Fótbolti

Uppgjörið: Víkingur - Vestri 1-1 | Arnar sá rautt í jafntefli gegn Vestra
Víkingur tók á móti Vestra í 18. umferð Bestu deildarinnar í dag. Liðin á sitthvorum enda deildarinnar, Víkingur á toppnum en Vestri í 11. sæti og í bullandi fallbaráttu. Vestri þurfti á sigri að halda til að komast uppúr fallsæti en Víkingur sem eru einnig á fullu í Evrópukeppni þessa dagana þurftu á þremur stigum að halda til að halda í toppsætið.

Afmælisbarnið til Esbjerg
Danska B-deildarliðið Esbjerg hefur keypt miðjumanninn Breka Baldursson frá Fram.

Guðný skoraði sitt fyrsta mark fyrir Kristianstad
Íslendingalið Kristianstad laut í lægra haldi fyrir Norrköping, 1-3, í eina leik dagsins í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Fernandes mun gera nýjan samning við United
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur samþykkt að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Ten Hag styður Rashford eftir klúðrin gegn City
Knattspyrnustjóri Manchester United, Erik ten Hag, handviss um að Marcus Rashford nái sér aftur á strik eftir erfiða mánuði.

Belgískur miðjumaður í FH
FH hefur fengið belgíska miðjumanninn Robby Wakaka frá Gent. Hann samdi við FH út tímabilið með möguleika á framlengingu.

Kane neitaði að lyfta bikarnum gegn Tottenham
Þrátt fyrir að vera einn markheppnasti leikmaður í sögu enska boltans hefur framherjinn Harry Kane aldrei náð að lyfta bikar á loft. Hann fékk að vísu tækifæri til þess í gær en afþakkaði.

De Ligt og Mazraoui til United á morgun
Sagan endalausa um félagaskipti Matthijs de Ligt til Manchester United virðist loks ætla að taka enda ef eitthvað er að marka fréttaflutning knattspyrnuvéfréttarinnar Fabrizio Romano.

Markadrottning Lengjudeildarinnar á leið til Portúgal
Bandaríski framherjinn Emma Hawkins sem raðað hefur inn mörkum fyrir FHL í Lengjudeildinni í sumar er á leið til Damaiense í portúgölsku deildinni.

„Förum á æfingasvæðið og reynum að verja markið okkur betur“
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, snýr aftur norður tómhentur en lið hans tapaði 4-2 á móti Breiðabliki á Kópavogsvelli í dag.

Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 4-2 | Sanngjarn sigur Breiðabliks
Breiðablik tók á móti Þór/KA á Kópavogsvelli í dag og hafði betur í miklum markaleik. Leikar enduðu 4-2 fyrir Breiðablik og er liðið aðeins einu stigi frá toppliði Vals.

„Líklegast einn af okkar betri leikjum á tímabilinu“
Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, hrósaði sigri á Kópavogsvelli í dag. Blikar sigruðu Þór-KA í miklum markaleik og endaði leikurinn 4-2.

FHL upp í Bestu deildina
FHL tryggði sér í dag sæti í Bestu deild kvenna að ári þegar liðið lagði ÍBV örugglega 5-1. Þrjátíu ár eru liðin síðan lið frá Austurfjörðum lék síðast í efstu deild.

Spilaði sinn fyrsta leik á Íslandi í 18 ár
Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi, Aron Einars Gunnarsson, spilaði sinn fyrsta leik á Íslandi síðan 2006 þegar hann kom inn á sem varamaður í leik Þórs og Njarðvíkur í Lengjudeildinni í dag.

Fimmta Ólympíugull Bandaríkjakvenna í hús
Bandaríkin eru Ólympíumeistarar kvenna í knattspyrnu eftir að liðið lagði Brasilíu í úrslitleik nú rétt í þessu, 1-0. Liðið vann alla leiki sína á leikunum í ár.

„Við horfum ekki á úrslit heldur frammistöður“
John Andrews, þjálfari Víkings, var hæstánægður eftir 1-2 sigur síns liðs á Keflavík á HS Orku vellinum í dag í Bestu deild kvenna.

