Enski boltinn

Klopp og Guardiola þeir langlífustu eftir brottrekstur Dyche
Starfsöryggi knattspyrnustjóra í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er ekki ýkja mikið eins og Sean Dyche fékk að kynnast í morgun þegar hann var rekinn frá Burnley.

Sean Dyche rekinn frá Burnley
Óvænt tíðindi berast frá Turf Moor í Burnley þar sem enski knattspyrnustjórinn Sean Dyche hefur verið rekinn úr starfi sínu hjá enska úrvalsdeildarliðinu Burnley.

Arsenal rannsakar hatur í garð samkynhneigðra frá áhorfendum
Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur hafið rannsókn á áhorfendum á leik liðsins gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór seinustu helgi.

Dýraníðingurinn spilar líklega ekki meira á leiktíðinni
Franski miðvörðurinn Kurt Zouma mun að öllum líkindum ekki spila meira með West Ham United á leiktíðinni vegna meiðsla sem hann varð fyrir um helgina. Mögulega beit karma hann þar í rassinn en Zouma gerðist sekur um dýraníð fyrr á leiktíðinni.

Dortmund og RB Leipzig vilja Ten Hag
Knattspyrnustjórinn Erik ten Hag er talin vera líklegastur af veðbönkum til að taka við af Ralf Ragnick sem næsti knattspyrnustjóri Manchester United. Ten Hag hefur nú þegar fundað með Manchester United en nú hafa þýsku liðin Dortmund og RB Leipzig bæst við í kapphlaupið um Hollendingin.

Fabio Carvalho semur við Liverpool
Fréttir frá Englandi herma að Liverpool sé búið að ná samkomulagi við Fulham um kaup á enska vængmanninum Fabio Carvalho.

Ten Hag gert munnlegt samkomulagi við Man United
Hinn hollenski Erik Ten Hag mun stýra enska knattspyrnuliðinu Manchester United á næstu leiktíð. Það virðist aðeins formsatriði hvenær hann verður kynntur til leiks ef marka má fjölmiðla erlendis.

Guardiola: Leeds myndi falla með mig sem stjóra
Marcelo Bielsa er í miklum metum hjá Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City. Guardiola segist handviss um að Leeds væri í Championship deildinni ef hann væri knattspyrnustjóri liðsins.

Fernandinho yfirgefur Man City | Guardiola vissi það ekki
Fernandinho, fyrirliði Manchester City, mun yfirgefa félagið í sumar eftir níu ár hjá City.

Gylfi á meðal leikmanna sem Everton ætlar að losa af launaskrá vegna fjárhagskrísu
Gylfi Þór Sigurðsson, Fabian Delph og Cenk Tosun eru allir taldir líklegir að vera á leið frá Everton um leið og samningar þeirra renna út í lok leiktíðar.

Stuðningsmenn United ætla að bíða fyrir utan Old Trafford
Til stendur að senda bandarískum eigendum Manchester United, Glazer-fjölskyldunni, skýr skilaboð um helgina um að hún megi hypja sig á brott hætta afskiptum af félaginu.

Enginn með verri útkomu en Rangnick hjá United
Árangur Manchester United undir stjórn Þjóðverjans Ralfs Rangnick hefur verið slakur og er raunar sá versti hjá félaginu frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar.

Ronaldo ekki refsað fyrir að eyðileggja síma einhverfs stráks
Manchester United ætlar ekki að refsa Cristiano Ronaldo vegna hegðunar hans eftir tapið gegn Everton á laugardaginn. Ronaldo skemmdi þá síma ungs áhorfanda sem var að taka myndband af portúgölsku stjörnunni. Lögreglan á Englandi mun hins vegar rannsaka málið frekar.

Frábær auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina
Manchester City og Liverpool skildu jöfn, 2-2, í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn var hraður og skemmtilegur frá upphafi til enda og góð auglýsing fyrir deildina að mati knattspyrnustjóra Manchester City, Pep Guardiola.

Klopp: Þetta var eins og boxbardagi
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, naut þess að fylgjast með þeim fótbolta sem boðið var upp á Etihad-vellinum í gær í 2-2 jafntefli Manchester City og Liverpool.

