Samgöngur

Mikilvægt að tekið verði til á „stjórnarheimilinu“ fyrir þinglok
Þingmenn Miðflokksins hafa haldið umræðu um samgönguáætlun til næstu fimm og fimmtán ára gangandi síðan klukkan ellefu í morgun. Þingmaður vinstri grænna sakar Miðflokkinn um málþóf. Stefnt er að því að ljúka störfum þingsins fyrir lok næstu viku.

Vill að lestarsamgöngur á Íslandi verði skoðaðar
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, vill að lestarsamgöngur á Íslandi verði skoðaðar.

Stefnt að því að niðurgreiðsla innanlandsflugs hefjist í haust
Samgönguráðherra segir stefnt að því að niðurgreiðslur innanlandsflugs til íbúa landsbyggðarinnar, samkvæmt skosku leiðinni svokölluðu, hefjist í haustbyrjun. Miðað verður við að hver íbúi fái fjörutíu prósenta styrk fyrir allt að tveimur ferðum fram til áramóta.

Sagði samgönguáætlunina gera borgarbúa að „einhvers konar moldvörpum“
Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsti sig afar andsnúna þeirri áherslu á almenningssamgöngur sem finna má í fimm ára samgönguáætlun fyrir Reykjavík er hún steig upp í pontu á Alþingi í gærkvöldi.

Hellisheiði lokuð til austurs í dag
Hellisheiði verður lokuð til austurs í dag og verður hjáleið um Þrengsli. Er það gert vegna malbikunarframkvæmda.

Sjá fyrir sér að Keflavík verði rafhleðslustöð alþjóðaflugs
Keflavíkurflugvöllur gæti orðið mikilvæg rafhleðslustöð fyrir fyrstu kynslóðir rafknúinna flugvéla sem ætlað er að komast yfir Atlantshafið. Hugmyndin var rædd á kynningarfundi þróunarfélags flugvallarins á dögunum.

Vigdís varar við því að borgin vinni myrkraverk á flugvellinum í sumar
Borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík kröfðust þess á borgarstjórnarfundi í dag að borgin hætti að þrengja að flugvellinum og að nýju Skerjafjarðarhverfi yrði frestað. Borgarstjóri segir þetta frábært byggingarland og óskynsamlegt sé að fresta uppbyggingu.

Trúir því ekki að flokkar reyni að koma í veg fyrir umræður um samgöngusáttmála
Samgöngu- og sveitastjórnarráðherra segist ekki trúa því að nokkur þeirra flokka sem á Alþingi sitja reyni að koma í veg fyrir það að samgöngusáttmáli og samvinnufrumvarp komist í umræðu á Alþingi í kvöld.

Búist við ellefu hundruð manns til landsins í dag
Yfir þúsund farþegar komu til landsins í gær eftir að landamærin voru formlega opnuð. Búist er við ellefu hundruð manns til landsins í dag en von er á sjö vélum.

Verja tæpum milljarði í framkvæmdir við gerð hjólastíga
Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur ákvarðað að umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar bjóði út framkvæmdir við gerð hjólastíga á nokkrum stöðum í borginni.

Vegagerðin búin að opna fyrstu hálendisleiðir
Fyrstu hálendisvegirnir hafa nú verið opnaðir umferð. Leiðirnir um Kaldadal og inn á Arnarvatnsheiði sunnanvegin opnuðust í gær og stutt er síðan Kjölur opnaðist.

Ríkið vill byggja nýja flugstöð í Reykjavík
Samgönguráðherra vonast til að hægt verði að bjóða út smíði nýrrar flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli fyrir áramót. Tillaga um að Isavia semji við Air Iceland Connect um að taka yfir verkefnið var kynnt í ríkisstjórn í morgun.

Stafrænu ökuskírteinin munu ekki gilda utan landsteinanna
Stafræn ökuskírteini verða jafngild hefðbundnum ökuskírteinum á Íslandi en munu ekki gilda annars staðar en hér á landi.

Bjóða gjaldfrjálsar ferðir út í Hrísey út mánuðinn
Akureyrarstofa hefur samþykkt að veita allt að tveimur milljónum króna í styrk til Ferðamálafélags Hríseyjar til að gera því kleift að fella niður fargjöld í ferjuna í samstarfi við rekstraraðila hennar.

Búnir að bíða lengi eftir því að koma vegagerð um Gufudalssveit af stað
Vegagerðin hefur ákveðið að bjóða út fyrstu kafla hins umdeilda Vestfjarðavegar um Gufudalssveit eftir að kröfu Landverndar um bráðabirgðastöðvun framkvæmda var hafnað. Enn vantar þótt grænt ljós á kaflann um sjálfan Teigsskóg.

