Erlent „
143 144 145 146 147 148 149 150 151 … 334 ›
„Njósnamjaldurinn“ skýtur upp kollinum í Svíþjóð Sænsk yfirvöld klóra sér nú í kollinum yfir því hvað þau eigi að gera með mjaldurinn Hvaldímír, grunaðan njósnara í þjónustu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, eftir að hann lét sjá sig við strendur landsins nýlega. Talið er að mjaldurinn sækist enn eftir samskiptum við menn. Erlent 30.5.2023 11:48
Söngvari Rammstein sakaður um byrlun Kona að nafni Shelby Lynn hefur sakað Till Lindemann, söngvara þýsku þungarokkshljómsveitarinnar Rammstein, um byrlun. Í yfirlýsingu hljómsveitarinnar er ásökununum hafnað. Erlent 30.5.2023 11:02
Stofnandi Theranos hefur afplánun Elizabeth Holmes, stofnandi fallna blóðrannsóknafyrirtækisins Theranos, hefur afplánun á ellefu ára fangelsisdómi í kvennafangelsi í Texas í dag. Henni var hafnað um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar dómnum. Erlent 30.5.2023 09:49
Neyddist til að láta soninn fjúka í kjölfar hneykslismáls Fumio Kishida, forsætisráðherra Japan, hefur neyðst til að láta son sinn fjúka eftir að myndir fóru í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem sonurinn og aðrir ættingjar sjást fíflast í forsætisráðherrabústaðnum. Erlent 30.5.2023 09:22
Tugir friðargæsluliða særðust í átökum í Kósovó Um þrjátíu friðargæsluliðar á vegum Atlantshafsbandalagsins særðust í hörðum átökum við Serba í norðanverðu Kósovó í gær. Átökin blossuðu upp þegar hópur manna af serbneskum uppruna reyndi að koma í veg fyrir að nýlega kjörnir fulltrúar af albönskum uppruna kæmust á skrifstofur sínar. Erlent 30.5.2023 09:10
Rússar gefa út handtökuskipun á hendur glaðbeittum Graham Rússar hafa gefið út handtökuskipun á hendur bandaríska öldungadeildarþingmanninum Lindsey Graham, sem virðist í klipptu myndskeiði fagna dauða rússneskra hermanna. Erlent 30.5.2023 07:46
Forseti Cop28 sakaður um „grænþvott“ á Wikipedia Sultan Al Jaber, forseti loftslagsráðstefnunnar Cop28, hefur verið sakaður um að „grænþvo“ upplýsingar um sjálfan sig á Wikipedia, meðal annars síður þar sem fjallað er um störf hans sem framkvæmdastjóri Abu Dhabi National Oil Company (ADNOC). Erlent 30.5.2023 07:05
Drónaárásir á Kænugarð og Moskvu í nótt Drónaárásir voru gerðar á Kænugarð í Úkraínu og Moskvu í Rússlandi í nótt. Einn lést og nokkrir særðust í Kænugarði, þar sem hermálayfirvöld sögðust hafa skotið niður yfir 20 dróna. Erlent 30.5.2023 06:41
Hræðileg afturför fyrir réttindi hinsegin fólks Framkvæmdastjóri Samtakanna '78 segir nýsamþykkt lög um samkynhneigða í Úganda þau hættulegustu í heimi í dag fyrir hinsegin fólk og geri það nánast réttdræpt. Ísland á í þróunarsamstarfi við Úganda, en utanríkisráðherra segir samskipti við ríki þar sem grundvallarmannréttindi eru ekki virt, alltaf vera flókin. Erlent 29.5.2023 23:33
Fimmtán ára stúlka ákærð fyrir nítján morð Fimmtán ára gvæjönsk stúlka hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt átján skólasystur sínar og fimm ára dreng í síðustu viku, með því að hafa lagt eld að heimavistarskóla. Hún gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Erlent 29.5.2023 23:24
Laug til um ástarsamband við mun yngri samstarfsmann Breski sjónvarpsmaðurinn Phillip Schofield hefur hætt störfum hjá sjónvarpsstöðinni ITV eftir að upp komst um ástarsamband hans við mun yngri karlmann, sem vann á stöðinni. Samstarfsfólk segir hann lygara og haldinn ranghugmyndum. Erlent 29.5.2023 15:28
Gröf Vivienne Westwood vanhelguð Gröf hinnar goðsagnakenndu Vivienne Westwood, sem lést á síðasta ári, var vanhelguð þegar stóru blómakeri, sem skreytti grafreit hennar, var stolið. Fjöldi fólks hefur lýst yfir hneykslan sinni vegna þjófnaðarins. Erlent 29.5.2023 14:53
Dauðarefsingar og tuttugu ára dómar við samkynhneigð í Úganda Yoweri Museveni, forseti Úganda, hefur skrifað undir lög sem fela í sér eina mestu skerðingu á réttindum hinsegin fólks í heiminum. Með lögunum geta þeir sem „auglýsa“ samkynhneigð átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi og þeir sem stunda samkynja kynlíf sýktir af HIV geta hlotið dauðarefsingu. Erlent 29.5.2023 10:20
Þrír látnir eftir að bát hvolfdi í stormviðri Þrír hafa verið úrskurðaðir látnir og eins er enn saknað eftir að bát hvolfdi í skyndilegu stormviðri á Maggiore-vatni á Ítalíu í gær. Nítján hefur verið bjargað. Erlent 29.5.2023 08:58
Bylgja drónaárása á Kænugarð Í nótt gerðu Rússar enn sprengjuárásir með notkun dróna á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Erlent 29.5.2023 08:36
