
Leikhús

„Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“
Eftir að hafa varið degi í Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins skrifaði Elínborg Una Einarsdóttir nokkrar blaðsíður um upplifun sína af námskeiðinu. Lokaorð þessara hugleiðinga Elínborgar voru: „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn.“

Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá
Þakið ætlaði að rifna af salnum þegar leikarar Níu lífa hneigðu sig í síðasta skipti á lokasýningunni síðastliðið laugardagskvöld eftir hvorki meira né minna en 250 sýningar. Er um að ræða einhverja farsælustu sýningu í sögu Borgarleikhússins og var þessum tímamótum svo fagnað með pomp og prakt.

McKellen heill á húfi
Ian McKellen er heill á húfi og ber sig vel, eftir að hafa fallið af leiksviði í gær. Búist er við því að hann snúi aftur á leiksviðið í vikunni.

Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús
Breski leikarinn Ian McKellen var fluttur á sjúrkahús í Lundúnum í kvöld eftir að hafa fallið af leiksviði í West End á sýningunni Players Kings, þar sem McKellen fer með aðalhlutverk.

Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju
Bubbi Morthens tónlistarmaður segist ætla að taka á því í ræktinni í dag áður en hann skellir sér upp í Borgarleikhús í kvöld til að vera viðstaddur 250. og síðustu sýninguna af söngleiknum Níu líf um ævi hans og störf. Hann segist án orða, eftir sitji yndislegar minningar og segist Bubbi trúa því að sýningin verði endurvakin.

Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi
„Það gat verið erfitt að horfa til baka sem þolandi ofbeldis og nýta mína persónulega reynslu til að semja fyrir leikhúsið,“ segir tónlistarkonan Gugusar um lagið Merki sem hún var að senda frá sér. Lagið er úr sýningu Þjóðleikhússins Orð gegn orði sem hefur slegið í gegn.

„Mikilvægt að huga að því að þroskast í faginu“
„Mamma hefur alltaf verið mjög styðjandi og hvetjandi og hún sagði alltaf við mig þegar ég var lítil: Það sem maður byrjar á það klárar maður. Oft koma upp aðstæður eða verkefni þar sem mann langar að gefast upp og hætta í miðju kafi en þá hugsa ég alltaf um þetta,“ segir Katrín Halldóra Sigurðardóttir leik- og söngkona.

Líf og fjör á Grímunni
Grímuverðlaunin voru haldin með pomp og prakt í gærkvöldi þar sem sviðslistum síðasta árs voru fagnað við hátíðlega athöfn. Leiksýningarnar Saknaðarilmur og Ást Fedru hlutu flest verðlaun á hátíðinni, eða fern verðlaun hver og var Saknaðarilmur meðal annars valin sýning ársins.

Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver
Grímuverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Leiksýningarnar Saknaðarilmur og Ást Fedru hlutu flest verðlaun á hátíðinni, eða fern verðlaun hver.

Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar
Margrét Helga Jóhannsdóttir hlaut heiðursverðlaun Grímunnar í kvöld. Það var Guðni Th. Jóhannesson sem veitti leikkonunni verðlaunin í Þjóðleikhúsinu.

Eins árs leikhússkóli fyrir ungt fólk stofnaður í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 22 ára. Skólinn er fyrir ungt fólk með brennandi áhuga á leikhúsi, til að kynna sér leikhús frá ólíkum hliðum og efla færni sína og þekkingu.

Sungið og sungið á Sauðárkróki
Það er mikið sungið á Sauðárkróki þessa dagana en ástæðan er sú að leikfélag staðarins er að sýna Litlu hryllingsbúðina. Þrettán leikarar taka þátt í sýningunni en alls koma um fjörutíu manns að sýningunni á einn eða annan hátt.

Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi
Það iðar allt af lífi og fjöri á Akranesi þessa dagana þegar diskó er annars vegar því nemendur Brekkubæjarskóla eru að sýna söngleikinn „Diskóeyjan“ í Bíóhöllinni.

Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar
Sviðslistahúsið Afturámóti var stofnað af þremur vinum sem vantaði rými til þess að setja upp sínar eigin sýningar. Úrvalið var ekki ýkja mikið en þá fengu þeir flugu í hausinn.

Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu
„Ég er sannarlega glaður hér í Þjóðleikhúsinu og nýt mín vel með mínu samstarfsfólki,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri, spurður að því hvort hann hyggist sækjast eftir því að sinna starfinu áfram eftir að skipunartíma hans lýkur í árslok.

Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar
Saknaðarilmur í sviðsetningu Þjóðleikhússins hlaut flestar tilnefningar til Grímuverðlauna ársins 2024.

Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Hann tekur við af Mörtu Nordal sem hefur gegnt starfinu síðustu í sex árin.

Fjögurra ára rússíbanareið að baki
Ævintýri vinsælasta söngleiks sem settur hefur verið upp á Íslandi, Níu líf, sem byggir á ævi tónlistarmannsins Bubba Morthens, lýkur í júní þegar 250. sýningin og sú síðasta fer fram í Borgarleikhúsinu. Leikarahjónin Ólafur Egill Egilsson og Esther Talía Casey eru reiðubúin að kveðja Bubba þó því fylgi tilfinningaríkur rússíbani.

Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu
Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz frumsýnir kúrekasöngleikinn víðfræga Oklahoma, miðvikudaginn 8. maí á nýja sviði Borgarleikhússins.

„Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“
„Ég man að hafa hugsað um það hvað mér fannst þetta fáránlegt því maður á að vera ódauðlegur þegar að maður er tvítugur. Ég á að vera bara spennt fyrir lífinu og ekki hrædd. En núna er ég hrædd og okei hvað ætla ég að gera við það?“ segir tónlistarkonan Una Torfadóttir um það þegar hún greindist með krabbamein. Una hefur komið víða að í íslensku tónlistarlífi á undanförnum tveimur árum og var nú að senda frá sér plötuna Sundurlaus samtöl. Blaðamaður ræddi við Unu um hennar listrænu vegferð, ástina, fjölskylduna, veikindin, samband við sjálfa sig og fleira.

Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“
Leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir, oft þekkt sem Lolla, mun fara með hlutverk tannlæknisins í söngleiknum Litla hryllingsbúðin í uppsetningu Leikfélags Akureyrar í Samkomuhúsinu í október næstkomandi. Leikstjórn verður í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar.

Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri
Einstaklingar sem búa yfir ákveðnum persónutöfrum virðast ná að heilla flesta með sínu fallega brosi, útgeislun eða sjálfsöryggi, og þykja afar sjarmerandi. Eitt er að víst að það er misjafnt hvað heillar fólk en þessar týpur eiga það sameiginlegt að stela senunni hvert sem þær mæta.

Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana
Söngleikurinn Ellý, sem fjallar um ævi og ástir einnar vinsælustu söngkonu Íslands fyrr og síðar, Ellýjar Vilhjálms, snýr aftur á stóra svið Borgarleikhússins í takmarkaðan tíma.

Pétur Einarsson leikari látinn
Pétur Einarsson, leikari, leikstjóri og fyrrverandi skólastjóri Leiklistarskóla Íslands er látinn, 83 ára að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 24. apríl síðastliðinn.

Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar
Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024. Hún var titluð í gær en hefð er fyrir því í bænum að veita titilinn síðasta vetrardag hvers árs.

Mislukkuð sýning í Borgarleikhúsinu með góðum sprettum
Söngleikurinn Eitruð lítil pilla, sem er saminn ofan í fræga plötu Alanis Morisette og Glen Ballard frá tíunda áratugnum, var frumsýndur í febrúar.

Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“
Sara Martí Guðmundsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem leikhússtýra Tjarnarbíós. Hún kveðst hafa reynt allt til að láta rekstur leikhússins ganga upp, en meira þurfi til frá ríki og borg.

Nýr söngleikur byggður á lögum Unu Torfa: „Ég kolféll fyrir henni“
Nýr íslenskur söngleikur, byggður á tónlist Unu Torfadóttur, verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í febrúar á næsta ári. Ásamt Unu mun Unnur Ösp Stefánsdóttir semja söngleikinn sem mun fjalla um ungt fólk á tímamótum menntaskólaáranna. Unnur Ösp segir spennandi að semja verk um raunir og áskoranir ungs fólks sem mun tala beint inn í íslenskt samfélag.

Borgarstjóri og Vigdís hlógu að Jóni Gnarr og Sveppa
Það var mikið um dýrðir og margt um manninn í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi þegar leikritið And Björk of course var frumsýnt. Verkið er eftir Þorvald Þorsteinsson og hefur slegið í gegn á Akureyri í vetur.

„Kannski var ég ekki að pæla í algebru því mamma mín var að deyja“
„Ég bý við það óöryggi að ég held að enginn skilji mig,“ segir leikarinn Gunnar Smári Jóhannsson. Gunnar Smári er 31 árs gamall og hefur upplifað meira en flestir jafnaldrar hans. Sem barn missti hann báða foreldra sína sem og ömmu sína og afa og hefur hann tamið sér að ræða opinskátt um sorgina.