Formúla 1

Vettel rúmlega sekúndu fljótari en Alonso
Sebastian Vettel á Red Bull var með besta tíma á æfingu Formúlu 1 liða á Barcelona brautinni á Spáni í dag. Þrettán ökumenn tóku þátt í akstri um Barcleona brautina, en keppnisliðin æfa næstu þrjá daga til viðbótar á brautinni.

Ecclestone metur í næstu viku hvort mótshaldi í Barein verði aflýst
Bernie Ecclestone fylgist grannt með ástandinu í Barein, þar sem mótmælendur og lögregla tókust harkalega á í Manama, höfuðborg Barein í morgun. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins á að fara fram í landinu þann 13. mars.

Nick Heidfeld staðfestur hjá Lotus Renault í stað Kubica
Þjóðverjinn Nick Heidfeld var staðfestur sem ökumaður Lotus Renault í dag, en hann stóð sig vel á æfingum með liðinu á Jerez brautinni á laugardaginn. Náði besta tíma í brautinni. Heidfeld verður staðgengill Robert Kubica, sem er frá vegna meiðsla sem hann hlaut í rallkeppni. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins er samkvæmt dagskrá í Barein 13. mars.

Vettel til í að keppa með Ferrari
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel hjá Red Bull gat þess í frétt á Gazetta dello Sport á Ítalíu að það að nafn hans yrði ritað meðal Ferrari ökumanna yrði sérstakt., ef af yrði í framtíðnni. Vettel ekur með Red Bull og greint var frá þessum ummælum Vettels á autosport.com.

Mótshaldarar í Barein ætla að tryggja öryggi á mótsstað þrátt fyrir hótun
Skipuleggjendur fyrsta Formúlu 1 móts ársins í Barein segja forgangsmál að tryggja öryggi þeirra sem sækja mótið heim aðra helgina í mars. Mótmælhópur gaf það í skyn í gær að Formúlu 1 mótið yrði notað til að vekja athygli á málstað þess. Greint var þessu á autosport.com í dag.

Jean Todt, forseti FIA, átti fund með forseta Íslands
Forseti aljþjóðabílasambandsins, FIA, Frakkinn Jean Todt kom til Íslands í dag, en hann er yfir bílasambandi sem stýrir umferðarmálum á heimsvísu og ýmsum akstursíþróttargreinum, eins og t.d. Formúlu 1. Todt var á árum áður heimsþekktur fyrir að stýra liði Ferrari í Formúlu 1 og vann marga titla með Michael Schumacher og Ferrari liðinu. Todt tók síðan við embærtti forseta FIA haustið 2009.

Ný keppnisdekk sögð auka skemmtanagildið í Formúlu 1
Pirelli dekkjaframleiðandinn sér öllum Formúlu 1 liðum fyrir dekkjum á þessu ári, en Bridgestone ákvað að draga sig í hlé frá íþróttinni, eftir margra ára samstarf við keppnisliðin og umsjónaraðila Formúlu 1 mótaraðarinnar.

Barrichello náði besta tíma á lokadegi æfinga á Jerez brautinni
Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello á Williams náði besta tíma á lokadegi æfinga Formúlu 1 liða á Jerez brautinni á Spáni í dag. Keppnislið hafa æft þar frá því á fimmtudag. Japaninn Kamui Kobayashi á Sauber var með næsta besta tíma í dag, 0.769 sekúndum á eftir Barrichello, samkvæmt frétt á autosport.com.

Heideld náði besta tíma í prófun Lotus Renault á hæfileikum hans
Þjóðverjinn Nick Heidfeld náði besta tíma allra ökumanna á Jerez brautinni á Spáni í dag. Lotus Renault liðið prófaði hann sem mögulegan staðgengil Robert Kubica í Formúlu 1. Kubica verður frá keppni um ótiltekinn tíma vegna meiðsla sem hann hlaut í rallkeppni á Ítalíu um síðustu helgi.

Heidfeld eldsnöggur á Lotus Renault
Þjóðverjinn Nick Heidfeld var efstur á blaði með besta aksturstímann á æfingu á Jerez brautinni í dag þegar um 25 mínútur voru eftir af æfingunni, en Lotus Renault er að skoða hann sem mögulegan staðgengil Robert Kubica, sem meiddist í óhappi í rallkeppni um síðustu helgi.

Schumacher með besta tíma á Mercedes
Michael Schumacher á Mercedes var sneggstur um Jerez brautina á æfingu Formúlu 1 keppnisliða í dag.

Kubica: Vill komast á brautina aftur, sterkari en áður
Pólverjnn Robert Kubica kveðst vilja komast sem fyrst í Formúlu 1, en hann meiddist alvarlega á sunnudaginn þegar hann tók þátt í rallkeppni á Ítalíu. Hann verður frá keppni í ótiltekinn tíma og Lotus Renault lið hans leitar að staðgengli fyrir hann.

Massa sneggstur á Jerez í dag
Brailíumaðurinn Felipe Massa á Ferrari var fljótastur allra fyrstu æfingu keppnisliða í dag á Jerez brautinni á Spáni. Hann varð á undan nýliðanum Sergio Perez á Sauber, en sá kappi er frá Mexíkó.

Allir bílar á æfingu merktir stuðningskveðju til Kubica
Öll Formúlu 1 lið á æfingum á Jerez brautinni á Spáni hafa merkt í dag bíla sína með stuðningskveðju til handa Robert Kubica, sem meiddist í rallkeppni á sunnudaginn og verður frá keppni um ótilgreindan tíma. Liðin æfa á brautinni til sunnudags.

