Efnahagsmál
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 69 ›
Kröfur ríkisvaldsins að sliga fjárhag sveitarfélaganna Ófjármagnaðar skuldbindingar sem ríkið hefur lagt á sveitarfélögin vegna málefna fatlaðra er að sliga fjárhag sveitarfélaganna og hafa myndað um 14 milljarða halla á rekstri þeirra. Sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga segir brýnt að endurskoða lög um tekjustofna sveitarfélaganna. Innlent 13.4.2023 11:57
Fleiri farþegar skemmtiferðaskipa hefja eða ljúka ferðinni í Reykjavík Mun fleiri farþegar skemmtiferðaskipa hefja eða enda ferð sína í Reykjavík en áður og skila því meiri tekjum til íslenskra þjónustufyrirtækja. Byggja á nýja fimm þúsund fermetra móttökumiðstöð í Sundahöfn á næstu tveimur árum. Innlent 12.4.2023 19:31
Borgarstjóri: Reykjavík með vaxtaverki en stendur vel Borgarstjóri segir skuldir Reykjavíkurborgar vel innan viðmiðunarmarka og borgin standi betur en öll nágrannasveitarfélögin. Stærsti hluti lána borgarinnar sé óverðtryggður ólíkt því sem væri hjá mörgum öðrum sveitarfélögum. Borgin væri skuldalega vel innan hættumarka. Innlent 12.4.2023 13:44
Gömul saga og ný Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hin fyrri settist að völdum 30. nóvember 2017. Það tók hins vegar bara tvö ár fyrir þessa ríkisstjórn að keyra ríkissjóð í halla og það varð henni til happs að alheimsfaraldur skyldi skella á og hægt var að dæla fjármunum úr ríkissjóði út og suður. Kjósendur fyrirgáfu það fljótt og vel, það var jú Covid. Skoðun 11.4.2023 07:30
Bjarni væri að fá falleinkunn í skóla Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja ríkisstjórnina gera of lítið og of seint í baráttunni gegn verðbólgunni með nýrri fjármálaáætlun. Innlent 31.3.2023 23:32
Ganga mátti lengra í fjármálaáætlun til að vinna bug á verðbólgu Almennt var búist við umfangsmeiri breytingum á nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hægt væri að ganga lengra í aðhaldi til að vinna bug á verðbólgunni og þenslunni. Fjármálaáætlun mun ekki hafa áhrif á verðbólguhorfur til skamms tíma, segja viðmælendur Innherja. Innherji 31.3.2023 11:59
Fjármálaáætlun – umbúðir um ekki neitt Það voru margir sem biðu óþreyjufullir eftir framlagningu fjármálaáætlunar sem nú hefur litið dagsins ljós. Ástæðurnar fyrir þessum spenningi eru augljósar. Heimilin glíma nú við mestu verðbólgu frá hruni, endurteknar vaxtahækkanir, stóraukna greiðslubyrði lána og mikla hækkun matarverðs. Skoðun 31.3.2023 09:01
Í kjólinn fyrir jólin 2028 Orð fjármálaráðherra í gær sýna að hann tekur til sín að markaðurinn hefur misst trúna á því að Sjálfstæðisflokkurinn geti stýrt efnahagsmálunum. Það eru auðvitað tíðindi að fjármálaráðherra skuli viðurkenna að ríkisstjórnin hafi misst tiltrú fólks á að hún geti náð verðbólgunni niður. Nýkynnt fjármálaáætlun er því miður ekki líkleg til að snúa stöðunni við. Skoðun 30.3.2023 18:31
Segir aðgerðirnar ekki duga Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að vinna gegn verðbólgu ekki duga. Hann segir boðaðar skattahækkanir illa ígrundaðar. Þá lýsir stjórn Félags atvinnurekenda yfir vonbrigðum með að ekki eigi að lækka tolla. Innlent 30.3.2023 12:29
Skattar á fyrirtæki hækkaðir og samhæfingarmiðstöð frestað Skattur á fyrirtæki verður hækkaður tímabundið um eitt prósentustig á næsta ári og almenn sparnaðarkrafa á allar stofnanir nema heilbrigðisstofnanir og löggæslu verður hækkuð úr einu í tvö prósent í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu. Ívilnunum vegna kaupa á vistvænum bifreiðum verður hætt. Innlent 29.3.2023 19:30
