Fótbolti

Mikael Egill semur við Genoa en klárar tímabilið í Feneyjum
Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson ku vera búinn að semja við Genoa og gengur í raðir liðsins í sumar. Hann klárar þó tímabilið með Venezia.

Prestur sagði við Gakpo að hann myndi semja við Liverpool
Lykilmaður Liverpool fékk skilaboð frá æðri máttarvöldum löngu áður en dyrnar til Liverpool opnuðust. Í kvöld mætir hann sínu gamla félagi.

Man. United tók annað árið í röð efnilegan leikmann frá Arsenal
Stuðningsmenn Arsenal þurfa annað árið í röð að horfa á eftir efnilegum leikmanni yfir til Manchester United.

Freyr óttast það versta eftir leiðindaatvik á æfingu Brann
Það voru ekki góðar fréttir sem komu af einni af fyrstu æfingum norska félagsins Brann undir stjórn Freys Alexanderssonar.

Manchester United fær grænt ljóst fyrir Wembley norðursins
Loksins góðar fréttir af Manchester United segja sumir en nú er kominn einhver gangur í stærsta verkefni félagsins sem er að byggja nýjan leikvang á Old Trafford svæðinu.

Dagskráin í dag: Gummi með átján bolta á lofti á lokakvöldi
Það verður heldur betur hamagangur á Stöð 2 Sport 2 í kvöld þegar lokaumferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta fer fram. Átján leikir verða spilaðir á sama tíma.

Tólf leikmenn Liverpool fá hvíld: „Græðum aldrei á að tapa“
Stjórinn Arne Slot nýtur þeirra forréttinda að geta veitt öllum helstu stjörnum Liverpool hvíld annað kvöld, í lokaumferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, og ætlar að nýta sér það.

Jón Daði óstöðvandi á nýjum stað
Jón Daði Böðvarsson heldur áfram að fara á kostum með sínu nýja liði Burton Albion en hann skoraði í dísætum 3-2 sigri gegn Reading í ensku C-deildinni í fótbolta í kvöld.

Brynjólfur kláraði leik 38 dögum síðar
Brynjólfur Willumsson og félagar hans í Groningen tóku þátt í mjög óvenjulegum leik í kvöld þegar þeir spiluðu síðustu tólf mínúturnar í viðureign sinni við Heracles, í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Dani fyrstu kaup Amorim hjá Man. Utd
Manchester United er að ganga frá kaupum á danska vængbakverðinum Patrick Dorgu frá Lecce á Ítalíu.

Viðurkenna mistök og Arsenal-maðurinn laus við bann
Enska knattspyrnusambandið hefur dregið til baka þriggja leikja bannið sem til stóð að Myles Lewis-Skelly f engi eftir rauða spjaldið sem hann hlaut í leiknum gegn Wolves um helgina.

Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár
Eitt stærsta íþróttamót barna, Norðurálsmótið á Akranesi, heldur upp á fjörutíu ára afmæli sitt á þessu ári. Búist er við tæplega þrjú þúsund þátttakendum á mótinu.

Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“
FH-ingurinn Atli Guðnason, einn marka- og leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar, auglýsir eftir strákum á menntaskólaaldri á fótboltaæfingar. Um forvarnarverkefni er að ræða.

Leikmaður Athletic Bilbao stöðvaði vopnaði innbrotsþjófa
Alex Berenguer, leikmaður Athletic Bilbao, kom í veg fyrir að þrír grímuklæddir menn vopnaðir byssum brytust inn á heimili hans.

Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ
Víkingur og Stjarnan/Álftanes mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna í ár en þetta er staðfest á heimasíðu KSÍ.

Oliver dæmir um helgina þrátt fyrir morðhótanir
Michael Oliver dæmir leik í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi þrátt fyrir að hafa fengið morðhótanir eftir að hafa rekið Myles Lewis-Skelly, leikmann Arsenal, af velli í leik gegn Wolves á laugardaginn.

Segir enga leið til baka fyrir Rashford hjá United
Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir Marcus Rashford muni líklega ekki spila aftur fyrir liðið eftir nýjustu ummæli knattspyrnustjórans Rubens Amorim um framherjann.

Fór að gráta þegar hann skoraði
Ungur leikmaður í portúgalska fótboltanum sýndi miklar tilfinningar þegar hann opnaði markareikninginn sinn.

Komust yfir fjölda símanúmera leikmanna í ensku deildinni
Breska lögreglan hefur hafið rannsókn á því hvernig óprúttnir aðilar komust yfir fjölda símanúmera hjá leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

City búið að eyða meira en öll hin liðin til samans
Tæp vika er þar til enski félagaskiptaglugginn lokar. Nú þegar hafa liðin í ensku úrvalsdeildinni eytt meira en tvöfaldri þeirri upphæð sem eytt var í janúar í fyrra.

Biðst afsökunar á hegðun sinni og kemur út úr skápnum
Fyrrum knattspyrnudómarinn David Coote hefur beðist afsökunar á hegðun sinni en Coote var rekinn af ensku úrvalsdeildinni í desember fyrir margvísleg brot á samningi.

Villa berst við nágrannana um Disasi
Varnarmaðurinn Axel Disasi er sagður hafa náð munnlegu samkomulagi við Aston Villa í tengslum við fyrirhuguð félagaskipti frá Chelsea. Fleiri félög í úrvalsdeildinni eru áhugasöm um Frakkann öfluga.

Njósnarar enskra stórliða sáu Hákon skína skært
Hákon Arnar Haraldsson hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með liði Lille á leiktíðinni. Í leik gegn Nice í frönsku deildinni á dögunum voru njósnarar enskra stórliða í stúkunni að fylgjast með.

Dýrmæt stig í súginn hjá Venezia
Íslendingalið Venezia missti af góðu tækifæri að laga stöðu sína í botnbaráttu Serie A á Ítalíu í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Verona á heimavelli.

Xabi vill sækja liðsstyrk til Pep
Xabi Alonso og lærisveinar hans í Bayer Leverkusen sitja í 2. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu og eru sex stigum á eftir toppliði Bayern Munchen. Spánverjinn klóki vill styrkja liðið og hefur augastað á leikmanni Manchester City.

Segir VAR ekki hafa þorað að snupra Oliver
Ákvörðun dómara í leik Arsenal og Wolves að reka Myles Lewis-Skelly af velli hefur fengið mikla gagnrýni. Sérfræðingur Sky Sports segir VAR-dómara ekki hafa þorað að snúa ákvörðun Michael Oliver við.

Lék ungan Messi og fer nú á kostum með argentínska landsliðinu
Það muna sumir eftir Valentino Acuna þegar hann lék ungan Lionel Messi í spænskri heimildarmynd um upphafár Messis í fótboltanum. Nú er strákurinn orðinn stór og sjálfur farinn að raða inn mörkun í argentínska landsliðsbúningnum.

Nainggolan handtekinn vegna rannsóknar á kókaínsmygli
Fyrrverandi landsliðsmaður Belgíu í fótbolta, Radja Nainggolan, hefur verið handtekinn vegna rannsóknar á kókaínsmygli.

Þjálfari AC Milan um lætin í gær: Þetta er ekki kirkja
Sergio Conceicao, þjálfari AC Milan, ræddi lætin sem urðu í leik liðsins í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Þegar liðið fagnaði sigurmarki lenti honum saman við einn leikmann sinn.

Fékk gult spjald fyrir að herma eftir mávi
Iliman Ndiaye var hetja Everton gegn Brighton þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Hann skoraði eina mark leiksins og fékk gult spjald fyrir að fagna því á óviðeigandi hátt að mati dómarans.