Erlent
325 326 327 328 329 330 331 332 333 … 334 ›
Fauci varar við ferðalögum um jólin og segir ómíkron ógna heilbrigðiskerfinu Anthony Fauci, sóttvarnalæknir Bandaríkjanna, varar við því að ferðalög fólks landshluta á milli yfir jólahátíðina muni verða til þess að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar mun dreifast mun meira um Bandaríkin en ella, jafnvel á meðal þeirra sem eru fullbólusettir. Erlent 20.12.2021 07:05
Að minnsta kosti 208 látnir og eyðileggingin gríðarleg Dánartalan af völum ofur-fellibylsins Rai sem reið yfir Filippseyjar á fimmtudag hefur hækkað mikið um helgina en nú er talið að 208 hið minnsta hafi látið lífið í óveðrinu. Erlent 20.12.2021 06:36
Þúsundir fallið í árásum byggðum á slæmum upplýsingum og illa ígrunduðum ákvörðunum Drónahernaður Bandaríkjamanna hefur oftsinnis byggt á gölluðum upplýsingum og illa ígrunduðum ákvörðunum um árásir. Af þessum sökum hafa þúsundir almennra borgara látið lífið, þeirra á meðal mörg börn. Erlent 19.12.2021 11:31
Þjóðverjar skikka Breta í sóttkví Stjórnvöld í Þýskalandi hafa tekið ákvörðun um að skikka ferðalanga frá Bretlandi í sóttkví við komuna til Þýskalands. Takmarkanirnar taka gildi á morgun, mánudag. Erlent 19.12.2021 10:09
Sjötta barnið látið eftir hoppukastalaslysið Lögregluyfirvöld í Tasmaníu í Ástralíu hafa greint frá því að sjötta barnið sé látið eftir hoppukastalaslys sem átti sér stað á fimmtudag. Ellefu ára drengur lést á spítala í morgun en áður hafði verið greint frá því að ellefu ára barn og fjögur 12 ára hefðu látist. Erlent 19.12.2021 09:46
Maður barinn til dauða fyrir meint helgispjöll á Indlandi Karlmaður var barinn til dauða í indversku borginni Amritsar, grunaður um að hafa framið helgispjöll í Gullna hofinu. Hofið er heilagasti helgidómur Síka en atvikið átti sér stað þegar Síkar voru við bænir í hofinu. Erlent 19.12.2021 08:11
Meira en tíu þúsund ómíkron-smitaðir í Bretlandi Enn eru met slegin í fjölda kórónuveirusmita í Bretlandi. Borgarstjóri Lundúna hefur nú lýst yfir alvarlegu ástandi (e. major incident). Yfir 93.000 manns greindust með kórónuveiruna í Bretlandi landi í gær og fjöldi ómíkron-smitaðra er kominn upp í tíu þúsund. Erlent 19.12.2021 07:28
Brexitmálaráðherra segir af sér og staða Johnson sögð veik David Frost Brexitmálaráðherra hefur sagt af sér embætti. Brotthvarf hans úr ríkisstjórn er talið veikja stöðu Borisar Johnson forsætisráðherra enn meira en nokkurrar óánægju hefur gætt með hann innan Íhaldsflokksins upp á síðkastið. Erlent 18.12.2021 23:37
Rússar krefjast þess að NATO hverfi frá austur Evrópu Á sama tíma og rússneski herinn er grár fyrir járnum við landamærin að Úkraínu krefjast Rússar þess að NATO herir megi nánast ekki athafna sig í bandalagsríkjum Atlantshafsbandalagsins í austur Evrópu. Úkraínumenn vilja hins vegar kasta sovéttímanum á öskuhauga sögunnar. Erlent 18.12.2021 19:40
Hræðast að tugir hafi látist vegna „ofurfellibyljar“ Talið er að minnst þrjátíu hafi farist á Filippseyjum eftir að ofurfellibylurinn Rai reið yfir í gær og í dag. Tuga er enn saknað. Erlent 18.12.2021 14:23
