Fótbolti

Þýska lögreglan vonast til að koma í veg fyrir átök Serba og Englendinga
Þýska lögreglan trúir að allt að 500 serbneskar fótboltabullur ætli sér að mæta á leik Serbíu og Englands á Evrópumótinu í knattspyrnu á sunnudag. Mun lögreglan gera hvað hún getur til að halda hópunum frá hvor öðrum.

Toni Kroos: Yrði aðeins of klisjukennt að vinna EM en ég tæki því alveg
Toni Kroos telur það sannarlega verða lygilegan endi ef hann lyftir Evrópumeistaratitlinum með þýska landsliðinu áður en hann leggur skóna á hilluna.

Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - Keflavík 5-2 | Blikar í undanúrslit
Breiðablik tryggði sér farseðilinn í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Blikar komust 3-0 yfir eftir átján mínútur og unnu að lokum 5-2 sigur.

„Hefði átt að setja þrjú þannig ég er bara ósátt með það“
Valur tryggði farseðilinn í undanúrslitin í Mjólkurbikar kvenna í kvöld þegar þær sóttu sex marka sigur á Grindavík á Stakkavíkurvellinum í Safamýrinni.

Ten Hag heldur starfi sínu hjá Manchester United
Eftir lokafundi tímabilsins hjá stjórnarmönnum Manchester United var ákveðið að Erik Ten Hag skyldi halda starfi sínu.

Ronaldo með tvennu í lokaleiknum fyrir EM
Portúgal endaði undirbúning sinn fyrir Evrópumótið með 3-0 sigri gegn Írlandi. Cristiano Ronaldo skoraði tvö frábær mörk.

„Við tökum vel á móti öllum sem vilja gera sér ferð norður“
Þór/KA tryggði sér farseðilinn í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna þegar liðið sigraði FH með einu marki gegn engu í Hafnarfirði í dag. Það var létt yfir þjálfara liðsins, Jóhanni Kristni Gunnarssyni, eftir sigurinn í dag.

„Ef þú skorar ekki þá áttu ekki skilið að vinna“
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, þurfti að játa sig sigraðan þegar FH mætti Þór/KA í 8-liða úrslitum í Mjólkurbikar kvenna.

Dæmdur í bann fyrir að fleygja „fullum vatnsbrúsa í smettið á trommara“
Danijel Dejan Djuric, leikmaður Víkings í Bestu deild karla, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann og félagið sektað fyrir „vítaverða og hættulega“, „alvarlega og óíþróttamannslega“ hegðun eftir leik gegn Breiðablik á Kópavogsvelli.

Leik lokið: FH - Þór/KA 0-1 | Sandra María skoraði strax og tryggði sigur
FH féll úr leik í Mjólkurbikar kvenna eftir 0-1 tap gegn Þór/KA í 8-liða úrslitum. Sandra María Jessen kom inn á í hálfleik og skoraði strax á 48. mínútu til að tryggja sigur.

Uppgjör og viðtöl: Grindavík - Valur | Valskonur í undanúrslit eftir sex marka sigur
Íslandsmeistarar Vals unnu afskaplega öruggan 6-0 sigur gegn Lengjudeildarliði Grindavíkur í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.

Will Still vill stilla áfram upp í Frakklandi
Will Still hefur tekið við störfum sem aðalþjálfari RC Lens eftir að hafa verið látinn fara frá Stade de Reims. Ensku félögin Sunderland og Norwich sýndu honum mikinn áhuga en hann kaus að halda kyrru fyrir í Frakklandi.

Sleikti sólina á snekkju en þurfti svo að drífa sig á EM
Ian Maatsen hefur verið kallaður inn í hollenska landsliðshópinn fyrir Evrópumótið í Þýskalandi og mun því ekki lengur geta sleikt sólina á snekkju eins og hann hefur gert undanfarna daga.

Áfall fyrir Pólverja
Pólska landsliðið varð fyrir áfalli í dag þegar aðeins eru nokkrir dagar í að EM hefjist.

Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United
Hinn áreiðanlegi David Ornstein, blaðamaður The Athletic, segir að hann sé hættur að reyna spá fyrir um hvað gerist í þjálfaramálum Manchester United. Hann ætli einfaldlega að bíða og sjá hvað gerist.