Spænskt þorp afgreiddi kosningar á hálfri mínútu Sveitarstjórnarkosningar standa nú yfir á Spáni. Sjö íbúar þorpsins Villaroya bættu eigið met í dag með því að klára kosningarnar á 29 sekúndum og 52 sekúndubrotum. Erlent 28.5.2023 20:55
Sigur Erdogans staðfestur Recep Tayyip Erdogan var í dag endurkjörinn forseti Tyrklands. Hann verður forseti í fimm ár til viðbótar og mun þá hafa verið í embætti í aldarfjórðung. Hann hafði betur gegn mótframbjóðandanum Kemel Kilicdaroglu í seinni umferð forsetakosninga. Erlent 28.5.2023 20:38
Náðu samkomulagi til að forða Bandaríkjunum frá greiðsluþroti Joe Biden Bandaríkjaforseti og Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hafa náð samkomulagi um hækkun skuldaþaks Bandaríkjanna eftir stífar samningaviðræður undanfarið. Verði samningur þeirra ekki samþykktur af báðum deildum þingsins fara Bandaríkin í greiðsluþrot eftir rúma viku. Erlent 28.5.2023 19:06
Stefnir í fimmta kjörtímabil Erdogan Þrátt fyrir að það sé mjótt á munum í seinni umferð forsetakosninganna í Tyrklandi stefnir allt í að Erdogan Tyrklandsforseti nái enn einu sinni endurkjöri. Forsetatíð Erdogan er orðin tuttugu ár og hann verður áfram forseti næstu fimm árin ná hann endurkjöri. Hann ávarpaði stuðningsmenn sína fyrir skömmu og lýsti yfir sigri í kosningunum. Erlent 28.5.2023 17:05
Björguðu 250 kg manni út af heimili sínu Slökkviliðið í Barcelona þurfti að hjálpa 250 kílóa manni að komast út úr íbúð sinni í vikunni. Maðurinn hafði ekki farið út úr íbúðinni sinni síðan fyrir Covid-faraldurinn. Erlent 28.5.2023 15:00
Fyrsta áætlunarflug kínverskrar farþegaþotu Farþegaþota smíðuð af kínverskum flugvélaframleiðenda flaug fyrsta áætlunarflug sitt frá Sjanghæ til Peking á sunnudag. Kínverjar hyggjast veita risum á borð við Boeing og Airbus samkeppni á flugvélamarkaði með vélinni. Erlent 28.5.2023 11:41
Útfararstjóri játar að hafa stolið rúmlega þrjátíu rotnandi líkum Útfararstjóri í Indiana hefur játað sekt í yfir 40 ákæruliðum þjófnaðar eftir að rotnandi lík rúmlega þrjátíu einstaklinga fundust á útfararstofu hans. Maðurinn gæti átt yfir höfði sér tólf ára dóm og þarf að greiða 53 fjölskyldum skaðabætur. Erlent 28.5.2023 10:44
Ríkisstjórn Noregs setur skipagöngin í biðstöðu Norska ríkisstjórnin hefur sett undirbúning fyrstu skipaganga heims í biðstöðu. Til stóð að hefja verkið á þessu ári en núna hefur ákvörðun um framhaldið verið vísað til fjárlagagerðar næsta árs. Erlent 28.5.2023 10:44
Stór drónaárás á Kænugarð í nótt Rússar gerðu stóra drónaárás á höfuðborgina Kænugarð í nótt. Loftvarnarkerfi skaut hins vegar niður meirihlutann. Erlent 28.5.2023 07:55
Ríflega 1500 loftslagsmótmælendur handteknir Lögreglan í Haag í Hollandi handtók í dag 1579 aðgerðarsinna sem reyndu að teppa hraðbraut í nafni loftslagsaðgerða. Flestum þeirra var að lokum sleppt en líklegt er að fjörutíu þeirra verði sóttir til saka fyrir aðgerðir sínar í dag. Meðal mótmælenda var þekkt hollensk leikkona. Erlent 27.5.2023 21:54
Svangur svartbjörn stal sætabrauði Svangur svartbjörn braust inn í bílskúr bakarís í bænum Avon í Connecticut-ríki í Bandaríkjunum fyrir helgi. Hann hræddi starfsfólk bakarísins sem náði þó að hrekja hann í burtu án þess að neinn slasaðist. Björninn hafði þó á brott með sér nóg af bollakökum sem hann át á bílastæðinu. Erlent 27.5.2023 17:05
Forsetinn segir af sér sem flokksformaður vegna ólgu Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, hefur sagt af sér formennsku Framfaraflokksins í skugga mikilla mótmæla. Varnarmálaráðherrann Milos Vucevic tekur við formennskunni að ósk Vucic. Erlent 27.5.2023 15:00
Pink Floyd stjarna til rannsóknar vegna búnings Lögreglan í Þýskalandi hefur opnað sakamálarannsókn á breska tónlistarmanninum Roger Waters, fyrrverandi meðlim hljómsveitarinnar Pink Floyd. Er honum gefið að sök að hafa klæðst búning á sviði sem minnir á einkennisbúning nasista. Erlent 27.5.2023 09:27
Fjögur þúsund kvartað yfir draugabremsun Bílaframleiðandinn Tesla hefur fengið þúsundir kvartana vegna aðstoðarkerfis ökumanna. Einnig hefur fyrirtækinu mistekist að verja upplýsingar um viðskiptavini og starfsmenn. Erlent 27.5.2023 08:24
Ákæra dómsmálaráðherra Texas fyrir embættisbrot Ríkisþingmenn í Texas tóku í gær skref í því að ákæra Ken Paxton, dómsmálaráðherra ríkisins, fyrir embættisbrot og spillingu. Ákæran er í tuttugu liðum en Paxton hefur um árabil verið viðloðinn ýmis hneykslismál. Erlent 26.5.2023 16:54