Eldgos og jarðhræringar

Neyðarstigi lýst yfir vegna rofs á heitavatnslögn
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að virkja neyðarstig Almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum.

Ætla að vinna með nýjan veruleika í Bláa lóninu
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu- markaðs og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins, segir að forsvarsmenn lónsins ætli að vinna með nýjan veruleika sem eldgos á Reykjanesskaga hafi haft í för með sér. Kerfi Bláa lónsins séu innan varnargarða.

„Í rauninni það versta sem gat gerst“
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar er staddur á Ítalíu og fylgdist með aukafréttatíma Stöðvar 2, sér til mikillar hrellingar.

Ein af sviðsmyndunum sem gert var ráð fyrir
Rennsli hraunsins yfir Grindavíkurveg og Norðurljósaveg við Bláa lónið var ein þeirra sviðsmynda sem gert var ráð fyrir í hraunfræðilíkönum. Flæðið eru vondar fréttir fyrir Suðurnes en ágætar fyrir Grindavík.

Fleiri innviðir í hættu
Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna segir ljóst að heitavatnsleysi á Suðurnesjum verði talið í dögum. Svartasta sviðsmyndin sem teiknuð hafi verið upp sé að rætast. Rafmagns- og kaldavatnslagnir eru í hættu á að verða undir hrauni en þær eru á talsverðu dýpi og vonast er til að þær haldi.

Hraunið farið yfir heitavatnslögnina
Hraunið hefur farið yfir heitavatnslögnina sem ber heitt vatn frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga. Heitavatnslaust verður í að minnsta kosti nokkra daga.

Katrín uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum
Forsætisráðherra er uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum, þar sem hraun rennur hratt í átt að heitavatnslögn. Ef allt fari á versta veg gætu Suðurnesin verið án heits vatns í tvo til þrjá daga.

Verulega hefur hægt á aflögun umhverfis kvikuganginn
Verulega hefur hægt á aflögun umhverfis kvikuganginn. Líkur á því að gossprungan lengist frekar hafa því minnkað.

Hraunflæðið kemur á óvart
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir það hafa komið sér á óvart að sjá hraun renna yfir Grindavíkurveg og veg að Bláa lóninu. Reynt hafi verið að verja heitavatnslögn á síðustu stundu í morgun.

Biðja fólk um að lækka á ofnum og fara ekki í bað
Útlit er fyrir að hraunið á Reykjanesi fari yfir stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ á næstu klukkustundum. Gerist það verður heitavatnslaust í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum.

Hafa náð samkomulagi við lífeyrissjóðina um lán Grindvíkinga
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík.

Verulega ósáttur að fá ekki að fara til Grindavíkur
Hafþór Skúlason, íbúi í Grindavík, er verulega ósáttur við skipulag almannavarna en hann hugðist fara í verðmætabjörgun í bænum í dag.

Hádegisfréttatími vegna eldgossins í heild sinni
Eldgos hófst upp úr klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Hraun náði Grindavíkurvegi á ellefta tímanum.

Mögulega heitavatnslaust á Suðurnesjum eftir nokkrar klukkustundir
Mikil hætta er á að hraun renni yfir hitaveituæð HS veitna í Svartsengi. Það þýðir að ekkert heitt vatn yrði á Suðurnesjum og nágrannasveitafélögum. Svartasta sviðsmyndin gæti verið að raungerast, segir forstjóri. Íbúar Suðurnesja eru beðnir um að varðveita hita á húsum og loka strax gluggum. Heitavatnsleysið myndi þó sennilega ekki standa lengur en í einn til tvo sólarhringa.

Grunar að gosið sé búið að ná hámarki
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að sig gruni að eldgosið sem hófst í morgun sé búið að ná hámarki sínu. Hann segist telja líklegt að því verði lokið um helgina.

Bein útsending frá gosstöðvum
Eldgos hófst í Sundhnúksgígaröðinni klukkan sex í morgun. Hér að neðan má sjá vefmyndavélar Vísis frá gosstöðvunum.