Heidfeld kallaður til æfinga sem mögulegur staðgengill Kubica
Þjóðverjinn Nick Heidfeld hefur verið beðinn að prófa Lotus Renault sem mögulegur staðgengill Robert Kubica hjá liðinu, samkvæmt tilkynningu frá liðinu. Liðið æfir Jerez brautinni á Spáni í fjóra daga í þessari viku. Kubica meiddist eins og kunnungt er í óhappi á s.l. sunnudag og verður frá keppni þar til annað kemur í ljós.

Lotus Renault vill ökumann sem getur sigrað í stað Kubica
Georg Lopez eigandi Lotus Renault liðsins heimsótti Robert Kubica á spítalanum á Ítalíu í dag og mun bíða með að ákveða hver verður staðgengill hans þar til eftir æfingar á Jerez og Barcleona brautunum sem eru framundan. Samkvæmt frétt á autosport.com vill hann reyndan ökumann, ef raunin verður sú að Kubica verði frá keppni út þetta tímabil. Kubica meiddist í rallkeppni á sunnudaginn.

Force India liðið horfir til framtíðar eftir frumsýningu
Force India liðið sem er í eigu Dr. Vijay Mallya, miljarðamærings frá Indlandi frumsýndi keppnisbíl sinn í dag á vefnum og kynnti þá Adrian Sutil frá Þýskalandi og Paul di Resta frá Skotlandi sem ökumenn liðsins. Varaökumaður er Nico Hulkenberg frá Þýskalandi sem ók með Williams í fyrra.

Kubica að braggast á spítalanum
Lotus Renault sendi frá sér tilkynningu í dag sem segir að ástand Robert Kubica fari batnandi og ástand á framhandlegg hans gefi góðar vonir.

Formúlu 1 lið Force India frumsýnir á vefnum kl. 14:00
Frumsýning verður á nýja Force India keppnisbílnum kl. 14.00 í dag á vefnum, en þá verða Adrian Sutil, Paul di Resta og Nico Hulkenberg kynntir sem ökumenn liðsins í ár.

Briatore spáir endurkomu Kubica eftir 5-6 mánuði
Flavio Briatore, fyrrum framkvæmdarstjóri Renault liðsins í Formúlu 1 heimsótti Robert Kubica í dag og ræddi við hann. Briatore sagði Kubica hafa talað um það hvenær hann gæti snúið aftur til keppni.

Rússneskur sportbílaframleiðandi í Formúlu 1
Rússneski bílaframleiðandinn Marussia er formlega kominn í Formúlu 1 og frumsýndi Marrussia Virgin liðið nýjan bíl sinn í London í dag. Fyrirtækið keypti hlut í Virgin liðinu, sem Richard Branson hefur stýrt og rússinn Nikolay Fomenko er einn af yfirmönnum liðsins.

Kubica haldið sofandi næstu 24 tíma
Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica slasaðist alvarlega í rallkeppni í gær og verður haldið sofandi næstu 24 tíma, eftir að hafa verið vakinn upp í morgun til að kanna stöðu hans.

Óljóst hvort Kubica nær fullri heilsu
Meiðsli Robert Kubica, Formúlu 1 ökumanns, sem hann hlaut í rallkeppni á Ítalíu í dag, eru þess eðlis að óljóst er hvort hann nær fullri heilsu. Læknir sem annaðist hann segir að vika gæti liðið áður en vitað er hvort tekist hefur að bjarga hægri hönd hans.

Kubica enn í aðgerð eftir óhapp
Pólverjinn Robert Kubica er enn í aðgerð eftir óhapp í rallkeppni á Ítalíu í morgun og sérfræðingur í aðgerðum á höndum er meðal þeirra sem sinna Formúlu 1 ökumanninum. Kubica tók þátt í rallkeppni, en keyrði á vegg og vegrið, sem skarst inn í bílinn.

Kubica margbrotinn á hönd, handlegg og fæti eftir óhapp
Pólverjinn Robert Kubica brotnaði á hönd og fæti í óhappi í rallkeppni á Ítalíu í morgun og tilkynningu frá Lotus Renault segir að hann sé margbrotin á hægri hönd, handlegg og fæti.

Kubica á spítala eftir óhapp í rallkeppni
Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica var fluttur með þyrlu á spítala í morgun eftir óhapp í rallkeppni á Ítalíu.

27.39% hlutur í Williams seldur á opnum hlutabréfamarkaði
Williams liðið hefur opnað fyrir þann möguleika að almenningur geti keypt hlut í liðinu á hlutabréfamarkaðnum í Frankfurt og verða 27.39% í boði. Það er svissneskur banki sem mun sjá um aðgerðina. Frank Williams verður eftir sem áður meirihlutaeigandi í liðinu, sem hefur verið starfrækt síðan 1977.

Hamilton og Button bjartsýnir og ástríðufullir á nýjum bíl
McLaren liðið frumsýndi nýja McLaren Formúlu 1 bílinn í Berlín í dag og Jenson Button og Lewis Hamilton voru á staðnum. Þeir aka bílnum í 20 mótum á þessu keppnistímabili.

NÝR TÍMI: McLaren frumsýnir beint á vefnum kl. 11:00
Formúlu 1 lið McLaren frumsýnir nýtt ökutæki kl. 11:00 í dag í beinni útsendingu á vefnum. Lewis Hamilton og Jenson Button svipta hulunni af bílnum í Berlín á sérstakri athöfn, en flest lið kusu að frumsýna bíla sína á Valencia brautinni í vikunni án mikils tilkostnaðar.

Ferrari Massa í ljósum logum
Það gekk ekki allt upp hjá Felipe Massa á æfingum á Valencia brautinni á Spáni í dag. Eldtungur aftur úr bílnum á æfingunni voru merki þess að ekki var allt með feldu.