Hvert Evrópuríkið á fætur öðru skellir í lás fyrir jólin Hvert Evrópuríkið á fætur öðru grípur til hertra sóttvarnaaðgerða fyrir jólin vegna þess að ómíkron afbrigði kórónuveirunnar dreifir sér með leifturhraða um álfuna. Erlent 18.12.2021 13:40
Biden fær að skylda starfsfólk í bólusetningu Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum hafa nú kveðið á um að Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, verði heimilt að skylda starfsmenn stærri fyrirtækja í bólusetningu gegn kórónuveirunni. Ákvörðunin gæti haft áhrif á um 84 milljónir manna. Erlent 18.12.2021 12:40
Maxwell neitaði að bera vitni Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, vildi ekki bera vitni í dómsal í dag. Verjendur hennar luku vörnum sínum í dag en undanfarna daga hefur hann að mestu snúist um að grafa undan vitnisburði þeirra fjögurra kvenna sem hafa borið vitni gegn Maxwell. Erlent 17.12.2021 23:36
Fórnarlömb GirlsDoPorn eiga klámmyndböndin sjálfar Konur sem voru plataðar og þvingaðar til að gera klámmyndbönd fyrir vefsíður sem kölluðust GirlsDoPorn og GirlsDoToys eiga höfundaréttinn á myndböndunum. Því getur fólkið krafist þess að þau verði fjarlægð af netinu og sektað fyrirtæki og einstaklinga sem neita að verða við þeim kröfum. Erlent 17.12.2021 22:44
Umdeildu Alzheimer-lyfi hafnað í Evrópu Evrópska lyfjastofnunin hefur hafnað því að veita bandaríska lyfjafyrirtækinu Biogen markaðsleyfi fyrir nýju en umdeildu Alzheimer-lyfi sem kom á markaðinn í Bandaríkjunum í sumar. Erlent 17.12.2021 13:59
Mæla með notkun annarra bóluefna fram yfir efnið frá Johnson & Johnson Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur ráðlagt notkun annarra bóluefna fram yfir bóluefnið frá Johnson & Johnson vegna blóðsegavandamála, sem eru talin hafa valdið níu dauðsföllum í Bandaríkjunum. Erlent 17.12.2021 12:49
Nokkrar Afríkuþjóðir næstum alveg óbólusettar Austur-Kongó, Búrúndí, Kamerún, Tjad og Malí eru meðal þeirra ríkja þar sem fæstir eru bólusettir. Í Evrópu hafa bólusetningar gengið hvað hægast í Búlgaríu, Moldavíu og Bosníu og Hersegóvínu. Erlent 17.12.2021 11:54
Jólahafurinn í Gävle varð eldi að bráð í nótt Jólageitin í sænska bænum Gävle brann til ösku í nótt. Karlmaður upp úr fertugu hefur verið handtekinn grunaður um verknaðinn. Erlent 17.12.2021 08:51
Lögregla fær heimild til að leggja hald á síma Baldwin Lögregluyfirvöld sem hafa dauða Halynu Hutchins til rannsóknar hafa fengið heimild til að leggja hald á síma Alec Baldwin. Segja þau mögulegt að sönnunargögn er varða atvikið á tökustað kvikmyndarinnar Rust sé að finna á símanum. Erlent 17.12.2021 07:51
27 látnir og lögreglu grunar íkveikju Talið er að allt að 27 hafi látið lífið eftir að eldur kom upp í byggingu í miðborg Osaka í Japan. Lögregla rannsakar nú málið en grunur leikur á að kveikt hafi verið í af yfirlögðu ráði. Erlent 17.12.2021 07:42
