

Menningarmálaráðherra Úkraínu hefur sent formlegt erindi til Netflix og kvartað undan persónu í þáttunum Emily in Paris. Þeir segja hana „óásættanlega skrípamynd“ af úkraínskri konu.
Það verður að teljast afar líklegt að Rússland ráðist inn í Úkraínu og það eina sem gæti mögulega komið í veg fyrir það eru gríðarlega umfangsmiklar refsiaðgerðir. Þetta segir Adam Schiff, formaður leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar bandaríska þingsins.
Joe Biden forseti Bandaríkjanna og Vladimir Putin forseti Rússlands áttu fjarfund í gærkvöldi þar sem þeir ræddu þá spennu sem ríkir vegna málefna Úkraínu.
Þrír létu lífið á gjörgæslu í Úkraínu eftir að eldsvoði braust út þegar kveikt var á minningarkerti, til minningar þeirra sem látist höfðu úr kórónuveirunni. Fjórir hlutu lífshættuleg brunasár.
Forseti Úkraínu vonar að endurnýjað vopnahlé frá því fyrr á þessu ári nái að draga úr spennu í samskiptunum við Rússa sem hafa verið á suðumarki undanfarin misseri. Pútín Rússlandsforseti ítrekaði kröfur sínar um afvopnum NATO ríkja í austri á árlegum marþonfundi með fréttamönnum í dag.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist þess aftur í dag að vesturveldin svokölluðu veittu Rússum tryggingar gagnvart því að Atlantshafsbandalagið neitaði ríkjum Austur-Evrópu um aðild að bandalaginu og vísaði aðildarríkjum af svæðinu á dyr.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir ríkisstjórn sína tilbúna til hernaðarátaka sýni vesturveldin óvinveittar aðgerðir vegna Úkraínudeilunnar. Pútín hefur lengi sakað Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið um að valda aukinni spennu nærri landamærum Rússlands.
Formaður Viðreisnar sem jafnframt situr í utanríkismálanefnd segir að engin ein aðildarþjóð Atlantshafsbandalagsins geti ákveðið viðbrögð þess ef Rússar ráðast inn í Úkraínu. En breski varnarmálaráðherrann segir ósennilegt að NATO myndi senda hersveitir þangað Úkraínumönnum til varnar ef til innrásar kæmi.
Afar ólíklegt er að Bretar og bandamenn þeirra í Atlantshafsbandalaginu myndu senda hersveitir til aðstoðar Úkraínumönnum ef Rússar réðust inn í landið að sögn Ben Wallace varnarmálaráðherra Bretlands.
Á sama tíma og rússneski herinn er grár fyrir járnum við landamærin að Úkraínu krefjast Rússar þess að NATO herir megi nánast ekki athafna sig í bandalagsríkjum Atlantshafsbandalagsins í austur Evrópu. Úkraínumenn vilja hins vegar kasta sovéttímanum á öskuhauga sögunnar.
Bandaríkjamenn segjast vera að undirbúa sig undir að svara mögulegri árás Rússa á Úkraínu með afgerandi hætti. Þetta kom fram í máli Joe Bidens Bandaríkjaforseta á tvíhliða fundi sem hann átti með rússneskum kollega sínum Vladimir Pútín í gærkvöldi.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna er tilbúin með áætlanir um viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi ráðist Rússar inn í nágrannaríkið Úkraínu. Bandaríkjaforseti og Rússlandsforseti munu funda á þriðjudag um stöðuna á svæðinu.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi.
Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu.
Spennan í Austur-Evrópu magnast enn en bæði Rússar og Úkraínumenn hafa verið að halda heræfingar á landamærum sínum. Staðan á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlans fer þá versnandi.
Úkraínska lögreglan rannsakar nú skyndilegt andlát ungs þingmanns í leigubíl í höfuðborginni Kænugarði í dag. Þingmaðurinn átti sæti í þingnefnd gegn spillingu.
Enginn hefur enn verið handtekinn eftir að óþekktir menn létu byssukúlum rigna yfir bíl eins nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu í gær. Tilgátur eru um að óánægðir óligarkar eða jafnvel rússnesk stjórnvöld hafi fyrirskipað tilræðið.
Ökumaður bifreiðar nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu særðist þegar skotið var á bílinn í morgun. Ráðgjafinn slapp ómeiddur en úkraínskir embættismenn lýsa árásinni sem morðtilræði.
Besti sleggjukastari sögunnar, Úkraínumaðurinn Júrí Sedykh, lést í gær af völdum hjartaáfalls, 66 ára að aldri.
Faðir fórnarlambs sem lést þegar MH17, farþegaflugvél Malaysian Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syni hans í sinni hinstu för. Bakpokinn fannst nánast óskemmdur í braki vélarinnar.
Líkamsleifar allt frá fimm til átta þúsund manns fundust í 29 fjölgagröfum á framkvæmdasvæði í borginni Odessu í sunnanverðri Úkraínu. Talið er að fólkið hafi verið fórnarlömb sovésku leynilögreglunnar í tíð alræðisherrans Jósefs Stalín.
Maki hvítrússnesks aðgerðasinna, sem fannst látinn í almenningsgarði í Úkraínu, segist ekki trúa því að hann hafi svipt sig lífi. Vinir hans telja að hann hafi verið myrtur og vettvangur sviðsettur.
Hvítrússneski spretthlauparinn Krystsina Tsimanouskaya hefur sótt um pólitískt hæli í Póllandi og hefur þegar fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum og ætlar að fljúga til Póllands á næstu dögum. Tsimanouskaya er nú stödd í pólska sendiráðinu í Tókýó í Japan en hún var stödd þar til að keppa á Ólympíuleikunum.
Úkraínska knattspyrnugoðsögnin Andriy Shevchenko mun ekki halda áfram þjálfun úkraínska landsliðsins.
Varnarmálaráðuneyti Úkraínu hefur tilkynnt að kvenkyns hermenn muni fá „þægilegri“ hælaskó til að klæðast eftir að ráðuneytið var gagnrýnt harðlega fyrir að láta herkonurnar marséra í háum hælum.
Hvíta-Rússland hefur lokað landamærum sínum að Úkraínu. Ástæðan er sú að Hvít-Rússar segja að vopnum hafi smyglað yfir landamærin og inn í landið.
Í gær hófst aðalmeðferð í máli hollenska ríkisins gegn fjórum sakborningum sem grunaðir eru um að hafa skotið niður Boeing 777 flugvél Flugfélags Malasíu.
Rússnesk yfirvöld hafa brugðist harkalega við nýrri landsliðstreyju úkraínskra karlaliðsins í knattspyrnu. Treyjan sýnir útlínur landsins, þar á meðal Krímskaga sem Rússar innlimuðu ólöglega árið 2014.
Alríkissaksóknarar í New York rannsaka nú hvort að hópur úkraínskra núverandi og fyrrverandi embættismanna hafi reynt að hafa áhrifa á bandarísku forsetakosningarnar í nóvember. Þeir kunni að hafa dreift misvísandi upplýsingum um Joe Biden til að hjálpa Donald Trump að landa sigri.
Forseti Úkraínu hefur áhyggjur af því að útgáfa rússneskra stjórnvalda á vegabréfum fyrir íbúa austanverðrar Úkraínu sé fyrsta skrefið í að Rússland innlimi svæðið líkt og það gerði með Krímskaga. Hann átelur vestræn ríki fyrir að hafa sýnt Rússum of mikla linkind að undanförnu.