Hinn eftirsótti Šeško áfram hjá Leipzig
Þrátt fyrir að vera eftirsóttur af Arsenal, Chelsea ásamt Manchester og Newcastle United þá hefur hinn 21 árs gamli Benjamin Šeško ákveðið að vera áfram á mála hjá RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni.

De Jong ekki með Hollandi á EM
Frenkie de Jong, miðjumaður Barcelona, verður ekki með Hollandi á Evrópumóti karla í fótbolta sem hefst á föstudaginn kemur.

Hættir líklega ef England verður ekki Evrópumeistari
Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Englands, hefur opinberað að hann muni að öllum líkindum hætta sem þjálfari enska karlalandsliðsins fari svo að England standi ekki uppi sem Evrópumeistari að loknu EM sem hefst á föstudaginn kemur.

Tuttugu ár síðan allt stefndi í að „ómennskur“ Rooney yrði hetja Englands
Fyrir tuttugu árum síðan trúði nær allt England – allavega þau þeirra sem horfa á fótbolta - að loks myndi þjóðin vinna EM sem þá fór fram í Portúgal. Svo meiddist undrabarnið Wayne Rooney og vonir Englands hurfu út um gluggann.

Segir Bayern hafa náð samkomulagi við lykilmann Leverkusen
Það virðist næsta víst að miðvörðurinn Jonathan Tah færi sig um set frá Þýskalandsmeisturum Bayer Leverkusen til Bayern München.

Mörk Hollands gegn Íslandi
Holland lagði Ísland 4-0 þegar liðin mættust í vináttulandsleik karla í knattspyrnu. Um var að ræða síðasta leik Hollands áður en liðið heldur á Evrópumótið sem fram fer í Þýskalandi.

„Má ekki vanmeta gæðin sem við búum yfir“
„Mér líður vel, þetta var góð frammistaða hjá okkur,“ sagði Memphis Depay, leikmaður Hollands, eftir 4-0 sigur á Íslandi á mánudagskvöld. Um var að ræða síðasta leik Hollands áður en liðið fer til Þýskalands þar sem Evrópumót karla í knattspyrnu hefst á föstudaginn kemur.

„Ég er ekki fórnarlamb kynþáttaníðs heldur böðull rasista“
Vinícius Júnior, leikmaður Evrópu- og Spánarmeistara Real Madríd, hefur tjáð sig eftir að þrír stuðningsmenn Valencia voru dæmdir í átta mánaða fangelsi fyrir kynþáttaníð í hans garð á síðustu leiktíð.

„Léleg snerting hér eða þar þá eru þeir komnir strax í andlitið á þér“
„Gríðarlega erfiður leikur, það fór mikil orka í leikinn á föstudaginn og bara tveir dagar á milli leikja þannig þetta var mjög erfitt,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson eftir 4-0 tap Íslands gegn Hollandi í gærkvöld.

Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, er sagður meðvitaður um stöðu sína hjá félaginu en vill ólmur vera þar áfram þrátt fyrir að Man Utd hafi skoðað þjálfaramarkaðinn í sumar.

Myndaveisla frá veisluhöldum Hollands í Rotterdam
Holland lagði Ísland 4-0 í vináttuleik en um var að síðasta leik Hollands áður en liðið heldur á EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi.

„Þreytuleg mistök og fáum þrjú mörk á okkur í seinni“
Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir það ekki góða tilfinningu að þurfa að sækja boltann fjórum sinnum í eigið net í einum og sama leiknum.

„Þreytumerki eftir að þeir skoruðu þriðja markið“
„Þetta var erfitt í kvöld, þeir eru drullu góðir. Fannst við inn í leiknum í langan tíma,“ sagði Hákon Arnar Haraldsson eftir 4-0 tap Íslands í Rotterdam.

„Þeir eru bara með gæði fram á við og í öllu liðinu“
„Þetta var vissulega mjög erfitt,“ sagði Valgeir Lunddal Friðriksson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, eftir 4-0 tap gegn Hollendingum í kvöld.

Åge eftir tapið í Rotterdam: Höfðum ekki sama hraða og á Wembley
„Það var mikið af þreyttum löppum þarna úti. Virkilega erfitt að spila á móti tveimur góðum landsliðum á svona stuttum tíma, aðeins þrír dagar á milli leikja,“ sagði Åge Hareide eftir 4-0 tap Íslands í Rotterdam í kvöld.