Rafræn ökuskírteini væntanleg í lok júní
Íslendingar munu geta haft ökuskírteini sín á rafrænu formi í símanum sínum í lok júní ef allt gengur upp.

Sakaði Miðflokkinn um að draga rök gegn borgarlínu „út úr rassgatinu á sér“
Þingmaður Miðflokksins telur ekki forsvaranlegt að verja tugum milljarða í borgarlínuverkefnið. Þingmaður Pírata sakar flokkinn um lýðskrum en Miðflokkurinn virðist einangraður á Alþingi í afstöðu sinni gegn áformun um uppbyggingu borgarlínu.

Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára
Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára.

Stærsta skip Íslendinga komið að Súesskurði á leið frá Kína
Dettifoss, stærsta skip sem smíðað hefur verið fyrir Íslendinga, kom í dag að Súesskurðinum á nærri sjötíu daga heimsiglingu skipsins yfir hálfan hnöttinn frá Kína. Þetta nýjasta skip Eimskipafélagsins er væntanlegt til Íslands um miðjan júlí.

Samþykkja ekki þjóðgarð við Dynjanda nema búið sé að tryggja veg og raforku
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur einróma ákveðið að fresta um óákveðinn tíma að afgreiða tillögu um að landsvæði í kringum fossinn Dynjanda verði friðlýst sem þjóðgarður. Bæjarfulltrúar vilja fyrst fá vegagerð og raforkuöryggi á Vestfjörðum.

Ráðherra hvattur til að kanna hvort borgin sé að brjóta gegn ríkissjóði
Fjármálaráðherra var hvattur til þess á Alþingi í dag að kanna hvort Reykjavíkurborg væri að brjóta gegn kaupsamningi við ríkið um flugvallarland í Skerjafirði með því að útdeila lóðum þar í stað þess að selja þær á markaði.

Tekjufall Herjólfs vegna kórónuveirunnar mikið
Þeim ferðum sem Herjólfur hefur þurft að sigla til Þorlákshafnar vegna óhagstæðra skilyrða í Landeyjahöfn hefur fækkað til muna með nýju skipi. Vegna kórónuveirunnar er fyrirséð að farþegum fækki mikið á þessu ári.

Fundargerð sýnir að borgin var ákveðin í að leggja veg í gegnum flugskýli Ernis
Fundargerð sýnir að fulltrúar borgarstjóra kynntu breytingar á skipulagi með þeim hætti að vart gat skilist með öðrum hætti en svo að fyrir lægi sú stefnumörkun borgaryfirvalda að vegur yrði lagður í gegnum flugskýli Ernis og að það yrði rifið bótalaust.

Greina ekki sýni á nóttunni
Ekki verður hægt að greina sýni úr farþegum sem koma með flugi til landsins seint á kvöldin eða á nóttunni fyrr en daginn eftir að sögn sóttvarnalæknis. Hann segir undirbúningi fyrir skimun á landamærum miða vel áfram.

Gagnrýnin „óþarfa upphlaup“ að mati borgarstjóra
Borgarstjóri segir gagnrýni sem borgin sætir vegna áforma um niðurrif flugskýlis í Skerjafirði vera óþarfa upphlaup. Hann segir að nýtt skipulag í Skerjafirði eigi ekki og muni ekki trufla rekstur innanlandsflugs.

Hjólar í Reykjavíkurborg og segir „sómakær sveitarfélög“ ekki taka eignir af íbúum bótalaust
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnaráðherra segir ekki annað koma til greina en að Reykjavíkurborg virði samkomulag ríkisins og borgarinnar um uppbyggingu á landi ríkisins við Skerjafjörð.

Borgin tilkynnir Flugfélaginu Erni að rífa eigi viðhaldsstöð félagsins
Reykjavíkurborg hefur tilkynnt Flugfélaginu Erni að rífa eigi viðhaldsstöð félagsins á Reykjavíkurflugvelli bótalaust vegna nýs skipulags. Forstjórinn Hörður Guðmundsson kallar þetta árás á innanlandsflugið enda geti þetta leitt til þess að starfsemi félagsins leggist af.

Vill ekki stækka skiltin heldur hætta allri meðvirkni með einkabílnum
Formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar segir að einkabíllinn eigi ekkert erindi á Laugaveginn í miðbæ Reykjavíkur, þar sem ökumenn hafa virt göngugötumerkingar að vettugi undanfarna daga við lítinn fögnuð gangandi vegfarenda á svæðinu.

Hugmynd um bátastrætó „of góð til að prófa hana ekki“
Borgarstjóri kynnti í dag aðgerðaráætlunina „Græna planið“ sem snýr að því að allar aðgerðir borgarinnar verði umhverfisvænar.

Sýna hversu langt er í næsta strætó
Kveikt var á svokölluðum rauntímaupplýsingastrætóskýlum í dag