Jeppe Hansen gerði tvö mörk fyrir Stjörnuna en Þórhallur Kári Knútsson skoraði eitt mark undir lok leiksins.
Stjörnumenn byrjuðu leikinn betur og voru með ágæt tök á leiknum alveg frá fyrstu mínútu. Eyjamenn voru ekki nægilega rólegir í sínum aðgerðum og mátti sjá smá taugatitring í þeirra herbúðum. Daninn Jeppe Hansen gerði tvö mörk fyrir Íslandsmeistarana í fyrri hálfleiknum og fóru þeir bláu með 2-0 forskot til búningsherbergja.+
Stjarnan var oft á tíðum að spila virkilega góðan sóknarleik í fyrri hálfleiknum og Eyjamenn réðu stundum ekkert við þá.
Síðari hálfleikurinn var mun rólegri en sá fyrr og náðu Eyjamenn aldrei að skapa sér hættuleg færi til þess að komast inn í leikinn. Þvert á móti var líklegra að Stjarnan myndi bæta við fleiri mörkum. Það gerðist síðan í uppbótartíma þegar Þórhallur Kári Knútsson skoraði lokamark leiksins eftir laglegt spil heimamanna.
Stjörnumenn eru nú í fimmta sæti deildarinnar með 19 stig en ÍBV í því næst neðsta með 11 stig. Þrátt fyrir ágæta spilamennsku hjá ÍBV í undanförnum leikjum á liðið langt í land. Stjörnumenn eru allir að koma til og fyrsti heimasigur liðsins gæti kveikt á vélinni.
Gunnar Heiðar: Þeir hjá KSÍ þurfa að hysja upp um sig buxurnar

„Við gerum síðan ekkert það sem lagt var upp með fyrir leikinn. Á móti liði eins og Stjörnunni er það bara ekki hægt og því var 3-0 tap bara verðskuldað.“
Gunnar segir að liðið hafi ætlað sér að pressa Stjörnumenn hátt upp á völlinn.
„Þeir fengu bara allt of mikið pláss og fá þá tíma til að gera sýnar kúnstir,“ segir Gunnar en hann varð að fara útaf meiddur í leiknum. Brotið var á Gunnari í leiknum sem varð þess valdandi að hann varð að yfirgefa völlinn. Garðar Örn Hinriksson, dómari leiksins, gaf honum aftur á móti gult spjald fyrir leikaraskap í atvikinu.
„Þetta var eiginlega óskiljanlegt og ég bara næ þessu ekki. Mér finnst mjög leiðinlegt að koma heima eftir 11 ár í atvinnumennsku og sjá það að „standardinn“ á þessum dómurum er bara sá sami. Það er árið 2015 og þeir hjá KSÍ þurfa að hysja upp um sig buxurnar og fara gera þetta almennilega.“
Rúnar Páll: Markmiðið er ennþá að vinna þessa deild

„Þetta var ótrúlega gott fyrir andlegu hliðina og ná loksins í þennan fyrsta heimasigur. Það var mikill kraftur í okkur og við erum með tvo mjög vinnusama framherja sem er erfitt að ráða við.“
Rúnar segir að það hafi skipt mestu máli að halda markinu hreinu í kvöld.
„Við skorum þrjú lagleg mörk og hefðum alveg getað skorað fleiri,“ segir Rúnar en Stjarnan er með 19 stig í deildinni.
„Við erum ekkert að pæla mikið í stöðu okkar í deildinni, vonandi gengur okkur vel í næsta leik og síðan tökum við bara stöðuna þegar mótinu er lokið. Markmiðið hefur alltaf verið að vinna þessa deild og við erum aðeins fyrir aftan toppliðin, en þetta er ekkert búið og það er fullt af leikjum eftir.“
Jeppa: Man ekki hvenær ég skoraði síðast

„Við erum með frábæra stuðningsmenn hér en af einhverjum ástæðum höfum við ekki náð í sigur á heimavelli.“
Jeppe segir að mikill stígandi hafi verið í leik Stjörnumanna undanfarna vikur.
„Við erum farnir að skapa fullt af tækifærum í okkar leikjum og það er að skila sér. Loksins skoraði ég og ég man varla hvenær ég skoraði síðast,“ segir Jeppa kátur að lokum.
Ásmundur: Vorum óskipulagðir og gáfum þeim of mikið pláss

„Það vantaði það vinnuframlag sem menn hafa sýnt í undanförnum leikjum. Við náðum að skipuleggja okkur aðeins í hálfleik og síðari hálfleikurinn var aðeins betri og það vantaði á köflum herslumuninn til þess að ná inn marki og opna þennan leik.“
Ásmundur segist hafa náð mjög stuttum tíma með liðinu fyrir þennan leik.
„Hér eru sömu aðstoðarmenn til staðar og liðið hefur verið að ná ágætis úrslitum í undanförnum leikjum og því var ég ekki að breyta miklu fyrir þennan leik.“