Konur geta nú fengið „þungunarrofspilluna“ senda heim Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur heimilað heimsendingu lyfs sem stuðla að þungunarrofi. Konur hafa á þessu ári getað fengið lyfið send heim vegna kórónuveirufaraldursins en undanþágan hefur nú verið gerð varanleg. Erlent 17.12.2021 06:52
Skutu niður fyrsta skotmarkið í fjörutíu ár Flugmaður orrustuþotu breska flughersins skaut nýverið niður dróna sem verið var að fljúga nærri herstöð í Sýrlandi. Þetta var í fyrsta sinn sem bresk orrustuþota skýtur niður skotmark frá því í Falklandseyjastríðinu fyrir tæpum fjörutíu árum. Erlent 16.12.2021 23:46
Mr. Big sakaður um nauðgun af tveimur konum Leikarinn Chris Noth, sem er þekktastur fyrir að leika Mr. Big í sjónvarpsþáttunum Beðmál í borginni, hefur verið sakaður um nauðgun af tveimur konum. Noth tekur fyrir þetta og segir konurnar hafa samþykkt að stunda með sér kynlíf. Erlent 16.12.2021 20:50
Enn einn metdagurinn og Frederiksen boðar hertar aðgerðir Alls greindust 9.999 manns með kórónuveiruna í Danmörku síðasta sólarhring. Aldrei áður hafa svo margir greinst á einum sólarhring í landinu frá upphafi faraldursins, en tilkynnt hefur verið um hvern metdaginn á fætur öðrum í Danmörku síðustu daga. Erlent 16.12.2021 13:19
Segja foreldra þurfa að eiga samtal við börn um klám fyrir 10 ára aldur Foreldrar þurfa að byrja að ræða klám við börn þegar þau eru 8 eða 9 ára gömul, segja breskir unglingar. Umboðsmaður barna á Englandi átti samráð við ungmenni við samningu leiðbeininga fyrir foreldra þegar þeir ræða um kynlíf við börnin sín. Erlent 16.12.2021 12:28
Um 200 þúsund gert að yfirgefa heimili sín vegna fellibyljarins Rai Ofurfellibylurinn Rai, sem heimamenn kalla Odette, skall á austurströnd Filippseyja á fimmtudag og færði með sér úrhellisrigningu sem óttast er að geti leitt til mikilla flóða. Erlent 16.12.2021 11:43
Sautján ára fangelsi fyrir að bana unnusta móður sinnar í Torrevieja Íslenskur karlmaður, Guðmundur Freyr Magnússon, var í síðustu viku dæmdur í sautján ára fangelsi á Spáni fyrir að verða 66 ára unnusta móður sinnar að bana á heimili þeirra í Torrevieja á Spáni í janúar á síðasta ári. Erlent 16.12.2021 08:42
Danir vilja leigja þrjú hundruð fangelsispláss í Kósovó Dönsk stjórnvöld ætla sér að taka upp viðræður við stjórnvöld í Kósovó um leigu á alls þrjú hundruð fangelsisplássum í Kósovó. Hugmyndin er liður í áætlun dönsku stjórnarinnar að tryggja þúsund ný fangelsispláss. Erlent 16.12.2021 07:57
Bretar fá afar misvísandi skilaboð um hegðun í aðdraganda jóla Bretar fá nú misvísandi skilaboð frá yfirvöldum en á sama tíma og Boris Johnson forsætisráðherra hefur sagt að fólk eigi ekki að þurfa að hætta við boð í aðdraganda jóla hvetur Chris Whitty, yfirmaður heilbrigðismála, fólk til að hitta ekki aðra en nána aðstandendur. Erlent 16.12.2021 06:56
Fjögur börn látin og fimm slösuð eftir hoppukastalaslys í Ástralíu Fjögur börn eru látin og fimm slösuð eftir að þau féllu úr hoppukastala sem fauk upp í loft þegar sterk vindhviða hrifsaði hann með sér. Slysið átti sér stað við leikskóla í Devonport í Tasmaníu í Ástralíu. Erlent 16.12.2021 06:32