Lægri endurgreiðsla VSK og aukin gjöld á skemmtiferðaskip Endurgreiðsla VSK vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði lækkar verulega í sumar. Þá verður tímabundinn eins prósents tekjuskattur lagður á lögaðila. Til stendur að leggja gjöld á komu skemmtiferðaskipa og hækka veiðigjald. Þá á að endurskoða tryggingakerfi öryrkja. Dregið verður úr ríkisstuðningi við innflutning rafbíla. Framkvæmdum ríkisins sem ekki eru hafnar verður frestað. Innlent 29.3.2023 17:02
Bein útsending: Kynning fjármálaáætlunar Fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag klukkan 16. Þar verður fjármálaáætlun fyrir árin 2024 til 2028 kynnt. Innlent 29.3.2023 15:30
Eigum við ekki að láta græðgina eiga sig Vegna ummæla sem látin voru falla í Bítinu á Bylgjunni nú í gærmorgun um að fólk þurfi annað hvort að rísa upp eða gefast upp í því ástandi sem nú ríkir á markaðnum, fannst mér tilvalið að setjast niður og skrifa nokkra punkta inn í umræðuna. Þessi ummæli eru nefnilega ekki til þess fallin að skapa einingu í samfélaginu, heldur þvert á móti til að skapa sundrung og stefna ólíkum hópum upp á móti hverjum öðrum. Skoðun 28.3.2023 20:01
Verður einhver rekinn hjá ríkinu? Á forsíðum dagblaðanna í morgun er fjallað um glímu ríkisstjórnarinnar við ríkisútgjöldin, sem hún verður að hemja til að leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna. Morgunblaðið segir aukið aðhald í ríkisrekstri blasa við í fjármálaáætlun, sem lögð verður fram á Alþingi á morgun. Fréttablaðið hefur eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að aukið aðhald geti þýtt fækkun ríkisstarfsmanna og fækkun verkefna ríkisins. Skoðun 28.3.2023 13:00
Verðbólgan þokast niður Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,59 prósent milli mánaða og fer verðbólgan á ársgrundvelli úr 10,2 prósent niður í 9,8 prósent. Viðskipti innlent 28.3.2023 09:04
Fresta kynningu fjármálaáætlunar Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður ekki kynnt í dag eins og til stóð og mun hún væntanlega líta dagsins ljós á morgun þess í stað. Innlent 28.3.2023 07:26
Tvöfalt Ísland Næstu dagar munu hafa úrslitaáhrif á stöðu efnahagsmála hér á landi, en þá kemur ríkisstjórnin til með að leggja fram og ræða þýðingarmikla fjármálaáætlun á þinginu. Forsætisráðherra hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að sameining stofnana sé yfirvofandi, hætt verði við framkvæmdir og skattar hækkaðir sem viðbragð við tólftu stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Skoðun 27.3.2023 17:01
Aukin skattheimta og „sanngjarnari“ veiðigjöld „Við erum að undirbúa fjármálaáætlun. Það er alveg ljóst að við munum þurfa að horfa til þess í fjármálaáætlun að stuðla að því að slá verðbólguna niður, og það gerist auðvitað fyrst og fremst með því að annars vegar að auka tekjuöflun og hins vegar með því að slá niður útgjöld,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um nýja fjármálaáætlun sem kynnt verður í vikunni. Innlent 26.3.2023 16:49
Aðhald í þágu almennings Tveggja stafa verðbólga, hæstu vextir í 12 ár, æ fleiri eiga erfitt með að ná endum saman – en samkvæmt Bjarna Benediktssyni gengur efnahagsstjórnin ljómandi vel og fjárlög sem voru samþykkt með 120 milljarða halla eru í raun og veru að reynast prýðilegt meðal gegn verðbólgunni sem þó eykst milli mánaða. Skoðun 26.3.2023 14:30
Fáum peningana aftur heim Það er sorgleg staðreynd að staða heimilanna í landinu þarf ekki að vera jafn slæm og raun ber vitni. Það er ekki hægt að kenna verðbólgunni um hana. Staða heimilanna er slæm af því að það hefur verið ákveðið að hún skuli vera slæm. Það er ekki flóknara en svo að um það hefur verið tekin meðvituð ákvörðun. Skoðun 26.3.2023 10:00