Titilbaráttan áfram galopin eftir stórmeistara jafntefli
Manchester City og Liverpool skiptu með sér stigunum eftir 2-2 jafntefli í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham færist nær Meistaradeild | Leeds færist fjær fallsæti
Tottenham vann öflugan 0-4 sigur á Aston Villa á Villa Park í ensku úrvalsdeildinni í dag en á sama tíma rúllaði Leeds yfir Watford á Vicarage Road, 0-3.

Chelsea skoraði sex gegn Southampton
Chelsea var búið að tapa tveimur leikjum síðustu sex daga með markatölunni 7-2 en svöruðu heldur betur fyrir það í dag með því að gjörsigra Southampton 0-6 á St. Mary‘s vellinum.

Aftur tapar Arsenal
Baráttan um fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni er galopin eftir að Brighton gerði sér lítið fyrir og sigraði Arsenal á Emirates vellinum í dag, 1-2.

Frábær sigur Everton á Manchester United
Everton vann gríðarlega mikilvægan sigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag á heimavelli. Lokatölur í leiknum urðu 1-0 fyrir heimamenn sem eru eftir sigurinn fjórum stigum frá fallsæti.

Chris Wood tryggði Newcastle sigur gegn Úlfunum
Chris Wood skoraði eina mark leiksins er Newcastle vann 1-0 sigur gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Þriggja ára bann fyrir niðrandi orð um samkynhneigða
Ungur stuðningsmaður Arsenal fær ekki að stíga fæti inn á knattspyrnuleikvang næstu þrjú árin eftir að hafa kallað niðrandi orð um samkynhneigða er Arsenal heimsótti Brighton & Hove Albion í október á síðasta ári.

Afhjúpa styttu af Agüero á tíu ára afmæli marksins sem tryggði titilinn
Manchester City ætlar að afhjúpa styttu af Sergio Agüero fyrir utan heimavöll sinn þann 13. maí næstkomandi, nákvæmlega tíu árum eftir að framherjinn tryggði liðinu enska meistaratitilinn með marki gegn QPR í uppbótartíma.

Man City enn undir rannsókn: Tölvupóstar sýna fram á brot á fjárhagslegri háttvísi
Þýski fjölmiðillinn Der Spiegel segist hafa undir höndum gögn sem sýni fram á að rannsókn á enska knattspyrnufélaginu Manchester City sé enn í gangi.

Ronaldo segir Rooney öfundsjúkan
Cristiano Ronaldo hefur svarað ummælum sem Wayne Rooney lét falla fyrr í vikunni. Hann sagði þá að kaup Manchester United á Ronaldo hefðu ekki gengið upp.

Styttist í að Ten Hag verði tilkynntur sem nýr þjálfari Man United
Allt bendir til þess að Erik ten Hag, þjálfari Ajax, verði næsti þjálfari Manchester United. Hann hefur verið í umræðunni allt frá því Ole Gunnar Solskjær var látinn taka poka sinn og stefnir í að hann taki við fyrr heldur en síðar.

Klopp: Engar líkur á því að Haaland komi til Liverpool
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur neitað þeim sögusögnum að norski framherjinn Erling Braut Haaland sé á leiðinni til í Liverpool í sumar. Haaland verður að öllum líkindum á faraldsfæti frá Dortmund í sumar en hann hefur verið orðaður við öll helstu stórlið Evrópu undanfarið.

Burnley enn þá á lífi í ensku úrvalsdeildinni en Everton komið í alvöru vandræði
Áfram tapar Everton á útivelli en í þetta skipti í 6 stiga fallbaráttuslag gegn Burnley, lokatölur 3-2 fyrir heimamenn á Turf Moor.

Hefði getað stórslasað nýstirni Liverpool ef hann hefði hitt
Luis Diaz átti enn á ný góðan leik í gær þegar Liverpool vann 3-1 sigur í fyrri leik sínum á móti Benfica í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Kvöldið hefði þó getað endað mjög illa fyrir Kólumbíumanninn.

Micah Richards: Hræðilegur leikur fyrir Man. City til að byrja risastóra viku
Það er nóg af stórleikjum hjá Englandsmeisturum Manchester City þessa dagana og fjörið byrjar strax í kvöld með fyrri leik liðsins í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.