag en reiknað er með því að lokunin standi ekki lengi yfir.

Jarðgöngin koma í röðum, þau næstu fyrir áttatíu íbúa
Ekkert lát ætlar að verða á jarðgangaborunum Færeyinga. Fyrir tveimur vikum fögnuðu þeir fyrstu sprengingu nýrra Árnafjarðarganga. Samtímis er hafið útboðsferli á göngum til Fámjins, áttatíu manna byggðar á Suðurey.

Að deyja ráðalaus
Stundum er sagt um þá sem leysa erfiðar áskoranir að þeir deyji ekki ráðalausir. Enda hljóta það að vera ömurleg örlög. Að sitja frammi fyrir áskorun en geta engan veginn leyst hana og deyja svo að lokum algerlega án þess að hafa neina hugmynd um hver lausnin gæti verið.

Bætum rétt barna sem eiga tvö heimili
Á fundi borgarráðs lagði ég til fyrir hönd Flokks fólksins að reglur um strætókort handa nemendum í grunnskólum Reykjavíkurborgar yrðu rýmkaðar. Taka ætti mið af bæði lögheimili og búsetuheimili barns og að börn, sem sækja skóla í öðru skólahverfi en lögheimili þeirra segir til um, ættu einnig rétt á strætókorti.

„Nagladekk eru bara úrelt“
Reykjavíkurborg hvetur bifreiðaeigendur að velja frekar góð vetrardekk eða heilsársdekk fremur en nagladekk. Varaformaður Landverndar telur nagladekk óþörf; þau séu alls ekki nauðsynleg öryggistæki heldur beinlínis skaðleg.

Ráðast í hönnun og útboð á hafnarmannvirkjum vegna Baldurs
Vegagerðin telur hagkvæmast að uppfylla núverandi samning um ferjusiglingar á Breiðafirði og nota gildistíma hans, til maímánaðar 2022 eða 2023, til hönnunar og útboðs á hafnarmannvirkjum á Brjánslæk og í Stykkishólmi. Ný hafnarmannvirki séu forsenda fyrir áframhaldandi ferjurekstri á Breiðafirði.

Höggva sér leið í gegnum einn merkasta skóg landsins
Landslið skógarhöggsmanna er nú að störfum í Vaðlaskógi gegnt Akureyri, einum merkasta skógi landsins. Þar er skógurinn grisjaður til að rýma fyrir göngustíg og vatnslögnum. Framkvæmdastjóri skógræktarfélagsins segist sjá eftir trjánum sem fara, en margt gott komi í staðinn.

Segja að ekki eigi að nota rafhlaupahjól undir áhrifum áfengis
245 einstaklingar leituðu á bráðamóttöku Landspítala vegna rafhlaupahjólaslysa í júní, júlí og ágúst. Sama tímabil í fyrra var fjöldinn 149. Meðalfjöldi þeirra sem þurfti að leita á bráðamóttöku vegna rafhlaupahjóla fór úr 1,6 sumarið 2020 í 2,7 nú í sumar.

36 milljónir í þróun almenningssamgangna um land allt
Sjö verkefni á sviði almenningssamgangna fá úthlutað samtals 36 milljónum króna frá samgönguráðuneyti til að styðja við þróun almenningssamgangna um land allt.

Ekki hægt að hleypa farþegunum út vegna öryggisreglna í flugstöðinni
Ekki var hægt að hleypa farþegum úr flugvél Icelandair sem lent var á Keflavíkurflugvelli í gær vegna öryggiskrafna í flugstöðinni. Boeing 737 Max flugvél Icelandair frá Akureyri var beint til Keflavíkur eftir að ekki var hægt að lenda henni í Reykjavík vegna veðurs.