Kynningu á fjármálaáætlun frestað um óákveðinn tíma Fjármálaáætlun verður ekki kynnt á fundi fjárlaganefndar á mánudag líkt og áður stóð til. Þetta staðfestir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður nefndarinnar. Hún bendir á að ríkisstjórnin hefur afgreitt málið frá sér og því sé líklega um frágangsatriði að ræða. Innlent 24.3.2023 15:34
Ríkið gæti þurft að koma heimilunum til aðstoðar Fjármálaráðherra segir til greina koma að ríkisstjórnin grípi til aðgerða vegna aukinnar vaxtabyrði heimilanna. Skilaboð Seðlabankans í gær hafi verið skýr varðandi baráttuna við verðbólgu en einnig þurfi að gæta þess að hækka vexti ekki of mikið þannig að það skapist samdráttur og kreppa í samfélaginu. Innlent 23.3.2023 19:40
Bjarni segir skatta á launafólk ekki verða hækkaða Fjármálaráðherra segir að engar breytingar verði gerðar á sköttum sem bitni á launafólki í væntanlegri fjármálaáætlun. Hins vegar verði dregið úr ýmsum ívilnunum sem rafbílar hafi notið og gjaldtöku á umferð og vegi almennt breytt. Innlent 23.3.2023 14:00
Mikill hallarekstur samhliða háu atvinnustigi „eitraður kokteill“ Mikill hallarekstur á sama tíma og atvinnustig er komið í eðlilegt horf vekur áleitnar spurningar um hagstjórn hins opinbera. Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá Arion greiningu, segir að í hallarekstrinum felist ónýtt tækifæri til að vinna bug á verðbólgunni og ástæða sé til að hafa áhyggjur af svigrúmi hins opinbera til að takast á við áföll í framtíðinni. Innherji 23.3.2023 13:30
Langvarandi verðbólga eykur líkur á kreppu Þrálát verðbólga eykur hættu á kreppu að sögn seðlabankastjóra. Mikill hiti sé í hagkerfinu og nauðsynlegt að hægja meðal annars á fjárfestingum fyrirtækja. Vextir verði hækkaðir þar til verðbólga minnki. Innlent 22.3.2023 19:40
Kjarklaus og verkstola ríkisstjórn Stýrivaxtahækkun dagsins kom fáum á óvart enda kjarklaus og verkstola ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur við völd hér á landi. Stýrivextir eru nú 114 – 188% hærri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum og Seðlabankinn hefur fá önnur ráð í glímunni við óðaverðbólguna en að hækka stýrivexti. Skoðun 22.3.2023 16:00
Seðlabankinn skorar á fyrirtæki að hægja á sér Seðlabankastjóri segir hagkerfið vera sjóðheitt og Seðlabankinn muni halda áfram að hækka vexti þar til hægir á hagkerfinu. Hann beinir því sérstaklega til fyrirtækja að hægja á fjárfestingu sinni. Meginvextir bankans voru hækkaðir um eina prósentu í morgun. Innlent 22.3.2023 11:59
Seðlabankastjóri: Fókusinn farinn af heimilum yfir á fyrirtæki Fasteignamarkaðurinn leggur ekki jafn mikið til verðbólgu og hann gerði. Verðbólga er nú á afar breiðum grunni, til að mynda vegna aukins kostnaðar vegna nýafstaðna kjarasamninga. „Fókusinn er að fara af heimilum yfir á fyrirtæki,“ sagði seðlabankastjóri. Aðstoðarseðlabankastjóri sagði að innlend eftirspurn væri „miklu sterkari en við gerðum ráð fyrir“ meðal annars vegna fjárfestingu atvinnuvega. Innherji 22.3.2023 10:55
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður hækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um eitt prósentustig. Viðskipti innlent 22.3.2023 09:01
Seðlabankinn hækkar enn stýrivexti og nú um heila prósentu Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um eina prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 6,5 prósentum í 7,5. Viðskipti innlent 22.3.2023 08:31