Fyrsti sigur Dalvíkur/Reynis síðan í fyrstu umferð
Dalvík/Reynir opnaði fallbaráttuna í Lengjudeildinni upp á gátt í dag þegar liðið lagði Gróttu á útivelli 2-3 en þetta var aðeins annar sigur liðsins í sumar og sá fyrsti síðan í fyrstu umferð.

City vann Samfélagsskjöldinn eftir vítakeppni
Manchester City vann Samfélagsskjöldinn eftir sigur á Manchester United í vítaspyrnukeppni, 7-6. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1.

Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-2 | Víkingar unnu suður með sjó
Keflavík fékk Víking í heimsókn í dag í Bestu deild kvenna. Var leikurinn liður í 16. umferð deildarinnar. Lauk leiknum með 1-2 sigri gestanna sem hafa þar með svo gott sem tryggt sig í efri hluta deildarinnar. Keflavík er enn í harðri fallbaráttu á botni deildarinnar.

Danskur miðjumaður til Vestra
Vestri, sem er í ellefta og næstneðsta sæti Bestu deildar karla, hefur samið við danska miðjumanninn Jeppe Pedersen. Hann samdi við Vestra út næsta tímabil.

Voru undir þegar klukkan sló níutíu mínútur en unnu samt
Sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Vito Hammershoy-Mistrati skoraði sigurmark Norrköping gegn Västerås. Lokatölur 2-1, Íslendingaliði Norrköping í vil.

Solanke dýrastur í sögu Spurs
Tottenham hefur fest kaup á enska framherjanum Dominic Solanke frá Bournemouth. Hann er dýrasti leikmaður í sögu Spurs en kaupverðið gæti farið upp í 65 milljónir punda.

Sterkt að fá systurina heim: „Hún er tilbúin“
Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks í Bestu deild kvenna í fótbolta, segir leikmenn liðsins spennta fyrir leik dagsins við Þór/KA. Blikakonur geta minnkað bil Vals á toppi deildarinnar í eitt stig með sigri.

Fordæmalaust mál á borði KSÍ
Fordæmalaus staða er uppi vegna aflýsingar á leik HK og KR í Bestu deild karla í fótbolta í fyrrakvöld. Mótastjóri Knattspyrnusambands Íslands segir málið í ferli.

„Mér fannst Þróttur ekki eiga rassgat skilið úr þessu leik“
Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Tindastóls var súr með úrslit kvöldsins en hans konur töpuðu á heimavelli 1-2 gegn Þrótti.

ÍR upp í fjórða sæti Lengjudeildarinnar
ÍR-ingar eru komnir í góða stöðu fyrir lokasprettinn í Lengjudeild karla en liðið lagði Þrótt 1-0 í Breiðholtinu í kvöld.

„Það venst illa að tapa fótboltaleikjum“
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, fór tómhentur heim úr Hafnarfirði í kvöld en Árbæingar töpuðu 3-1 á móti FH í Bestu deild kvenna.

„Þetta er vonandi ávísun á eitthvað gott“
Eftir fjóra tapleiki í röð gat Guðni Eiríksson, þjálfari FH, loksins fagnað sigri en Hafnfirðingar sigruðu Fylki 3-1 á Kaplakrikavelli í Bestu deild kvenna í kvöld.

„Það var búið að hvísla mér í eyrað að gera þetta“
Stjarnan batt í kvöld enda á sigurhrinu Vals í Bestu deild kvenna. Lauk leiknum með 1-1 jafntefli en Valur hafði leitt leikinn frá 13. mínútu og fram á lokamínútur hans.

Eyjamenn skoruðu þrjú mörk á fjórum mínútum
Eyjamenn gerðu frábæra ferð í Grafarvoginn í kvöld og nældu sér í þrjú dýrmæt stig í toppbaráttunni í Lengjudeild karla þegar liðið lagði Fjölni 1-5.