Hraun rennur yfir Grindavíkurveg
Hraun úr eldgosinu sem hófst í morgun hefur náð Grindavíkurvegi. Það er komið yfir veginn. Horfa má á hraunrennslið í beinni úr vefmyndavél Vísis neðst í fréttinni.

„Við erum bara eins og ein stór fjölskylda“
Sólný Pálsdóttir, kennari og ljósmyndari frá Grindavík, var við Reykjanesbraut í morgun til að sjá eldgosið. Með henni í för var fjórtán ára sonur hennar, Fjölnir Sveinsson.

Ekki tekið ákvörðun um að loka varnargarðinum
Viðbragðsaðilar á vettvangi gossins hyggjast ekki loka varnargarðinum við Grindavíkurveg að svo stöddu. Skarð er á varnargörðunum við Svartsengi og verður unnið í því að minnka það í dag.

„Þetta er upplifun lífsins!“
Ferðamenn sem voru staddir á hóteli Bláa lónsins í morgun þegar það var rýmt vegna yfirvofandi eldgoss, voru himinlifandi yfir upplifuninni. Einhverjir vöknuðu við jarðskjálfta og óskuðu þess heitast að gos væri að hefjast.

Mögulegt að hraunið nái Grindavíkurvegi um hádegisbil
Fréttastofu hafa borist nokkrar ábendingar frá áhugamönnum um að hraun gæti náð Grindavíkurvegi um hádegisbil og Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna, segir það mögulegt.

Engir innviðir í hættu eins og stendur
Víðir Reynisson sviðsstjóri hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra segir enga innviði í hættu eins og stendur. Hraunstraumurinn renni þó í áttina að Grindavíkurvegi en unnið er að því að fylla skarð í varnargarða við Grindavíkurveg.

Gjall að finnast í Grindavík
Vart hefur orðið við gjall í Grindavík, eða gjósku úr hrauninu frá gosinu sem hófst í morgun. Ólíklegt er talið að hraun renni til suðurs í átt að Grindavík eins og staðan er núna.

„Alltaf jafn ónotalegt að sjá þetta“
„Þetta er alltaf jafn ónotalegt að sjá þetta. Þetta virðist vera komið til að vera. Er núna einu sinni í mánuði,“ segir Páll Valur Björnsson íbúi í Grindavík um eldgosið sem hófst í morgun á Sundknúksgígaröðinni. Sprungan virðist ná frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógarfells og hraun rennur til vesturs.

Gera megi ráð fyrir að gosið hegði sér svipað og síðustu
„Þetta leit út mjög svipað og eldgosið sem hófst 18. desember. Sprungan er ögn styttri en þá, hún er um þrír kílómetrar og hraunflæðið er mjög svipað og 18. desember. Aðdragandinn að þessu gosi var mjög skammur og það rennur til austurs og vesturs frá gossprungunni. Sennilega mun það renna norður með Stóra-Skógafelli,“ segir Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra í samtali við fréttastofu.

Sjáðu þegar sprungan opnaðist
Gos hófst norðan Sýlingarfells á Reykjanesskaga klukkan 6:02 í morgun. Í vefmyndavél á vegum Vísis sést þegar sprungan opnaðist.

Staðsetning gossins ekki jafn ógnvekjandi og síðast
Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs í Grindavík, frétti af eldgosinu í morgun frá syni sínum sem vinnur á Keflavíkurflugvelli.

Viðbragðslúðrar ómuðu við Svartsengi
„Við vitum að eldgosið hófst þarna um sex leytið og við vitum að það er á svipuðum stað og eldgosið sem hófst 18. desember og við vitum að þetta er alveg bara, við þekkjum þetta,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells
Samkvæmt fyrstu fréttum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar er eldgosið á sömu slóðum og gaus 18. desember síðastliðinn.

Gosið að lengjast í norðurátt
Böðvar Sveinsson náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að aðdragandi þessa goss hafi verið mjög svipaður og í síðustu tvö skipti.